Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 12

Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 12
12 9. júlí 2011 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Ó fremdarástandið í fangelsismálum er að verða óbæri- legt. Öll fangelsi landsins eru yfirfull og yfir 300 manns á boðunarlista Fangelsismálastofnunar, þ.e. búnir að fá fangelsisdóm en komast ekki í afplánun. Einar Andrésson, formaður Fangavarðafélags Íslands, lýsti því í Fréttablaðinu í gær að til að reyna að ganga á biðlistann hefði verið gripið til þess ráðs að sleppa brotamönnum sem frekar væru til friðs úti í samfélaginu fyrr úr afplánun og láta þá til dæmis gegna samfélagsþjónustu. Þetta hefði hins vegar í för með sér að í fangelsunum væri nú enn harðsvíraðri hópur glæpa- manna, þar á meðal meðlimir glæpagengja sem stundum lenti saman og sprautufíklar sem létu einskis ófreistað að smygla fíkniefnum inn í fangelsin. Einar segir fangaverði oft lenda í lífshættulegum aðstæðum. Hann kallar eftir því að byggingu nýs fangelsis verði hraðað og segir að það muni meðal annars gera kleift að aðskilja glæpa klíkur, frelsa aðra fanga undan áreitni þeirra og hótunum, flokka fólk niður eftir aðstæðum, afeitra fíkniefnaneytendur og koma þeim þannig á beina braut. Ástandið í fangelsismálum gengur gegn margvíslegum grundvallar reglum réttarríkisins. Brotamenn ganga lausir mánuðum og jafnvel árum saman eftir að þeir hafa fengið dóm, sem er brot á réttindum fórnarlamba þeirra og í ósamræmi við réttlætis kennd almennings. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að meðal manna sem hafa fengið dóm en ekki hafið afplánun eru margir ofbeldismenn, þar á meðal nauðgarar og barnaníðingar. Skortur á fangaklefum þýðir að fangar eru vistaðir við heilsu- spillandi aðstæður, sem er sömuleiðis mannréttindabrot og fer í bága við alþjóðasamninga sem Ísland hefur staðfest. Hin langa bið eftir afplánun þýðir að fótunum kann skyndilega að verða kippt undan mönnum sem hafa snúið af braut afbrota þegar loksins losnar handa þeim pláss í fangelsi. Nábýli harðsvíraðra glæpamanna og þeirra sem raunverulega vilja nýta fangelsisvistina til að mennta sig eða bæta, þýðir að þeir síðarnefndu eiga minni möguleika en ella. Loks er ástandið í fangelsunum ógn við öryggi og heilsu starfs- mannanna, eins og ummæli Einars Andréssonar vitna um. Eins og fram kemur í Fréttablaðinu í gær og dag virðist deila innan ríkisstjórnarinnar um hvort ríkið eða einkaaðilar eigi að reisa nýtt fangelsi á Hólmsheiði standa í vegi fyrir ákvörðun um að hefja framkvæmdir. Vega þarf og meta bæði kostnaðinn við hvora leið um sig og hvor er líklegri til að koma fangelsinu í gagnið fyrr. Hafa þarf í huga að kostnaðurinn við núverandi ófremdarástand er líka talsverður og talsvert til vinnandi að ráða bót á því sem fyrst. Vonandi verður andstaða innan Vinstri grænna við allt sem heitir „einka-“ ekki til að tefja ákvörðun um þessa bráðnauðsynlegu fram- kvæmd lengur en orðið er. Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Sennilega hefur engin ríkis-stjórn önnur en sú sem nú situr lagt úr vör með jafn sterkan meðbyr. Nú er hún heillum horfin. Fáir meðhalds- menn verja hana. Takmarkað- ur stuðningur þeirra sem næst standa forystumönnum stjórnar- flokkanna byggist ekki á skír- skotun til árangurs heldur þeirri afsökun að ekki sé kostur á öðru. Það öfugsnúna við þessa stöðu er að nokkuð er til í afsökuninni fyrir þrásetu stjórnarinnar. Vand- séð er að unnt sé að mynda annars konar stjórn á þessu kjör tímabili. Yfirgnæfandi líkur eru hins vegar á falli ríkisstjórnarinnar í kosningum. Eigi að síður er senni leg- ast að hún sitji áfram eftir þær með liðstyrk framsóknar- ma n na . Þ að my ndi eng u breyta um eðli stjórnarinnar því að Fram- sóknarflokkurinn hefur fyrst og fremst átt málefnasamleið með vinstri væng VG og Hreyfingunni upp á síðkastið. Fátt getur breytt því að Sjálf- stæðisflokkurinn fari langt með að ná fyrri stöðu í næstu kosningum hvort sem þær verða fyrr eða síðar. Það væri mikill sigur þó að hann megi að ein- hverju leyti rekja til óvinsælda stjórnarinnar. Að því leyti stendur forysta flokksins vel að vígi. Þjóðin þarf frjálslyndari stjórn- arstefnu með markvissari sýn á hagvöxt og alþjóðasamvinnu. Nauðsynleg breyting á stjórnar- stefnu er hins vegar nánast óhugs- andi án aðkomu Sjálfstæðisflokks- ins. Gallinn á gjöf Njarðar er sá að þeirri pólitísku þoku ætlar ekki að létta sem seig yfir með málefna- kreppunni sem gjald miðils- og bankahrunið leiddi af sér. Öfugsnúin staða ÞORSTEINN PÁLSSON Þau verkefni sem við blasa eru þess eðlis að nánast engar líkur eru á árangri nema þeir flokkar sem nálgast miðju stjórnmálanna frá hægri og vinstri taki höndum saman og finni málefna legar lausnir. Þetta eru Sjálfstæðis- flokkurinn og Samfylkingin. Við ríkjandi aðstæður er samstarf þeirra hins vegar óhugsandi. Ekki verður séð að kosningar breyti neinu þar um. Ástæðurnar fyrir þessu eru margar. Hafa verður í huga að núverandi forysta Samfylkingarinnar hefur fært flokkinn það langt til vinstri að hann getur ekki að öllu óbreyttu átt samstarf í átt að miðjunni. Hugmyndafræðileg gerjun gegn þessari lokuðu stöðu er að byrja innan Samfylkingarinnar. Engin merki eru þó um að hún opnist fyrir kosningar. Í því ljósi á Sjálfstæðisflokkur- inn tveggja kosta völ í fylgisleit. Annar er sá að höfða til hægri vængs Samfylkingarinnar. Hinn er að keppa við Framsóknarflokk- inn um Evrópusambandsóánægju- fylgi frá VG. Seinni kosturinn virð- ist hafa orðið ofan á. Það eru einkum tvær ástæður sem liggja til þess að Sjálfstæðis- flokkurinn stefnir ekki við svo búið í samstarf við Samfylkinguna. Eitt er að veruleg tortryggni ríkir enn vegna stjórnarslitanna 2009. Annað er að þingmenn flokksins geta varla skilið skilaboð Morgun- blaðsins á annan veg en að frá þeirri bæjarhellu yrði betur séð að flokkurinn stefndi að samstarfi við vinstri væng VG. Hætt er hins vegar við að draga myndi úr fylgis- aukningunni ef slík áform yrðu opinber fyrir kosningar. Samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er ólíklegt eins og sakir standa. Óvíst er að þeir nái saman þingmeirihluta. Nú- verandi þingmenn Framsóknar- flokksins telja sig aukheldur vera eins og brennt barn eftir fyrra samstarf flokkanna. Slíka stjórn myndi líka skorta æskileg tengsl við verkalýðshreyfinguna. Engin útgönguleið í augsýn Við svo búið eru því veru-legar líkur á umtals-verðum kosningasigri Sjálfstæðisflokksins án þess að það opni sjálfkrafa leið að ríkisstjórnar samstarfi. Þetta þýðir að fólkið í landinu á væntanlega ekki kost á hófsamri frjálslyndri stjórn. Efnahagslega afleiðingin er áframhaldandi stöðnun eða mun hægari endurreisn en vera þyrfti út næsta kjörtímabil. Hvenær svo sem næsta kjör- tímabil hefst eru því meiri líkur en minni á að núverandi stjórnarsam- starf haldi áfram með stuðningi framsóknarmanna. Hugsanlega gætu orðið breytingar á forystu ríkisstjórnarinnar. Formaður VG hefur í reynd leitt samstarfið til þessa. Í því ljósi væri formleg for- ysta hans rökrétt. Framsóknar- flokkurinn er ekki líklegur til að setja málefnaleg skilyrði sem þýð- ingu hafa en hann gæti gert kröfu um forsætið. Gangi mál þannig fram yrðu skoð- anir verulegs hluta hefðbundinna frjálslyndra kjósenda Framsóknar- flokksins og Samfylkingarinnar án málsvara við ríkisstjórnarborðið og kjósendur Sjálfstæðisflokksins áhrifalausir með öllu. Þetta þýðir einfaldlega að sú málefnalega pólit- íska kreppa sem heft hefur endur- reisnina í meir en tvö ár framleng- ist yfir á næsta kjörtímabil. Enginn flokkur sýnist hafa hug á að brjóta þessa stöðu upp. Pólitíska kreppan framlengd Óbærilegt ástand í fangelsismálum: Ekki tefja nýtt fangelsi NJÓTTU SUMARSINS TILBOÐSDAGAR Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is ÆGIR TJALDVAGN 1.279.000. *Afsláttur -200.000. Verð kr. 1.079.000. með fortjaldi PALOMINO COLT 2.559.000. *Afsláttur -369.000. Verð kr. 2.190.000. með fortjaldi KÍKTU VIÐ OG GERÐU GÓÐ KAUP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.