Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 18
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR18 A uðvitað var maður alltaf úti í fótbolta hvort sem það var inni eða úti. Ég braut allt heima og mamma var farin að henda mér út. Það voru mörk á grasblettinum fyrir utan og ég lék mér í fótbolta hvern einasta dag,“ segir Kolbeinn, sem nýverið skrif- aði undir fjögurra ára samning hjá hinu sögufræga knattspyrnufélagi Ajax í Amsterdam. Það kom snemma í ljós að Kol- beinn, sem er fæddur árið 1990, hafði einstaka knattspyrnuhæfi- leika og var sérstaklega duglegur við markaskorun. Hann raðaði inn mörkunum á Pollamótinu í 6. flokki í Vestmannaeyjum og 5. flokki á Akureyri og nafn hans var á vörum allra sem fylgdust með mótunum. Kolbeinn, sem segist eiga frábær- ar minningar frá þessum tíma, á ekki langt að sækja markheppnina. Andri bróðir hans, og nú umboðs- maður, var mikill markaskorari. Slæm hnémeiðsli gerðu það að verk- um að Andri náði ekki eins langt og reiknað hafði verið með og hann lagði skóna á hilluna fyrir aldur fram. „Þegar ég var ungur talaði fólk um að ég væri barnastjarna. Fólk vissi hver ég var. Þegar við vorum að spila öskruðu foreldrar mikið á mig inn á völlinn hvort sem okkur gekk vel eða ekki. Það kom fyrir að jafnaldrar mínir báðu mig um eigin handaráritanir þegar ég var um tíu ára gamall. Auðvitað er skrýtið að fá svona athygli þegar maður er ungur en ég hef þurft að lifa við hana allan fótboltaferil minn,“ segir Kolbeinn. Erlend lið fylgjast með Kolbeini Kolbeinn spilaði með Víkingum í Fossvogi allt þar til hann náði 16 ára aldri, þegar hann færði sig vest- ar í Fossvogsdalinn til HK. Sumar- ið 2006 steig hann sín fyrstu skref með meistaraflokki félagsins þrátt fyrir að vera enn gjaldgengur í 3. flokk. Um veturinn stóð Kolbeinn sig vel með drengjalandsliði Íslands og skoraði meðal annars fjögur mörk í sigri á Rússum. Frammistaða hans vakti athygli erlendis og svo fór að hann samdi við hollenska félagið AZ Alkmaar árið 2007. Þjálfari AZ Alkmaar hinn þraut- reyndi Louis van Gaal tók hinn sautján ára Kolbein strax inn í aðal- liðið. „Van Gaal var aðalástæðan fyrir því að ég fór til Alkmaar. Hann ræddi við mig persónulega og sýndi mér mikinn áhuga. Svo voru Aron [Einar Gunnarsson] og Grét- ar [Rafn Steinsson] þarna líka. Hol- lenska deildin hefur líka alltaf verið góð stöð fyrir unga leikmenn svo ég taldi mig vera að taka góða ákvörð- un. En maður getur alltaf meiðst,“ segir Kolbeinn. Hundleiðinleg endurhæfing Raunin varð sú að hann glímdi við erfið meiðsli í tvö ár, var í stöðugri endurhæfingu og fékk aldrei að sparka í bolta, sem hann segir hafa verið hundleiðinlegt og erfitt. „Ég talaði mikið við Andra, sem hjálpaði mér mikið enda þekkti hann þessa stöðu af eigin raun. Hann fór ungur út til Bayern Mün- chen og meiddist fljótlega. Það var svipað með mig. Andri minnti mig reglulega á að þetta væru ekki sömu meiðsli og fóru svo illa með hann og það gaf mér trú á að ég gæti snúið aftur. Auðvitað hugs- aði maður stundum hvort maður þyrfti að hætta vegna meiðsla. Það er erfitt fyrir ungan leikmann sem er nýkominn út í atvinnumennsku. Ég vonast til þess að vera búinn að taka út þennan pakka,“ segir Kol- beinn. Eftir langa baráttu við meiðsl- in fór Kolbeinn að láta til sín taka með AZ Alkmaar á síðasta tímabili. Framan af var hann fyrst og fremst varamaður en nafnið Sigþórsson fór sem eldur í sinu um alla Evrópu eftir 6-1 sigurleik liðsins í deildar- leik gegn Venlo. Kolbeinn skoraði fimm mörk í leiknum og vann sér fast sæti í liðinu. „Þetta var á þeim tímapunkti sem ég var að fá tækifæri í byrjunar liðinu. Maðurinn sem var á undan mér í röðinni í framherja- stöðuna var búinn að vera meiddur í tvo leiki. Ég hafði byrjað leikina en ekki tekist að skora. Þjálfarinn kallaði mig á fund einni og hálfri klukkustund fyrir leikinn. Hann sagði mér hreint út að ég yrði að skora til að halda sæti mínu í byrj- unarliðinu því hinn leikmaðurinn væri að koma úr meiðslum. Það setti aukna pressu á mig og gaf mér auka kraft. Stíflan brast með þess- um fimm mörkum og það hjálpaði mér mjög mikið,“ segir Kolbeinn. Verið undir pressu frá unga aldri Frábær frammistaða Kolbeins með félagsliði sínu og U21 lands- liði Íslands vakti athygli stóru lið- anna og svo fór að Ajax klófesti markahrókinn eftirsótta. Kolbeini var úthlutað treyju númer níu, sem margir af bestu leikmönnum knatt- spyrnusögunnar hafa borið í gegn- um árin. „Ég vonaðist eftir því að fá níuna en bað ekki um hana. Þeir vildu að ég fengi hana. Þeir hafa mikla trú á mér og ég er keyptur til þess að gera góða hluti og skora mörk. Ég er tilbúinn í það og ætla mér að gera það,“ segir Kolbeinn. Hann segir Ajax vera stórt félag sem hafi alið af sér góða leikmenn. Vel sé fylgst með leikmönnum sem standa sig hjá félaginu. Þetta geti því verið stór stökkpallur fyrir hann standi hann sig vel. Kolbeinn segir knattspyrnustjór- ann Frank de Boer hafa tjáð sér að hann væri hans fyrsti kostur í framlínu hollensku meistaranna sem spila í riðlakeppni Meistara- deildar Evrópu á næstu leiktíð. Hann segir pressuna á sér vita- skuld mikla en hann sé þó vanur henni. „Það er auðvitað meira undir núna, en það hefur svo sem alltaf verið pressa á mér síðan ég var ungur leikmaður. Ég fann alltaf fyrir því að ég þyrfti að sýna hvað ég gæti því allir bjuggust við miklu af mér. Bróðir minn var góður leik- maður og ég vildi verða jafngóður ef ekki betri. Ég setti sjálfur á mig pressu til að ná því.“ Slapp við unglingavinnuna Kolbeinn segist alltaf hafa stefnt á frama í knattspyrnu og aldrei átt neitt varaplan í bakhöndinni. „Ég hef aldrei hugsað um neitt annað en að fara í fótboltann. Ég hef lagt mikið á mig til þess að komast þangað sem ég er núna. Sem betur fer gekk það því ég veit ekki hvar ég væri ef ég væri ekki í fótbolta.“ Kolbeinn segist hvorki hafa verið góður skólastrákur né efni í skrif- stofumann. „Ég var ekki ofarlega á einkunnalistanum. Það er ekki gott að segja frá því en ég var frekar latur að læra heima og lesa bæk- urnar. Það var ekki mín deild. Ég vildi frekar vera úti og sparka í tuðru en að lesa bækur. Þetta var það sem ég vildi í lífinu, að spila fótbolta.“ Kolbeinn fór ekki í unglingavinn- una á sumrin líkt og flestir jafn- aldrar hans. Hann varði tíma sínum í fótbolta þess í stað. „Ég fór frekar út í fótbolta en að vinna. Pabbi sagði við mig að ef ég vildi einbeita mér að fótboltanum myndi það kannski skila sér í auknum tækifærum. Það borgaði sig og ég sé ekki mikið eftir því. Reyndar vildi pabbi einu sinni fá mig í vinnu í bakaríið hjá sér að skúra gólf og setja í einhver form. Ég held ég hafi ekki þraukað tvo tíma,“ segir Kolbeinn og hlær. Kolbeinn hefur búið einn í Hol- landi undanfarin fjögur ár ef undan er skilið fyrsta hálfa árið. Þá dvaldi eldri systir hans, Sif, hjá honum, sem hann segir hafa hjálpað sér mikið. „Hún kenndi mér öll verkin á heimilinu, sem hefur nýst mér vel. Maður kann núna að þrífa fötin sín, taka úr þvotta- og uppþvottavél- inni. Hún fór yfir það með mér. Ég hefði reyndar mátt læra betur að elda ofan í sjálfan mig. Ég er latur að elda og fer eiginlega alltaf út að borða. Ég þarf að bæta mig á því sviði,“ segir Kolbeinn. Raunhæft að koma A-liðinu á stórmót Það er skammt stórra högga á milli í fótboltanum. „Ef þú stendur þig vel lofa þig allir og ef þú stendur þig illa ertu rakkaður niður og talað illa um þig. Þetta er bara það sem fylgir fótboltanum. Menn í atvinnumennsku verða að læra að taka því,“ segir Kolbeinn. Kolbeinn var í eldlínunni með U21 landsliði Íslands á Evrópu- mótinu í Danmörku fyrr í sumar. Íslenska þjóðin gerði miklar kröf- ur til landsliðsins og strákarnir settu pressu á sjálfa sig. Kolbeinn náði ekki að nýta tvö dauðafæri í fyrsta leiknum gegn Hvít-Rússum sem tapaðist. „Það var mjög erfitt að sofna eftir leikinn. Ég fékk náttúrulega tvö dauðafæri í þessum leik og það var mjög svekkjandi að hafa ekki náð að skora. Hefði boltinn farið inn hefði leikurinn breyst og stemningin í liðinu verið allt öðru- vísi. Okkur tókst ekki að rífa okkur upp fyrir leikinn gegn Sviss. Við vorum enn í sárum. Það var vendi- punktur í keppninni að ná ekki að setja mörk á þá áður en þeir fengu víti og rauða spjaldið. En það er lærdómur fyrir sjálfan mig og allt liðið að hafa farið í gegnum svona mót. Nú vitum við hvernig það er að fara á stórmót og reynum að nýta þá reynslu í framtíðinni.“ Kolbeinn telur að íslenska þjóðin búist við því að kjarninn í U21 árs liðinu geti komið íslenska A-lands- liðinu á stórmót í framtíðinni. Það sé einnig draumur leikmannanna sem hann telur raunhæfan. Auð- vitað verði Íslendingar að trúa því að það sé mögulegt því sé trúin ekki til staðar þá gerist ekki neitt. „Ef allir leikmennirnir sem spiluðu á EM halda áfram að byggja sig upp og bæta sig sem leikmenn held ég að það sé raunhæft að komast upp úr riðli og komast á Evrópumót eða heimsmeistaramót. Það yrði algjör draumur.“ Mamma henti mér út Kolbeinn Sigþórsson gaf jafnöldrum sínum eiginhandaráritanir þegar hann var tíu ára gamall. Kolbeinn Tumi Daðason settist niður með nafna sínum, nýjustu stórstjörnu íslenskrar knattspyrnu, en líf hans hefur snúist um fótbolta frá því hann man eftir sér. HEFUR SKORAÐ ÓFÁ MÖRKIN Kolbeinn segir bestu minningar sínar úr yngri flokkum vera af Shell-mótunum fyrir 6. flokk í Vestmannaeyjum og skyldi engan undra. Hann varð þrívegis markakóngur mótsins, fyrst þegar hann var enn gjaldgengur í 7. flokk. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FETAR Í FÓTSPOR VEL ÞEKKTRA LEIKMANNA Vel þekktir leikmenn hafa leikið í treyju númer níu hjá Ajax rétt eins og Kolbeinn mun gera í vetur. Johan Cruijff 1964-1973, 1981-1983 Þrefaldur Evrópumeistari með Ajax og þrisvar kjörinn knattspyrnumaður ársins í Evrópu. Skipti síðar yfir í treyju númer 14 sem hefur verið tekin úr umferð hjá Ajax honum til heiðurs. Marco van Basten 1982-1987 Þrívegis kjörinn knattspyrnumaður ársins í Evrópu og einu sinni í heiminum. Evrópumeistari með Hollandi 1988 og tvisvar í sigurliði AC Milan í Evrópukeppni meistaraliða. Zlatan Ibrahimovic 2001-2004 Í meistaraliði Ajax og Barcelona auk Mílanó liðanna AC og Inter. Fimm sinnnum knattspyrnumaður ársins í Svíþjóð og tvisvar sinnum á Ítalíu. Næstdýrasti knattspyrnumaður allra tíma. Klaas-Jan Huntelaar 2005-2009 Í sigurliði Hollands og markakóng- ur á EM U21 árið 2006. Tvívegis markakóngur í hollensku deildinni og hefur leikið með stórliðum á borð við AC Milan og Real Madrid. Kolbeinn Sigþórsson 2011-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.