Fréttablaðið - 09.07.2011, Qupperneq 2
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR2
SAMGÖNGUR „Þetta er ekki til fyrir-
myndar,“ segir Einar Kristjáns-
son, hjá skipulags- og þróunar-
sviði Strætós, um tvær biðstöðvar
á Vesturlands vegi.
Aðstæður við biðstöðvarnar
tvær verða seint kallaðar góðar. Sú
norðanmegin götunnar, við Viðar-
höfða, stendur þétt við akbrautina
og engin leið er að henni nema upp
brattan grasbala. Vandséð er að
fatlaðir, fólk með barnavagna eða
aðrir sem komast ekki óhindrað
leiðar sinnar geti með góðu móti
tekið strætisvagn til eða frá stöð-
inni.
Hinum megin götunnar, hjá
bensín stöð Skeljungs, er biðstöðin
sömuleiðis svo þétt við fjölfarinn
Vesturlandsveginn að varla nokkuð
skilur farþegana frá götunni annað
en kantsteinninn.
Einar bendir á að Strætó hafi lítið
um biðstöðvarnar sjálfar að segja,
þær séu á forræði hvers sveitar-
félags fyrir sig. „En við vinnum
þetta mjög náið með sveitar-
félögunum og höfum í tæp fjögur ár
verið að berjast fyrir breytingum
á þessum stöðvum á Vesturlands-
veginum,“ segir Einar.
„Vandræðin liggja í því að
Vesturlands vegurinn er ríkisvegur
innan þéttbýlis. Reykjavíkurborg
og Vegagerðin þurfa þess vegna að
ná samkomulagi um þessi mál og
við erum í rauninni bara lúsin milli
tveggja nagla,“ bætir hann við.
Einar segir hins vegar að nýlega
hafi borist bréf frá borginni þar
sem lausn sé sögð í sjónmáli. Búið
sé að teikna upp nýja biðstöð norðan
megin og gera tillögu um að færa
þá sunnan megin niður á Viðar-
höfða. „Það mun hins vegar tefja
vagninn og svo mikið að við vitum
ekki alveg hvort við getum sett það
inn í okkar áætlun,“ segir hann.
„Við höfum helst viljað leggja
þessa biðstöð niður,“ segir Einar.
Það sé hins vegar ekki ákvörðun
Strætós og biðstöðin sé töluvert
notuð. Vonandi hilli hins vegar
undir lausn. Strætó fundi reglulega
með framkvæmdaráði borgarinnar.
„Og þessar biðstöðvar eru allt-
af með á hverjum einasta fundi
og verða það þangað til lausnin er
fundin.“ stigur@frettabladid.is
VONDAR AÐSTÆÐUR Á efri myndinni má sjá farþega bíða eftir vagni á biðstöðinni
norðan Vesturlandsvegar. Þeir sem standa lengst til vinstri skýla sér fyrir umferðinni á
bak við vegrið. Á neðri myndinni má sjá brekkuna sem farþegar þurfa að klífa til að
komast í strætó. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Varasamar biðstöðvar
þyrnir í augum Strætó
Strætó hefur í tæp fjögur ár barist fyrir því að fá biðstöðvum við Vesturlandsveg
breytt. Aðgengi er afleitt og farþegar bíða nokkra sentímetra frá hraðri umferð.
Strætó linnir ekki látum fyrr en ástandið lagast. Borgin segir lausn í sjónmáli.
BANDARÍKIN, AP Bandaríska geim-
ferjan Atlantis hélt í gær af stað
í síðustu ferð sína út í geiminn.
Jafnframt er þetta síðasta ferð
bandarískra geimferja. Notkun
þeirra verður nú hætt, rúmlega
þrjátíu árum eftir að fyrstu geim-
ferjunni var skotið út í geim.
Fjórir geimfarar eru með í
þessari ferð, sem er heitið til
alþjóðlegu geimstöðvarinnar.
Ferðin tekur tólf daga. Eftir það
verður ferjan til sýnis í banda-
rísku geimferðamiðstöðinni á
Canaveral-höfða í Flórída. - gb
Síðasta geimferjuskotið:
Atlantis fór upp
í geiminn í gær
BEINT UPP Í LOFT Geimferjan Atlantis fór
á loft í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Snögg ehf. var stofnað 1967
og hefur alla tíð verið til húsa í
Suðurveri. Veitum samdægurs
þjónustu ef þess er þörf.
Opið mánudaga til föstudaga
kl. 08–18.
50 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
í krafti fjöldans
190 kr. GILDIR 24 TÍMA
590 kr 68% 400 kr.
Kristján, verður ekki næst
boðið upp á relax?
„Nei, við höldum bara áfram að
guðlaxa, lagsmaður.“
Kristján Berg í Fiskikóngnum bauð
viðskiptavinum sínum upp á guðlax í
verslun sinni í gær.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Suður-
lands hefur vísað frá kröfu Páls
Reynissonar, forstöðumanns
Veiðisafnsins, þess efnis að
honum verði afhentar um níutíu
byssur sem lögregla lagði hald á
um síðustu helgi á heimili hans. Í
húsinu er jafnframt Veiðisafnið.
Lagt var hald á byssusafnið
eftir að maðurinn hafði hleypt af
skammbyssum sem hann handlék
þegar lögregla kom á vettvang.
Héraðsdómur hafnaði afhendingu
þeirra enda hafði maðurinn verið
sviptur skotvopnaleyfi til bráða-
birgða. - jss
Forstöðumaður Veiðisafnsins:
Fær ekki byssu-
safnið til baka
GENF, AP Mannréttindafulltrúi
Sameinuðu þjóðanna, Navi Pillay,
telur að Bandaríkin hafi brotið
alþjóðalög þegar mexíkóskur
maður var tekinn af lífi í ríkis-
fangelsi í Texas. Pillay segir
að með því að taka mexíkóskan
ríkisborgara af lífi í bandarísku
fangelsi vakni upp margar spurn-
ingar varðandi réttindi erlendra
einstaklinga í landinu.
Barack Obama Bandaríkja-
forseti fór fram á að aftökunni
yrði frestað. Beiðni forsetans var
hafnað af Hæstarétti Bandaríkj-
anna.
Maðurinn var dæmdur til
dauða árið 1994 fyrir að nauðga
og myrða bandaríska tánings-
stúlku. - sv
Mexíkói tekinn af lífi í Texas:
Beiðni Obama
var hunsuð
UTANRÍKISMÁL Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra var á ferð
um Vesturbakkann og Jerúsalem
í gær að kynna sér aðstæður. Hann
segir þær skelfilegar.
„Ég hef sérstaklega verið að
kynna mér þetta svokallaða land-
nám Ísraela og það er engum blöð-
um um það að fletta að þeir þjarma
kerfisbundið að Palestínumönn-
um á þessum slóðum. Það kerfi
sem þeir hafa sett hér upp minnir
óhuggulega mikið á aðskilnaðar-
stefnuna í Suður Afríku á sínum
tíma.“
Össur fundaði á fimmtudag með
Riad Al Malki, utanríkisráðherra
Palestínustjórnar, og tjáði honum
að þjóðstjórn Fatah og Hamas
væri forsenda þess að vinir Palest-
ínumanna í Evrópu gætu stutt þá
með eins miklum þunga og mögu-
legt væri.
„Ég sagði honum sömuleiðis að
ef fram kæmi tillaga á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna í haust,
að þeirra undirlagi, um að lýsa yfir
stuðningi við Palestínu sem full-
valda ríki, miðað við landmær-
in 1967, þá mundi Ísland styðja
hana.“
Eins mundi Ísland styðja tillögu
um að Palestína yrði tekin inn í
Sameinuðu þjóðirnar, en Barack
Obama, forseti Bandaríkjanna,
hefur lýst því yfir að hann vonist
til þess að svo verði.
Össur afhenti utanríkis-
ráðherranum yfirlýsingu, svo-
kallaða diplómatanótu eða skrif-
lega yfirlýsingu, þess efnis að
Ísland mundi hækka stöðu palest-
ínsku sendinefndarinnar gagnvart
Íslandi, sem hefur aðsetur í Ósló,
upp í formlega sendiskrifstofu.
Það þýðir að yfirmaður hennar
hefur titilinn sendiherra gagnvart
Íslandi, án þess að hafa formlegar
skuldbindingar.
„Með þessu erum við að sýna
stuðning okkar við palestínsku
þjóðina í verki,“ segir Össur. - kóp
Íslendingar munu styðja tillögu um sjálfstætt ríki Palestínu:
Líkir meðferð Ísraela við apartheid
UTANRÍKISRÁÐHERRA Össur hitti utan-
ríkisráðherra Palestínustjórnar í gær.
Hann segir meðferð Ísraela á Vestur-
bakkanum helst líkjast aðskilnaðar-
stefnunni í Suður-Afríku.
Reykjavíkurborg og
Vegagerðin þurfa
þess vegna að ná samkomu-
lagi um þessi mál og við
erum í rauninni bara lúsin
milli tveggja nagla.
EINAR KRISTJÁNSSON
STARFSMAÐUR STRÆTÓS
DÓMSMÁL Karlmaður sem játað
hefur að hafa smyglað til lands-
ins nær fjórum kílóum af mjög
sterku amfetamíni skal sæta
gæsluvarðhaldi til 26. júlí. Hæsti-
réttur hefur staðfest dóm héraðs-
dóms þessa efnis.
Málið hefur verið sent til ríkis-
saksóknara, sem gefur út ákæru
á næstunni. Maðurinn hefur sætt
gæsluvarðhaldi frá 14. júní. - jss
Nær fjögur kíló amfetamíns:
Dópsmyglari
áfram í gæslu
Þrír á slysadeild
Þrír voru fluttir á slysadeild eftir
árekstur sem varð á Suðurlandsvegi
við afleggjarann að Hafravatni um
klukkan tvö í gær. Slysið varð með
þeim hætti að jeppi og jepplingur
skullu saman og valt önnur bifreiðin.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SAMGÖNGUR Í utanríkisráðuneytinu
er það nú til vandlegrar skoðunar
hvort fyrirhugað lendingarbann
herflugvéla á Reykjavíkur flugvelli
sé mögulegt og í samræmi við
alþjóðlegar skuldbindingar Íslend-
inga.
Í drögum að samkomulagi á
milli Jóns Gnarr borgarstjóra og
Ögmundar Jónassonar innanríkis-
ráðherra segir að unnið skuli með
það að leiðarljósi að banna umferð
herflugvéla og flug í þágu her-
tengdrar starfsemi um flugvöllinn
nema þegar hann þjónar hlutverki
sem varaflugvöllur.
Lendingarleyfi allra flug-
véla erlendra ríkisstjórna, þar á
meðal herflugvéla, eru hins vegar
afgreidd af utanríkisráðuneytinu.
Fréttablaðið falaðist eftir skoð-
un á málinu hjá ráðuneytinu og
hvort starfsmenn þess teldu bann
af þessu tagi myndu brjóta í bága
við alþjóðlegar skuldbindingar.
Urður Gunnarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi ráðuneytisins, segir
málið flókið, þar sem málaflokk-
urinn varnarmál sé óðum að flytj-
ast til innanríkisráðuneytisins þótt
lendingarleyfin séu enn á könnu
utanríkisráðuneytisins. - sh
Utanríkisráðuneytið skoðar ákvæði í viljayfirlýsingu Jóns og Ögmundar vandlega:
Herflugvélabann undir smásjánni
HERÞOTUR Á REYKJAVÍKURFLUGVELLI Þetta vilja Jón Gnarr borgarstjóri og Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra ekki sjá. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SPURNING DAGSINS