Fréttablaðið - 09.07.2011, Síða 16

Fréttablaðið - 09.07.2011, Síða 16
16 9. júlí 2011 LAUGARDAGUR Beint lýðræði og rökræðu-lýðræði eru tvennt ólíkt. Beint lýðræði felur í sér að borgararn- ir taka pólitískar ákvarðanir án samráðs við stjórnmálamennina og á það við um setningu stjórn- arskrár, afsal fullveldis, þjóðar- atkvæðagreiðslur og að koma vald- höfum frá þegar þeir hafa misst traust fólksins. Rökræðulýðræði er lýðræðis leg aðferð til að auka þátttöku borgaranna við laga- setningar innan ramma fulltrúa- lýðræðisins. Í því felst að hin ólíku sjónarmið almennings eru lögð til grund vallar þegar pólitískar ákvarðanir eru teknar og stjórn- völd eru skyldug til að réttlæta allar ákvarðanir sínar með því að færa rök fyrir þeim sem almenn- ingur skilur. Lýðræðið í dag Nútíma frjálslynt lýðræði byggist á fulltrúalýðræði, þar sem stjórn- málamenn eru fulltrúar borgar- anna, þar sem þeim er ætlað að setja sig inn í flóknari pólitísk málefni, leita sér sérfræðings- álita, safna sjónarmiðum hags- munaaðila og taka síðan póli- tískrar ákvarðanir með hagsmuni almennings að leiðarljósi. En lýðræðið er takmarkað. Flokksræðið er sterkt og leiðir til kappræðu frekar en málaefna- legrar umræðu. Ólýðræðislegt vald sérfræðinga, hagsmunaaðila, fjármálaveldisins og skoðana- myndandi fjölmiðlaveldis eru aðalógnir lýðræðisins. Vægi hins lýðræðislega kjörna Alþingis hefur minnkað, stjórnarhættir eru ofan frá og niður, ógegnsæi er í pólitískum málefnum ríkis- ins og oftar er tekið meira mið af hagsmunaaðilum en almenningi. Gjá er milli stjórnmálamanna og fólksins. Þetta má glögglega sjá ef skoðaðar eru þær aðferðir sem notaðar eru til þess að taka pólit- ískar ákvarðanir. Meirihlutaræði, þar sem ein- faldur meirihluti ræður, ekki þarf að semja til að koma málum í gegn, né taka tillit til skoðana minnihlutans og oft er valtað yfir hann. Flokksforysturæðið er sterkt, venjulegir stjórnmála- menn hafa lítið hlutverk, sérfræð- ingaveldi ræður öllu í raun og borgararnir búa við kjörklefalýð- ræði þar sem þeir hafa í raun ekk- ert að segja nema í kjör klefanum á fjögurra ára fresti. „Samningar um hagsmuni” er dæmigert fyrir tveggja flokka samsteypustjórnir hérlendis, sem felur í sér helmingaskipti á völdum. Pólitísk vandamál eru séð sem hagsmunadeilur sem hægt er að semja um. Stjórnmál- in þykja frekar opin og almennir stjórnmálamenn hafa stórt hlut- verk í baktjaldamakki og hrossa- kaupum. Sérfræðingarnir veita lögfræðilega og hagsmunatengda ráðgjöf. Þátttaka almennings truflar samningsmöguleika og andstæðum sjónarmiðum er því breytt í hagsmunatengsl og hafn- að. „Samkomulag um gildi” breytir pólitískum vandamálum í deilur um gildi þegar ekki er hægt að semja um hagsmuni. Deilt er um frelsi eða jafnrétti, sjálfstæði eða samvinnu þjóða, virkjanir eða umhverfisvernd o.s.frv. Flokks- foringjarnir komast að mála- miðlunum frekar en að komast að endanlegum niðurstöðum, að vera sammála um að vera ósam- mála með óljósa von um hægt verði að semja um þau í fram- tíðinni. Stjórnmálin eru frek- ar yfirborðskennd og hlutverk almennra stjórnmálamanna er að taka þátt í pólitísku þrasi, en sér fræðingarnir eru háspeki legir um gildin. Þátttaka borgaranna er ekki vel séð þar sem hún rask- ar viðkvæmum málamiðlunum. Þeim sem vilja taka þátt er breytt í valdalitla stjórnmálamenn eða einhvers konar sérfræðinga um gildi til að koma þeim úr raun- verulegum vandamálalausnum. Rökræðulýðræði Rökræðulýðræðinu er ætlað að auka þátttöku borgaranna og almennra stjórnmálamanna og styrkja þannig Alþingi og fulltrúa- lýðræðið. Grundvöllur lagasetninga á ekki að vera eingöngu álit sér- fræðinga og hagsmunaaðila. Formlegir borgarafundir á vegum Alþingis eiga að vera hluti af löggjafarvaldinu þar sem stjórn- málamenn kynna álitamálin og eiga í samræðum við borgarana. Þá láta borgararnir reyna á skoðanir sínar og síðan þarf skipulega að safna sjónarmiðum þeirra til að leggja til í þann grunn sem pólitískar ákvarð- anir Alþingis byggjast á. Gegnsæi í pólitískri stjórnsýslu er megin skil- yrðið fyrir því að almenningur geti myndað sér skoðun á þeim á sömu forsendum og stjórnmálamenn. Rökræðan þarf að vera af heilind- um og á jafnréttisgrundvelli. Mikil- vægi ólíkra skoðana felst í því að þær eru hvati að frekari umræðum sem leiða til betri skilnings og geta leitt til nýrra lausna. Réttlæting pólitískra ákvarðana felur í sér að stjórnvöld verða að skýra með rökum hvers vegna þau tóku einhverja ákvörðun frekar en einhverja aðra og svara gagnrýni borgaranna. Með þessu móti fæst sátt um pólitískar ákvarðanir og lagasetn- ingar og þegjandi samkomulag um að virða þær. Ekki vegna þess að maður sé sammála þeim, held- ur vegna þess að þær hafa fengið réttláta málsmeðferð og öll sjón- armið hafa fengið að komast að. Pólitískar ákvarðanir njóta þá frið- helgi, en auðvitað er hægt að end- urskoða þær síðar ef forsendurnar hafa breyst. Rökræðulýðræðið er tímafrekara og dýrara, en réttlátara, skynsam- legra og virkara. Rökræðulýðræði mikilvægara en beint lýðræði Staða félags- og hugvísinda innan Háskóla Íslands er ekki góð. Raunar er staðan að mörgu leyti svo slæm að furðu sætir. Í meistararannsókn minni á vald- dreifingu og formgerð hins aka- demíska vettvangs kom m.a. annars í ljós að félags- og hugvís- indamenn upplifa sig sem undir- málshóp innan akademíunnar. Hugvísindamönnum þótti sem þeir væru undir óeðlilegum kröf- um raunvísindamanna um að stunda vísindi á ensku. Það er að stunda vísindi á forsendum raun- vísindanna. Félagsvísindamönnum þótti sem þeir væru ekki metnir að verðleikum sem vísindamenn og sumir lýstu ástandinu jafnvel sem „akademískri aðskilnaðarstefnu milli félagsvísinda og raunvísinda. Ástæða þess að félags- og hug- vísindamenn upplifa stöðu sína gagnvart raun- og læknavísind- um sem óréttláta byggir á ójafnri stöðu greinanna innan skólans. Hlutfall nemenda á fastráðna kennara er einn þeirra mælikvarða sem notaðir eru til að meta gæði háskóla víða um heim. Mælikvarð- inn metur hversu mikið ráðrúm hver kennari hefur fyrir nemendur sína og sömuleiðis í rannsóknir. Vísindamaður sem ber ábyrgð á 9 nemendum getur betur sinnt þeim og sínum eigin rannsóknum en sá sem ber ábyrgð á rúmlega 40 nem- endum. Þeir skólar sem stæra sig af góðum gæðum hvað þetta hlut- fall varðar eru með 10 nemendur eða færri á hvern fastráðinn kenn- ara. Meðaltals hlutfallið fyrir HÍ er nú rúmlega tvisvar sinnum það, eða 23 nemendur á hvern kennara. Hlutfallið var 14 nemendur á kenn- ara árið 1994 og hefur snarversnað síðan þá. Meðaltalið segir hins vegar ekki alla söguna því talsverður breytileiki er milli vísindagreina innan HÍ hvað þetta varðar eins og sjá má á línuritinu. Nemend- um á kennara hefur fjölgað í hug- vísindum en þó sérstaklega félags- vísindum frá árinu 1994 á sama tíma og hlutfallið hefur staðið í stað í raun- og læknavísindum. Á þessu tímabili fjölgaði nemendum en þó í samræmi við væntingar sé litið til hlutfallslegrar fjölg- unar í gegnum söguna og þróun- ar í öðrum löndum. Þessari aukn- ingu nemenda var augljóslega ekki mætt með fjármagni til þess að viðhalda þeim gæðum sem voru árið 1994 og félags- og hugvísindi tóku á sig fall í gæðum til að þeim mætti viðhalda í raun- og lækna- vísindum. Nemendur á kennara í félagsvísindum eru nú yfir 50 en hafa haldist í kringum 10 í raun- og læknavísindum. Stundum er því haldið fram af raunvísindafólki að kennsla í félags- og hugvísindum byggist á öðrum forsendum en í þeirra eigin greinum. Það vill þannig til að þekking á kennslu og þekking- armiðlun er mest innan félagsvís- inda, nánar tiltekið kennslufræða, og samkvæmt þeim eru forsend- ur góðrar kennslu áþekkar milli greina. Og þetta vita allir góðir kennarar og vísindamenn. Vís- indin læra menn með því að fram- kvæma vísindi í frjóu og metnað- arfullu akademísku umhverfi og síðast en ekki síst með því að eiga í samræðu við aðra vísindamenn. Verklegir tímar eru nauðsynlegir í öllum vísindagreinum. Ástæðan fyrir því að félags- og hugvísindi fá ekki nema brot af því fjár- magni sem rennur til raun- og læknavísinda er sú að þau njóta ekki réttmætrar virðingar, þau hafa ekki sama akademíska vald og raun- og læknavísindin. Félags- og hugvísindi eru ekki annars flokks og þessa mismun- un þarf að leiðrétta án tafar. Rétt- ast væri að greidd væri sama fjárhæð til kennslu með öllum háskólanemum en sérstaklega fyrir tækjabúnað. Tryggja þarf öllum nemendum samsvarandi gæði kennslu. Rektor Háskóla Íslands og menntamálaráðherra bera ábyrgð á því að tryggja hug- og félagsvísindum ásættanlegar aðstæður til jafns við aðrar vís- indagreinar. Akademísk aðskilnaðarstefna Lýðræði Björn Einarsson læknir og heimspekinemi Menntamál Kristinn Már Ársælsson BA í heimspeki, Diploma í kennslufræði og MA í félagsfræði Ólýðræðislegt vald sérfræðinga, hags- munaaðila, fjármálaveldisins og skoðana myndandi fjölmiðlaveldis eru aðalógnir lýðræðisins. Álver eru engin skyndilausn Í þriðju grein minni um vægi áliðnaðar á Íslandi fjalla ég um langtímaáhrif iðnaðarins hér á landi. Því hefur gjarnan verið hald- ið fram að með uppbyggingu í orkutengdum iðnaði sé verið að leita skyndilausna sem á end- anum skilji lítið eftir sig. Stóriðjan sé ein- hvers konar höfuð- verkjartafla sem við grípum til þegar sam- dráttar verður vart í hagkerfinu. Réttara sé að beina kröftum í uppbyggingu „ein- hvers annars“ sem skilji eftir sig varan- lega verðmætaaukn- ingu. En stenst þessi fullyrðing? Heildarfjárfesting við byggingu Kára- hnjúka og álvers Fjarðaáls var um 266 milljarðar króna á árunum 2004-2008. Innlendur hluti þess- arar fjárfestingar er talinn hafa numið 82 milljörðum króna eða innan við þriðjungi heildarfjárfestingarinnar. Þetta samsvarar að jafnaði 16 millj- örðum króna á ári. Til þess að setja þetta í samhengi er hér um að ræða lítillega lægri fjárhæð en rann að jafnaði til viðhalds og uppbyggingar á vegakerfi lands- manna á sama tímabili. Vægi uppbyggingarfasa stór- iðjunnar er því ekki nærri eins mikið og af er látið. Þegar öllu er á botninn hvolft er nánast hjá- kátlegt að kenna þessari fram- kvæmd um ofhitnun íslensks efnahagslífs á þessu tímabili. Þessar tölur mega sín lítils í samanburði við útlánaaukningu bankakerfisins, hækkun á mark- aðsvirði íbúðarhúsnæðis lands- manna og svo mætti áfram telja. Innlend rekstrarútgjöld Fjarðaáls margfalt meiri en fjárfestingar- kostnaður En hvað er það sem uppbygg- ing stóriðju skilur eftir sig? Ef við skoðum rekstur Fjarðaáls á árunum 2008-2010 má sjá að inn- lend rekstrarútgjöld álversins á þessu tímabili námu 90 millj- örðum króna. Á þessum þrem- ur árum varði fyrirtækið því hærri fjárhæð í rafmagnskaup, launagreiðslur og kaup á vörum og þjónustu en varið var í innlenda efn- isþætti byggingafram- kvæmda álversins og virkjunar á fimm ára byggingartíma. Ætla má að innlend- ur rekstrarkostnaður Fjarðaáls verði um 1.200 milljarðar króna að núvirði á gildis- tíma raforkusamnings fyrirtækis ins, eða sem samsvarar fimmtán- földum fjárfestingar- kostnaði hér innanlands vegna verkefnisins. Svip- uð mynd blasir við þegar horft er til virðisauka af áliðnaði í heild sinni, en útgjöld áliðnaðar hér á landi á síðasta ári námu alls 80 milljörðum króna. Raunar má til fróðleiks nefna að athugun á verðmæta- sköpun í kanadískum áliðnaði leiddi í ljós að eitt 300 þúsund tonna álver skapar ámóta mik- inn virðisauka á hverju 10 ára tímabili og stofnun 750 lítilla og meðal stórra fyrirtækja hefði gert á sama tíma. Meðallíftími álvera í Kanada er í dag 50 ár. Uppbygging áliðnaðar er því fráleitt skyndilausn. Þvert á móti er þetta uppbygging iðnaðar sem skilur eftir sig umtalsverðan virðis auka á ári hverju og mun halda áfram að gera það næstu áratugina. Áliðnaður Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samáls – Samtaka álframleiðenda á Íslandi Þegar öllu er á botn- inn hvolft er nánast hjákátlegt að kenna þessari framkvæmd um ofhitnun íslensks efnahags- lífs á þessu tímabili. ÁHRIF HITASTJÓRNUNAR Á ÞRÓUN HEILA SJÁVARSPENDÝRA Thermogenesis in Cetacean Brain Evolution Dr. Paul Manger fjallar um rannsóknir sínar á formgerð heila sjávarspendýra mánudaginn 11. júlí kl. 16:00–17:00. Niðurstöður rannsókna dr. Manger styðja nýstárlega kenningu þess efnis að stærð heila sjávarspendýra skapist af hitastjórnunarhlutverki hans, en ekki æðra hugarstarfi eins og talið hefur verið. Fyrirlesturinn, sem fram fer á ensku, verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík, Betelgás (V.1.02). Dr. Paul Manger er prófessor í líffærafræði við Witswatersrand háskóla í Jóhannesarborg. Að loknu doktorsprófi í taugavísindum starfaði dr. Manger við rannsóknir í samanburðarlíffærafræði við UCLA háskóla og UC Irivine háskóla. Áður en hann tók við núverandi stöðu árið 2002 var hann gistivísindamaður við Karolinska Institutet og fékkst þar við sjónkerfisrannsóknir. Dr. Manger hefur nú helgað sig alfarið samanburðarlíffærafræði og er hér á landi í þeim tilgangi að safna heilum úr hrefnum. Dr. Manger hefur birt um 115 fræðigreinar og er leiðandi fræðimaður á sínu sviði. ALLIR VELKOMNIR! www.hr.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.