Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 18
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR18
A
uðvitað var maður
alltaf úti í fótbolta
hvort sem það var
inni eða úti. Ég
braut allt heima og
mamma var farin
að henda mér út. Það voru mörk á
grasblettinum fyrir utan og ég lék
mér í fótbolta hvern einasta dag,“
segir Kolbeinn, sem nýverið skrif-
aði undir fjögurra ára samning hjá
hinu sögufræga knattspyrnufélagi
Ajax í Amsterdam.
Það kom snemma í ljós að Kol-
beinn, sem er fæddur árið 1990,
hafði einstaka knattspyrnuhæfi-
leika og var sérstaklega duglegur
við markaskorun. Hann raðaði inn
mörkunum á Pollamótinu í 6. flokki
í Vestmannaeyjum og 5. flokki á
Akureyri og nafn hans var á vörum
allra sem fylgdust með mótunum.
Kolbeinn, sem segist eiga frábær-
ar minningar frá þessum tíma, á
ekki langt að sækja markheppnina.
Andri bróðir hans, og nú umboðs-
maður, var mikill markaskorari.
Slæm hnémeiðsli gerðu það að verk-
um að Andri náði ekki eins langt og
reiknað hafði verið með og hann
lagði skóna á hilluna fyrir aldur
fram.
„Þegar ég var ungur talaði fólk
um að ég væri barnastjarna. Fólk
vissi hver ég var. Þegar við vorum
að spila öskruðu foreldrar mikið á
mig inn á völlinn hvort sem okkur
gekk vel eða ekki. Það kom fyrir
að jafnaldrar mínir báðu mig um
eigin handaráritanir þegar ég var
um tíu ára gamall. Auðvitað er
skrýtið að fá svona athygli þegar
maður er ungur en ég hef þurft
að lifa við hana allan fótboltaferil
minn,“ segir Kolbeinn.
Erlend lið fylgjast með Kolbeini
Kolbeinn spilaði með Víkingum í
Fossvogi allt þar til hann náði 16
ára aldri, þegar hann færði sig vest-
ar í Fossvogsdalinn til HK. Sumar-
ið 2006 steig hann sín fyrstu skref
með meistaraflokki félagsins þrátt
fyrir að vera enn gjaldgengur í 3.
flokk.
Um veturinn stóð Kolbeinn sig
vel með drengjalandsliði Íslands og
skoraði meðal annars fjögur mörk í
sigri á Rússum. Frammistaða hans
vakti athygli erlendis og svo fór að
hann samdi við hollenska félagið
AZ Alkmaar árið 2007.
Þjálfari AZ Alkmaar hinn þraut-
reyndi Louis van Gaal tók hinn
sautján ára Kolbein strax inn í aðal-
liðið.
„Van Gaal var aðalástæðan fyrir
því að ég fór til Alkmaar. Hann
ræddi við mig persónulega og
sýndi mér mikinn áhuga. Svo voru
Aron [Einar Gunnarsson] og Grét-
ar [Rafn Steinsson] þarna líka. Hol-
lenska deildin hefur líka alltaf verið
góð stöð fyrir unga leikmenn svo ég
taldi mig vera að taka góða ákvörð-
un. En maður getur alltaf meiðst,“
segir Kolbeinn.
Hundleiðinleg endurhæfing
Raunin varð sú að hann glímdi við
erfið meiðsli í tvö ár, var í stöðugri
endurhæfingu og fékk aldrei að
sparka í bolta, sem hann segir hafa
verið hundleiðinlegt og erfitt.
„Ég talaði mikið við Andra, sem
hjálpaði mér mikið enda þekkti
hann þessa stöðu af eigin raun.
Hann fór ungur út til Bayern Mün-
chen og meiddist fljótlega. Það var
svipað með mig. Andri minnti mig
reglulega á að þetta væru ekki
sömu meiðsli og fóru svo illa með
hann og það gaf mér trú á að ég
gæti snúið aftur. Auðvitað hugs-
aði maður stundum hvort maður
þyrfti að hætta vegna meiðsla. Það
er erfitt fyrir ungan leikmann sem
er nýkominn út í atvinnumennsku.
Ég vonast til þess að vera búinn að
taka út þennan pakka,“ segir Kol-
beinn.
Eftir langa baráttu við meiðsl-
in fór Kolbeinn að láta til sín taka
með AZ Alkmaar á síðasta tímabili.
Framan af var hann fyrst og fremst
varamaður en nafnið Sigþórsson
fór sem eldur í sinu um alla Evrópu
eftir 6-1 sigurleik liðsins í deildar-
leik gegn Venlo. Kolbeinn skoraði
fimm mörk í leiknum og vann sér
fast sæti í liðinu.
„Þetta var á þeim tímapunkti
sem ég var að fá tækifæri í
byrjunar liðinu. Maðurinn sem var
á undan mér í röðinni í framherja-
stöðuna var búinn að vera meiddur
í tvo leiki. Ég hafði byrjað leikina
en ekki tekist að skora. Þjálfarinn
kallaði mig á fund einni og hálfri
klukkustund fyrir leikinn. Hann
sagði mér hreint út að ég yrði að
skora til að halda sæti mínu í byrj-
unarliðinu því hinn leikmaðurinn
væri að koma úr meiðslum. Það
setti aukna pressu á mig og gaf mér
auka kraft. Stíflan brast með þess-
um fimm mörkum og það hjálpaði
mér mjög mikið,“ segir Kolbeinn.
Verið undir pressu frá unga aldri
Frábær frammistaða Kolbeins
með félagsliði sínu og U21 lands-
liði Íslands vakti athygli stóru lið-
anna og svo fór að Ajax klófesti
markahrókinn eftirsótta. Kolbeini
var úthlutað treyju númer níu, sem
margir af bestu leikmönnum knatt-
spyrnusögunnar hafa borið í gegn-
um árin.
„Ég vonaðist eftir því að fá níuna
en bað ekki um hana. Þeir vildu að
ég fengi hana. Þeir hafa mikla trú
á mér og ég er keyptur til þess að
gera góða hluti og skora mörk. Ég
er tilbúinn í það og ætla mér að
gera það,“ segir Kolbeinn.
Hann segir Ajax vera stórt félag
sem hafi alið af sér góða leikmenn.
Vel sé fylgst með leikmönnum sem
standa sig hjá félaginu. Þetta geti
því verið stór stökkpallur fyrir
hann standi hann sig vel.
Kolbeinn segir knattspyrnustjór-
ann Frank de Boer hafa tjáð sér
að hann væri hans fyrsti kostur í
framlínu hollensku meistaranna
sem spila í riðlakeppni Meistara-
deildar Evrópu á næstu leiktíð.
Hann segir pressuna á sér vita-
skuld mikla en hann sé þó vanur
henni.
„Það er auðvitað meira undir
núna, en það hefur svo sem alltaf
verið pressa á mér síðan ég var
ungur leikmaður. Ég fann alltaf
fyrir því að ég þyrfti að sýna hvað
ég gæti því allir bjuggust við miklu
af mér. Bróðir minn var góður leik-
maður og ég vildi verða jafngóður
ef ekki betri. Ég setti sjálfur á mig
pressu til að ná því.“
Slapp við unglingavinnuna
Kolbeinn segist alltaf hafa stefnt á
frama í knattspyrnu og aldrei átt
neitt varaplan í bakhöndinni.
„Ég hef aldrei hugsað um neitt
annað en að fara í fótboltann. Ég
hef lagt mikið á mig til þess að
komast þangað sem ég er núna.
Sem betur fer gekk það því ég veit
ekki hvar ég væri ef ég væri ekki
í fótbolta.“
Kolbeinn segist hvorki hafa verið
góður skólastrákur né efni í skrif-
stofumann. „Ég var ekki ofarlega á
einkunnalistanum. Það er ekki gott
að segja frá því en ég var frekar
latur að læra heima og lesa bæk-
urnar. Það var ekki mín deild. Ég
vildi frekar vera úti og sparka í
tuðru en að lesa bækur. Þetta var
það sem ég vildi í lífinu, að spila
fótbolta.“
Kolbeinn fór ekki í unglingavinn-
una á sumrin líkt og flestir jafn-
aldrar hans. Hann varði tíma sínum
í fótbolta þess í stað. „Ég fór frekar
út í fótbolta en að vinna. Pabbi sagði
við mig að ef ég vildi einbeita mér
að fótboltanum myndi það kannski
skila sér í auknum tækifærum. Það
borgaði sig og ég sé ekki mikið eftir
því. Reyndar vildi pabbi einu sinni
fá mig í vinnu í bakaríið hjá sér að
skúra gólf og setja í einhver form.
Ég held ég hafi ekki þraukað tvo
tíma,“ segir Kolbeinn og hlær.
Kolbeinn hefur búið einn í Hol-
landi undanfarin fjögur ár ef undan
er skilið fyrsta hálfa árið. Þá dvaldi
eldri systir hans, Sif, hjá honum,
sem hann segir hafa hjálpað sér
mikið.
„Hún kenndi mér öll verkin á
heimilinu, sem hefur nýst mér vel.
Maður kann núna að þrífa fötin sín,
taka úr þvotta- og uppþvottavél-
inni. Hún fór yfir það með mér. Ég
hefði reyndar mátt læra betur að
elda ofan í sjálfan mig. Ég er latur
að elda og fer eiginlega alltaf út að
borða. Ég þarf að bæta mig á því
sviði,“ segir Kolbeinn.
Raunhæft að koma
A-liðinu á stórmót
Það er skammt stórra högga á milli
í fótboltanum. „Ef þú stendur þig
vel lofa þig allir og ef þú stendur
þig illa ertu rakkaður niður og
talað illa um þig. Þetta er bara
það sem fylgir fótboltanum. Menn
í atvinnumennsku verða að læra að
taka því,“ segir Kolbeinn.
Kolbeinn var í eldlínunni með
U21 landsliði Íslands á Evrópu-
mótinu í Danmörku fyrr í sumar.
Íslenska þjóðin gerði miklar kröf-
ur til landsliðsins og strákarnir
settu pressu á sjálfa sig. Kolbeinn
náði ekki að nýta tvö dauðafæri í
fyrsta leiknum gegn Hvít-Rússum
sem tapaðist.
„Það var mjög erfitt að sofna
eftir leikinn. Ég fékk náttúrulega
tvö dauðafæri í þessum leik og
það var mjög svekkjandi að hafa
ekki náð að skora. Hefði boltinn
farið inn hefði leikurinn breyst og
stemningin í liðinu verið allt öðru-
vísi. Okkur tókst ekki að rífa okkur
upp fyrir leikinn gegn Sviss. Við
vorum enn í sárum. Það var vendi-
punktur í keppninni að ná ekki að
setja mörk á þá áður en þeir fengu
víti og rauða spjaldið. En það er
lærdómur fyrir sjálfan mig og allt
liðið að hafa farið í gegnum svona
mót. Nú vitum við hvernig það er
að fara á stórmót og reynum að
nýta þá reynslu í framtíðinni.“
Kolbeinn telur að íslenska þjóðin
búist við því að kjarninn í U21 árs
liðinu geti komið íslenska A-lands-
liðinu á stórmót í framtíðinni. Það
sé einnig draumur leikmannanna
sem hann telur raunhæfan. Auð-
vitað verði Íslendingar að trúa því
að það sé mögulegt því sé trúin ekki
til staðar þá gerist ekki neitt. „Ef
allir leikmennirnir sem spiluðu á
EM halda áfram að byggja sig
upp og bæta sig sem leikmenn
held ég að það sé raunhæft að
komast upp úr riðli og komast á
Evrópumót eða heimsmeistaramót.
Það yrði algjör draumur.“
Mamma henti mér út
Kolbeinn Sigþórsson gaf jafnöldrum sínum eiginhandaráritanir þegar hann var tíu ára gamall. Kolbeinn Tumi Daðason settist niður
með nafna sínum, nýjustu stórstjörnu íslenskrar knattspyrnu, en líf hans hefur snúist um fótbolta frá því hann man eftir sér.
HEFUR SKORAÐ ÓFÁ MÖRKIN Kolbeinn segir bestu minningar sínar úr yngri flokkum vera af Shell-mótunum fyrir 6. flokk í Vestmannaeyjum og skyldi engan undra. Hann varð
þrívegis markakóngur mótsins, fyrst þegar hann var enn gjaldgengur í 7. flokk. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FETAR Í FÓTSPOR VEL ÞEKKTRA LEIKMANNA
Vel þekktir leikmenn hafa leikið í treyju númer níu hjá Ajax rétt eins og
Kolbeinn mun gera í vetur.
Johan Cruijff 1964-1973, 1981-1983
Þrefaldur Evrópumeistari með Ajax og þrisvar kjörinn
knattspyrnumaður ársins í Evrópu. Skipti síðar yfir í treyju
númer 14 sem hefur verið tekin úr umferð hjá Ajax
honum til heiðurs.
Marco van Basten 1982-1987
Þrívegis kjörinn knattspyrnumaður ársins í Evrópu og
einu sinni í heiminum. Evrópumeistari með Hollandi
1988 og tvisvar í sigurliði AC Milan í Evrópukeppni
meistaraliða.
Zlatan Ibrahimovic 2001-2004
Í meistaraliði Ajax og Barcelona auk
Mílanó liðanna AC og Inter. Fimm
sinnnum knattspyrnumaður ársins í
Svíþjóð og tvisvar sinnum á Ítalíu.
Næstdýrasti knattspyrnumaður
allra tíma.
Klaas-Jan Huntelaar 2005-2009
Í sigurliði Hollands og markakóng-
ur á EM U21 árið 2006. Tvívegis
markakóngur í hollensku deildinni
og hefur leikið með stórliðum á
borð við AC Milan og Real Madrid.
Kolbeinn Sigþórsson 2011-