Íslendingur - 09.08.1946, Side 1
XXXII. árg.
34. tbl.
Föstudaginn 9. ágúst 1946
Híd taumlausa áfengisnotkun er orðin
mesta vandamál ipðarinnar.
Siðferði og heilbrigði æskunn-
ar er stórkosileg hætta búin.
I
Ástandið í áfengismálunum er orðið svo alvarlegt, að tími ■
$
er kominn til þess, að þjóðin geri sér í i'ullri alvöru grein fyrir,'
fi
því, hvar hón stendur. Vér megum ekki láta eiturnautnir og 5
siðspillingu þá, er ætíð fylgir í kjölfar þeirra, eyðileggja mann-5
dóm þjóðarinnar og siðmemiingu einmitt á þeim tíma, er vér
K
reynum að leggja oss fram við að skapa hér blomlegt menn-
ingarþjóðfélag.
HIN stórkostlega áfengis-
notkun íslenzku þjóðarinnar er
nú orðin slíkt þjóðfélagsvanda-
mál, að engum hugsandi manni
getur blandast hugur um það,
að mikill voði er á ferðum fyrir
þjóð vora, ef ekki er hægt að
stemma stigu við áfengisflóð-
%
inu, sem árlega eyðileggur ó-
metanleg andleg og efnaleg
verðmæti fyrir þjóðinni.
Flestir munu nú játa, að hér
sé alvara á ferðum, en lítið hef-
ir þó verið aðhafzt til að lækna
meinið — og ekkert af opin-
berri hálfu. Þó hefir það áunn-
izt, að fólk er nú almennt farið
nð sjá hættuna, en áður hætti
mörgum til þess að gera lítið úr
varnarorðum bindindismanna
og telja, að þeir gerðu hér úlf-
alda úr mýflugu.
Allir þurfa hér að leggja hönd
að verki.
ÁFENGISMÁLIÐ er þess
eðlis, að það verður aldrei leyst
með valdboðum einum saman,
heldur fyrst og fremst með
ijöldasamtökum. Bindindissam-
tök þau, sem nú eru til í land-
inu, munu auðvitað vinna á-
fram ötullega að því takmarki
I sínu að útrýma áfenginu úr
landinu, en það er ekki nóg. Ef
Þjóðin æskir gagngerðar breyt-
ingar til batnaðar, verður hún
að gera sér ljós þau sannindi,
að áfengismálið er ekkert sér-
mál bindindismanna, heldur al ■
bjóðarvandamál, sem alla borg-
Ura landsins varðar.
Æskan á hér þó mest í húfi,
því að áfengisnotkunin er stór-
felldust í sambandi við skemmt-
analífið í landinu, og þar er
æskan virkasti aðilinn. Munu
það naumast vera nokkrar ýkj-
ur, þótt sagt sé, að áfengisnotk-
unin sé að grafa undan.siðferð-
isþreki æskulýðsins og hafi þeg-
ar stórlega spillt mati hans á
eðlilegum lífsvenjum og hollu
skemmtanalífi. Með þessu er
ekki átt við það, að ekki sé tii
heilbrigð æska í landinu, því að
margvísleg æskulýðssamtök
vinna hér ómetanlegt gagn og
skapa mótvægi gegn siðleysi á-
fengisnotkunarinnár, en þó er
alltof miklu fórnað af manndómi
og siðferðisþreki íslenzkrar
æsku á altari Bákkusar. Æskan
er dýrmætasta eign þjóðarinn-
ar, og hún má ekki neinu glata
af þeim fjársjóði.
Samtök kvenna til baráttu
gegn áfengisbölinu er gleðilegt
tákn þéss, að þjóðin sé almennt
að vakna til meðvitundar um
það, að ekki nægi að láta sitja
við orðin ein, heldur þurfi þjóð-
lega vakningu! Með einhuga
samtökum gætu konurnar unn-
ið þrekvirki í þessu vandamáli.
En æskulýðssamtökin þurfa
einnig að láta hér meir til sín
taka en þau hafa gért 'til þessa.
Þessi samtök eru fjölmenn og
sterk, og þau verða nú að ein-
beita allri orku sinni til baráttu
gegn þessari alvarlegu þjóðfé-
lagsmeinsemd. Sem stendur er
ekkert mikilvægara hlutverk,
er þau geta af hendi leyst fyrir
æskuna í landinu og þjóðina í
heild.
Það’verður að breyta almenn-
ingsálitinu.
ÁHRIFARÍKASTA lækning-
in á þessari meinsemd er breytt
I ■
almenningsálit. Meðan ekkert
þykir athyglisvert við það, að
fólk drekki frá sér ráð og
rænu, og það þykir góð og gild
afsökun fyrir ósæmilegri hátt-
semi manna, að þeir séu undir
áhrifum áfengis, fæst aldrei
sæmileg lausn á áfengismálun-
um.
Mest ábyrgð hvílir hér á horð
um foreldra og annarra þeirra.
sem eiga að sjá um uppeldi
æskunnar. Meðan foreldrar
hafa drykkjuveizlur í húsum
sínum og láta börn sín sjá sig
ölvuð, er ekki við góðu að bú-
ast. Það er einnig langt frá því,
GERT er nið fyrir, að hornsteinn
liins nýja fjórðungssjúkrahúss liér á
Akureyri verði lagður Jiann 18. ágúst
n.k. Hefir byggingarnefndin ákveð-
ið að hjóða félagsmálaráðherra,
landlækni og liúsameistara ríkisins
að vera viðstadda þessa athöfn. Eru
líkur til, að félagsmálaráðherra muni
leggja hornsteininn.
kveníélagið hér á Akureyri, sem
ætíð heíir ötulléga stult sjúkrahúss-
málið, hefir ákveðið aö efna til fjöl-
breytlra skemmtana dagana 17. og
'18. ágúst til ágóða fvrir sjúkrahús-
ið. Munu samkomurnar verða með
svipuðu sniði og Jónsmessuhátíð'fé-
Iagsins í fyrra.
Það er mikið hagSmunamál fyrir
Akurcyri og, nærliggjandi sveitir, að
sjúkrahúsið komist sem allra fyrst
upp.
Góður hágur Biínaðar-
bankans
BÚNAHARBANKI ÍSLANDS hef
ir senl blaðinu yfirlit yfir efnahag
hatikans eins og hann var 30. júní
sl. Er skuldlaus eign bankans sam-
kvæmt því yfirliti allmikið á 14. milj.
króna.
Innstæðufé í sparisjóði bankans
nemur rúmum 40 miljónuni króna
og innstæðufé í hlaupareikningi 11,7
miljónum króna.
að afstaða kennara til áfengis-
málanna sé viðunandi, þótt þar
séu auðvitað margar góðar und
antekningar.
Það væri æskilegt, að öll
menningarfélög í landinu efndu
til sameiginlegrar ráðstefnu, er
reyndi að finna skynsamleg ráð
til þess að berjast gegn áfengis-
tízkunni. Stjórn fræðslumál-
anna verður að herða kröfurn-
ar um reglusemi í skólum lands
ins, og alþingi verður að taka
áfengislöggjöfina til rækilegrar
endurskoðunar.
Líkur eru til þess, að meiri
Aukln starfsami
Gdðtemplara.
FRAMKVÆMDANAFND Stór-
stúkunnar hefir nýlega gefið út
skýrslur embættismanna Stór-
stúkunnar um starfsemi hennar
og stúknanna í landinu s. 1. ár.
Skýrslur þessar sýna, að
Reglan hefir haldið uppi fjöl-
þættri bindindis- og fræðslu-
starfsemi eins og undanfarin ár,
og á ýmsum sviðmn hefir starf-
ið verið aukið og lagt inn á nýj-
ar brautir.
1. febrúar 1946 voru 5688 fé-
lagar í barnastúkum og 4908 í
undirstúkum, eða samtals 10596
félagar. Hefir nokkur fjölgun
orðið á árinu.
Stórstúkan innir af höndum'
mikilvægt starf í þágu þjóðfé-
lagsins og er enn langt frá því,
að það starf sé metið og þakk-
að sem vera ber.
Ónæðissamt í
Vagiaskógi.
Um s. 1. helgi varð fólk, sem
gisti í Vaglaskógi fyrir all-
miklu ónæði af öldrukknum
mönnum, sem höfðu i frammi
ærsl og háreisti. ölvun mun
hafa verið nokkuð áberandi á
dansleikjum í skóginum.
Þótt hér muni naumast vera
um að ræða meiri ómenningu
ep tíðkast á flestum samkomu-
stöðum nú á dögum, er það með
öllu óþolandi að geta ekki verið
laus við slíka drykkjusiði á jafn
fögrum stað og Vaglaskógur er.
1 Vaglaskóg leitar fólk mjög úr
göturykinu og hávaðanum og
vill hafa frið.
Akureyringar og aðrir nær-
sveitarmenn ættu að leggja
metnað sinn í það að koma ætíð
sjálfir vel fram og láta ekki
heldur öðrum líðast • ósæmileg
framkoma í Vaglaskógi. For-
stöðumenn veitingahússins þar
munu fyrir sitt leyti vilja stuðla
að því.
Elcki vanþörf á rottu
herferð
REYKJAVÍKURBÆR hefir nú
látið hefja allsherjarsókn gegn rott-
um í höfuðborginni, og hafa enskir
sérfræðingar tekið að sér að stjórna
sókninni. Munu þeir hafa gefið góð-
ar' vonir um að geta lagt rotturnar
að velli.
Vel væri athugandi fyrir bæjar-
yfirvöldin hér að hefja svipaða sókn,
því að skaðlaust væri, þótt rottunum
fækkaði eitthvað í Akureyrarbæ. Er
rottugangur orðinn hin mesta plága
í bænum, og þær valda miklu tjóni
árlega. Er það líka fremur leiðin-
legt að sjá rottur hlaupa eftir aðal-
götum bæjarins um hábjartan dag-
inn.
Tjón af vatnsflóðum.
Á Austurlandi hafa orðið
miklar skemmdir undanfarna
daga vegna vatnagangs. Hafa
samgöngur teppst víða og flóð-
in auk þess eyðilagt ýmis mann-
virki. Sumstaðar hafa skriður
fallið. ' x
Þakka heimsóknir, kveðjur og gjafir ó fimm-
tugsafmæli mínu.
Fagraskógi, 8. úgúst 1946. ST.'STEFÁNSSON.
Framhald á 4'. síðu.
Hornsteinn sjúkrahússins lagð-
ur 18. ágúst.
t
Kvenfélagið efnir til liátíðar til ágóða fyrir
sjúlcrahúsið