Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 69
LAUGARDAGUR 9. júlí 2011 45 Það ríkir mikil og hörð sam- keppni milli karlkyns leik- ara sjónvarpsþáttanna True Blood ef marka má frétt Star Magazine. Tímaritið heldur því fram að leikararnir berjist um bestu línurnar og athygli kvenna. „Ryan Kwanten og Alexander Skarsgård eru stanslaust í inn- byrðis samkeppni. Þeir keppa jafnvel um hvor þeirra lyfti þyngri lóðum og hvor geti gert fleiri magaæfingar,“ hafði tíma- ritið eftir innanbúðarmanni. Samkeppninni lýkur víst ekki þar því karlkyns stjörnurnar keppa einnig um hylli kvenna. Sá eini sem tekur ekki þátt í slíku er Stephen Moyer sem er kvæntur mótleikkonu sinni, Önnu Paquin. „Þeir reyna við auka leikkonurnar og metast svo. Stephen tekur ekki þátt í slíku en hann er svo mikið merki- kerti að fáir þola að vera nálægt honum.“ Keppast um hylli kvenna KEPPNISMAÐUR Alexander Skarsgård er í stöðugri samkeppni við Ryan Kwanten á tökustað True Blood. NORDICPHOTOS/GETTY Kid Rock segir að hjónaband hans og Pamelu Anderson hafi verið stórskemmtilegt. Parið gifti sig árið 2006 en þau skildu aðeins fimm mánuðum síðar. Kid Rock segir að þrátt fyrir ein- hverja erfiðleika hafi hann aldrei skemmt sér jafn vel í lífinu. „Að gifta mig var eitt það skemmti- legasta sem ég hef gert. Ég man ekki eftir öðrum tíma í lífinu sem var skemmtilegri en þegar ég gifti mig. Það var svo gaman hjá okkur að við giftum okkur fjórum eða fimm sinnum,“ sagði Kid Rock í viðtali við spjallþátta- stjórnandann Piers Morgan á dögunum. Góðar stundir með Pamelu SJÚKLEGA GAMAN Kid Rock segir að það skemmtilegasta sem hann hafi gert í lífinu sé að giftast Pamelu Anderson. Weston Cage, sonur leikarans Nicolas Cage, og eiginkona hans, Nikki Williams, hafa skráð sig saman í áfengismeðferð. Hjóna- kornunum, sem eiga von á sínu fyrsta barni, lenti illilega saman fyrir skömmu og fjölluðu banda- rískir fjölmiðlar ítarlega um málið. Weston segir hins vegar að málið hafi verið blásið upp, þetta hafi verið stormur í vatnsglasi. „Við áttum vissulega í útistöð- um en hann sló mig aldrei í and- litið,“ segir Nikki í samtali við vefsíðuna TMZ.com. Hún vísaði því jafnframt á bug að þau hjón- in ætluðu að skilja. Saman í meðferð VANDRÆÐAGEMSI Nicolas Cage hefur sjálfur átt í erfiðleikum með skapsmuni sína. Heiti lyfs og virk innihaldsefni: Íbúprófen Portfarma 400 mg filmuhúðaðar töflur. Hver tafla inniheldur íbúprófen 400 mg. Ábendingar: Bólgueyðandi og verkjastillandi lyf, ætlað til notkunar við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Lyfið má einnig nota sem verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir, t.d. tanndrátt. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastærðir handa fullorðnum: Sjúkdómseinkenni og lyfjasvörun ákvarða hæfilegan skammt fyrir hvern einstakling. Skammtar eru venjulega 600-2000 mg á dag og ekki er mælt með stærri dagsskammti en 2400 mg. Hæfilegt er að gefa lyfið 3-4 sinnum á dag í jöfnum skömmtum. Við tíðaverkjum: 400 mg, 1-3 sinnum á dag eftir þörfum. Við gigt: 400 mg eða 600 mg, 3 sinnum á dag. Morgunskammt má gefa á fastandi maga til að draga fljótt úr morgunstirðleika. Við nýrnabilun þarf að minnka skammta. Skammtastærðir handa börnum: Venjulegir skammtar eru 20 mg/kg líkamsþunga á dag, gefið í 3-4 jöfnum skömmtum. Börnum, sem vega innan við 30 kg, skal eigi gefa meira en 500 mg á dag. Frábendingar: Ofnæmi fyrir íbúprófeni eða einhverju hjálparefnanna. Sjúklingar, sem hafa fengið astma, nefslímubólgu eða ofsakláða eftir töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi lyfja (annarra en barkstera), skulu ekki notað lyfið. Lyfið er ekki ætlað vanfærum konum. Lyfið skal ekki notað ef lifrarstarfsemi er skert eða ef alvarlegur hjarta- eða nýrnasjúkdómur er til staðar. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Gæta þarf varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með aukna blæðingartilhneigingu eða helluroða (SLE). Einnig hjá sjúklingum með veilt hjarta, nýrna- eða lifrarsjúkdóm, sérstaklega ef meðhöndlað er með þvagræsilyfi samtímis, þá þarf að fylgjast með mögulegri minnkaðri nýrnastarfsemi og vökvasöfnun. Íbúprófen Portfarma töflur innihalda laktósa. Sjúklingar með galaktósaóþol, laktasaþurrð eða glúkósa-galaktósa vanfrásog, sem eru sjaldgæfir arfgengir kvillar, skulu ekki taka lyfið inn. Meðganga og brjóstagjöf: Fullnægjandi rannsóknir á mönnum hafa ekki verið framkvæmdar. Dýratilraunir hafa ekki sýnt nein áhrif á þroska fósturs. Lyfið í venjulegum skömmtum er ekki talið hafa áhrif á barn á brjósti. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Á ekki við. Lesið vandlega leiðbeiningar í fylgiseðli fyrir notkun. ÍB ÚP RÓ FE NI Ð Í B LÁ U PÖ KK UN UM ER K OM IÐ A FT UR ! • Nettar töflur • Auðvelt að brjóta í tvennt • Þægilegar til inntöku • Hitalækkandi • Verkjastillandi • Bólgueiðandi Íbúprófen Portfarma er einnig ætlað börnum (sjá skammtastærðir fyrir börn) Paris Hilton hrósar lífvörðum sínum í hástert fyrir frammi- stöðu þeirra þegar þeir yfirbug- uðu eltihrelli fyrir utan heimili fyrirsætunnar á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. Hinn 36 ára James Rainford veittist fyrst að Hilton við dóm- hús í Kaliforníu á síðasta ári og fékk Hilton í kjölfarið nálgunar- bann á hann. Rainford lét sér hins vegar ekki segjast og birtist fyrir utan hús hennar hinn 4. júlí. Lífverðir fyrir sætunnar tóku málin í sínar hendur og á vef- svæði sínu þakk- ar hún þeim fyrir snör hand- tök. „Sem betur fer er ég með öflugt öryggis kerfi og fjóra lífverði til taks allan sólarhringinn. Þeir brugðust við áður en við- komandi náði að meiða ein- hvern.“ Hrósar líf- vörðunum ALLT RÉTT Líf- verðir Parisar Hilton brugðust hárrétt við þegar eltihrellir birtist fyrir utan heimili hennar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.