Íslendingur - 10.05.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Stmi 375. Pósthólf 118.
XXVI. árgangur.l Akureyri, 10. maí 1940
Astand og horfur
Útþensla styrjaldarinnar Q. apu'l
s. I hefir aukið á erfiðleika fslenzku
þjóðarinnar um viðskipti við aðrar
þjóðir. Hertaka Danmerkur og inn-
rásin í Noreg hafa valdið því, að
íslendingum hafa lokast leiðir
til þýðingarmikilla viðskiptalanda.
Margir hugðu að ástand það, er
þá skapaðist, yrði ekki langvinnt.
Tilfærsla vígstöðvanna mundi flýta
fyrir úrslitum. En sú skoðun hefir
breyfzt við þá stefnubreytingu, er
enska herstjórnin virðist hafa tekið
um Noregsstyijöldina, — stefnu-
breytingu, sem flestir eiga örðugt
með að skilja enn sem komið er.
Eru því fullar horfur á, að sigling-
ar vorar til Eystrasaltslanda muni
ekki hefjast aftur fyrst um sinn
9. apríl s. I. hefir lokast fyrir okk-
ur leiðin til þeirra landa, er keyptu
næstum helmingínn af útflut^ingi
þjóðarinnar og seldu henni meiri
hluta þeirra nauðsynja er hún
þurfti. S. I. ár keyplu þessi lönd
af okkur ýmsar afurðir fyrir 30
miljónir króna, m. a. meira en
allra síldarafuiða og þó hlutfailslega
enn meira af landbúnaðarafurðum.
ísland hefir því aldrei orðið fytir
svo gífuilegu maikaðstapi, sem
þenna eina dag.
Það er því engin furða, þótt
margur horfi með kvíða til framtíð-
arinnar. Því enga vissu höfum við
fyrir því. að við getum unnið upp
hina töpuðu markaði í Vesturheimi.
En þangað mundi nýira matkaða
þó helzt vera að leita.
Þessar nýju, stórfelldu truflanir
á viðskiptum okkar við útlönd hafa
þær afleiðingar, að við verðum að
minnka innflutninginn til mikilla
muna. Kotn.öruskammturinn verð-
ur nú minnkaður af þessaii nauð-
syn. Ef við getum ekki selt fram-
leiðsluvörur þjóðarinnar, getum við
heldur ekki greitt erlendar vörur
Önnur afleiðing þessarar markaðs-
lokunar vetður aukið atvinnuleysi
í landinu. Byggingarvörur og út-
gerðarvörur keyptum við að mest-
um hluta frá þeim löndum, sem
nú eru okkur lokuð. Sú staðreynd
leiðir af sér minni byggingavinnu
og minni útgerð. Hú.i getur leitt
það af sé', að Hitaveita Reykjavík-
ur stöðvist um ófyrirsjáanlegan
tíma, þetta glæsilega fyrirtæki, er
uppkomið sparar þriðjungi þjóðar
innar kaupi á erlendu eldsneyti og
veitir hundiuðum veikamanna at-
vinnu, rneðan bygging hennar var
ir. Og nú, þegar sítdarvertíði í
nálgast, er það allt annað en Ijúf
tilhugsun, að markaður sé skynd,-
lega lokaður fyrir s/s hluta síldar-
afurðanna.
Eins og nú standa sakir, b'æs
ekki byrlega um atvinnu fólksins á
mölinni við sjfvarsiðuna. Eina
vonin er, að landbúnaðurinn, sem
um mörg undanfarin ár hefir vant-
að vinnukraft, geti bætt við sig
nokkru af verkafólki, Hefir þess
vegna verið komið upp í höfuð-
staðnum ráðningarstofu fyrir land-
búnaðinn. Sendi hún fyrirspurnir
til bænda um allt land um hve
niargt fólk þeir teldu sig geta tekið
til starfa á búum sínum. Hdfa
svör þe'rra leitt í Ijós, að hátt á
annað þúsund karla, kvenna og
unglinga geta fengið sveitavinnu.
Má það sannarlega furðulegt teljast,
ef e'nhleypir menn og unglingar
kjósa heldur óvissuna um afkomu
sína í kaupsiöðunum með síhækk-
andi veiðiagi á fæði og öðrum nauð-
synjum, heldur en atvinnu við
landbúnaðarstörf, þar sem þeir fá
fæði, húsnæði, þjónustu, Ijós og
hita auk nægilegs kaups fyrir fatn-
aði og öðrum lífsnauðsynjum.
Samkvæmt upplýsingum Vmnu-
rriðlunarskrifstofu Akureyrar liggja
þar fyrir beiðnir um fólk til vistar
í sveit svo hundiuðum skiptir, bæði
ársvistar, sumar- og veturvistar,
jafnt kaila, kvenna og unglinga.
Kaupkjör eru oftast samningsatriði.
Ættu allir einhleypir menn og kon-
ur, sem ekki hafa fasta atvinnu vís?,
svo og litlar fjölskyldur, sem eins
er ástatt með, að kynna sér þessi
tiiboð.
Það er þjóðarnauðsyn á öllum
tímum og ekki sízt nú, að landið
geti að svo miklu lcyti sem unnt
er fætt og klætt fólkið, sem þar
býr. Þjóðinni ber að vinna að
aukinni framleiðslu og fjölþættari,
svo að sem minnst þurfi að sækja
til annarra. Neyð keinir nýtni,
segir gamall málsháttur. Sú neyð,
sem styrjö dm og afleiðingar henn-
ar draga að dyrum okkar, á að
kenna okkur að nýta gæði þtssa
lands þjóðinni sjálfri til lífs og
þroska.
Farmannadei I-
unni lokið.
Sættir tókust 1 farmannadeildinni
nú í vikunni Var dhættuþóknun
hækkuð og takmðrkun áhættusvæða
breytt að einhverju leyti. Að sútta-
umleitúnum unnu með sdttasemjara
þeir Pétur Magnússon hrm og
Emil Jónsson vitamálastjóri.
Hjónaefni; Jngfrú Sveinbjörg
Jóns'óttir skrifstofumær Reykjavík
og Jósef Sigurðsson bankam. Akur-
eyri.
Þingsályktunar-
tillaga uin spari-
sjóðste í íslands-
banka.
Jóh. Jósefsson alþm. flutti í sam-
einuðu þingi svohljóðandi þingsdlykt-
unartillögu, sem samþykkt var:
»Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn-
inni að láta fara fram athugun á
því, hversu mikið af því fé því, er
inni stóð í Islandsbanka h. f í
sparisjóði og á innlánsskírteinum
hafi verið gert að hlutafé í tJtvegs-
banka íslands, og hvort kleift sé að
bæta aðstöðu þeirra hlutabréfaeig
enda, sem af þessum ástæöum hafa
eignast hluti í þeim banka.
Niðurstaða þessarar athugunar
leggi'it fyrir næsta reglulegt Al-
þingic.
í greinargerð tillögunnar segir:
Með tillögu þeirri til þingsálykt
unar, er bér liggur fyrir, er enn
hreyft við þv í. að athugun fari fram
á möguleikunum til viðréttingar hlut
þeirra, er sparifé áttu á sínum tíma
í íslandsbanka og fengnir voiu til
að leggja fram helmirig þess bank-
anum til hjálpar 1930.
Fjöldi þessa fólks, er hér ræðir
um, voru smáir sparifjáreigendur,
sem dregið höfðu saman lírils háttar
fé árum saman sér til stuðnings á
elliárum. Þetta fólk líöur nú stórum
við það að hafa fest fé sitt á þennan
hátt, því hvorki sVara hlutabréí
Utvegsbankans neinum arði né
heldur munu þau vera veöhæf. Þeir,
sem ekkert vildu af mörkum leggja
til að hjálpa bankanum, hafa haldið
öllu sínu. en það fólk, sem sýndi
þann ' þegnskap af sér að fórna
innstæðuin sínum, ber svo skarðan
hlut frá borði, sem raun ber vitni.
Með frainlögum þessum, sem lát-
in voru af hendi, var íslandsbanki
ekki reistur viö, heldur var Utvegs-
bankinn stofnaöur, og er ríkissjóður
aðalhluthafi hans raeð 4 ’/a m'Ij'
króna hlutaíé,
Því hefir aö vísu verið hreyft
áður af sama flm. og fleirum, að
ríkið skærist í leik að því er snertir
þá hlutafjáreigendur, sem um ræðir
í þessari þáltill,, og rétti hlut þeirra,
án þess að það hafi borið árangur.
Engu að síður þarf að halda fram
rétti þessa fólk«, og þá einkum
þeirri siðferðislegu skyldu, er hvílir
á ríkinu í þessu efni.
Öll meðferð Islandsbankamálsins
á þinginu 1930 og það, er síðan
hefir fratn farið styður þá kröfu, að
þeir hlutafjáreigendur, sem hér eiga
hlut að máli, fái einhverja réttingu
sinna mála.
20. tölubl.
NÝJA BIÓ
Föstudagskvöld kl. 9:
Josette&Co.
Atnan ( hvítasunnu
kl. 5 og 9 (2 sýningar)
Amerísk stórmynd gerð eftir
hitini frægu ensku þjóðsögu
um H óa Hö!t og kappa hans,
er um áratugi hefir verið lesin
með hrifningu af ungum sem
gömlum um víða veröld. -
Aðalhlutverkið Hróa Hött leik-
ur hinn g'æsilegi leikari og
íþróltamaður
Errol Fly nn
Aðrir leikarar eru :
Olivia de HaviJ/and,
Basil Rathbone,
Claude Rains.
Myndin er hrífandi fögur,
spennandi og æ'intýrarik, og
fylgir sögunni ágætlega. Hún
er öll tekin með eðlilegum lit-
um, miklu skýrari en nokkru
sinni hafa sézt hé í litkvik-
mynd og eru margar mynd-
irnar úr skógunum afbutða
fagrar.-
Annan í hvítasunnu kl. 3:
Tarzan
Síðas'a sinn! Niðursett verð!
I. O. O. F. == 1225109 =
Kirkjan. Akuroyri kl. 2 á hvíta-
sunnudag. 2. í hvítasunnu í Lög-
mannshlíð kl. 12 á hádegi.
Áheit á Akureyrarkirkju: Kr.
10.00 írá M. B. — Þakkir Á. R.
I. O. G. T. St. „Brynja" nr. 99
heldur fund miðvikudaginn 15.
maí á venjulegum stað og tíma.
Auk venjulegra fundarstarfa:
Kosning fulltrúa á Stórstúkuþing.
Félagar! Fjölmennið!