Íslendingur - 11.08.1948, Blaðsíða 8
KAUPUM
Rabarbara
fyrst um sinn.
ÖL OG GOSDRYKKIR h. f.
Miðvikudaginn 11. ágúst 1948
Hörmulegt slys á
Fjúrir menn árnkkna er vélbátur rekst
á tvo nötabáta.
Hóladagur á sunnudaginn. Næstkom
andi sunnudag verður hinn árlegi Hóla
dagur á Hólum í Hjaltadal, og í sam-
bandi viS hann verður hin árlega presta
stefna Hólastiftis haldin þar á laugardag
inn. Verður af þeim sökum ekkert mess
að hér um næstu helgi.
Minningarathöjn um Steingrím Matt-
híasson verður haldin hér í kirkjunni n. k.
fimmtudag kl. 2 e. h Hefir aska hans
verið send hingað norður og verður þá
jarösett hér.
Hjónaband. Þann 8. ágúst s. 1. voru gef
in saman í hjónaband Guðni Guðjónssor
frá Hraunfelli í Vopnafirði og Ólöf Ólafs'
dóttir frá Viðvík í Norður-Múlasýslu.
Hjónaejni. Hinn 3. ágúst s. 1. opinber
uðu trúlofun sína Ari Brynjólfsson, stú
dent, Krossanesi, og ungfrú Guðrún Frið
geirsdóttir frá Húsavík.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Lóa Aðalbjörg Bjarnadóttir
(Iialldórssonar skrifstofustjóra Rafveitr
Akureyrar) og Erlendur Geir Jóelsson.
verzlunarmaður í Hafnarfirði.
HjálprœSisherinn. Sunnud. 15. ágúst kl
11 helgunarsamkoma; kl. 4 útisamkoma;
kl. 8.30 hjálpræðissamkoma. Kaptein o{,
frú Eskil Roos frá Reykjavík stjórna, tala
og syngja. Mikill söngur og hljóðfæra-
sláttur. Allir velkomnir.
Handknattleihsmót Norðurlands verðui
á laugárdag og sunnudag n. k. Auk Akur-
eyringanna keppir lið frá Sauðárkróki j
kvennaflokki.
Berklavörn á Akureyri heldur funci
fimmtudaginn 12 ágúst kl. 8.30 e.h. í
Rotarysal Hótel KEA. Fundarefni: Kosn-
ing fulltrúa á 10. þing S. í. B. S.
Áheit á Strandarkirkju. Blaðið hefii
veitt móttöku áheiti á Strandarkirkju að
upphæð kr. 100.00 frá N. D. Sent áleiðis,
Gjöf til elliheimilisins í Skjaldarvík.
Blaðið hefir veitt móttöku kr. 200.00 frá
Sigríði Þ. og J. J. til elliheimilisins i
Skjaldarvík. Með þökkum móttekið.
Áheit á elliheimilið í Skjaldarvík. Frá
Axel Sigurbjörnssyni kr. 100. Nokkur á-
heit frá konu kr. 400. Áheit á elliheimilið
kr. 70. Hjartans þakkir. Stefán Jónsson.
HETJUDÝRKUN
Tíminn hefir komizt að þeirri nið'
urstöðu, að íslendingur hafi gert séi
sérstakt kappatal, og sé þar efstur é
blaði Ólafur Thors, en nœstur hon-
um og litlu síðri sé fyrrverandi for-
maður Framsóknarflokksins, Jónas
Jónsson. Það skal þegar tekið fram
Tímanum til huggunar, að íslend-
ingur hefir enga tilhneigingu til þess
að fara að keppa við Hermann Jón-
asson í hetjudýrkun og hefir því
ekkert kappatal gert. Þá verður það
vart talin nein sérstök lofgjörð um
Jónas Jónsson, þótt sagt sé, að eng-
inn þeirra, er Tímann rita, sé ann-
arrar handar maður Jónasar í rit-
deilu. Það þarf sannarlega engan
ritskörung til þess að bera af þeiro
Tímamönnum.
Heraðsmótið.
Framh. af. 1. síðu.
manna væri einnig með ágætum.
Nú kvað hann væniega horfa
fyrir flokknum og myndi nú án
efa erfitt að stjórna landinu
nema með tilstyrk Sjálfstæðis-
fiokksins.
Síðan rakti hann nokkuð af-
stöðu Sjálfstæðisflokksins til
stjórnarmyndana hér síðustu
árin allt frá 1939 og leiddi rök
að því, að flokkurinn hefði með
þeirri afstöðu sinni sýnt sig
reiðubúinn til samstarfs um
hagsmunamál þjóðarinnar, við
hvaða flokka sem væri. 1 þessu
sameinaði flokkurinn, víðsýni,
frjálslyndi og framsýni. Gegndi
þar aTt öðru máli en um hina
ílokkana, og nefndi hann sem
dæmi hvernig Framsóknar-
flokksmenn hefðu fjandskapast
gegn nýsköpuninni er þeir voru
í stjórnarandstöðu, svo og mál-
flutning Sósíalista nú í stjórnar-
andstöðunni, er þeir tala um
skipulagt atvinnuleysi, skipu-
lagt hungur o. s. frv.
Þá talaði Magnús Jónsson,
lögfræðingur.
Hann ræddi fyrst hin almennu
mannréttindi, sem eru grund-
völlur lýðræðisins. Væru menn
almennt sammála um að vilja
hafa þau, en hitt greindi menn
meir á um, hvernig ætti að
tryggja þau og drap í því sam-
banai á deilurnar um „aust-
iænt“ og „vestrænt" lýðræði.
Þá ræddi hann þær ánægju-
raddir, sem nú heyrast mjög oft
meðal fólks, og taldi hann þær
að nokkru eiga rót sína að rekja
til þess, að hjá fólki skorti nokk-
uð á hina siðferðilegu hlið
þeirra Tfsskoðana, sem lýðræð-
ið byggist á. Kvað hann ekki
hægt að láta einstaklingana
njóta þess frelsis, sem lýðræðið
veitir, nema þeir sýni af sér
þann þegnskap og þjóðfélags-
þroska, að einblína ekki stöðugt
r. eigin hag, heldur hugsa einnig
um hag náungans og heildarinn-
ar. Þá kvað hann þjóðina óá-
nægða vegna þess, að í landinu
þrifist margvísleg spilling, og þá
væri hættara við að menn
hneigðust að öfgastefnum. —
Sagði hann að forystumenn
þjóðarinnar þyrftu ekki einung-
is að hugsa um að safna fé, heM
ur yrðu þeir einnig að líta í eig-
in barm og aðgæta, hvort þeir
hefðu hagað sér í samræmi við
þær lífsskoðanir, sem þjóðfélag-
ið byggist á. Ef forystumenn
þjóðarinnar gæfu henni fordæmi
um einingu og samstarfsvilja,
þá er líklegt, að þjóðin muni
skilja það og haga sér í sam-
ræmi við það. Kvað hann æsk-
una nú fylkja sér um Sjálfstæð-
Hörmulegt slys vildi til á
Húnaflóa síðastliðið laugardags-
kvöld, er f jórir menn drukknuðu
af véibátnum Arinbirni frá
Reykjavík, þar sem þeir voru að
síldveiðum. Slysið vildi til um
kl. 8 um kvöldið. Voru menn af
Arinbirni í nótabátum að veið-
um er annar vélbátur, Stígandi
frá Ólafsfirði, rakst á bátana.
Brotnaði annar nótabáturinn
en hinum hvolfdi. Fóru þarna
þrettán menn í sjóinn, og náðust
ellefu þeirra aftur. Voru þá
tveir þeirra meðvitundarlausir
en lík tveggja fundust ekki. Var
þegar farið inn til Djúpuvíkur,
og gerði læknir þar lífgunarti1-
raunir á þessum tveimur, en það
reyndist árangurslaust.
Mennirnir sem drukkuðu
voru:
Haraldur Kjartansson, 42 ára,
kvæntur og átti eitt barn.
Bjarni Þorsteinsson, stýri-
maður, um fertugt, kvæntur og.
átti þrjú börn.
Birgir Guðmundsson, 23 ára,
ókvæntur.
Þessir voru allir úr Reykjavík
Guðjón Sigurjónsson, tæplega
17 ára, frá Nýjabæ á Vatns-
leysuströnd.
isflokkinn, því þar fyndi hún
helzt þennan nauðsynlega ein-
ingarvhja.
Að lokum óskaði hann þess,
að Sjálfstæðisflokknum tækist
að skapa hér grundvöll að þvi,
að raunverulegt lýðræði mætti
ríkja hér, og að hver og einn
fyndi hjá sér ríka ábyrgð gagn-
vart þjóðarheildinni. Þá myndi
þjóðin eiga bjarta framtíð fyrir
höndum.
Að lokum kvaddi Lárus Thor-
arensen sér hljóðs, og kvaðst
vilja nota þetta tækifæri til þess
að kveðja Akureyringa, bæinn
og sveitina. en Lárus er nú á
förum héðan til Reykjavíkur.
Sjá nánar í grein hér á öðrum
stað í blaðinu.
Valur Norðdahl skemmti á
mótinu og á miTi ræðanna voru
sungin ættjarðarlög.
Um kvöldið var dansað þarna
í skálanum og lék danshljóm-
sveit Oskars Ósbergs fyrir dans-
inum. Þá skemmti einnig Valur
Norðdahl aftur. Mótið fór að
öllu hið bezta fram, og voru
menn hinir ánægðustu.
Nánari tildrög slyssins voru
þau, að m. b. Arinbjörn var
kominn i námunda vio síldar-
torfu, og voru nótabátar hans á
leið til torfunnar með nótina á
milli sin. Þá bar þar að m. s.
Stíganda. Siglai hann nær alveg
að torfunni og sleppti þar bát-
um sínum, og skömmu síðar
rakst hann á hliðina á stjórn-
borðsbát Arinbjarnar og braut
hann í tvennt, en hvolfdi hinum,
með þeim aíleiðingum, sem fyrr
segir..
Skipverjar á Stíganda voru
byrjaðir að kasta er slysið vai'ð,
og urðu þeir að kasta allri nót-
inni úr öðrum bátnurn til þess
að geta komið mönnunum til
hjálpar og mun það hafa tekiö
3—4 mínútur, en björgunin
mun alls hafa tekið um 20
mínútur.
Sjópróf yfir mönnunum af
Arinbirni hófust hér í gær og
stóðu þau langt fram á kvöld.
Blaðið átti í morgun viðtal við
Sigurð M. Helgason, fulltrúa
bæjarfógeta, en hann hélt sjó-
prófin.
Kvað hann að svo komnu ekk
ert hægt að fuTyrða um það,
hver ætti sök á slysinu, þar sem
L-----—---—— ------
OLYMPÍUMLEIKARNIR
Framh.
400 m. Iilaup:
1. Wint, Jamarica 46.2 sek.
2. McKenley, Jam. 46.4 —
3. M. Whitfield, USA 46.9 —
Heimsmeistarinn Mc Kenley
leiddi hlaupið en tapaði fyrir
skörpum endaspretti Wints. All-
ir vei'ð1 aunamennirnir 3 eru
negrar, eða hálfnegrar. Norður-
landabúar stóðu sig mjög bág-
lega í stuttu hlaupunum.
1500 m. hlaup:
1. Ericksson, Svíþj. 3.49.8
2. Strand, Svíþj. 3.50.2
3 Slykhnis, Holland 3.50.0
Strand, sem almennt var bú-
ist við að sigraði varð að láta
sér nægja annað sæti. Heimsmet
Húnaflóa.
sjópróf yfir mönnunum af Stíg-
anda hefðu verið haldin á
Skagaströnd, og væru málsskjöl-
in ekki ennþá komin hingað
norður.
Sigurður Eyleifsson skipstjón
á Arinbirni bar það hér fyrir
réttinum, að Arinbjörn hafi stað
næmst um 200 metra frá slys-
staðnum, og að hann hafi ekki
getað séð, að nokkuð væri gert
til þess að afstýra slysinu á síð-
ustu augnablikunum, af hvor-
ugra hálfu.
Þá hélt skipstjórinn því einnig
fram, að Stígandi hefði aukiö
ferðina eftir að hann sleppti
bátum sínum, og te’ur hann, að
tilgangurinn með því hafi verið
sá, að komast í veg fyrir báta
Arinbjarnar.
Skipstjórinn kvað allt hafa
verið gert, sem unnt var til þess
að lífga hina meðvitundarlausu.
Flann hafði það eftir lækninum
á Djúpuvík, að áverkar, sem
voru á líkunum, hefðu ekki ver-
ið bein dauðaorsök, en þeir
hefðu getað orsakað meðvitund-
arleysi, sem hefði flýtt fyrir
drukknuninni.
Þá hefir það komið fram, að
skipstjóri og stýrimaður á Stíg-
anda voru báðir í nótabátunum
er slysið varð, en 2. vélstjóri var
við stjórn á skipinu og auk hans
var matsveinn um borð.
Rannsókn má’sins er enn
ekki lokið.
Hággs og Strand er 3.43.0. —
Árangur er lélegri hér en í
Beiýín 1936, þegar 4 fyrstu
menn hlupu á 3.50.0 mín. eða
skemur.
Tugþraut:
1. Mathias, USA 7139 stig.
2. Heinrich, Frakkl. 6974 —
3. Simmons, USA 6950 —
Mjög lélegur árangur að að-
eins einn keppandi skyldi ná
7000 stigum eða meir. Á síðustu
Olympíúleikjum voru hvorki
meira né minna en 7 keppendur
yfir 7000 stig. Átrúnaðargoð
USA, Mondchein varð aðeins nr.
8. örn Clausen keppti í þessari
grein og stóð sig ágætlega og
hreppti 12 sæti. Sigurvegarinn
er kornungur byrjandi.
H. S.
ÍÞRÓTTAÞÁTTUR
Ritstjórar:
Halldór Helgason og Árni Árnason.