Íslendingur - 05.11.1947, Qupperneq 3
Miðvikudagur 5. nóvember 1947
Samband ungra SjálfstæðiS'
manna ___________
Öfarir kommúnista
Flokkar kommúnista hafa að
undanförnu tapað miklu fylgi 5
kosningum, sem fram hafa farið
í mörgum löndum. I Frakklandi,
Ítalíu, Noregi, Danmörku og
núna seinast í Englandi, er Ijóst,
c.5 fylgi og ítök kommúnisa fara
mjög þverrandi.
Ástæðan fyrir þessum skjótu
umskiptum á aðstöðu kommún-
ista rnun án efa vera sú, að al-
menningur um heim allan er
alltaf betur og betur að koma
auga á þá staðreynd, að komm-
únistar þjóna hvergi innlendum
sjónarmiðum, nema í „föður-
landinu“, Rússlandi. Alls staðar
annars staðar eru þeir auðsveip
ir og sporléttir þjónar erlends
stórveldis.
Framkoma kommúnistaflokk
anna, þar sem þeir hafa verið
óhlutir með ofbeldisverkin 1
skjóli rússnesku herjanna, hefir
og vakið andúð og fyrirlitningu
í öllum lýðfrjálsum löndum. Að
vísu hafa flokksbræðurnir lagt
allt kapp á að fegra lögleysurn-
ar, en lítið orðið ágengt.
*
Þáttur íslenzkra kommúnista.
Islenzkir kommúnistar hafa
ætíð verið ötulir talsmenn þeirr-
ar stefnu, sem Rússum hverju
sinni hefir þóknast að fylgja. —
Er vináttusamningurinn frægi
var gerður við Hitler um árið,
töldu kommúnistar hér á landi
það hin svívirðilegustu landráð,
ef íslenzkir þegnar ynnu í þágu
Bandamanna. Eftir þáttöku
Rússa í styrjöldinn vildu komm-
únistar óðir og uppvægir, að ís-
lendingar segðu Þjóðverjum
stríð á hendur.
Eftir styrjaldarlokin hefir
,,Þjóðviljinn“ dag eftir dag flutt
níð um vestrænu lýðræðisþjóð-
irnar. Einnig hefir blaðið varið
mörgum dálkum til þess að telja
lesendum trú um að aðfarir
flokksbræðranna í Rúmeníu,
Búlgaríu, Ungverjalandi og Pól-
landi væru hinar lýðræðisleg-
ustu. Þannig hefir allur mál-
flutningur blaðsins beinst að því
að geðjast Rússum.
Málgögn kommúnista hafa
heldur ekki legið á liði sínu
með að ófrægja þær ráðstafan-
ir, sem Bandaríkjamenn hafa í
hyggju að gera til þess að rétta
við hag Evrópuþjóðanna. Rúss-
ar hafa frá öndverðu verið and-
vígir endurreisninni — og ís-
lenzkir kommúnistar hafa þá
auðvitað tekið í sarna streng-
inn.
Bíða sömu örlög.
Kommúnistar munu sæta
sömu örlögum í öllum lýðfrjáls-
um löndum. Þegar búið er að
ljóstra nægilega upp um eðii
þeirra og tilgang munu kjósend
urnir snúa við þeim bakinu. —
Slíkt þurfa þeir ekki að óttast,
þar sem gagnrýni er bönnuð og
Staðhæfingar þeirra um, að
þeir vilji halda við lýðræði og
réttaröryggi, kemur þeim að
litlu haldi, er staðreyndirnar
mæla alls staðar gegn þeim.
Islenzkir kjósendur vita, að
kommúnistar eru enn sama sinn
is og er Einar Olgeirsson helzti
predikari þeirra skrifaði í
„Verkalýðsblaðið“ 21. júní
1932:
„Byltingarhugur verkalýðsins
magnast, unz hámarki barátt-
unnar er náð með áhlaupi
verkalýðsins, undir forustu
Kommúnistaflokksins á höfuð-
vígi auðvaldsins í Reykjavík og
valdanámi hans. Það áhlaup
tekzt því aðeins, að meirihluti
verkalýðsins, að minnsta kosti
í Reykjavík, fylki sér á bak við
flokkinn. Að slík tímamóí.
munu ekki falla saman við
venjuí'agar kosningar, þingsetu
eða þess háttar, nema fyrir tií-
viljun leina, mun flestuim ljóst,
svo að það, sem úrslitum ræður
verður meiri hluti handanna —
haldaflið.“
Kommúnistar ættu að gera
sér það ljóst, að þjóðir, sem bú-
ið hafa við lýðræði og réttarör-
yggi, kæri sig ekki um þjóðfé-
lag, sem stjórnað er með „hand
afli“ eða byssustingjum.
NÝ HÉRAÐSSAMTÖK
UNGRA SJÁLFST^EÐIS-
MANNA.
Síðastliðinn sunnudag voru
stofnuð héraðssambönd ungra
Sjálfstæðismanna í Árnessýslu
og Vestur-Skaftafellssýslu.
Á stofnfundinum í Árnes-
sýslu voru mættir alþingismenn
irnir Eiríkur Einarsson og Jó-
liann Hafstein. Stjórn héraðs-
sambandsins í Árnessýslu
skipa Gunnar Sigurðsson frá
Seljatungu, formaður. Með-
stjórnendur. Helgi Jónsson, Sel-
fossi, Jóh. Jóhannsson, Eyrar-
bakka, Jón Ólafsson, Geldinga-
holti, Gunnar Bjarnason, Hvera
gerði, Magnús Sigurðsson,
Stokkseyri og Guðmundur G.
Ólafsson, Selfossi.
Stofnfundur héraðssambands
ungra Sjálfstæðismanna í Vest-
ur-Skaftafellssýslu var haldinn
Stjórnmála-
námskeið
Stjórn Fjórðungssambands
ungra Sjálfstæðismanna á Norð
urlandi hefir nú ákveðið að
gangast fyrir stjórnmálanám-
skeiði á Akureyri. Námskeiðið
mun hefjast miðvikudaginn 12.
þ. m. og standa yfir til 22. þ. m.
Samtök ungra Sjálfstælis-
manna hafa á undanförnum ár-
um gengist fyrir mörgum slík-
um námskeiðum og hafa þau
yfirleitt verið mjög vel sótt. Á
síðastliðnum vetri efndi „Heim-
dallur“, félag ungra Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík til stjórn-
málanámskeiðs og voru þátttak-
endur hátt á annað hundrað. —
„Heimdallur“ er nú í þann veg-
inn að hefja annað námskeið.
Tilhögun námsköiðsins.
Aðaltilgangurinn með nám-
skeiðinu er, að þáttakendur nái
góðri æfingu í að koma fyrir sig
orði og túlka skoðanir sínar á
fundum. Það verður því lögð
sérstök áherzla á málfundaræf-
ingar. Flutt verða erindi um
undirstöðuatriði ræðumennsku
og leiðbeiningar gefnar um al-
menn fundarsköp. Umræðufund
irnir munu fara fram að kvöld ■
inu kl. 7,45—10.
Jafnframt kennslu og æfing-
um í ræðumennsku verða flutt
erindi á námskeiðinu um þjóð-
félagsmál og verða þau senni-
iega flutt á tímanum kl. 6—7 að
kvöldinu. öllum ungum Sjálf-
stæðismönnum, sem staddir eru
í bænum, verður heimill aðgang
ur að þessum erindum, meðan
húsrúm leyfir. Meðal annars er
gert ráð fyrir því, að flutt verð':
erindi um: Stjórnarskrána og
stjórnarskipunina, íslenzka
stjórnmálasögu, sjálfstæðisstefn
una, afstöðuna til kommúnism-
ans, sjávarútvegsmál, landbún-
aðarmál, raforkumál og verzlun
ar- og dýrtíðarmál.
Ungir Sjálfstæðismenn, sem
hug hafa á að sækja námskeið-
ið, skulu tilkynna þátttöku sína
sem fyrst á Skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins, Hafnarstræti
101 eða á skrifstofu „Islend-
ings'1.
að Vík. Á fundinum var mættur
Gunnar Helgason, erindreki. —
Fundurinn var fjölsóttur og
mættu fulltrúar úr flestum
hreppum sýslunnar.
Stjórn héráðssambandsins
skipa: Siggeir Björnsson, Holti,
formaður, Valdemar Tómasson,
Vík, gjaldkeri, Vilhjálmur Ey-
jólfsson, Hnausum, ritari. Með-
stjórnendur: Páll Jónsson, Vík
og Árni Jóhannsson, Gröf.
Bærinn fær nægilegt
vatn á næstunni
Blaðið liefir átt tal við bæjarstjóra og bœjarverk-
frœðing um■ framkvæmdir þœr, sem mí er unnið að
til aukningar á vatnsveitu bæjarins. Hefir undanfarið
verið nokkur skortur á vatni í sumum hverfum bæjar-
ins, en vonir eru til, að fullar úrbætur fáist á því með
þeirri aukningu, sem nú verður á vatnsveitunni.
Fyrir um það bil mánuði síðan
var býrjað að leggja nýja æð úr
vatnsgeynumum fyrir ofan Glerá. —
Ætlunin var að hefja þetta verk
miklu fyrr. en efnisskortur hamláði
framkvæmdum. Síðan verkið hófst
hafa unnið þarna um 30 menn og
er nú byrjað að leggja rörin. Telur
bæjarverkfræðingur, að verkinu
'muni lokið um næstu mánaðamót,
ef veður verður hagstætt.
Nóg vatn mun safnast í geymana
til þessarar aukningar á vatnsveitu-
kerfinu, en verði þörf á að auka
vatnsrennslið enn að mun, verður
að grafa brunna til viðhótar. Gert
er ráð fyrir, að þessi aukning, sem
nú verður, muni nægja bænum fyrst
um sinn, ef ekki hætast við verk-
smiðjur eða önnur fyrirtæki, sem
verða mjög valnsfrek.
Kvsldvaka „Varöar"
„Vörður“, félag ungra Sjálí-
stæðismanna, lieldur næstu
kvöldvöku sína að Hótel Norð-
nrlandi n. k. föstudagskvöld. - -
Dagskrá verður nánar tilkynat
í götuauglýsingum. Kvöldvöht ’
„Varðar“ hafa jafsian verlð
mjög fjölsóttar, og er naumast
að efa, að svo muni einnig verðu
n i.
Fyrsti fundur félagsins á
þessu starfsári var haldinn s. 1.
mánudagskvöld. Var þar rætt
um vetrarstarfsemina og al-
mennt um stjórnmálaviðhorfið.
Félaginu bættust þar 8 nýir fé-
lagar og fleiri inntökubeiðnir
| hafa borizt síðan.
„Vaka“ fékk meirihluta
í stúdentaráði
Síastliðinn laugardag fóru
fram kosningar í Stúdentaráði
Háskóla Islands. Urðu úrslit
þau, að „Vaka“, félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, hlaut 185 at-
kvæði og fimm menn kjörna,
fékk í fyrra 194 atkv. og 5
menn, félag róttækra stúdenta
(kommúnistar) hlaut 106 atkv.
og 2 menn (í fyrra 100 atkv. og
3 menn), félag lýðræð'.ssinnaðra
sósíalista (Alþýðuf lokksmenn)
hlaut 60 atkv. og 1 mann) og
félag frjálslyndra stúdenta
(Framsókn) hlaut 57 atkv. og 1
mann (í fyrra 32 og engan).
„Vaka“ missti hlutfallslega
mjög marga fylgismenn sína út
af kjörskrá í haust og þótti því
tvísýnt, hvort hún héldi meiri
hluta sínum. Framsókn græðir
eitt sæti frá kommúnistum, en
efsti maður á Framsóknarlistan
um, Jón Hjaltason, ritstjóri
æskulýðssíðu Tímans, var strik-
aður svo út, að hann féll, en
annar maður á listanum náði
kosningu.
Stúdentaráð skipa nú: Tómas
Tómasson, stud. jur„ Víkingur
H. Arnórsson, stud. med., Bragi
Guðmundsson, stud. polyt., Jón-
as Gíslason, stud. theol., og Páll
Líndal, stud. jur., frá Vöku. —
Jón P. Emils, stud. jur. frá lýð-
ræðissinnuðum sósíalistum, —
Páll Hannesson, stud. polyt, frá
frjálslyndum, og Hjálmar Ólafs-
son, stud. phil., og Árni Plall-
dórsson, stud. jur. frá róttæk-
um.
FJÓRAR UMSÓKNIR
UM EMBÆTTI
SKÓLAMEISTARA
Umsó'knarfrestur um embætti
skólameistara við Menntaskólann á
Akureyri, var útrunninn 1. nóv. sl.
Höfðu þá borizt fjórar umsóknir.
Þessir sækja: Ármann Halldórsson,
skólastjóri við Miðbæjarharnaskól-
ann í Reykjavík, Brynleifur Tobias-
son, menntaskólakennari á Akureyri,
Steindór Steindórsson, menntaskóla-
kennari á Akureyri, og Þórarinn
Björnsson, menntaskólakennari á Ak-
ureyri.
Embættið verður veitt frá 1. des.
næstkomandi.
HÖRMULEGT SLYS
Það sorglega slys varð sl. sunnu-
dag, að Steinþór Sigurðsson, magist-
er, fórst í Hekluhrauni, er liann var
þar við rannsóknir og kvikmynda-
töku. Féll ofan á hann steinn úr
hraunbrúninni, og var hann þegar
örendur. Tveir menn voru með Stein
þóri og urðu sjónarvottar að slysi
þessu. Með Steinþóri er fallinn í
valinn einn ágætasti og áhugasam-
asti náttúrufræðingur hér á landi.
Steinj lór Sigurðsson var um skeið
kennari hér við Menntaskólann og
vann sér mjög miklar vinsældir nem-
enda sinna, enda var hann ágætur
kennari og einnig áhugasamur for-
ustumaður í ýmsum félagsmálum
nemenda.