Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 13

Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 13
LAUGARDAGUR 9. júlí 2011 13 Undanfarin þrjú ár hefur fjár-festing á Íslandi dregist veru- lega saman og náði hún sögulegu lágmarki á síðasta ári. Undan- farna tvo áratugi hefur þetta hlut- fall numið 20% af landsframleiðslu en var tæplega 13% árið 2010. Ekki eru horfur á því að þetta hlutfall hækki markvert á þessu ári. Blása þarf lífi í efnahaginn Á síðustu árum hefur störfum fækkað verulega. Þegar umfang í bygginga- og mannvirkjagerð var sem mest störfuðu 18 þúsund manns í greininni en nú stefnir í að þar starfi einungis 4-6 þúsund manns. Fyrirtækjum hefur fækk- að og þau farið minnkandi. Fátt bendir til að óbreyttu að þróunin sé að snúast við þannig að atvinnu- lausum fækki. Lítil og minnkandi fjárfesting er meginástæða þess að lítið sem ekkert er farið að horfa til betri vegar í efnahagslífi lands- ins. Það er ekki að ástæðulausu að litið er til fjárfestinga þegar rædd- ar eru leiðir til að blása lífi í efna- hagslífið. Fjárfesting er í eðli sínu ekk- ert annað en að fé er lagt til hlið- ar í formi sparnaðar og því ætlað að skapa aukna framleiðslugetu í framtíðinni og þar með aukna verðmætasköpun og betri lífs- kjör til lengri tíma litið. Ótal rann- sóknir sýna skýrt samband milli fjárfestinga og sparnaðar annars vegar og hagvaxtar hins vegar. Fögur fyrirheit sumarið 2009 Það ríkti bjartsýni meðal þeirra sem skrifuðu undir stöðugleika- sáttmálann fyrir tveimur árum um markmið og leiðir að endurreisn efnahagslífsins. Einn mikil vægur þáttur sáttmálans var að ríkis- stjórnin myndi greiða götu þegar ákveðinna stórframkvæmda, vinna skipulega í samráði við atvinnu- lífið að úrvinnslu áforma um aðrar stórframkvæmdir og að ganga til samstarfs við lífeyrissjóði um að þeir fjármögnuðu stórar verk- legar framkvæmdir m.a. til að flýta fyrir arðbærum samgöngu- framkvæmdum. Þáverandi samgönguráðherra lagði fram á Alþingi frumvarp sem heimilaði ráðherra að stofna opinbert hlutafélag sem hafi þann tilgang að standa að vegalagningu umhverfis höfuðborgarsvæðið, auk Vaðlaheiðargangna, og taka gjald af umferð um viðkomandi vegi. Lögin voru samþykkt samhljóða á Alþingi 28. júní 2010 og í framhald- inu hófst undirbúningur að stofnun félaganna og viðræður við lífeyris- sjóði um fjármögnun þeirra. Þeim viðræðum var slitið í desember 2010 vegna ósamkomulags um vaxtakjör þótt lítið bæri á milli. Áform áréttuð vorið 2011 Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí sl. í tengslum við gerð kjarasamninga var vilji stjórnvalda áréttaður. Þar segir m.a.: „Áfram verður unnið að útfærslu tillagna um vegaframkvæmdir á Suðvestur- landi og fjármögnun þeirra og er mikilvægt að samstaða náist um þau áform. Hér er um tugmilljarða framkvæmdir að ræða sem dreif- ast á nokkur ár, en fyrstu áfangar eru tilbúnir til útboðs. Stjórnvöld munu skipa starfshóp með fulltrú- um SA, ASÍ, fjármálaráðuneyti og innanríkisráðuneyti er reyni til þrautar að finna útfærslur sem gera mögulegt að ráðast í umfangs- miklar samgönguframkvæmdir á Suðvestur landi og eftir atvikum víðar, fjármagnaðar með sérstök- um hætti. Niðurstaða verði fengin í þá vinnu fyrir lok maí.“ Þegar svo virðist sem að ekk- ert sé að vanbúnaði til að ganga frá stofnun félaganna, semja við lífeyrissjóði um fjármögnun og hefjast handa, þá kemur ráðherra samgöngumála og telur framgangi málsins allt til foráttu. Þrátt fyrir yfirlýsingar hagsmunaaðila um eindreginn vilja til að þetta þjóð- þrifaverkefni geti orðið að veru- leika þá situr ráðherrann við sinn keip og verkefnið er stopp. Það er sannarlega tímabært að hefja umræðu og stefnumótun um framtíðargjaldtöku af umferð. Rafræn innheimta notenda- eða notkunar gjalda í gegnum gervi- hnött er sú framtíðarsýn sem við blasir. Eitt gjald kæmi í stað ann- arra gjalda, eins og olíugjalda og bensíngjalda. Tæknin er til staðar og innan Evrópu sambandsins er t.d. umræða um að innleiða slíka gjaldtöku á þungaumferð, þann- ig að tekjur af þungaflutningum renni til einstakra landa í sam- ræmi við notkun á vegum í hverju landi. Ísland hefur alla burði til að vera í fararbroddi þessarar þróun- ar sem m.a. myndi gefa fyrirtækj- um í nýsköpun verðug verkefni til úrlausnar. Innviðir verði styrktir Það er ekki einsdæmi að stjórnvöld ákveði að grípa til sérstaks átaks í styrkingu innviða eins og vega- framkvæmda þegar efnahags- lífið skreppur saman og störfum fækkar. Þannig háttaði til þegar kreppti að í upphafi 10. áratugar síðustu aldar. Auk þess að skapa ný störf og efla hagvöxt snúast samgönguframkvæmdir um aukið öryggi á vegum. Nægir að nefna stórfellda fækkun alvarlegra slysa á Reykjanesbraut við tvöföldun hennar. Samkvæmt mati Sjóvár hf. árið 2006 var árlegur heildar- kostnaður vegna slysa og óhappa á Suðurlandsvegi til Selfoss um 1 milljarður króna. Þar af var kostn- aður tryggingafélaga og tjónvalda um 600 m.kr. og samfélagsins um 400 m.kr. Því verður ekki trúað að ríkis- stjórnin ætli ekki að standa við nýlega yfirlýsingu sína um sér- stakt átak í vegamálum líkt og unnið hefur verið að undan farin tvö ár. Þau úrlausnarefni sem greiða þarf úr svo unnt sé að hefj- ast handa eru smávægileg í saman- burði við þá þjóðarhagsmuni sem þetta átak svo sannarlega felur í sér. Í umræðunni undanfarna daga hefur enginn utan ráðherrans mælt gegn framkvæmdinni. Það væri sæmd fyrir ráðherra samgöngumála að snúa við blaði sínu, horfa á það jákvæða í mál- inu og hafa forgöngu um að hnýta lausa enda svo unnt verði að hefja framkvæmdir á næstu mánuðum. Það yrði öðrum hvatning til að ganga í hans fótspor, auka fjárfest- ingu og fjölga störfum, sem þjóðin þarfnast meira en flest annað. Með því má breyta doða í dug. Að breyta doða í dug Samgöngumál Vilmundur Jósefsson formaður Samtaka atvinnulífsins Komdu í golf með Byr Byr er stoltur styrktaraðili að Pro Golf og minnir á þann afslátt sem viðskiptavinir í Vildarþjónustu geta nýtt sér allan ársins hring. Básum í Grafarholti sunnudaginn 10. júlí milli klukkan 9 og 14. Það eina sem þú þarft að gera er að framvísa debet- eða kreditkorti frá Byr og því þarf ekki að skrá sig sérstaklega. Sími 575 4000 I byr@byr.is I www.byr.is Þú ... …getur prófað golf þér að kostnaðarlausu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.