Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 66

Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 66
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR42 folk@frettabladid.is Stjörnur eru ekki aðeins fríðar ásýndum heldur eru þær marg- ar einnig vel að sér í tungu- málum. Til að mynda tala þau Joseph Gordon-Levitt og Jodie Foster bæði frönsku og Gwyneth Paltrow og Casey Affleck eru þekkt fyrir góða spænskukunn- áttu. Aðrar stjörnur eru þó svo heppnar að hafa fengið sitt annað tungumál strax með móður- mjólkinni. SANDRA BULLOCK Óskarsverðlaunahafinn Sandra Bullock er hálfþýsk og talar lýta- lausa þýsku. Móðir hennar, Helga Meyer, var þýsk óperusöngkona og söngkennari og ferðaðist Bullock gjarnan með henni er hún tók að sér verkefni í Evrópu. Bullock dvaldi oft hjá ömmu sinni og frænku í Nürnberg og náði þá fullkomnum tökum á þýskunni. VIGGO MORTENSEN Hjartaknúsarinn á bandaríska móður og danskan föður. Mortensen-fjölskyld- an bjó lengi í Argentínu og því talar Mortensen spænsku. Eftir háskólanám ákvað leikarinn að halda af stað út í heim í leit að sjálfum sér og bjó þá um stund í Danmörku, þar sem hann vann meðal annars sem vörubílstjóri og blómasali. Mortensen talar reiprenn- andi dönsku og spænsku. CHARLIZE THERON Fólk gleymir því gjarnan að leikkonan Charlize Theron er ekki bandarísk heldur frá Suður- Afríku og því er enska ekki hennar fyrsta mál. Leikkonan fæddist í bænum Benoni í Suður-Afríku og bjó þar til sextán ára aldurs, þá flutti hún til Ítalíu til að sinna fyrirsætustörfum. Móðurmál Theron er afrikaans en hún skilur einnig hollensku. NATALIE PORTMAN Leikkonan Natalie Portman fæddist sem Natalie Hershlag og er faðir hennar frá Ísrael. Portman fæddist í Jerúsalem og bjó þar til fjögurra ára aldurs en þá flutti fjölskyldan til Bandaríkjanna. Portman talar bæði ensku og hebresku og hefur látið þau orð falla að hjarta hennar búi í Jerúsalem; „Þar finnst mér ég eiga heima.“ NORDICPHOTOS/GETTY COLIN FIRTH Hinn breski Colin Firth er kvæntur ítalska kvik- myndaframleiðandanum Livia Giuggioli og deila þau tíma sínum á milli London og Ítalíu. Firth talar fullkomna ítölsku og veigrar sér ekki við að veita viðtöl á því tungu- máli. Mikið var um dýrðir í London þegar rauða dreglinum var rennt út fyrir leikaralið Harry Potter myndanna. Síðasta myndin í seríunni um vinsæla galdrastrákinn, Harry Potter og dauðadjásnin, seinni hluti, var frumsýnd í Lond- on í vikunni. Harry Potter og dauðadjásnin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda sem segja myndina verðugan endapunkt fyrir galdrastrákinn og að hún svíki ekki aðdáendur sína. Myndin er sú áttunda sem gerð hefur verið um Harry Potter á tíu árum en myndirnar eru með þeim vinsælustu í kvikmynda- sögunni og hafa halað inn rúmlega 6,3 milljarða dala. Myndin verður frumsýnd hér á landi þann 13. júlí og hafa þegar selst á þriðja þúsund miðar í forsölu. Þríeykið Daniel Radcliffe, Rupert Grint og Emma Wat- son skörtuðu sínu fegursta á frumsýningunni og Watson gat ekki haldið aftur af tárunum þegar hún kvaddi Harry Potter. FELLDU TÁR FYRIR POTTER ÖLL FJÖLSKYLDAN Breski leikarinn Warwick Davis mætti með alla fjölskyldu sína á frumsýninguna. GÓÐUR HÓPUR Leikaranir Emma Watson, Rupert Grint og höfundur Harry Potter- bókanna J.K. Rowling eru sannkallað draumateymi. Í baksýn má sjá aðalleikarann Daniel Radcliffe. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KVEÐJUSTUND Leikkonan Emma Watson gat ekki haldið aftur af tárunum á frum- sýningunni á síðustu Harry Potter-myndinni. EINTÖK seldust af nýjustu plötu Beyoncé í Bandaríkjunum í síðustu viku og náði hún toppsæti á Billboard listanum. Platan kallast „4“ en þetta er einmitt fjórða sólóplata söngkonunnar. Lady Gaga segist ekki lengur gera greinarmun á sjálfri sér og þeirri persónu sem kemur fram á sviðinu. Lady Gaga, sem heitir réttu nafni Stefani Germanotta, segir að hún fari oft á tíðum svo djúpt í karakter að búningarnir og framkoma hennar séu einfald- lega orðin jafn mikilvæg og líffærin. „Línurnar á milli mín og karaktersins eru orðnar mjög óljósar og ég veit varla mun- inn á leik og alvöru. Ef þú bæðir mig um að fjarlægja risavaxið höfuðfat í partíi myndi mér líða eins og þú værir að biðja mig um að fjar- lægja lifrina.“ Lady Gaga í tómu rugli VEIT EKKI MUN Á LEIK OG ALVÖRU Lady Gaga segist sökkva sér svo djúpt í karakter að oft þekki hún ekki mun á sjálfri sér og þeirri persónu sem hún leikur. Tvítyngdar Hollywood-stjörnur 310.000

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.