Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 8

Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 8
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR8 UMHVERFISMÁL Sorpa áformar að reisa gas- og jarðgerðarstöð á Álfsnesi en heildarkostnaður við hana gæti orðið vel á annan millj- arð að sögn Bjarna Gnýs Hjarð- ar, yfirmanns þróunar- og tækni- deildar Sorpu. Oddný Sturludóttir, stjórnar- formaður Sorpu, segir að stefnt sé að því að stöðin verði reist í áföng- um og að vonir standi til þess að einhverjir þeirra verði tilbúnir í júlí 2013 en þá tekur gildi Evrópu- tilskipun um að draga úr urðun á lífrænum úrgangi um helming frá því sem hún var árið 1995. Það ár var slík urðun um 60 þúsund tonn þannig að Sorpa stendur frammi fyrir því að geta ekki urðað 30 þúsund tonn og þar með geta ekki unnið úr því metangas. „Ef þessi stöð verður ekki til staðar árið 2013 þá fer sá mögu- leiki til spillis að geta unnið gas úr þessum 30 þúsund tonnum en við gætum hins vegar nýtt hann til jarðgerðar,“ segir Bjarni Gnýr. Hann segir þó hug Sorpumanna standa til þess að geta unnið sem mest af metangasi en eftir spurnin eftir því fer hríðvaxandi. Gas- og jarðgerðarstöðin myndi einnig gera Sorpu kleift að nýta úr- ganginn betur. Til dæmis fer sig- vatn til spillis nú um leið og það rennur úr haugnum en í nýrri stöð væri hægt að nýta það einnig til gasvinnslu. „Sveitarfélögin sem standa að Sorpu hafa ekki tekið endanleg ákvörðun um það hversu hratt verður farið í þessa framkvæmd,“ segir Oddný. „Við settum af stað mikla úttekt og greiningu á stöðu byggðarsamlaganna og þeim verkefnum sem fyrir liggja hjá Samtökum sveitar félaga á höfuðborgar svæðinu (SSH) og við erum að rýna í niður stöðurnar núna en það liggur ljóst fyrir að öll sveitar félögin á höfuðborgar- svæðinu eru tilbúin að koma þessari gas- og jarðgerðar stöð á koppinn í áföngum.“ Oddný segir að fleiri breytingar standi til í sorpumálum hjá íbúum höfuðborgarsvæðisins sem lúti að frekari flokkun sorps. „Þetta verður gert með það fyrir augum að koma verðmætu hráefni, sem ruslið er, til frekari vinnslu,“ segir hún. „Þetta er frábært tækifæri til umhverfisuppeldis í nær- umhverfinu þannig að fólki verði ljóst að við eigum ekki að kasta frá okkur rusli heldur losa okkur við það á ábyrgan hátt. Krakkarn- ir eru núorðið með þetta á hreinu en nú þurfum við fullorðna fólkið að fara að taka við okkur,“ segir Oddný. jse@frettabladid.is 1. Hvað á bygging nýs skemmti- garðs í Smáralind að kosta? 2. Hvað heitir kynjafiskurinn sem skipverjar á Þór HF færðu Fiskikónginum í vikulokin? 3. Hvert er þema Menningarnætur í Reykjavík í ágúst? SVÖRIN 1. Um fimmhundruð milljónir króna. 2. Hann heitir guðlax. 3. Gakktu í bæinn. DÓMSMÁL Jón Bjarki Magnússon, blaðamaður á DV, hefur verið dæmdur til að greiða manni hálfa milljón í miskabætur fyrir meið- yrði í umfjöllun um meint ofbeldi hans í garð barna sinna. Jóni Bjarka er einnig gert að greiða honum 750 þúsund krónur í málskostnað. Í umfjöllun blaðsins var haft eftir nafngreindum konum í óbeinni ræðu að maðurinn hefði beitt börn sín ofbeldi. Konurnar sendu frá sér yfirlýsingu við upphaf meðferðar málsins þar sem þær staðfestu að rétt hefði verið eftir þeim haft. Niðurstaða Kolbrúnar Sævars- dóttur héraðsdómara er sú að þetta skipti ekki máli, enda séu um mælin augljóslega ærumeiðandi og sam- kvæmt þágildandi prentlögum beri blaðamaður ábyrgð á þeim, jafnvel þótt aðrir kunni að gera það líka. Lögmaður Jóns Bjarka benti á að í nýjum fjölmiðlalögum væri þessu háttað á annan veg, en dómarinn komst að því að þau lög væru ekki afturvirk. „Þetta er mjög há upphæð sem ég sé ekki fram á að geta borgað,“ segir Jón Bjarki. Hann segist þurfa að bera kostnaðinn sjálfur og sjái því fram á gjaldþrot. Hann bendir á að frétt hans í blaðinu hafi verið framhald fréttar sem annar blaða- maður hafði skrifað á vef blaðsins daginn áður, þar sem sams konar ávirðingar birtust. Ekki hafi verið stefnt vegna hennar, enda hafi ábyrgð á netmiðlum verið í lausu lofti fram að setningu nýju fjöl- miðlalaganna. „Það er eins og blek- ið hafi skipt öllu máli,“ segir Jón Bjarki. Hann hefur ekki ákveð- ið hvort dómnum verður áfrýj- að. Þegar eru sambærileg mál, þar sem blaðamaður er dæmdur fyrir ummæli viðmælanda, á borði Mannréttindadómstóls Evrópu. - sh Jón Bjarki Magnússon blaðamaður þarf að greiða 1.250 þúsund úr eigin vasa og sér fram á gjaldþrot: Dæmdur fyrir ummæli um meint ofbeldi föður GETUR EKKI BORGAÐ Jón Bjarki sér ekki fram á að geta greitt bæturnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HEIMSENDING á höfuðborgarsvæðinu alla daga frá kl. 15–19 eða á smellugas.is Hafðu samband í síma 515 1115 Smellugas Smellugas smellugas.is PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 11 71 2 Bodrum í Tyrklandi 16. júlí Frá 137.600 kr. með „öllu inniföldu“ í 10 daga Glæsileg gisting! Heimsferðir bjóða frábært sértilboð til hins einstaka áfangastaðar Bodrum í Tyrklandi á ótrúlegum kjörum. Um er að ræða 10 nátta ferð í beinu leiguflugi með Icelandair. Frá kr. - með “öllu inniföldu” í 10 daga Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í fjölskylduherbergi með öllu inniföldu á Royal Palm Beach ***+ í 10 nætur. Verð m.v. gistingu í tvíbýli 159.900. Frábær tilboð á Royal Palm Beach ***+ og Hotel Royal Asarlik Beach * * * * * Ath. Verð getur hækkað án fyrirvara. Mjög takmarkaður fjöldi flugsæta og herbergja í boði. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN KOMDU Í ÖLL HELSTU PARTÝIN MEÐ OKKUR m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. Sorpa reisir dýra gas- og jarðgerðarstöð Kostnaðurinn gæti orðið hátt á annan milljarð. Hún verður reist í áföngum og eiga einhverjir að vera tilbúnir eftir tvö ár. Breytt flokkunarkerfi er í bígerð. GASHREINSISTÖÐIN Á ÁLFSNESI Mikil áhersla hefur verið lögð í að framleiða sem mest gas á Álfsnesi en án nýrrar gas- og jarðgerðarstöðvar yrði Sorpu ekki kleift að vinna gas úr 30 þúsund tonnum af sorpi eftir 2013. MYND/VALLI VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.