Fréttablaðið - 09.07.2011, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 9. júlí 2011 13
Undanfarin þrjú ár hefur fjár-festing á Íslandi dregist veru-
lega saman og náði hún sögulegu
lágmarki á síðasta ári. Undan-
farna tvo áratugi hefur þetta hlut-
fall numið 20% af landsframleiðslu
en var tæplega 13% árið 2010. Ekki
eru horfur á því að þetta hlutfall
hækki markvert á þessu ári.
Blása þarf lífi í efnahaginn
Á síðustu árum hefur störfum
fækkað verulega. Þegar umfang
í bygginga- og mannvirkjagerð
var sem mest störfuðu 18 þúsund
manns í greininni en nú stefnir í
að þar starfi einungis 4-6 þúsund
manns. Fyrirtækjum hefur fækk-
að og þau farið minnkandi. Fátt
bendir til að óbreyttu að þróunin
sé að snúast við þannig að atvinnu-
lausum fækki. Lítil og minnkandi
fjárfesting er meginástæða þess að
lítið sem ekkert er farið að horfa
til betri vegar í efnahagslífi lands-
ins. Það er ekki að ástæðulausu að
litið er til fjárfestinga þegar rædd-
ar eru leiðir til að blása lífi í efna-
hagslífið.
Fjárfesting er í eðli sínu ekk-
ert annað en að fé er lagt til hlið-
ar í formi sparnaðar og því ætlað
að skapa aukna framleiðslugetu
í framtíðinni og þar með aukna
verðmætasköpun og betri lífs-
kjör til lengri tíma litið. Ótal rann-
sóknir sýna skýrt samband milli
fjárfestinga og sparnaðar annars
vegar og hagvaxtar hins vegar.
Fögur fyrirheit sumarið 2009
Það ríkti bjartsýni meðal þeirra
sem skrifuðu undir stöðugleika-
sáttmálann fyrir tveimur árum um
markmið og leiðir að endurreisn
efnahagslífsins. Einn mikil vægur
þáttur sáttmálans var að ríkis-
stjórnin myndi greiða götu þegar
ákveðinna stórframkvæmda, vinna
skipulega í samráði við atvinnu-
lífið að úrvinnslu áforma um aðrar
stórframkvæmdir og að ganga til
samstarfs við lífeyrissjóði um að
þeir fjármögnuðu stórar verk-
legar framkvæmdir m.a. til að
flýta fyrir arðbærum samgöngu-
framkvæmdum.
Þáverandi samgönguráðherra
lagði fram á Alþingi frumvarp
sem heimilaði ráðherra að stofna
opinbert hlutafélag sem hafi þann
tilgang að standa að vegalagningu
umhverfis höfuðborgarsvæðið, auk
Vaðlaheiðargangna, og taka gjald
af umferð um viðkomandi vegi.
Lögin voru samþykkt samhljóða á
Alþingi 28. júní 2010 og í framhald-
inu hófst undirbúningur að stofnun
félaganna og viðræður við lífeyris-
sjóði um fjármögnun þeirra. Þeim
viðræðum var slitið í desember
2010 vegna ósamkomulags um
vaxtakjör þótt lítið bæri á milli.
Áform áréttuð vorið 2011
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
frá 5. maí sl. í tengslum við gerð
kjarasamninga var vilji stjórnvalda
áréttaður. Þar segir m.a.: „Áfram
verður unnið að útfærslu tillagna
um vegaframkvæmdir á Suðvestur-
landi og fjármögnun þeirra og er
mikilvægt að samstaða náist um
þau áform. Hér er um tugmilljarða
framkvæmdir að ræða sem dreif-
ast á nokkur ár, en fyrstu áfangar
eru tilbúnir til útboðs. Stjórnvöld
munu skipa starfshóp með fulltrú-
um SA, ASÍ, fjármálaráðuneyti
og innanríkisráðuneyti er reyni
til þrautar að finna útfærslur sem
gera mögulegt að ráðast í umfangs-
miklar samgönguframkvæmdir á
Suðvestur landi og eftir atvikum
víðar, fjármagnaðar með sérstök-
um hætti. Niðurstaða verði fengin
í þá vinnu fyrir lok maí.“
Þegar svo virðist sem að ekk-
ert sé að vanbúnaði til að ganga
frá stofnun félaganna, semja við
lífeyrissjóði um fjármögnun og
hefjast handa, þá kemur ráðherra
samgöngumála og telur framgangi
málsins allt til foráttu. Þrátt fyrir
yfirlýsingar hagsmunaaðila um
eindreginn vilja til að þetta þjóð-
þrifaverkefni geti orðið að veru-
leika þá situr ráðherrann við sinn
keip og verkefnið er stopp.
Það er sannarlega tímabært að
hefja umræðu og stefnumótun
um framtíðargjaldtöku af umferð.
Rafræn innheimta notenda- eða
notkunar gjalda í gegnum gervi-
hnött er sú framtíðarsýn sem við
blasir. Eitt gjald kæmi í stað ann-
arra gjalda, eins og olíugjalda og
bensíngjalda. Tæknin er til staðar
og innan Evrópu sambandsins er
t.d. umræða um að innleiða slíka
gjaldtöku á þungaumferð, þann-
ig að tekjur af þungaflutningum
renni til einstakra landa í sam-
ræmi við notkun á vegum í hverju
landi. Ísland hefur alla burði til að
vera í fararbroddi þessarar þróun-
ar sem m.a. myndi gefa fyrirtækj-
um í nýsköpun verðug verkefni til
úrlausnar.
Innviðir verði styrktir
Það er ekki einsdæmi að stjórnvöld
ákveði að grípa til sérstaks átaks
í styrkingu innviða eins og vega-
framkvæmda þegar efnahags-
lífið skreppur saman og störfum
fækkar. Þannig háttaði til þegar
kreppti að í upphafi 10. áratugar
síðustu aldar. Auk þess að skapa
ný störf og efla hagvöxt snúast
samgönguframkvæmdir um aukið
öryggi á vegum. Nægir að nefna
stórfellda fækkun alvarlegra slysa
á Reykjanesbraut við tvöföldun
hennar. Samkvæmt mati Sjóvár
hf. árið 2006 var árlegur heildar-
kostnaður vegna slysa og óhappa
á Suðurlandsvegi til Selfoss um 1
milljarður króna. Þar af var kostn-
aður tryggingafélaga og tjónvalda
um 600 m.kr. og samfélagsins um
400 m.kr.
Því verður ekki trúað að ríkis-
stjórnin ætli ekki að standa við
nýlega yfirlýsingu sína um sér-
stakt átak í vegamálum líkt og
unnið hefur verið að undan farin
tvö ár. Þau úrlausnarefni sem
greiða þarf úr svo unnt sé að hefj-
ast handa eru smávægileg í saman-
burði við þá þjóðarhagsmuni sem
þetta átak svo sannarlega felur í
sér. Í umræðunni undanfarna daga
hefur enginn utan ráðherrans mælt
gegn framkvæmdinni.
Það væri sæmd fyrir ráðherra
samgöngumála að snúa við blaði
sínu, horfa á það jákvæða í mál-
inu og hafa forgöngu um að hnýta
lausa enda svo unnt verði að hefja
framkvæmdir á næstu mánuðum.
Það yrði öðrum hvatning til að
ganga í hans fótspor, auka fjárfest-
ingu og fjölga störfum, sem þjóðin
þarfnast meira en flest annað. Með
því má breyta doða í dug.
Að breyta doða í dug
Samgöngumál
Vilmundur
Jósefsson
formaður Samtaka
atvinnulífsins
Komdu í golf með Byr
Byr er stoltur styrktaraðili að Pro Golf og minnir á þann afslátt sem viðskiptavinir í Vildarþjónustu
geta nýtt sér allan ársins hring.
Básum í Grafarholti sunnudaginn 10. júlí milli klukkan 9 og 14. Það eina sem þú þarft að
gera er að framvísa debet- eða kreditkorti frá Byr og því þarf ekki að skrá sig sérstaklega.
Sími 575 4000 I byr@byr.is I www.byr.is
Þú ...
…getur prófað golf þér að kostnaðarlausu