Fréttablaðið - 09.07.2011, Page 56

Fréttablaðið - 09.07.2011, Page 56
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR32 timamot@frettabladid.is VALGERÐUR SIGURBERGSDÓTTIR: FAGNAR AFMÆLI OG FYRSTU SKÓFLUSTUNGU Unnið stíft akkúrat þessa dagana BRYNDÍS SCHRAM fyrrverandi skólameistari er 73 ára. „Aldurinn skiptir ekki máli heldur hvað maður er að fást við á hverjum tíma.“ 73 Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Bjargar Jóhannsdóttur Bólstaðarhlíð 13, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á F 2 og G 2 á Hrafnistu í Reykjavík fyrir alúð og góða umönnun. Jóhann Ólafsson Jeanne Miller Sigrún Ólafsdóttir Helgi Bergþórsson ömmubörn og langömmubörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför dóttur minnar og systur okkar, Sigríðar Sigtryggsdóttur Vesturbrún 17. Sérstakar þakkir til starfsfólks í Vesturbrúninni, Bjarkarási og hjá Heimahlynningu fyrir hlýja og fagmannlega umönnun hvort heldur var í lífi Siggu og starfi eða í veikindum hennar undir lokin. Elín Sigurðardóttir Sigurlaug Anna Sigtryggsdóttir Erla Sigtryggsdóttir og fjölskyldur. Elskuleg eiginkona mín, móðir , tengdamóðir og amma, Ísleif Þórey Grímsdóttir frá Vestmannaeyjum, andaðist á spítala í Somerset, New-Jersey 31. maí. Útförin hefur farið fram. Gerry Doyle Theodora Doyle Connor Thomas Vincent Connor Thomas G. Connor Miochael T. Connor Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Bjarni Magnússon Brúnavegi 9, Reykjavík, áður til heimilis á Bugðulæk 16, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 6. júlí. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 15. júlí kl. 15.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Birna Birgisdóttir Gunnar Ólafur Bjarnason Sigrún Sigfúsdóttir Dóra Bjarnadóttir Gylfi Gunnarsson Gunnar Ásbjörn Bjarnason Guðný Káradóttir Hannes Bjarnason Birna Vilbertsdóttir barnabörn, barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma, Dagmar Koeppen Þinghólsbraut 56, Kópavogi, lést 2. júli. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 11. júlí 2011, kl. 13.00. Brynjar Bjarnason Erwin Pétur Koeppen Erwin Marcela Ingimar Magdalena Angela Sverrir og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, systir og mágkona, amma og langamma, Edda Sigrún Svavarsdóttir Illugagötu 50, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmanneyja 29. júní. Útförin fer fram frá Landakirkju í dag, laugardag 9. júlí kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Félag nýrnasjúkra s: 561 9244. Garðar Gíslason Svavar Garðarsson Valdís Stefánsdóttir Gísli Þór Garðarsson Elva Ragnarsdóttir Eggert Garðarsson Svava Johnsen Sigríður Garðarsdóttir Hjalti Hávarðsson Lára Ósk Garðarsdóttir Jósúa Steinar Óskarsson Garðar Rúnar Garðarsson Rinda Rissakorn Halldór Pálsson Friðrikka (Rikka) Svavarsdóttir Hrafn Oddsson Áslaug Svavarsdóttir Ingvar Vigfússon Svava Svavarsdóttir Egill Ásgrímsson Sif Svavarsdóttir Sævar Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Friðbjörn Guðni Aðalsteinsson lést þann 7. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ásta Einarsdóttir Magnús Guðnason Klara Sveinbjörg Guðnadóttir Birgir Guðnason Borghildur Sverrisdóttir Eygló Guðnadóttir Kristinn Gunnarsson Ingi A. Guðnason Sonja Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Einlægar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elsku eiginmanns mín, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Einars Ó. Stefánssonar húsgagnabólstrara, Sólheimum 23, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar Landspítalans við Hringbraut fyrir einstaka hlýju og umönnun. Ásta Kristjánsdóttir Stefán Einarsson Inga Þórsdóttir Sigríður Einarsdóttir Þorgeir Kristjánsson Berglind Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Valgerður Sigurbergsdóttir matráðs- kona í jarðvinnufyrirtækinu Skúta- bergi á Akureyri fagnar tveimur stórum áföngum í dag, sjötugsafmæli og fyrstu skóflustungu að húsi eina vinnuvélasafns Íslands, Konnasafns, sem tekin verður á Skútum í Hörgárdal klukkan 15. Safnið heitir eftir manni hennar, Konráði Vilhjálmssyni véla- manni sem lést skyndilega í febrúar síðastliðnum. Þegar Valgerður er beðin að rifja upp sitthvað frá sínum dögum er hún fljót til svars: „Mínir dagar eru allir eins svo þetta verður einfalt. Síðan stóra áfallið reið yfir hafa þeir að minnsta kosti allir verið ósköp svip- aðir.“ Valgerður ólst upp í hópi tíu systkina í Svínafelli í Nesjum. Þar runnu Horna- fjarðarfljótin beggja megin við bæinn. „Ég fór oft yfir Fljótin á hestum, í kláf og síðar bílum en þrátt fyrir þetta vatnauppeldi slapp ég við að þurfa að bjarga mér á sundi sem var gott. Það fóru nefnilega allir út á Höfn að læra að synda á ungdómsárunum nema ég, mér fannst ég þurfa að hjálpa mömmu með mjaltir og fleira og hef ekki enn haft tíma til að læra sund.“ Ung kveðst Valgerður hafa verið send austur í Norðfjöð að hjálpa til á heimili og einnig norður í Skagafjörð að passa bróðurson sinn. „Þá strax var ákveðið að ég færi í húsmæðraskólann á Löngumýri. Það passaði til að þegar ég fór þangað, 19 ára, var ég búin að finna skagfirskan draumaprins og fór ekkert heim eftir það heldur flutti til hans að Ytri-Brekkum í Akrahreppi. Konráð var nefnilega í vinnuflokknum sem kom austur að brúa Hornafjarðar- fljótin vorið 1960. Þetta var allt undir- búið einhvers staðar.“ Meðan börnin, átta talsins, voru ung kveðst Valgerður mest hafa sinnt heimilishaldi og búskap. „Stundum var ég líka að kokka í vinnuflokkum með Konráði og þess vegna urðu börn- in snemma svo tengd vélavinnu. En á haustin var ég oft í sláturhúsinu á Sauðárkróki og ég vann við löndun líka hjá Fiskiðjunni. Svo var ég húsvörður í félagsheimilinu Miðgarði í nokkur ár en seinna gerðist ég ráðskona í fullu starfi hjá fjölskyldufyrirtækinu okkar Arnarfelli, sem fékkst við vegagerð og fleiri framkvæmdir víða um land.“ Ekki gerir Valgerður mikið úr eigin vinnuvélareynslu. „Ég var einu sinni eitthvað á ýtu við vegagerð á Háreks- staðaleiðinni. Það var komið fram undir jól, við hjónin vorum ein eftir í flokknum og veðrið orðið frekar kulda- legt. Þá fannst mér betra að taka þátt í jarðvinnunni en að hanga ein í búð- unum.“ Nú eldar Valgerður handa 15 manns og sumum þeirra færir hún mat í malar gryfjuna á Skútum. „Það er unnið svo stíft akkúrat þessa dagana,“ er skýringin. gun@frettabladid.is MATMÓÐIR MEÐ MEIRU Valgerður tekur fram að fyrsta skóflustunga að Konnasafni verði klukkan 15 í dag á Skútum í Hörgárdal og býður í kaffi á eftir. MYND/HEIDA.IS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.