Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 28
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR28
109
6
7
1
23 4 5
8
11
Borganes
Bifröst
1. Hafnarfjall
Margir hafa lent í sviptivindum
undir Hafnarfjalli og fýsir kannski
ekki að ganga á tindinn. En þeir
sem það gera verða ekki sviknir
af fögru útsýni. Fjallið er nokkuð
auðgengt en gangan hefst norðan-
megin fjalls.
2. Hvanneyri
Í því prjónaæði sem ríður yfir land-
ann er óhætt að mæla með heim-
sókn í Ullarsetrið á Hvanneyri,
verslun og vinnustofu áhugafólks
af Vesturlandi um ullariðn. Margt
fleira er að sjá á Hvanneyri, sem
er aðsetur Landbúnaðarháskóla
Íslands.
3. Bjössaróló
Heimsókn á einn skemmtilegasti
róló landsins, Bjössaróló í Borgar-
nesi, mun pottþétt hitta í mark hjá
yngstu kynslóðinni. Rólóinn var
reistur af Birni H. Guðmundssyni
trésmíðameistara og hefur sérstætt
útlit sem hefur verið vel varðveitt.
4. Landnámsetrið
Landnámssetrið í Borgarnesi
hefur fest sig í sessi sem skyldu-
stopp fyrir ferðamenn. Sýning-
arnar eru forvitnilegar
og kaffihúsið gott.
5. Brúðuheimar
Heimsókn í Brúðuheima í Borgar-
nesi er skemmtileg fyrir börn og
fullorðna, þar má skoða fallegar
brúður, fara á sýningar og svo er
kaffihúsið dásamlegt.
6. Glanni og Paradísarlaut
Rétt sunnan við Bifröst liggur
afleggjari til austurs og göngu-
stígur í framhaldi þar sem fag-
urt útsýni er yfir fossinn Glanna.
Áfram er svo hægt að ganga niður í
Paradísarlaut, fagra laut í hrauninu
með lítilli tjörn sem aldrei leggur.
7. Hreðavatn
Það er skemmtilegur túr að aka að
Hreðavatni en víðsýnt er af leið-
inni frá Hreðavatni og upp á hæð-
ina vestan við það. Ef áfram er
haldið yfir ásinn er komið niður
að litlu vatni sem heitir Selvatn.
Þarna er hægt að ganga
vestan megin inn í
skógræktar girðinguna
og njóta stórkostlegs
útsýnis yfir héraðið.
8. Grábrók
Ganga á Grábrók er þægileg og
hentar allri fjölskyldunni. Þó fjall-
ið sé ekki hátt er víðsýnt af toppn-
um, gott útsýni yfir Norðurárdal og
fjallahringinn.
9. Kleppjárnsreykir
Á ferðalagi er ekki ónýtt að geta
gert góð kaup á grænmeti og sult-
um eins og raunin er á Kleppjárns-
reykjum. Þar er einnig indælis
sundlaug sem gott er að fara í.
10. Reykholt
Slóðir Snorra Sturlusonar eru
áhugaverðar heim að sækja. Sögu-
sýning í Snorrastofu hittir í mark
og svo má ekki gleyma að líta á
heitu laugina þar sem Snorri baðaði
sig forðum daga.
11. Húsafell
Tjaldsvæðið í Húsafelli er mjög
fínt og sundlaugin á svæðinu góð. Í
nágrenni þessa vinsæla sumarleyfis-
staðar til áratuga er margt skemmti-
legt að skoða, hella, Húsafell og fjöll
svo fátt eitt sé nefnt.
Fossar, fjöll og fjölskylduvænt fjör
Margt áhugavert og skemmtilegt fyrir ferðamenn er að finna í Borgarfirði og nágrenni. Fréttablaðið bendir hér á nokkra
staði sem enginn ferðalangur á þessum slóðum ætti að láta framhjá sér fara.
Bylgjulestin sem fagnar 25 ára
afmæli Bylgjunnar með ferð um
Ísland í sumar verður á Sauðárkróki
og verður þátturinn Ævintýraeyjan
með Hemma Gunn og Svansý
sendur þaðan út.
Klassík í Reykholti
22. til 24. júlí fagnar Reykholtshátíð
fimmtán ára afmæli sínu. Á hátíðinni
leika listamenn frá Íslandi, Noregi,
Litháen, Englandi og Svíþjóð klass-
íska tónlist af fjölbreyttu tagi.
Nytjamarkaður í Brákarey
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
stendur fyrir nytjamarkaði í Brákarey
í Borgarnesi á laugardögum í sumar.
Varðeldur og Eyvi
Á hverjum laugardegi fram í ágúst er
tendraður varðeldur í Hátíðarlundi
í Húsafelli klukkan níu. Eyjólfur
Kristjánsson, söngvarinn góðkunni,
sér um sönginn við eldinn.
Farmall-fagnaður
Laugardaginn 16. júlí efna menn til
Farmall-fagnaðar á Hvanneyri. Þá
eru allir áhugamenn velkomnir með
forndráttarvélar sínar að Hvanneyri.
■ HÁTÍÐIR OG VIÐBURÐIR FRAM UNDAN:
Opnunartími:
Mán-Fös. kl: 10-18
Laug-Sun. kl: 12-16
Fossháls 5-7 l 110 Reykjavík
Sími 551 5600 l utilegumadurinn.is
Rockwood fellihýsi fyrir íslenskar aðstæður
Rockwood Premier 2317G 12 fet. Rockwood 191XR OFF ROAD 10 fet.Rockwood Premier 1904 10 fet.
Ríkulegur staðalbúnaður í Rockwood fellihýsum
• Galvaníseruð grind
• Evrópskar þrýstibremsur
• Upphitaðar 12 cm springdýnur
• Tjakkar með sandskeifum á öllum
hornum
• Góð fjöðrun, fjaðrir sem henta vel á
íslenskum vegum
• Útdraganleg trappa við inngang
• Breitt nefhjól (uppblásið gúmmídekk)
• Handbremsa og varadekk m/hlíf
• 50 mm kúlutengi
• 220v tengill (blár skv. reglugerð)
• Útvarp með geislaspilara,
hátalarar inni og úti
• Radial dekk / 13” álfelgur
• Vatnsh. öndunardúkur í svefnrými
• Dometic kæliskápur XL 2,5 cubic
• SMEV ryðfrí gaseldavél m/rafstarti
• 2 gaskútar
• Gasviðvörunarkerfi
• Öflug Truma combi 4 miðstöð
m/heitu vatni
• Stór loftlúga m/þriggja hraða viftu
• Skyggni (markísa)
• Skyggðir gluggar
• Flugnanet f. gluggum og hurð
• Gardínur f. gluggum og svefnrými
• 2ja feta geymsluhólf
• Stórt farangurshólf
• Voldugir öryggisarmar fyrir þak
og tjald
• 3 x 12 volta loftljós og 1 x útiljós
• 1 x færanlegt lesljós með viftu
• 110 amp rafgeymir
• Heitt og kalt vatn, tengt
• Rafmagnsvatnsdæla
• 86 lítra vatnstankur
• Klósett með hengi
Torfæru útgáfan frá Rockwood
fyrir þá sem vilja komast lengra.
m/ útdraganlegri hlið.
• upphækkað á 15” dekkjum
• sér styrkt grind og sterkari hjólabúnaður.
Verð: 2.698.000krVerð: 2.998.000kr Verð: 2.898.000kr