Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 64
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR40
Eyðibýli og húsarústir eru
mynd- og yrkisefni Nökkva
Elíassonar ljósmyndara og
Aðalsteins Ásbergs Sigurðs-
sonar ljóðskálds í bókinni
Hús eru aldrei ein.
„Hús eru aldrei ein/ um þau ráfa
svipir/ stíga fæti á þröskuld/ hrasa
í lúnum tröppum/ stika níu álna
gólf/ með staf í hendi/ og starandi
augnaráð,“ segir í upphafslínum
ljósmynda-ljóðabókarinnar Hús
eru aldrei ein, sem komin er út á
vegum Uppheima. Bókin saman-
stendur af svarthvítum ljósmynd-
um Nökkva Elíassonar af eyðibýl-
um víða um land, sem Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson yrkir ljóð við.
Enskar þýðingar ljóðanna fylgja
einnig.
Hús eru aldrei ein er endur-
skoðuð og uppfærð útgáfa bókar-
innar Eyðibýli, frá árinu 2004.
Hún seldist upp fyrir nokkrum
árum og hafði Nökkvi því hug á
að endur útgefa hana. Hins vegar
hafði mikið af nýju efni safnast
upp síðan þá, bæði myndir og ljóð,
nógu mikið til að gefa út nýja bók.
„Í staðinn völdum við það besta
úr gömlu bókinni og nýja efninu,“
segir Nökkvi. „Útkoman er að
mínu viti mun sterkari bók.“
Elstu myndirnar eru frá 1985 og
spannar bókin því um aldarfjórð-
ung. Nökkvi segir að eyðibýlin hafi
verið áhugamál sem vatt upp á sig.
„Mig vantaði i rauninni bara
verkefni, ákveðið þema til að elta.
Ég byrjaði því að fara í túra á
sumrin og mynda eyðibýli hér og
þar um landið.“
Nökkvi segir hjólin hafa byrjað
að snúast eftir sýningu sem hann
hélt á eyðibýlamyndum í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur.
„Þá kom Aðalsteinn Ásberg að
máli við mig og viðraði hugmynd-
ina að bókaútgáfu. Mál og menn-
ing bauð útgáfusamning. Það gerði
mér kleift að hella mér í þetta og
klára verkefnið á næstu þremur
árum, sem ég varði í að þræða
krummaskuð landsins og varð
eigin lega heltekinn; verkefnið fór
að verða hluti af sjálfum mér.“
Nökkvi segir að þótt mark miðið
hafi ekki verið að gera tæmandi
úttekt á eyðibýlum á Íslandi bregði
bókin engu að síður ljósi á byggða-
sögu landsins.
„Mörg þessara húsa hafa verið
jöfnuð við jörðu og önnur byggð
upp. Þessar myndir eru því ákveð-
in heimild um söguna og þróun
byggðar, þótt markmiðið hafi
fyrst og fremst verið að ná góðri
mynd.“ Nökkvi segist hafa leitast
við að fanga fegurðina í hrörnunni.
„Sums staðar er eins og fólk hafi
einfaldlega staðið upp og gengið
burt, leirtauið er jafnvel enn á
borðum. Það hvílir sorglegur
drungi yfir þessum húsum, sem er
mjög áhrifaríkur og ég vildi reyna
að festa á mynd. Þess vegna hafði
ég myndirnar svarthvítar, litmynd-
irnar urðu helst til konfektkassa-
legar þrátt fyrir myndefnið. Ljóð
Aðalsteins Ásbergs geirnegla síðan
þennan anda og stemningu sem ég
reyni að ná fram, um leið og þau
búa til nýja vídd fyrir myndirnar.“
Spurður hvort hann sé búinn að
fá nóg af eyðibýlum svarar Nökkvi
neitandi. „Þetta er eilífðar verkefni.
Ég var síðast á Reykjanesi um síð-
astliðna helgi. Það eru alltaf ný býli
að fara í eyði og yfirleitt tekur það
nokkur ár fyrir þau að grotna nógu
mikið til að ég fái áhuga á þeim.“
Austurland er eftir lætis landshluti
hans, þaðan sem hann er ættaður.
„Það er enginn hörgull á eyðibýlum
fyrir austan, Fljótsdalshérað er til
dæmis gullnáma fyrir mann eins
og mig.“
bergsteinn@frettabladid.is
40
menning@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 9. júlí 2011
➜ Tónlistarhátíð
14.00 Jazzhátíð í Skógum. Ókeypis
tónleikadagskrá í Skógakaffi. Aðal-
tónleikar hátíðarinnar í Fossbúð kl. 21
og aðgangseyrir er kr. 1.500.
➜ Uppákomur
10.00 Afrískur dagur í Hjartagarðinum
á Laugavegi með afrískri tónlist, döns-
um, list og uppákomum. Allir velkomnir.
12.00 Álfagarðurinn verður opinn
um helgina í Hellisgerði, Hafnarfirði.
Sýning nokkra listamanna. Sjáandinn
Ragnhildur Jónsdóttir með álfagöngu
um Hellisgerði þar sem hún kynnir og
lýsir álfum og huldufólki sem þar býr.
Gangan tekur um 40 mínútur og kostar
kr. 1.500.
14.00 Félagarnir Einar Már Guðmunds-
son og Bjartmar Guðlaugsson slá
saman og troða upp á Sjávarbarnum
við Grandagarð. Þeir flytja sögur, ljóð og
söngva. Allir velkomnir.
14.00 Menningarveisla Sólheima með
tónleikum Unnar Birnu og Munaðar-
leysingjunum í Sólheimakirkju og fyrir-
lestri Hrólfs Sigurðssonar um mikilvægi
íslensks drykkjarvatns í Sesseljuhúsi.
Aðgangur er ókeypis.
➜ Myndlist
10.00 Konstantinos Zaponidis með
sýningu í L51 Artcenter, Laugavegi 51.
Yfirskrift sýningarinnar er Impressions of
Iceland. Allir velkomnir.
16.00 Síðasta sýningarhelgi á verkum
Huldu Hlínar í Ráðhúsinu. Opið laugar-
dag kl. 16-19 og sunnudag kl. 14-18.
Allir velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
➜ Tónleikar
12.00 Zuzana Ferjencikova orgelleikari
frá Vín spilar á hádegistónleikum í Hall-
grímskirkju. Miðaverð er kr. 1.500.
15.00 Tríó Ragnheiðar Gröndal spila
á sumartónleikum Jómfrúarinnar við
Lækjargötu. Leikið er utandyra. Aðgang-
ur er ókeypis.
22.00 Andrea Gylfa flytur tónlistar-
perlur kvikmyndanna ásamt hljómsveit
á ObLadíOblada, Frakkastíg. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.500.
22.00 Margrét Eir og Hljómsveitin Thin
Jim með tónleika á Græna hattinum.
Miðaverð er kr. 2.000.
23.00 Illgresi með tónleika á Faktorý.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
– ÞVÍ X ER EKKI NÓG!
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU YKKUR SIRKUS SÓLEY
MIÐASALA
Í TJARNARBÍÓI,
Á MIÐI.IS OG
Í SÍMA 527 2102SÝNT Í TJARNARBÍÓI Í JÚLÍ
S I R K U S
Í S L A N D S
K Y N N I R
AUKASÝNINGAR!
í kvöld 9. júlí kl. 14 og 18
sunnudag 10. júlí kl. 14 og 18
„Húmor, metnaður og
skemmtun í hávegum höfð“
—Kidda, Pressunni
FEGURÐIN Í HRÖRNUNINNI
NÖKKVI ELÍASSON Leitast við að fanga fegurðina í hrörnunni með aðstoð ljóða Aðal-
steins Ásbergs Sigurðssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BRJÁNSLÆKUR Elstu myndirnar í bókinni eru frá 1985 en þær nýjustu voru teknar í fyrra. Mörg húsanna hafa verið jöfnuð við jörðu síðan þá og önnur gerð upp.
Eyðibýlin við ströndina
eru fleiri en heiðarbýlin
sem verða á vegi okkar.
Og einhvern veginn
virðist það eðlilegt.
Hús sem starir án afláts
út á breiðan fjörð
hefur meiri möguleika
en heiðarbýlið sem kúrir
niðurbrotið undir barði
bíður þess að veturinn
breiði þykkan feld yfir
laut og leiti, bakka og hjalla.
MÖGULEIKAR
NÝR REYFARI KOMINN ÚT Út er komin bókin Það sem aldrei gerist eftir norska höfundinn Anne Holt. Í bókinni
finnast þjóðkunnir Norðmenn myrtir á hrottafenginn hátt í Ósló. Morðinginn virðist leita hefnda en enginn veit fyrir hvað.
Bókin er sjálfstætt framhald reyfarans Það sem mér ber. Salka gefur bókina út hér á landi en Solveig Brynja Grétarsdóttir þýddi.