Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 60

Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 60
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR36 Er gaman að leika Steindann okkar? „Já, það getur verið mjög gaman, sérstaklega þegar ég bregð mér í góð gervi eða þegar ég leik karaktera sem eru mjög ólíkir mér í raunveru- leikanum.“ Er ekki erfitt að búa til svona marga brandara og lög? „Það er að sjálf- sögðu vinna á bak við hvern einasta brandara. Við erum þrír sem skrifum þættina og náum ótrúlega vel saman. Við höfum ekki lent í ritstíflu hingað til.“ Meinarðu allt sem þú segir í sjónvarpi? „Nei alls ekki, langt frá því. En að mínu mati má gera grín að öllu.“ Er stundum dýpri boð skapur eða falin merking í mynd- böndunum með þér? „Geturðu komið með eitt dæmi? Að sjálf- sögðu, en áhorfendur verða að finna það út sjálfir.“ Hvenær þarftu að vakna á morgnana og hvenær finnst þér best að vakna? „Það er rosalega misjafnt, stundum þarf ég að vakna eldsnemma og stundum fæ ég að sofa út. Ég get verið lengi í gang á morgnana. Mér finnst best að vakna klukkan 10 og vinna frekar fram eftir, þannig kem ég fleiru í verk.“ Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú varst lítill? „Leikstjóri, svo með árunum fór ég að heillast meira af því að skrifa og leika.“ Hverjir voru uppáhalds sjón- varpsþættirnir þínir þegar þú varst krakki? „Þeir voru marg- ir, til dæmis Skot á mark, Kalli og félagar og Nonni og Manni. Svo þegar ég varð ungling- ur voru það Tvíhöfði og Fóst- bræður.“ Hvað finnst þér um krakka? „Þeir eru mjög skemmtilegir, krakkar eru svo hreinskiln- ir. Einu sinni sagði krakki við mig að ég liti út eins og hrúts- pungur í framan. Hver getur hatað það?“ Það er ein kona sem er alltaf í þáttunum. Er hún kærast- an þín? „Það er hún Þór- unn Antonía. Hún er kærast- an hans Bents, sem leik- stýrir og skrifar með mér þættina.“ Heldurðu að sería þrjú komi út? „Já, ég held það. Við sáum alltaf fyrir okkur að þetta yrðu þrjár seríur. Svo langar okkur að prófa að gera eitt- hvað nýtt. Við erum með mjög margar hugmyndir. Við erum langt frá því að vera saddir.“ Spilarðu tölvuleiki? „Ég spila mjög mikið af tölvuleikjum og þá aðallega á PS3. Ég spila COD og Mortal Kombat mest, enda er sá síðarnefndi besti tölvuleikur allra tíma. Þegar ég spila COD nota ég Galil með Suppressor og er óstöðvandi.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Saltkjöt.“ krakkar@frettabladid.is 36 Það er að sjálf- sögðu vinna á bak við hvern einasta brandara. Við erum þrír sem skrifum þætt- ina og náum ótrúlega vel saman. Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is Fíll og mús fóru í bíó. Fíllinn sat beint fyrir framan músina. Í hléinu spurði músin fílinn: „Gætirðu nokkuð fært þig um eitt sæti svo ég sjái mynd- ina líka?“ Þegar fíllinn neit- aði settist músin fyrir fram- an hann og sagði: „Nú sérðu hvað þetta er pirrandi.“ Spurning: Af hverju veiddi Nói bara tvo fiska á meðan hann var í örkinni? Svar: Hann var bara með tvo ánamaðka. Einu sinni fóru fíll og mús saman í sund. Þegar á leiðar- enda var komið áttaði fíllinn sig á því að hann hafði gleymt sundskýlunni heima. „Ekkert mál,“ sagði þá músin. „Ég er með tvær.“ Nafn og aldur: Ég heiti Þórhildur Stein- unn Kristinsdóttir og ég er 13 ára. Í hvaða skóla ertu: Ég er í Víkurskóla í Vík. Í hvaða stjörnumerki ertu: Ég er naut. Áttu happatölu? Já, 13. Helstu áhugamál/hvað gerirðu í frí- stundum þínum? Ég les, syng, spila á píanó og dansa með klappstýruliðinu mínu. Eftirlætissjónvarpsþáttur: Desperate Housewives. Besti matur? Pasta með hvítlauksosta- sósu. Eftirlætisdrykkur? Vatn. Hvaða námsgrein er í eftirlæti? Enska. Áttu gæludýr – ef svo er, hvernig dýr og hvað heitir það? Nei, því miður. Skemmtilegasti dagurinn og af hverju? Aðfangadagur – það skýrir sig sjálft. Eftirlætistónlistarmaður/ hljómsveit? Paramore. Uppáhalds litur? Grænn. Hvað gerirðu í sumar? Ég er í unglingavinnunni hálfan dag- inn. Svo er ég mikið úti og líka að æfa mig að syngja. Skemmtilegasta bók sem þú hefur lesið? Twilight- bækurnar eftir Stephenie Meyer. Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðin stór? Dansari, söngkona eða leikkona. Þórhildur Steinunn Kristinsdóttir ALLS KYNS skemmtileg ævintýri og þjóðsögur er að finna á vefslóðinni http://www.snerpa.is/net/. FANNST ÉG EINS OG HRÚTSPUNGUR Í FRAMAN Steinþóri Steinþórssyni, betur þekktum sem Steindi Jr., finnst skemmtilegt hvað krakkar eru hreinskilnir og þykir Mortal Kombat vera besti tölvuleikur allra tíma. Á Vísi er hægt að horfa á myndskreyttan upp- lestur úr þessum sígildu ævintýrum. Hlustaðu á Dísu ljósálf og Alfinn álfakóng á Vísi Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl- enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.