Íslendingur - 05.08.1948, Blaðsíða 8
□ Rún:. 594885. Fundur fellur niður.
Áttatíu og fimm ára afmæli átti Jón
Helgason, fyrrv. ökumaður á Eyrarlandi,
30. f. m. Hann hefir átt heima hér í bæn-
um mestan hluta ævinnar og verið hinn
mætasti borgari. Hann er enn við sæmi-
lega heilsu.
Lúðrasvcit Akureyrar leikur á Ráðhús-
torgi föstudaginn 6. ágúst kl. 8 e. h., ef
veður leyfir.
Fíladeljía. Opinberar samkomur verða
í Verzlunarmannahúsinu fimmtudaginn 5.
ágúst kl. 8.30 síðdegis. Sunnudaginn 8.
ágúst kl. 8.30 síðdegis. Allir velkomnir!
Héraðsmót Sjálfstæðismanna á
Akureyri og í Eyjafirði verður
haldið í Naustaborgum n. k. sunnu-
dag. Mótið hefsl kl. 2.30. Ræðu-
menn verða: Bjarni Benediktsson,
ráðherra, Jóliann Hafstein, alþm.,
og Magnús Jónsson, lögfræðingur.
Valur Norðdahl skemmtir og ýms
fleiri skemmtiatriði munu verða,
og verða Jiau riánar auglýst síðar.
Ferðir hefjast frá Ferðaskrifstof-
unni kl. 1.30. Kl. 10 um kvöldið
hefst dansleikur, og skemmtir Val-
ur Norðdahl þar einnig. Er Jiess að
vænta að Sjálfstæðismenn á Akur-
eyri og í Eyjafirði muni íjölmenna
á mót þetta, enda mun verða vel
til þess vandað.
Kvenfélag Akureyrarkirkju heldur fund
mánudaginn 9. ágúst kl. 5 e. h. í kirkju-
kapellunni.
Hjúskapur. Laugardaginn 24. júlí voru
gefin santan að Möðruvöllum í Hörgárdal,
ungfrú Olína Hólmfríður Halldórsdúttir,
Búlandi, og Ingvi Arni IJjörleifsson, raf-
virki, Akureyri.
Orlojs- og skemmtiferS. Ferðaskrifstofa
ríkisins efnir til orlois- og skemmtiferðar
frá Akureyri um Suðurland. Verður jietta
níu daga ferð og verður iagt af stað 6.
ágúst. Helztu viðkomustaðir eru: Reyk-
liolt, Þingveilir, llveravellir, Sámsstaðir,
Vík í Mýrdal, Gunnarsholt, Hekla, Skál-
holt, I.augarvaln, Geysir, Hvítárvaln, Kcrl-
ingarfjöll og Hveragerði. Ferðaskrifstofa
ríkisins á Akureyri gefur ailar nánari upp-
lýsingar.
Heilbrigðisjulltrúinn lieíir heðið blaðið
að minna menn á rottueitrun Jtá, sem nú
stendur yfir. Fyrri umferð eitrunarinnar
er nú lokið og sú síðari hafin, og crtt menn
sérstaklega minntir á að láta heilbrigðis-
fulltrúa vita, ef ekki hefir verið eitrað hjá
þeim, enda sé unt rottugang að ræða.
Stefán Stefánsson bóndi Svalbarði verð-
ur sjötíu og fimm ára 9. þ. m.
0
Fimmtudaginn 5. ágúst 1948
Ritstjóri AlþýOumannsins i
svefnrofunun).
Rétt áður en blaðið fór í
prentun, barst því síðasta tölu-
blað Alþýðumannsins. Er rit-
sljóranum mikið niðri fyrir, og
hefir hann bersýnilega sótt í sig
veðrið í fjarverunni, því áður
spurði hann aðeins, ,,hví má ég
ekkisofa?“
Hann hefur mál sitt á því að
tala um það að tveir stjórnmála
flokkar hér á landi hafi gert
mikið að því að villa á sér
heimildir með nafnabreytingum
og því um líku, og séu þetta
Sjálfstæðisflokkurinn og Sósíal-
istaflokkurinn. Hér mun ekki
verða svarað til saka fyrir Sósi-
alista, en um Sjálfstæðisflokk-
inn er það að segja, að hann hef
ir al’taf borið sama nafn, frá
því að hann var stofnaður.
Hins vegar má hér fræða rit-
stjóra Alþýðumannsins á því, að
sumir flokksbræður hans hafa
íengizt nokkuð við nafnabreyt-
ingar. Undanfarin ár hafa þeir
haft með sér félag í Háskólan-
um, sem lengst af hefir barizt
við dauðann, og nú á fáum ár-
um hefir það borið til skiptis
nöfnin: „Alþýðuflokksfélag há-
skólastúdenta“, ,, Stúdentaf élag
lýðræðisjafnaðarmanna“ og
,,Stúdentafélag lýðræðissinn-
aðra sósíalista."
Þá vex ritstj. Alþýðumanns-
ins mjög í augum hin „hasard“-
kennda útbreiðslustarfsenu
Sjálfstæðisflokksins, eins og
hann orðar það, og er það ofur
vel skiljanlegt. Honum svíður
það eðli'ega, að Sjálfstæðisflokk
urinn skuli geta haldið margar
og f jöimennar samkomur, þegar
hann getur sjálfur engar fréttir
sagt af starfsemi Alþýðuflokks-
ins, hún er ekki svo mikil, að i
frásögur sé færandi. Þó má ekki
Hestamanna/élagið Létlir efnir til
skemmtiferðar í Leyningsltóla langardag-
inn 7. ágúst. — Þeir, sem ætla að verða
með í ferð þessari gefi sig fram fyrir
föstudagskvöld við Þorleif Þorfeifsson. -—
Mæta skal á skeiðvtdli félagsins kl. 1 á
laugardaginn.
Hjálprœðisherinn. Sunnttd. 8. ágúsl kl.
11 helgttnarsamkoma; kl. 8.30 hjálpræðis-
samkoma. Allir velkomnir!
Kirkjubrúðkaup. Síðastliðinn þriðjudag
voru gefin saman í hjónaband í Akureyr-
arkirkju, ungfrú Sólveig Ásgeirsdóttir, Ás-
geirssonar kaupmanns, og séra Pétur Sig-
urgeirsson. Faðir brúðgumans, lterra bisk-
upinn, Sigurgeir Sigurðsson gaf brúðlljón-
in santan.
gleyma því, að einn af
helztu spámönnum Alþýðu-
f'okksins, Gylfi Þ. Gíslason, sem
jafnframt er meðal snjöllustu
fyrirlesara flokksins, fékk ein-
ar 60—70 sálir til þess að hlusta
á sig hér á Akureyri í vor, end'i
hafði hann að flytja boðskap
um nýtt þjóðskipulag. Af þessu
er ljóst, að A’þýðuflokkurinn er
þó ekki aiveg dauðvona.
Þá ætlar ritstjóri Alþýðu-
mannsins alveg að ganga af
göflunum yfir því, að Islending-
ur skuli hafa skipað flokki hans
á bekk með Sósíalistaflokknum.
Lægi þó nær að Sósía’istar reidd
ust, því að þeir hafa þó stefnu,
sem hægt er að framkvæma,
þótt aðferðin við þá framkvæmd
sé fyrir neðan allar hellur, en
stefna Alþýðuflokksins er ó-
lramkvæmanleg og er ömurlegt
hlutskipti þeirra manna, sem
hafa bundið trúss við slíka
stefnu. Þeir ganga með þær
grillur, að hægt sé að sameina
lýðræði og sósíalisma og búa til
úr því nýtt þjóðskipu'ag, en lýð-
ræði og sósíalismi eru algerðar
andstæður, sem ekki verða sam-
ræmdar, og verður því útkoman
sú, að ef kratanir ætla sér að
láta eitthvað til sín taka, þá
verða þeir að svíkja annað
hvort lýðræðið eða sósíalismann
og stundum hvort tveggja.
Ritstjóri Alþýðumannsins
spyr, hvenær og hvar Alþýðu-
flokkurinn hafi lýst því yfir, að
hann vilji engan atvinnurekstur
einstak'inga, engan eignarétt
einstaklinga á framleiðslutækj-
um og ekkert athafnafrelsi
nema fyrir foringjana. Senni-
lega eru fáir af ráðamönnum
flokksins svo fávísir, að þeir lýsi
þessu yfir berum orðum. En þvi
hefir margsinnis og við margs-
konar tækifæri verið lýst yfir af
lorkólfum Alþýðuflokksins, að
flokkurinn stefndi að því að
koma á sósía'istisku þjóðskipu-
lagi, og í ríki sósíalismans gétur
skkert af þvi, sem um er spurt,
þrifist og af því getur hver
meðalgreindur maður dregið
réttar ályktanir, þótt ritstjóra
Alþýðumannsins hafi nú mistek
ist það.
Þá tekur ritstjórinn upp úr
íslendingi eftirfarandi grein:
, Stefna sósíalista, hvort sem
þeir kalla sig Alþýðuflokka eða
Kommúnista, getur ekki þrifizt
nema á meðan verið er að eyða
upp eignum einstaklinganna, ef
þeir stjórna með iýðræðisskipu-
lagi. Sú stefna er orsök ófarn-
aðarins víða um lönd. — Fram-
kvæmd kommúnismans er af-
ieiðingin“. Síðan spyr ritstjór-
irin: Hvar hafa kommúnistar
fai’ið msð meiri hluta og stjórn-
' að eftir lýðræðisskipulagi, og
I hvar hefir það verið orsök ófarn
! íiðarins?“ *Ef ritstjóri Alþýðu-
' mannsins gæti lesið venjulegt
ísienzkt mál sæmilega rétt og
1 án þess að bæta inn í það sínum
eigin hugarsmíðum, þá hefði
hann getað komizt hjá því að
opinbera fávizku sína í þetta
skipti. Hann hefir m. a. bætt
þarna inn orðinu „meirih'uta“
til þess að reyna að brengla
merkingu þessarar tiivitnuðu
greinar. Hitt ætti honum að
| vera kunnugt, að kommúnistar
hafa smeygt sér inn í lýðræðis-
stjórnir ýmissa landa, og í sum-
um þeirra komið ár sinni svo
fyrir borð, að nú er komið þar
á stjórnskipulag sósíalismans.
En ritstjórinn virðist ekki vera
nægilega mikill ,,sagnfræðingur“
tl þess að þekkja helztu við-
burðina úr stjórnmá'asögu t. d.
Tékka, Pólverja, Ungverja og
Búlgara nú síðustu árin.
Þá spyr hann enn: „Hvar
hafa Alþýðuflokkar náð meiri-
hiuta og framkvæmt sósíalisma
þannig, að afleiðingin hafi ver-
ið komúnismi?" Hér er enn
sami meirihluta-skáldskapurinn.
Sannarlega hafa Alþýðuflokkar
áðurnefndra þjóða veitt komm-
únistum miki'vægan stuðning
við valdarán þeirra.
En Alþýðuflokkar hafa líka
náð meiri hluta. f Bretlandi fara
þeir nú með völdin og hafa
reynt að þjóðnýta sumar at-
vinnugreinar þar, en árangurinn
hefir ekki reynzt nein fyrir-
mynd. Þeir hafa líka stjórnað á
Norðurlöndum, en þar hafa þeir
lagt þjóðnýtingaráformin á hill-
una. Þeir hafa þar uppgötvað
þann sann'eika, að sósíalismi og
iýðræði eiga ekki samleið og
hafa tekið þann kostinn að
iylgja lýðræðinu, og þeir hafa
enda ekki alltaf þótt mjög frjáls
lyndir. Má til dæmis geta þess,
ao ungur sósíalisti, sem var við
nám í Svíþjóð á stríðsárunum,
sagði við núverandi ritstjóra ís-
lendings, haustið 1945, að Ólaf-
ur Thors væri ti' muna róttæk-
ari, en Per Albin Hansson, sem
þá var forsætisráðherra Svía,
eins og kunnugt er.
Ekki getur ritstjóri Alþýðu-
mannsins skilið svo við þessa
langloku sína, að hann minnist
ekki nokkrum orðum á „heild-
salavald, verzlunarólag, luxus-
bíla, auðmannaforréttindi“ og
annað þess háttar, sem andstæð-
ingum Sjá'fstæðismanna er sér-
staklega munntamt. Mætti þvi
benda honum á, að Alþýðuflokk
urinn hefir oftar verið í ríkis-
stjórn á undanförnum árum,
heldur en Sjálfstæðisflokkurinn,
cg hefði hann þvi átt að beita
sér fyrir þvi, að þessu yrði
kippt í lag. Nú er líka sérstak-
lega gullið tækifæri til þess, þar
sem A'þýðuflokkurinn fer með
stjóimarforystuna. Hvað hefir
stjórn Stefáns Jóhanns gert til
þess að uppræta þennan
„ósóma“? Viil ekki ritstjóri Al-
þýðumannsins svara því?
Vafalaust mætti tína ýmislegt
fleira til úr þessum langhundi
Alþýðumannsins, þótt hér verði
staðar numið að sinni. Hins
i vegar skal ritstjóri Alþýðu-
mannsins huggaður með því, að
Is'endingur á enn margt ósagt í
garð þess flokks, sem hann er
málsvari fyrir, og ætti hann þvi
ekki að eyða öliu sínu púðri í
fyrsta skoti. Ef til vill á hann
lika óþrjótandi nægtabrunn
stóryrða að grípa til, þegar rök-
in þrýtur, en það virðist vera
íurðu fljótt.
í éraðsmdtiö.
Framh. af 1. siðu.
ureyri. Hann ræddi um skyldur
borgaranna við þjóðfélag sitt.
Kvað hann nú meir skorta þegn-
skap en fé hér á landi. Menn
hugsuðu mest um það að gera
kröfur, en ekki hitt, hverju þeir
þyrftu að fórna fyrir land sitt.
Sagði hann það nú hlutverk æslc
unnar að g’æða hér þegnskap og
vinna þannig að því, að menn
létu jafnan þjóðarheill sitja í
fyrirrúmi fyrir sérhagsmunum,
sem stöfuðu af þröngsýni og
skeytingarleysi um hag almenn-
ings.
Ólafur Magnússon frá Mos-
i'elii söng einsöng, og karlakór-
inn „Heimir“ söng undir stjórn
Jóns Björnssonar. Var söng-
mönnunum vel fagnað.
Að lokum var stiginn dans ti'
miðnættis.
Siglfirzkir Sjálfstæðismenn
efndu til fjölmennrar hópferðar
á mótið, og hafði félag ungra
Sjálfstæðismanna forgöngu um
það. Þá komu einnig á mótið
hópar Sjálfstæðismanna frá Ak-
ureyri og úr Austur-Húnavatns-
sýslú. Einnig mættu þar Heim-
dellingar þeir, er undanfarið
hafa verið á skemmtiferða’agi
um Norður- og Austurland.