Fréttablaðið - 09.07.2011, Qupperneq 50
6 matur
Hugmyndin að þessu salati kom þegar við vorum að stækka matseðilinn hjá okkur á 73 og okkur fannst vanta sumarlegt salat á hann. Fátt er sumarlegra en fersk jarðar-ber. Þegar ég fór að prófa hvað færi best með þeim endaði ég á fetaosti og konfekttó-
mötum, ásamt dressingunni okkar. Þetta prufukeyrðum við svo á starfsfólkinu og nokkrum
kúnnum og allir voru sammála um að þetta passaði mjög vel saman,“ segir Arnbjörn um
tilurð salats ins sem hann gefur lesendum fúslega uppskrift að. „Þetta hentar ágætlega sem
valkostur fyrir þá sem vilja koma og njóta sólarinnar í garðinum okkar en eru ekki alveg
tilbúnir í 400 gramma nautasteikina eða 300 gramma hamborgarann,“ bendir hann á. - gun
Sumarsalat úr jarðarberjum, konfekttómötum, fetaosti og Lambhagasalati. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ferskt íslenskt salat (t.d. Lambhagasalat).
Jarðarber 4-5 stykki fer eftir stærð, skorin í fernt (auðvitað má nota miklu meira
af þeim, eftir smekk).
3-4 konfekttómatar eða kirsuberjatómatar einnig skornir í fernt.
u.þ.b. 10 bitar fetaostur
smá Maldon-sjávarsalt yfir
„Það má nota ýmsa dressingu með þessu salati en við á 73 kjósum að nota með
því ferska sítrónu-hunangsdressingu sem búin er til á staðnum,“ segir Arnbjörn
brosandi en lengra fer hann ekki í uppljóstrunum.
SUMARSALAT 73
Fátt sumarlegra en
FERSK JARÐARBER
Sól, jarðarberjasalat og hvítvínsglas eða Toppur er algerlega málið í sumar að mati
Arnbjörns Kristjánssonar veitingamanns á 73 og móður hans Jóhönnu Arnbjörnsdóttur.
Bókin Safar og þeytingar geymir fjölbreytt
úrval hollustudrykkja úr alls kyns hráefnum. Í
henni eru uppskriftir að fljótlegum drykkjum
sem einfalt er að útbúa. Drykkirnir eru úr
grænmeti og ávöxtum og eiga það sameig-
inlegt að vera ferskir og uppfullir af næring-
arefnum. Ítarleg atriðisorðaskrá auðveld-
ar leit að drykkjum úr ákveðnu hráefni. Lím-
ónusæla, berjaþeytingur og ástarfuni eru á
meðal yfir tvö hundruð drykkja í bókinni.
A
FREISTING.IS er fréttasíða um mat og vín. Á síðunni má lesa nýj-
ustu fréttirnar úr veitingageiranum ásamt mannlífsfréttum
sem honum tengjast og fróðleiksmola um mat og
vín. Einnig er hægt að nálgast uppskriftir á síð-
unni. Síðan er sjálfstæð eining innan matreiðslu-
klúbbsins Freistingar, sem fjórir skólafélagar
úr Hótel- og veitingaskólanum stofnuðu árið
1994. Tilgangur klúbbsins er að öðlast frek-
ari þekkingu á leyndardómum matargerðar-
menningar almennt, til dæmis á sykurskreyt-
ingum, klakaskurði og vínþekkingu.
BÆNDAMARKAÐUR er starfræktur í Garðyrkju-
stöðinni Engi í Laugarási í Biskupstungum. Mark-
aðurinn er opinn föstudaga, laugardaga og sunnu-
daga frá klukkan 12 til 18. Virka daga er hægt að
kaupa kryddjurtir og það grænmeti sem tiltækt er
frá klukkan 13 til 18 ef ábúendur eru á staðnum, en
þá er markaðurinn ekki opinn.
STEINEFNI eru nauðsynleg næringarefni sem líkaminn
þarfnast í litlu magni fyrir eðlilega líkamsstarfsemi. Mismik-
ið er af steinefnum í fæðutegundum eins og kjöti, korn-
vörum, fiski og mjólk. Steinefni eru nauðsynleg af þrem-
ur ástæðum, til að byggja upp sterk bein og tennur, til að
stjórna vökvajafnvægi líkamans og til að umbreyta matn-
um sem við borðum í orku.
Margt smátt
MATREIÐSLUBÓKIN
Frískandi í sólinni
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
FÁÐU BEITTUSTU
BRANDARANA Í SÍMANN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi