Íslendingur - 03.05.1946, Side 2
2
ÍSLENDINGUR
Föstudaginn 3. maí 1946
_
Hlutl eysi
„Unnt þó vœri aS ajstýra,
á þú hlutlaus blínir,
þegar hrasa og hálsbrotna,
helztu vinir þínir.“
— J. Th.
.ííslenzkar konur! Þetta erindi dett-
líPmjer oft í hug í sambandi við á-
fengisnautn nútímans. Mjög oft eru
unglingar 15—16 ára teknir úr um-
ferð sökum ofdrykkju, og drykkju-
m£nn, sem hvergi eiga höfði sínu að
halla, ganga um gólf á göturn Reykja
víkur langar og kaldar vetrarnætur.
Það vantar hæli fyrir þessa menn og
uppeldisskóla fyrir unglingana, með-
an þetta heimsku- og hörmungar-
ástand ríkir.
Eru íslenzkar konur ekki alltof
hlutlausar í áfengismálunum? Það
er því miður orðið alltof algengt, að
konur drekki frá sjer vit og vilja og
veiti vín á heimilum sinum og ann-
arsstaðar, meðfram af þvi, að „það
ér svo fínt að vera með“. Víst verð-
ijim við konur að játa þessar ægilegu
yfirsjónir, sem ógna æsku og fram-
Líð landsins. Það lítur út fyrir, að
íslendingar liafi aldrei verið því
frelsi vaxnir að hafa vínið frjálst.
Fyrr á árum, þegar fátækt og ein-
o'kun sveltu þjóðina, höfðu karlarn-
ir ráð á að hafa svo mikið áfengi,
að til landauðnar horfði sums stað-
ar, og margir góðir menn glöluðust
efnalega. og andlega. A þeim her-
námsárum Bakkusar voru konur trú-
ar og duglegir verðir þjóðarinnar.
Þær notuðu þau vopn, sem reyndust
góð vörn fyrir afkomendur þeirra:
þær drukku ekki áfengi. Þeim eigum
við það að þakka og hindindissöm-
um mönnum, að Island átti þó ekki
fleiri hálfvita, glæpamenn og ör-
kvisa en raun varð á eftir allar
drykkjuskaparaldirnar.
Jeg minnist þess, að fyrir 50—60
árum voru sagðar grínsögur í minni
sveit af 2 eða 3 kerlingum, sem
drukku áfengi, sjer til minnkurinar.
Þannig var almenningsálitið um á-
féngisnautn kvenna i þá daga. Þegar
rithöfundurinn og ofdrykkjumaður-
inn Jack London kom heim frá at-
kvæðagreiðslu í Kaliforníu, þegar á-
kveðinn var kosningarjettur kvenna,
sagði konan hans við hann: „Ekki
hugsa jeg, að þú hefir gefið atkvæði
þitt með okkur konunum." „Það
gerði jeg nú einmitt," sagði hann,
„af þeirri ástæðú, að einhvern tíma
afnema konur ofdrykkjuna, en karl-
menn aldrei í þúsund liðu.“
Hann trúði því þessi ofdrykkju-
maður, að sú öld rynni upp, að
mennirnir hefðu að baki sjer eyði-
■mörk ofdrykkjunnar, eins og menn
Saltfiskur seldur til Grikk-
lairds og Frakklands
Kristján Einarsson, frkvstj. Sölu-
sambands ísl. fiskframleiðenda, skýr-
ir svo frá, að um 4000 'srriál. af.salt-
fiski sjeu nú til í landinu. Þar af eru
3000 smál. seldar til Grikklands, og
er nú ’skip hjer að taka fyrri farm-
inn. Annar farmur verður tekinn Uín
miðjan maí þangað. S.Í.F. hefir leigt
Skip til að taka 700 smál., sem seld-
ar voru til Frakklands.
Salt segir framkvæmdastjórinn að
sje nóg tiJ í landinu. Um áramól voru
til 8000 smál., og hefir .helmingur af
því ekki verið notaður enn. Auk þess
er að koma 4000 smál. farntur, og
um 1000 smál. ínunu koma í smærri
förmum á h'afnir víðsvegar á land-
inu.
hafa nú að baki sjer galdrabrennur
og fl. ófögnuð, og hann treysti kon-
ununi sjerstaklega til þess að hjálpa
til við þá hreingerningu.
Við konur höfum svo marga þræði
í höndum okkar til gæfu eða ógæfu
fyrir íslendinga, og margar skyldur
hvíla sjerstaklega á okkur, en ein
skyldan finnst mjer helgust, og hún
er sú, að við reynum eftir mætti að
sjá um það, að börn okkar og af-
komendur verði ekki þjófar og þorp-
aralýður, sem ekki er liægt að
stjórná, nema ef vera skyldi með
þessari vaíasömu siðferðiskennslu,
að loka brotlega unglinga inni í tugt-
húsi, þar sem þeir ættu að vera, sem
afvegleiða æskuna óg Ieggja grund-
völlinn að ógæfu hennar.
Islenzkar konur! Nú fara vor-
fundir ykkar bráðum að byrja. Tak-
ið áfengismálin á stefnuskrá ykkar!
Reynið með stillingu og festu að
bjarga því, sem bjargað verður, úr
hlekkjum hættulegasta þrælahaldara
heimsins. Gerið allt, sem þig getið,
til þess að hjálpa íslendingum úr
álögum Bakkusar. Engin fyrirhöfn
er of mikil, enginn sigur of dýr-
keyptur, ef einhverjir gætu bjargast
úr þeim fangabúðum.
Reykjavík, í marz 1946.
Sigurlína R. Sigtryggsdóltir
frá Æsustöðum í Eyjafirði.
Frjeltir frá ÍSÍ
Islandsmót. Knaltspyrnumót ís-
lands 1946 hefst 27. maí n. k. Um-
sóknir skulu stílaðar til Knattspyrnu-
ráðs Reykjavíkur, sem stendur fyrir
mótinu.
ÍSÍ hefir verið boðið á knatt-
spyrnuþing F.I.F.A., sem verður háð
í Luxemburg dagana 25.—26. júlí
n. k. Oráðiö er enn um þátttöku.
ÍSÍ hefir borist brjef frá undir-
búningsnefnd Evrópumeistaramóts í
frjálsum íþróttum, sem háð verður
í Oslo dagana 22.—25. ágúst n. k.,
þar sem íslendingum cr boðin þátt-
taka í rnóti þessu, og hefir ÍSÍ skrif-
að umburðarbrjef til íþróttabanda-
laga og hjeraðasambanda, varðandi
þelta mál.
iþróttaþing I.A.F.F. verður háð í
Oslo dagana 21. og 23. ágúst n. k.
Þangað er gert ráð fyrir, að ÍSÍ
sendi nokkra fulltrúa.
ISÍ hefir borist fallegur málm-
skjöldur sem gjöf frá danska íþrótta-
sambandinu í tilefni 50 ára afmælis
þess.
Dómari. Gunnar Hjaítason Fram-
nesveg 64, Reykjavík, hefir verið
löggillur af ÍSÍ sem skíðadómari.
Bækur. Ahnennar reglur ÍSÍ um
handknattleik og handknatlleiksmót
(þriðja útgáfa) er nýlega komin út.
Skeiðklukkur. Tekisl hefir að út-
vega nokkrar skeiðklukkur, og ættu
fjelögin að senda pantanir sínar til
stjórnar ÍSÍ. Pósthólf 546, Reykja-
vík.
• Umf. Hrafnkell Frt :ysgoði hefir
fengið staðfestan íþróttabúning: Blá
peysa eða bolur með hvítri þverrönd
yfir brjóst, 10 cm. breið, hvítan
kraga og livít uppslög. Buxur hvítar,
leistar bláir með hvítri fit. Fjelags-
merkið á brjósti.
Hj eraðssamband Suður-Þingey-
inga hefir fengið staðfestan íþrótta-
búnirig: Bolúr hvítur með rauðum
borða, 12 cm. breiðum þverf yfir
I. 0. O. F. — 1285381/2.
Goljklúbbur Akureyrar hefir fyrstu
keppni ársins á Golfvellinum á Gler-
áreyrum sunnudaginn 5. tnaí kl. 9
f. h. Þátttakendur mæti kl. 8.45.
íþróttablaðið, 1.—2. tbl. þ. á., er
nýkomið út. Flytur það að vanda
fjölbreylt efni urn íþróttamál. — Ut-
sölumaður á Akureyri er Halldór
Helgason.
Zíon. Sunnud. 5. maí: Sunnu-
dagaskólinn kl. 10.30 f. h. (mynda-
taka). Almenn samkoma kl. 8.30 e.h.
Allir velkonmir!
Kirkjan. Messað í Lögmannshlíð
á sunnudaginn kemur kl. 1. Ferming
og altarisganga.
Lúdim er 28. f. m. Gunnar Larsen,
frkvstj. Útgerðarfjelags KEA og h.f.
Njörður. Hann andaðist í svefnklefa
sínum í „Esju“, en skipið kom þann
dag lil Rvíkur. Larsen sál. kom úr
ferðalagi frá útlöndum á vegum SÍS
til að leita eftir kaupum eða leigu á
skipum. Larsen sál. var rúmlega hálf-
fimmtugur, er hann ljezt. Harin læt-
ur eftir sig ekkju, börn og aldraða
móður.
V erklýðs j jelögin gengust fyrir
hátíðahöldum 1. maí að venju. Lúðra
sveit Akureyrar ljek undir á göng-
unni. Alþýðuflokksmenn hjeldu sam
komu um kvöldið að Ilótel KEA.
Dáinn er nýlega i Rvík Haraldur
Hagan úrsmiður, ættaður úr Eyja-
firði, bróðir Vilhjálms Jóhannesson-
ar, bónda á Litlahóli í Eyjafirði.
Haraldur var kvæntur reykvískri
konu, Lárettu Eiríksdóttur, er dáin
er fyrir nokkrum árum. Varð þeim
nokkurra barna auðið.
Jarðrœktarjjelagið. Þeir, sem ætla
að taka þátt í afmælishófi fjelagsins
á sunnudaginn, eru beðnir að vitja
aðgöngumiða sinna á Hótel KEA í
dag, kl. 5—7.
Uppleslrarleyfi í öllum bekkjum
Menntaskólans á Akureyri, nema 4.
og 5., eru nú byrjuð. Arspr.f 1. og
2. bekkjar í skólanum hefst á morg-
un.
Iðnskólanum á Akureyri var slit-
ið 23! þ. m. Burtfararprófi luku 21
iðnnemar úr 4. bekk. Hæsta einkunn
hlaut Friðrik Guðm. Ketilsson liúsa-
smiður, I., 8.85.
Húsmœðraskólanum á Laugalandi
var slitið á sumardaginn fyrsta. 30
námsmeyjar luku prófi. Dvalarkostn-
aður varð kr. 6.80 á dag. Hæstu
einkunn fengú þær Harpa Asgríins-
dóttir og Steinunn Ingimundardótt-
ir, báðar frá Akureyri, 9.19.
Forstöðukona skólans er frk. Svan-
jríður Friðriksdóttir frá Eírihólum.
brjóst og bak, og merki hjeraðssam-
bandsins á vinstra barmi yfir borð-
anum. Buxur hvítar með rauðum
leggingum utan á mjöðmum og neð-
an á skálmum. Knattspyrnu og hand-
knattleiksbúningur sami, að viðbætt-
um rauðum sokkum með hvítri fit.
Glímubúningur sami bolur, hvítar
buxur og brún skýla.
Auglýsið í íslendingit
Eiginmaður minn,
G u n n a r L a r s e n ,
framkvæmdastjóri, er ljezt I Reykjavík, sunnudaginn 28. f. m.,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 10. þ. m. kl.
iy2 e. h.
Hólmfríður Jónsdóltir.
Deilan um Búnaðar-
málasjöðinn
er orðin löng og hörð, og virðist þó
ekki bera fjarska mikið á milli, ef
málið er athugað í ró og næði. Þeg-
ar eftir afgreiðslu laganna frá Al-
þingi 13. þ. m., kveður Olafur Jóns-
son, frkvstj. Ræktunarfjelags Norð-
urlands, sjer hljóðs um málið í
„Degi“. Jeg hefi þekkt Ólaf í rúm
20 ár. Urn hríð varin jeg með honum
í bæjarstjórn. jeg vissi, að það get-
ur fokið í hann stundum, en aldrei
hefi jeg vitað hann beita andstæð-
inga sínum illyrðum fyrr en í þess-
ari grein, og það svo, að mjer finnst
þetta ekki vera sá góði og gamli „Öl-
afur í Gróðrarstöðinni“, heldur ein-
hver annar Ólafur, sein jeg kannast
hreint ekki við. Þessi Ólafur lýsir
Jóni Alþingisforseta Pálmasyni og
Jónasi alþrn. Jónssyni heldur ófag-
urlega. — Hvað hefir svo gerst?
Ekkert annað en það, að í staðinn
jyrir að Búnaðarjjelag íslands ráð-
stafaði fje því, er inn kemur í sjóð-
inn, skuli það renna beint til búnað-
arsambandanna. Úlafur viðurkennir
líka í grein sinni, þegar inesti móð-
urinn er/runninn aí honum, áð „það
megi segja, að hlutur búnaðarsam-
bandanna sje ekki skertur með
breylingunni á Búnaðarmálasjóðn-
um.“ Það er laukrjett: Hlutur bún-
aðarsambandanna er alls ekki skert-
ur með breytingunni, og livað er þá
að? Líklega þetta, að höfðingjarnir
í Búnaðarfjelagi íslands fá ekki ráð-
stöfunarrjett þessa fjár, héldur
bændurnir í inum dreifðu búnaðar-
samböndum landsins, og svo eigá
þeir þingmenn, sem fela bændunum
í búnaðarsamböndunum ráðstöfun-
arrjett þessa fjár, að vera svikarar
við bændur. Skilji nú hver sem vill!
Ætli fjeð verði ekki notað til ein3
mikils gagns fyrir landbúnaðinn eða
meiri á þennan hátt en með því að
fela Bf. ísl. ráðin? Því gæti jeg nú
trúað. —
SKULDIR RÍKISINS
voru samkvæmt ríkisreikningi:
1939 ..... kr. 56.648.457.00
1945 .....— 33.330.000.00
Mismunur kr. 23.318.457.00
„en þá er ekki talið með geymt fje,
sem var í árslok 1945 kr. 16.5 millj,,
en var sama sem ekkert 1939“. Erl.
skuldir voru sámkv. ríkisreikningi
1939 kr. 49.2 millj., en 1945 voru
erlendu ríkisskuldirnar 9.7 millj. kr.
Skuldlaus eign
ríkisins var samkvæmt ríkissjóðs-
reikningi
1939 ...... kr. 23.123.985.00 .
en 1944 .......— 103.933.688.00
Eignaaukning kr. 80.809.703/00
„Þegar þess er nú gætt, að verð-
gildi peninga var 1939 næstum þre-
falt meira en það er nú, samkvæmt
verðlagsvísitölu, má hverjum manni
vera ljóst, að skuldirnar eru nú al-
veg hverfandi, borið saman við það,
sem þær voru 1939. Auk þess er sá
mikli munur, að skuldirnar eru nú
nálega allar innanlands, en 1939
voru þær að miklum meirihluta við
önnur lönd. —
Þótt skuldirnar ættu því fyrir sjer
að vaxa nokkuð aftur, þá eiga þær
þó langt í land að ná því, sem þær
voru, þegar háttv. þm. S.-Múl. ljet af
fjármálastjórn .... Hv. þm. S.-Múl.
spáði ekki vel fyrir fjárhagsafkomu
síðastl. árs. Hún hefir orðið góð, og
jeg vona, að spádómar hans um af-
komu þessa árs verði álíka haldgóð-
ir“ (Pjetur Magnússon fjármálaráð-
herra).
Það er ekki að furða, þó að Ey-
steinn Jónsson geri sig breiðan yfir
fjármálasljórninni! Það munu marg-
ir verða til að taka undir með inum
merka og vel virta fjármálaráðherra,
Pjetri Magnússyni, er hann segir í
ræðu sinni um stjórn Eysteins 1934
— 1939: „Jeg hygg ekki ofmælt, þótt
sagt sje, að þetta valdatímabil Fram-
sóknaiflokksins sje mesta niðurlæg-
ingartímabil í sögu þjóðarinnar,
síðan hún slapp undan erlendri á-
þján og verzlunaránauð. Höfuðor-
sök þessarar niðurlægingar var fá-
dæma skilningsleysi og skammsýni
valdhafanna, algerður þekkingar-
skortur á skilyrðum fyrir heilbrigðri
þróun atvinnulífs og viðskiptalífs og
algert ofmat á gildi verzlunar- og
innflutningshafta. Fyrir þennan ves-
aldóm stjórnarinnar hefir þjóðin
orðið að þola vanvirðu og miklar
þrautir. Ættu allir góðir menn, hvar
í flokki sem þeir standa, að vinna að
því sameiginlega, að slík reynsla
þurfi eigi að endurtaka sig.“
—«—
Kópavogsfandnrinn
1851!
„Og hvenær sem erlend ríki kunna
að fara þess á leit, að vér afsölum
oss fullum yfirráðarétti yfir fóstur-
jörð vorri, íslandi, skulum vér minn-
ast Jóns Sigurðssonar og þingfull-
trúanna á Kópavogsfundinum 1851
og taka undir með þeim: Vér rnót-
mœlum allir“ (1. Maí. Útgefandi:
Fulltrúaráð verklýðsfélaganna). —
Þessi klausa stendur í lok greinar á
fyrstu síðu, sein heitir: „íslending-
ar! Stöiidum vel á verði um frelsi
og sjálfstæði; þjóðarijmar.“ Líklega
heyrum við eitthvað næst úr þessu
horni um þjóðfundinn .1662! En
málflutningur Kommúnista og
fræðslustarfsemi er allt eftir þessu.
Svo sem ekkert að kippa sjer upp
við það!
IBlússur I
°g 1
Pils
Brauns Verzlun|
Páll Sigurgeirsson 5
»KH>jKhkhKHKhKhKhKhKHKhKHKh: