Íslendingur


Íslendingur - 10.03.1948, Side 8

Íslendingur - 10.03.1948, Side 8
MUNIÐ eftir barnahjálp sameinuðu þjóðanna. ísl'endingur veitir gjöfum móttöku. Miðvikudaginn 10. marz 194G Gerist áskrifendur að „I33jI3NÐII'TGI“ Afgreiðslan er í Gránufélagsgötu 4. Sími 354. I. 0. O. F. — 1293128% — □ Rún:. 5948107. —. 1:. MessaS í Akureyrarkirkju kl. 2 síðdegis n. k. sunnudag. Sunnudagaskúli Akureyrarkirkju kl. 11 árdegis n. k. sunnudag. Æskulýðsjélag Akureyrarkirkju heldur fund kl. 8.30 á sunnudagskvöldið. Akureyrarkonur. Kvennadeild Slysa- varnafélagsins heldur framhaldsaðalfund í kirkjukapellunni fimmtudaginn 18. marz n. k. kl. 9 e. h. Áríðandi mál á dagskrá. Deildin veitir kaffi, en konur taki með sér bollapör. Aheit á Laufáskirkju kr. 100 frá G. II. Leikjélag Akureyrar sýnir í kvöld Ham- arinn eftir séra Jakob Jónsson. Næstu sýn- ingar eru á laugardags- og sunnudags- kvöld. ASeins örfáar sýningar eftir. dLús- fyllir var á tveimur síðustu sýningum. Austjirðingafélagið hefir kvöldvöku á Hótel Akureyri (ekki Gildaskála KEA) fimmtudaginn 11. þ. m. kl. 8.30 s.d. Geng- ið inn að norðan. Til skemmtunar verður: Ilvítabjarnarveiðar á Héraðsvötnum, cr- indi (Ólafur Jónsson), söngur, gaman- saga, Heklukvikmynd (Edv. Sig.) og fé- lagsvist. Nánar í götuauglýsingum. Guðspekistúkan „Systkinabandið“ held- ur fund mánudaginn 15. þ. m. á venjuleg- um stað og tíma. Barnastúkurnar „Bernskan" og „Sak- leysið“ halda sameiginlegan fund í Skjald borg næstk. sunnudag kl. 10 f. h. Venju- leg fundarstörf. B-flokkur sér um skemmti- atriði. — Börn, sem tóku að sér sölu happ- drættismiða eru beöin að mæta á fund- inum. Mætið stundvíslega. Frá starfinu í kristniboðshúsinu Zíon. Sunnud. 14. marz sunnudagaskóli kl. 10.30 f.h. — Oll börn velkomin! — Almenn sam- koma kl. 8.30 e.h. Gunnar Sigurjónsson, cand. theol., talar. — Allir lijartanlega vel- komnir! Stúkan Isafold-Fjallkonan nr. 1 heldur fund í Skjaldborg mánud. 15. marz kl. 8.30 síðd. Inntaka nýrra félaga. Eftir fund verður bögglauppboð. Er heitið á alla stúkufélaga að koma með böggla til upp- boðs með sér á fundinn. Að lokum dans. Hjálprœðisherinn. Æskulýðsherferð með samkomum á hverju kvöldi þessa viku fyrir börn kl. 6 og fyrir fulloröna kl. 8.30. Æskulýðsritarinn majór Hilmar Andresen, kapteinn Eskil Roos, Driveklepp o. fl. taka þátt í samkomunni. Söngur og hljóö- færasláttur. Allir velkomnir! Skíðamót Akureyrar 1948 hefst n. k. sunnudag þ. 14. marz og verður keppt kl. 2 í bruni karla og kvenna í öllum flokk- um. JCl. 3 verður keppt í svigi kvenna og einnig í svigi karla C-flokki. — Keppnirn- ar verða sennilega í Snæhólum og skulu keppendur í bruni vera mættir við enda- mark brunbrautar kl. 1.30. Sunnudag þ. 21. marz heldur mótinu áfram og verður þá keppt í svigi karla A- og B-fl. og stökki. Allmikið magn af síld liggur undir skemmdum. Gera þarf bráðar ráðstafanir Niðursuðuverksmiðjan Sild. og fleiri aðilar hér á Akureyri munu nú eiga all-miklar birgðir aí kryddsíld, sumt i tunnum og sumt þegar niðurlagt í dósir, að verðmæti 200—400 þús. kr. — Mestur hluti síldarinnar muti enn vera ágæt vara, en hætt er við skemmdum, ef hún verður geyrnd mikið lengur. Allmiklir erfiðleikar munu hafa verið á því að fá markaði íyrir niðursoðna síld, þannig að söluverð hennar samsvari fram- leiðslukostnaði. Dálítið hefir þó verið selt til Bandarikjanna og Tékkóslóvakíu. Aldrei var þó flutt til Bandarikjanna allt það magn, sem gert var ráð fyrir, hvort sem Bandaríkin hafa feng ið tilboð um ódýrari vöru ann- ars staðar frá eða einhverjar aðrar orsakir hafa komið þar til greina. Verða Islendingar að sjálfsögðu hér sem á öðrum sviðum að súpa seyðið af því, að verðlag á afurðum þeirra er miklu hærra en hjá flestum öðrum þjóðum. til að nýta þessi verðmæti. En hvernig sem þessu er hátt- að, má það ekki koma fyrir, að góð matvæli séu látin fara for görðum. Koma þar ekki aðeins til greina hagsmunir þeirra að- ila, sem verðmætin eiga, heldur og þjóðarheildarinnar, því að hér er um nokkurn gjaldeyri að íæða, ef hægt er að selja síldina á erlendum markaði. Jafnframt er vert að hafa það í huga, að nú fer fram almenn fjársöfnun tii kaupa á matvælum handa þeim tugmiljónum barna, sem þola verða skort og hungur víðs vegar um heim. Virðist jafnvel ekki fráleitt fyrir forstöðumenn barnahjálparinnar að athuga, hvort ekki gæti verið hagkvæmt • að kaupa einmitt eitthvað af þessari síld, því að síldin er góð og fjörefnarík fæða og sérstak- lega þægilegt að flytja hana nio urlagða í dósir. Það má með engu móti láta síldina verða ónýta, hvað sem við hana verðúr gert. * Kjarnorkusýni.ngin vekur mikla athygli. Atómsýning sú, sem Jörund- ur Pálsson opnaði í Gildaskála KEA s. 1. fimmtudag, hefir vak- ið mikla athygli. Hefir fjöldi bæjarbúa skoðað sýninguna og einnig hafa kennarar komið með nemendur úr skólum bæj- arins. Mun sennilega mestur hluti skólafólks í bænum skoða sýninguna, enda er þar margt fróðlegt að sjá. Forstöðumaður sýningarinn- ar bauð blaðamönnum og ýms- um öðrum gestum að vera við- staddir opnun sýningarinnar sl. íimmtudag. Skýrði hann frá því, að þessi sýning væri fyrsta íræðslusýning, sem haldin væri hér á landi, en erlendis væru slíkar sýningar mjög tíðkaðar nú. Kvaðst hann hafa í hyggju að koma upp fleiri fræðslusýn- ingum, ef nokkur kostur væri á. Dr. Sveinn Þórðarson flutti síðan mjög fróðlegt og skemmti legt erindi um sögu atómrann- sóknanna og hinar ýmsu skoð- anir vísindamanna um eindir efnisins og byggingu atómsins. Síðan útskýrði hann myndirnar á sýningunni, en þær sýna á sem einfaldastan hátt byggingu atómsins og stærð þess, myndun kjarnorkusprengingar og áhrif hennar. Eru flest þessara atriða svo glöggt fram sett, að þau munu verða öllum almenningi sæmilega skiljanleg, þótt þau geri hverjum og einum að vísu ekki fært að framleiða atóm- sprengjur — sem betur fer! Þá eru einnig á sýningunni sýndar tvær fallegar litkvik- myndir. Fjallar önnur um raf- magnið og byggingu atómsins, en hin er almenn hugvekja um atómorkuna og hinar geigvæn- legu afleiðingar, ef hún verður notuð til tortímingar í styrjöld- um. Sýningin er enn opin, og ann- ast Ingvar Björnsson, mennta- skólakennari, útskýringar á kvöldin frá kl. 8 til 11, en sýn- ingin er opin daglega frá kl. 2—11. Stórt amerískt skrifstofuskrifborð til sölu. A. v. á. Barnahjálpin: Iiér fer á eftir skilagrein ilm það fé, er sajnazt hefir lijá blaðinu: Björg og Kalli kr. 250.00, Kári Sigur- jónsson kr. 100.00, Vilh. K. Jensen k^- 100.00, Þórarinn Loflsson kr. 100.00, Jón J. Bergdal kr. 50.00, Sigurður Þorstcins- son kr. 100.00, Jóhannes Júlíusson kr. 50.00, Óskar Ósvaldsson kr. 10.00, Rann- veig Gunnlaugsdóttir kr. 10.00, Ilermann Ingimarsson kr.'5.00, Baldur Aspar kr. 25.00, Magnús Jónsson kr. 100.00, Friðrik Þorvaldsson kr. 100.00, Ottó Jónsson kr. 100.00, Svanberg Einarsson kr. 100.00, Rósa Ólafsdóttir kr. 30.00, Sigurlína Kristj ánsdóttir kr. 20.00, Herbert Sigurbjörns- son kr. 50.00, Skarph. Halldórsson kr. 100.00, Halldóra Jónasdóttir Rafnar kr. 100.00, Ingibjörg Þorkelsdóttir kr. 50.00, Ásgrímur Alberlsson kr. 100.00, Valgarð- ur Sigurðsson kr. 60.00, Margeir Stein- grímsson kr. 50.00, Gunnl. Tr. Jónsson kr. 300.00, Kristján Ilögnvaldsson kr. 150.00, Björn Guðnason kr. 50.00, J. J. kr. 50.00, safnað á fundi Skakfélags Ak., afh. af for- manni kr. 300.00, Pétur Ólafsson kr. 50.00, frá spilamönnum kr. 22.00, Guðbjörg Guð jónsdóttir kr. 50.00, Þórey Þorleifsdóttir kr. 30.00, Þórhallur Siglryggsson kr. 50.00, H. S. 50.00, sjúklingar og starfsfólk á Kristneshæli kr. 1900.00, A. O. kr. 100.00, L. J. G. kr. 150.00, Birna kr. 65.00, S. G. kr. 50.00, Sigtýr Sigurðsson kr. 50.00, slarfsmenn vegagerðarinnar kr. 1200.00, G. G. kr. 100.00, N. N. kr. 25.00, Fanney Tryggvadóttir kr. 40.00, Pétur Jónsson kr. 100.00, G. G. kr. 100.00, Baldur Arnbjörns- son 1 árs kr. 25.00, N. N. kr. 100.00, N. N. kr. 100.00, Einar G. Jónasson kr. 100.00, M. B. kr. 100. •—■ Samlals liefir safnazt hjá hlaðinu kr. 7197.00. ■— Ennfremur móttek- inn fatabögguli frá Gunnari Finnbogasyni. | „Ota“ | Ihafragrjón, | glóðuð og söxuð, & nýkomin. | VÖRUHÚSIÐ h.f.l Ofarir kommúnista í Ólatsfirði Kommúnistar í Óiafsfirði fóru nýlega hinar mestu hrak- farir við stjórnarkosningu . Verkalýðs- og Sjómannfélagi Ólafsfjarðar. Reyndu þeir þó að hafa rangindi í frammi, en lýð- ræðissinnaðir verkamenn og sjó menn svöruðu þeim tilraunum á viöeigandi hátt. Kosning fór tvisvar fram í fé- laginu. Var „Þjóðviljinn“ mjög kampakátur yfir fyrri úrslitun- um, en hljóðnaði allmjög, þegar síðari úrslitin urðu kunn. Þegai stjórnarkosning skyldi fram fara á fundi 22. febrúar komu kommúnistar með nokkra ungl - inga innan sextán ára aldurs á fundinn og létu þá greiða at- kvæði. Kom í Ijós við nánari at.- hugun, að þetta var ólöglegt samkvæmt lögum félagsins. Var þá kosið aftur á sama fundinum gegn mótmælum kommúnista, sem töldu fyrri kosninguna lög- mæta. Töpuðu þá kommúnistar með litlum atkvæðamun, en margir andstæðingar þeirra voru utan bæjar við vinnu. Urðu þeir þá óðir og uppvægir og heimtuðu nýjar kosningar. Var látið að þeim óskum'þeirra, þótt lögbrotin væru reyndar öll hjá kommúnistum sjálfum. Við stjórnarkosninguna viku seinna’ unnu andstæðingar kommúnsta með miklum yfir burðum. Urðu úrslit þessi: Aðalstjórn: Gunnar Steindórsson, form., Georg Þorkelsson, ritari, Sigurður Ingimundars., gjaldk. Varastjórn: Randver Sæmundsson, form., Magnús Magnússon, ritari, Stefán Ólafsson, gjaldkeri. Trúnaðarráð: Helgi Sveinsson, Guðmundur Jónsson, Jón Ingimarsson, Magnús Þorsteinsson. Prjár íbúðir til sölu Tilboð óskast í þrjár íbúðir í húsinu Eyrarlandsveg 12, Akureyri, allar saman eða hverja fyrir sig. Tilboðum sé skilað fyrir 15. þ. m. til undirritaðs, sem gefur allar nánari upplýsingar. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Akureyri, 9. marz 1948. HARALDUR HELGASON.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.