Fréttablaðið - 09.07.2011, Page 62

Fréttablaðið - 09.07.2011, Page 62
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR38 BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Fiðraði Örn var óskoraður konungur regndansins Það kemur bara eitt til greina. Eldri kona braust í dag inn á skrifstofu forstjóra „Catwalk powder“-megrunarduftsins og tróð þó nokkru af dufti ofan í háls hans. Lögregla segir...Er þetta ekki...? Hver önnur? Ef ég hefði einka- kennara væri ég miklu fljótari að læra heima. Nú? Hmm. Já, og það myndi gefa mér meiri tíma til að einbeita mér að kjarnaáhugamálum mínum. Hver eru kjarnaáhuga- mál þín? Að forðast heimanám. Ég fékk ekki góðan nætursvefn en það reddast. Ég verð miklu betri þegar ég er búinn að hella upp á kaffi, fá mér morgunmat og lesa blaðið. Megum við fá vöfflur? Ég er að vinna í þessu, ókei? Það er komið hádegi, fer morgunmatur- inn ekki að verða til? 7.30 f.h. 12 á hádegi LÁRÉTT 2. fyrirhöfn, 6. frá, 8. drulla, 9. nægilegt, 11. aðgæta, 12. bolur, 14. yfirstéttar, 16. strit, 17. meðvitundar- leysi, 18. gilding, 20. mun, 21. engi. LÓÐRÉTT 1. djæf, 3. skóli, 4. brá, 5. knæpa, 7. skóhljóð, 10. guð, 13. skip, 15. högg, 16. angra, 19. í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2. ómak, 6. af, 8. aur, 9. nóg, 11. gá, 12. stofn, 14. aðals, 16. at, 17. rot, 18. mat, 20. ku, 21. akur. LÓÐRÉTT: 1. dans, 3. ma, 4. augnlok, 5. krá, 7. fótatak, 10. goð, 13. far, 15. stuð, 16. ama, 19. tu. Jákvæðar fréttir fyrir sumarið Allt sem þú þarft *Meðan birgðir endast Það fá allir afmælisblöðru* á sölustöðum Fréttablaðsins um land allt. Þú færð Fréttablaðið á 16 stöðum á Austurlandi. Það er engin ástæða til að missa af neinu í sumar. Fréttablaðið er aðgengilegt um land allt. Því er dreift ókeypis í lúgur og kassa á kjarnadreifingarsvæði okkar. Auk þess er það selt í lausasölu á kostnaðarverði á 120 sölustöðum um land allt. Þú getur alltaf fengið Fréttablaðið beint í símann, fartölvuna eða spjaldtölvuna hvar sem er og hvenær sem er á Vísi.is eða fengið það sent með tölvupósti daglega. Nánar um dreifinguna má lesa á visir.is/dreifing. Mónakó, Bakkafirði N1, Vopnafirði Olís, Fellabær N1 Þjónustustöð, Egilsstöðum Bónus, Egilsstöðum Samkaup Úrval, Egilsstöðum Samkaup Strax, Seyðisfirði Olís, Reyðarfirði Grillskálinn Orka, Reyðarfirði Fjöldi lausasölustaða á Austurlandi Góður vinur minn á eldgamlan Land Rover, klassískan dýrgrip. Um árið varð hann aftur á móti vélarvana. Þetta olli vini mínum talsverðu hugarangri, það var rándýrt að skipta um vél og varla forsvaran- legt að eyða slíkum peningum í svona gaml- an bíl. Á móti kom að hann fengi varla jafn- góðan fararskjóta nema fyrir mun hærri upphæð. Með þetta var hann að bögglast heillengi uns hann bar vandræði sín undir eiginkonu annars vinar okkar. Hún var ekki lengi að leysa málið. „Láttu hann Pétur reikna þetta fyrir þig,“ sagði hún. „Hann er snillingur í að reikna út að það sé hag- kvæmast að gera það sem hann langar mest til.“ Land Roverinn fékk umsvifa- laust nýja vél og ekki örlar á eftirsjá hjá eigandanum. VIÐ MENNIRNIR teljum okkur gjarn- an vera skynsemisverur. En þegar upp er staðið kemur einatt í ljós að skyn- semin má sín lítils gagnvart til- finningunum. Ef við lítum til baka sjáum við flest að hvað eftir annað höfum við tekið ákvarðanir byggð- ar á tilfinningum en ekki skynsemi. Við metum það nefnilega oftast sem svo að það sé skynsamlegt að taka mark á tilfinningunum. Samt heyrist oft talað á niðrandi hátt um tilfinningarök, eins og þau séu ógild eða a.m.k. ekki fullgild og megi sín lítils gagnvart svokölluðum skynsemis- rökum. NÁTTÚRUVERNDARSINNAR eru meðal þeirra sem legið hafa undir ámæli fyrir að beita tilfinningarökum. Við því hafa þeir brugðist með því að reyna að sýna fram á að málstaður þeirra sé skynsamlegur óháð til- finningum, náttúruvernd sé hagkvæm. And- stæðingar þeirra nota að eigin mati ísköld skynsemisrök. Hjá þeim eru atvinnuupp- bygging og efnahagur sett á oddinn en ekki kjánalegar tilfinningar. En af hverju setja þeir þetta á oddinn? Er það ekki til að við- halda byggð í plássinu sem þeir bera svo miklar tilfinningar til? Hvaða skynsemi er í því að borga stórfé og fórna náttúruperlum til að í hverjum firði geti verið þorp fyrir nokkur hundruð hræður að draga fram lífið? „Landið allt í byggð“ var einhvern tím- ann mikilvægt slagorð. En af hverju? Er það skynsamlegt eða hefur það fyrst og fremst tilfinningalegt gildi fyrir okkur? MIG LANGAR ekki að gera lítið úr mann- legri skynsemi. Ég er ekki frá því að hún reynist oft vel. En stundum fæ ég það á tilfinninguna að mikilvægasta hlutverk hennar sé þó að vera dulbúningur fyrir til- finningarnar gagnvart vélrænni rökhyggju okkar. Tilfinningarök

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.