Íslendingur


Íslendingur - 31.08.1949, Blaðsíða 5

Íslendingur - 31.08.1949, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 31. ágúst 1949 ÍSLENDINGUR 5 Bændur eiga ekki erfitt val SÓFASETT Eg hefi verið beðinn að selja nýtt fallegt sófasett. PVOTTADUFTIÐ Upplýsingar gefur Kristján Sig- tryggsson Hafnarbúðinni, Skipag. 4. Sími 94. Sjálfstæðisflokkurinn hefir nú lýst því yfir að hann muni fylgja stefnu fyrrverandi stjórnar í landbúnaðar- málum. Urðu Framsóknarmenn ókvæða við þá yfirlýsingu, sem vænta mátti, þar sem þeim er ljóst, hve erfitt þeim er að berjast gegn þeirri stefnu um fylgi hænda, og ef þeir standa uppi rúnir að því, þá eru dagar Framsóknar brátt taldii-. Bændur muna það ofurvel, hverj- ir hafa bezt búið að hagsmunamálum þeirra, og undir hverra stjórn þeir hafa notið mestrar hagsældar. Þeir hafa ekki gleymt því, hvernig Páll Zophoníasson skammtaði þeim fyrr- um vöruverð eins og skít úr hnefa. Þeir muna glöggt þá breytingu, sem varð á afurðaverði þeirra, þegar Ingólfur Jónsson tók sæti Páls er Sjálfstæðismenn komust til valda, og þeir muna það líka glöggt, að í tíð fyrrverandi stjórnar voru það bændur og bændur einir, sem á- kváðu verðlagið á afurðum sínum. Er og stjórnartíð fyrrverandi stjór.n- ar eina tímabilið, sem bændur hafa sjálfir ákveðið afurðaverð sitt, síð- an ríkisvaldið fór að hafa íhlutun um verðlag6mál bænda. Það er i fullu samræmi við aðra afstöðu Framsóknarmanna, að Bún- aðarráðið skyldi vera sérstakur þyrnir í augum þeirra. Þeim er það ljóst, að það var mjög vinsæl stofn- un meðal bænda, og af því að Sjálf- stæðismenn urðu til þess að stofna það, þá töldu Framsóknarmenn sér brýna nauðsyn að fjandskapast gegn því, þar sem þeir gerðu sér þeg- ar ljóst, að þessi ráðstöfun myndi auka fylgi Sjálfstæðisflokksins með- al bænda, og þess eru engin dæmi, að FramsóknarfJokkurinn hafi látið raunverulega etta ímyndaða flokks- hagsmuni sín/i víkja fyrir hagemun- um þjóðarinnar eða einstakra stétta hennar. Því var það að Framsóknarmenn gerðu það að skilyrði fyrir þátttöku sinni í núverandi ríkisstjórn,, að Búnaðarráðið, sú verðlagsstofnun, sem hefir reynzt bændum hagkvæm- usl, yrði lagt niður, og að þessu skil- yrði var illu heilli gengið. Síðan hafa Framsóknarmenn orðið að reyna að telja bændum trú urn, að það sé hagkvæmara fyrir þá að fá að kjósa minni hluta gerðardóms til þess að ákveða afurðaverð land- búnaðarafurða, heldur en að afurða- verðið væri ákveðið af 25 bændum, skipuðum af Bjarna Ásgeirssyni. Það má að vísu vel vera, að bændur geti ekki vænzt mikils sér til handa úr þeirn herbúðum, en þa.ð er þó frá- leitt að ætla, að jafnvel Framsóknar- mönnum tækist að finna nokkra 25 bændur víðsvegar að af landinu, sem væru fúsir til þess að ákveða verðlag á vörum bænda þeim óhag- stæðara, en einn embættismaður úr hópi neytenda mundi gera. Eins og kunnugl er, þá liefir tækn- in í landbúnaðinum aldrei tekið eins stórstígum framförum, eins og í stjórnartíð fyrrverandi stjórnar. — Sjálfstæðismenn mörkuðu þar þá stefnu, að koma yrði öllum vinnu- brögðum við landbúnaðinn í nýtízku horf til þess að hann geti staðizt samkeppni við aðrar atvinnugreinar um vinnuaflið og selt vörur sínar með hagnaði við því verðlagi, sem neytendur eru færir um að greiða. Á síðasla Alþingi sýndu Sjálfstæðis- menn það glöggt, að þeir eru á- kveðnir í að fylgja þessari sömu stefnu áfram, en þeir fluttu þá sem kunnugt er tillögur um mikinn inn- flutning landbúnaðartækja. Fram- sóknarmenn reyndu eftir megni að spilla fyrir þessum tillögum, en treystu sér þó ekki til þess að snú- ast beint gegn þeim af fullum fjand- skap. Þannig er ljóst af framansögðu, sein og yfirlýsingu Sjálfstæðisflokks ins um stefnu sína í landbúnaðar- málum, að flokkurinn mun beita sér fyrir áframhaldandi nýsköpun í land búnaðinum. Þótt landbúnaðurinn fengi mikið af nýjum tækjum í tíð Nýsköpunarstjórnarinnar, þá vantar þó enn mikið til að svo sé að honum búið, sem þarf að verða. Það hefir líka verið lalað um, að hann hafi orðið afskiptur um nýsköpunartæki, en það situr sízt ó þeim mönnum, sem \oru á móti nýsköpuninni, að gera það, einkum þegar þess er gætt, að landbúnaðurinn hafði áður dreg- izt mjög aftur úr og það á valdatím- um Framsóknar, enda var það svo, er Framsókn hrökklaðist frá völdum eftir sitt langa valdatímabil, að veru legum hluta af heyfeng landsmanna var aflað með samskonar tækjum og hér tíðkuðust á Landnámsöld. Að vísu eru þau tæki enn ekki úr sög- unni, en notkun þeirra hefir þó minnkað mjög mikið nú á síðustu árum og þau þurfa að hverfa inn í söfnin hið allra bráðasta. Þegar þannig er gerður saman- burður á stefnu Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í hagsmuna- máltam bænda, þá kemur glöggt í ljós, hve munurinn er gífurlega mik- ill. Það var fyrst er Sjálfstæðismenn komust i valdaaðstöðu, að bændur fóru að rétta úr kútnum eftir lang- varandi þrengingar i valdatíð Fram- sóknar. Þeir eru alls þessa vel minnugir, þeir þekkja áreiðanlega muninn, og þeir eiga því ekki erfitl um val, er þeir ganga að kjörborðinu nú í haust. Nú ættu þeir að sjá sóma sinn í því að ganga þannig frá Fram- sóknarflokknum, að héðan af heyri liann aðeins fortíðinni til. Hann hef- EINBÝLISHÚS Til söíu nú þegar og af- hendingar fljótlega, ný- byggt einbýlishús á Norð- urbrekkunni. Björn Halldórsson, — sími 312 Fimm manna Ford-bifreið til sölu með tækifærisverði. Upplýsingar í síma 545. ^ooooooooooooooooooooooooo GÓÐ STCLKA helzt vön húsvterkum, ósk- ast á gott heimili í Reykja- vík. Sérherbergi. Kaup eft- ir samkomulagi. Upplýsingar hjá ritstj. blaðsins til föstudags. >©$©©©0©©©©0»000»«0«0»0»»©* ATHUGIÐ ! Lítið iðnfyrirtæki til sölu mjög hentugt fyrir heimili. A. v. á. R A U Ð U R belgvettlingur tapaðist. Skilist á afgreiðslu Islend- ings. ooooooooooooooooooooooooos ÍBÚÐ ÓSKAST 2 — 3 herbergi og eldhús. Afnot af síma og þvotta- vél geta komið til greina.( KARLMANN eða KVENMANN vantar mig á ljósmynda- stofuna. Edvard Sigurgeirsson ljósmyndari. OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO* HtS TIL SÖLU á besta stað í bænum ef viðunandi boð fæst. Tilboð leggist inn til Ba'durs Svanlaugssonar, Bjarmastíg 3 milli 6 og 7 næstu kvöld. Tek að mér að, SNÍÐA og MATA dömu og telpukjóla. Til viðtals mánudaga og fimmtudaga kl. 2 — 5. Jóhanna Norðfjörð Ægisgötu 25. Sími 575. ooooooooooooo»ooooo»o©ooo< ir líka sýnt það glöggt upp á síðkast- ið, að hann er fyrst og fremst flokk- ur fortíðarinnar. GERIR ÞVOTTINN FALLEGAN — Nú er þoð frjólst og faest í hverri búð — HEILDSÖLUBIRGÐIR HJÁ: I. BRYNJÓLFSSON & KVARAN AKUREYRI INNILEGT ÞAKKLÆTI votta ég vinum og kunningjum, sem i glöddu mig með skeytum og gjöjum á sjötugsafmœlinu, 24. ágúst s. I. JÓNAS JÓNASSON ÉG ÞAKKA HJARTANLEGA ykkur öllum, vinir, jrcendur og samverkamenn í Slökkviliðinu, fyrir hlýhug og gjafir á sötugs- afmœli mínu 29. þ. m. Ég árna ykkur allra heilla. EGGERT ST. MELSTAÐ. >00000000000000000000000000000000000000000000000000000 Gagntræðasköli Akureyrar Þeim nemendum, er ætla sér að sækja um inngöngu í Gagn- fræðaskóla Akureyrar á komandi hausti og hafa enn ekki sent inn- göngubeiðni, er ráðið að gera það sem fyrst. Akureyri, 29. ágúst 1949. Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri. — Auglýsið í Isiendingi — ooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.