Íslendingur


Íslendingur - 31.08.1949, Blaðsíða 1

Íslendingur - 31.08.1949, Blaðsíða 1
XXXV. árg. Miðvikudagur 31. ágúst 1949 31. tbl. l/ Yöruhappdrælti SIBS afl taka til starfa. Alls 3000 vlonlngar. Dregið Ijrst 3. oktúber. MannréttlBdanefndln taiar saman. Meðlimir mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna héldu nýlega 5. þing sitt í Lake Success. Sjást þeir hér rabba saman á lokuðum fundi. Þrír þeirra, sem taldir eru frá vinstri, eru: dr. Charles Malik, Libanon, fregnritari, Rene Cassin prófessor, Frakk- landi og frú Eleanor Roosevelt formaður. SÍIDVEIÐIN SlBS hefir fengið því fram- gengt að mega efna til vöru- happdrættis vegna bygginga sinna að Reykjaátndi. 1 reglu- gerð,, sem fjármálaráðuneytið hefir gefið út um happdrættið, segir svo: „Ágóði af vöruhappdrætti SlBS skal varið til að greiða stofnkostnað við byggingafram- kvæmdir vistheimilisins í Reykjalundi. Eignum happ- drættisins skal, ef það verður lagt niður, verja á sama hátt. Stjórn SlBS fer með yfirstjórn happdrættisins og hefir á hendi reikningshald þess eða felur það framkvæmdastjóra.“ „......Happdrættið gefur út árlega 50 þús. hluti í 6 flokkum, Vinningar eru samanlagt 5000 að tölu í öllum 6 flokkunum, og er samanlagt verðmæti kr. 1,2 milj. miðað við smásöiuverð. Stjórn SlBS ákveður vinninga- töluna og verðmæti þeirra í hverjum flokki, er fari stighækk andi, en þó séu aldrei færri en 300 vinningar í 1. flokki og ekki fleiri en 1500 vinningar í 6. fi. Verðmæti vinninganna að með- altali í hverjum f'okki skal vera svipað. Verð ársmiða er kr. 60,00, en endurnýjunarmiða í hverjum flokki kr. 10,00. Ef menn vilja kaupa hlutamiða eftir að drætt- ir eru byrjaðir á árinu. skal greiða fyrir hann; auk vlerðs hans í flokki þeim, sem næst á að draga í, samanlagt verð hlut- ' arins í öllum þeim flokkum, sem dregið hefur verið í á árinu. Hlutamiðar eru seldir á skrif- stofu SÍBS í Reykjavík og hjá umboðsmönnum happdrættisins víðsvegar um landið. Endurnýj- un hlutamiða hefst að 15 dög- um liðnum frá síðasta drætti og varir til kvölds síðasta endur- nýjunardags. sem skráður er á hvern miða. Um vinninga í 1. flokki skal dregið 5. febrúar og síðan 5. annars hvers mánaðar eða næsta virkan dag á eftir, ef þann dag ber upp á helgidag. Vinningaskrá skal gefin út að loknum hverjum drætti, og skal hún fást ókeypis hjá öllum um- boðsmönnum happdrættisins. Allir vinningarnir greiðast í vörum, og er vöi'uhappdrætti SlBS óheimilt að greiða and- virði þeirra í peningum. Vinninga afhenda aðeins við- urkenndir birgðasalar happ drættisins. Ef vinningurinn er ekki ákveðin vörutegund, er vinnanda í sjálfsvald sett, hvaða vörutegund eða verðmæti hann kýs sér af því, er birgðasali hef- ir á boðstó.úm fyrir happdrætt- ið. — Ef miði, sem vinning hlýt- ur, hefir glatazt, getur eigandi hans snúið sér til stjómar SlBS með beiðni um að fá vinninginn afhentan, en fylgja skal vottorð umboðsmanns, sem seldi mið- ann, um það, að samkvæmt bók- um hans hafi umsækjandi keypt miðann.“ Þá eru bráðabirgðaákvæði, þess efnis, að 1949 fari dráttur fram í fyrsta skipti 5. október og annar 5. desember. Verð ársmiða verði kr. 20,00 Vinningaverðmæti skuli vera svo sem eðlilegt væri í 3. og 4. flokki. Sala happdrættismiða mun hefjast innan skamms. »••••••••••••••••••••••••• ISLENZKTJR HAFRANN- SÓKNARLEBE)ANGUR í NORÐUEHÖFUM I s.l. júlímánuði leigði Fiski- deild atvinnudeildar Háskóla Is- lands v.b. Kára frá Vestmanna- eyjum til hafrannsókna í Norð- urhöfum. Fór Kári fyrst vestur í Græn- landshaf; svo lángt sem komizt var vegna íss, en síðan hélt hann austur í haf fyrir norðan ísland, og hefir framkvæmt hafrann- sóknir á sv*æðinu fyrir Norður- og Norð-austurlandi allt norður að Jan Mayen, en þar hafa Norðmenn veðui’athuganir og ýmsar vísindalegar rannsóknir. 1 leiðangri þessum er safnað sýnishornum af sjó á ýmsum svæðum og mismunandi dýpi. Verður síðar unnið úi' þeim í atvinnudeild Háskólans. Unnsteinn Stefánsson efna- fræðingur stjómar þessum haf- rannsóknum. Framboð Sjálfstæðisfl. hefir ákveðið framboð í Hafnai’firði. Verður þar í kjöri Ingólfur Flygenring framkv.stjóri, en hann er sonur Ágústar Flygenring, sem lengi átti sæti á Alþingi. 1 Austur- Skaftafellssýsiu verður í kjöri af hálfu Sjálfstæð ismanna Gunnar Bjarnason hrossaræktarráðunautur eins og við síðustu Alþingiskosningar. Fallegar myndir. Kjartan Ó Bjarnason kvik- myndatökumaður sýndi í fyrra,- kvöld og gær 4 íslenzka kvik- myndaþætti í Nýja Bíó. Fyrsti þátturinn heitir „Blessuð séi’tu sveitin mín“( og er það í senn falleg mynd og lærdómsrik fyr- ix ungt fólk( sem lifað hefir frá fæðingu í bæjunum og lítil kynni hefir af sveitalífi. Auk undur- fagurra landslagsmynda eru þar sýndir atvinnuhættir sveita- fólksins allt frá voryrkju til hauststarfa: Slóðadráttur, rún- ingur, héyvinna með nýju og gömlu lagi; göngur og réttir o. s. frv. Þá eru þar margar myndir af öliúm tegundum hús- dýra og umgengni barnanna við þau, og eru þær myndir séi'stak- lega vel fallnar til kennslu í barnaskólum í átthagafræði og dýrafi’æði. , Þá sýndi Kjartan upphaf að Vestfjarðakvikmynd, sem hann hefir í smíðum.' Er þar margt fallegi'a mynda, én eftirtektar- vérðast er þátturinn frá Æðey og færikvíunum á Kirkjubóli í önundarfirði. Hinir þættirnir eru frá Skíða- landsmótinu á Glei'árdal 1948, — hin prýðilegasta mynd, — og atburðirnir á Austurvelli 30. marz. Sú mynd er að vísu engin heildarmynd yfir það, sem gerðist( enda mun aðstaða hafa verið erfið til kvikmynd- unar vegna hraða atburðanna. Grjótkastið er t.d. ekki sýnt, heldur aðeins afleiðingar þess eftir óeirðirnar, og þó ekki nema utan frá. Úr Alþingishús- inu sjálfu, þegar það var sem verst leikið; er engin mynd. Kjartan Ó Bjarnason hefir lagt sig mjög fram við að ná góðum myndum og ekki hikað við erfið ferðalög á sjó og landi til að afla þeirra. SfíTirðllegt athæfi Okoniðingt S.l. föstudag fann kona frá Þórustöðum á Svalbarðssti'önd 8 mánaða gamlan kvígukálf dauðan inni í ræsi, er liggur gegnum Svalbarðsstrandarveg- inn skcunmt utan við bæinn. Hafð kálfinum auðsjáaniega verið troðið inn í ræsið, og var hann illa útleikinn^ húð flegin af annarl síðunni og rif í henni bi’otin, er stóðu út úr, svo að sá inn í hol hans. Mun kálfurinn hafa legið þama nokkra daga, því að maðkar voru þegar seztir í skrokkinn. öll merki benda til, að frásögn sjónarvotta, að ekið hafi vérið á kálfinn og hann síð- an falinn á fyrrnefndan hátt, heldur en að segja til óháppsins. Kálfinn átti Sigurður Vilhjálms son á Brautarhóli, en hann hef- ir áður orðið fyrir því óhappi að missa 10 kýr sinar á fám ár- um. Þrír bæir eru þarna skammt frá veginurn og hefði því ekki ci'ðið mikil töf að því að til- kynna óhappið, svo að eigandi hefði getað fengið skaðann bætt an. En sá, sem varð kálfinum að bana, hefur heldur kosið að troða honum inn í ræsi og fi’esta þannig fundi hans^ en að láta vita um óhappið, eins og hver sæmiléga innrættur maður hefði gert. Ef einhver hefði upplýsirigar að gefa, er leitt gætu til að upp hefðist á þeim, sem þai'na hef- ur verið að verki ætti hann J ekki að liggja á þeim, þvi að rnenn með því inni’æti, sem hér hefur verið frá skýrt, þyrftu að losna frá því að stjórna ökutæki á vegum. Síldveiðin hefir verið treg að undanförnu. Þó hefir verið nokkuð um síld á miðunum en i torfur gisnar og köst lítil. Heildaraflinn var í vikulokin síðustu 435 þús. hl. í bræðslu, (426 þús. í fyrra) og 51295 tn. í salt (93475 í fyi'ra). Krossa- nesvei’ksmiðjan hafði í gær tek- ið á móti 14612 málum. Flest skip voru í höfnum eða land- vari í fyrradag vegna veðurs og enn var slæmt veiðiveður í gær. RÖGNVALDUR SIGURJÓNSSON heldur hljómJeika á Akureyri. Hinn þekkti píanósnillingur Rögnvaldur Sigurjónsson held- ur hljómleika hér í Nýja Bíó annað kvöld (fimmtudag) kl. 7 e.h. Efnisskrá hljómleikanna er mjög fjölbreytt, og eru þar m. a. nokkur verk eftir Chopin í tilefni af 100 ára dánai’afmæli tönskáldsins. AFLASÖLUR AKUREYRARUOGARANNA Frá því um miðjan ágúst hafa ■allir Akui’eyrai’togararnir selt afla sinn í Bremerhaven í Þýzkalandi. Var aflinn sem hér segir: Kaldbakur 286 tonn Svalbakur 299 tonn Jöi’undur 230 tonn Var þetta fyrsta sala Jörundar og hann ekki fullfermdur. Hefir hann reynst mjög vel í fyi'stu veiðiför sinni.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.