Íslendingur - 25.01.1950, Side 5
Auglýsingar é%
borga sig bezt vleimmam x D-listinn
í Islendingi. Miðvikudaginn 25. janúar 1950
Hafnarmannvirkin
oá tofiararnir
Dagur, sem út kom 11. þ. m. birt-
ir grein með 3ja dálka stórletraðri
f yrirsögn:
„Togaraútgerðin á Akureyri þarfn-
ast stórbœttrar aðstöðu á Oddeyrar-
tanga“.
Nokkrum dögum seinna hélt
Stúdentafélag Akureyrar fund og
bauð þangað einum fulltrúa af hverj
um lista. Á fundi þessum kom ég ör-
lítið inn á þetta nýja viðhorf Fram-
sóknarflokksins til hafnarmálanna
hér og lýsti viðhorfi mínu til þeirra.
í Degi, sem út kom svo 18. þ. m.
er málið tekið upp aftur:
Dagur byrjar þannig:
„Sjálfslœðisflokkurinn hefir meiri
áhuga fyrir milljóna-bóLverkinu við
Strandgötu en bættri aðstöðu togar-
anna.
Efsti maður Sjálfstæðislistans
mælir gegn tillögu Framsókn-
armanna um togarabryggj u á
Oddeyri.
Á umræðufundi um bæjarmál,
sem Stúdentafélag Akureyrar hafði
í sl. viku, og boðaði efstu menn
framboðslistanna til bæjarstjórnar-
kosninganna á, gerðist það m. a., að
efsti maður Sjálfstæðislistans, Helgi
Pálsson, lýsti andstöðu við þá tillögu
Framsóknarmanna, að nota afgangs-
efni frá Tofunefsbryggju til þess að
koma upp bættri aðstöðu fyrir tog-
araútgerðina með bryggjugerð við
Glerárósa."
Hvern ætlar Dagur að fá til að
trúa því, að ég sé á móti bættri að-
stöðu fyrir togarana hér við höfn-
ina? Eg held það verði fáir af þeim,
sem þekkja eitthvað til. Nei, þvert
á móti, ég vil vinna að því og fram-
kvæma svo fljótt sem auðið er, að
aðstaða öll við togarana hér við
höfnina verði stórbætt (allir flokk-
arnir munu um þetta sammála),
bæði hvað snertir viðlegupláss og
húsakynni og þá ekki 6Íst húsakynni
þau, sem þá vantar tilfinnanlegast,
en það er hús til að geta tekið á móti
saltfiski og verkað hann.
Það er rétt hjá Degi, að höfnin á
hér bryggjuefni fyrir ca. 3/4 milljón
kr. til nýrra hafnarframkvæmda. Ég
vil að þetta efni verði sem fyrst not-
að til framkvæmda innan hafnarinn-
ar, eins og búið var að samþykkja
af hafnarnefnd samhljóða. Enda
lokið á s. 1. sumri mælingum í sam-
bandi við það og styrkleiki botnsins
mældur. Hafnarmannvirkjumnn var
valinn staður sunnan Strandgötu.
Verður kanturinn ca. 120 m. frá
landi og ca. 140 m. langur. Grafið
skyldi síðan upp fyrir framan járn-
* þilið og uppfyllingin fengin þannig,
að uppmokstrinum yrði pumpað
innfyrir. Samanber eftirfarandi
fundargerð hafnarnefndar frá 23.
ágúst s.l.
Ár 1949, þriðjudaginn 23. ágúst
kom hafnarnefnd saman til fundar á
skrifstofu bæjarstjóra. Undirritaðir
nefndarmenn voru mættir, ennfrem-
ur vitamálastjóri, Axel Sveinsson, og
fulltrúi vitamálastjóra, hr. Magnús
Konráðsson.
Fyrir tekið:
1. Rætt um byggingu Torfunefs-
bryggj unnar. — Vitamálastjóri legg-
ur til, að hætt verði við að breikka
Torfunefsbryggjuna, en járnþil verði
sett suðaustan á hana. Verður þá
mikið bryggjuefni afgangs, og legg-
ur vitamálastjóri til, að það verði
no'.að til þess að gera nýtt bólverk
sunnan Strandgötu vestan til. Á bak-
við bólverkið verði fyllt upp með
því efni, sem grafa þyrfti upp fram-
an við það.
Ástæður fyrir breytingartillögu
þessari eru einkum þær, að á þennan
hátt fæst aukið viðlegupláss fyrir
skip, auk þess telja verkfræðingar
vitamálanna sjávarbotninn sunnan
við Torfunefsbryggjuna svo lélegan,
að vafasamt sé, að bryggjan verði
algjörlega trygg, ef hún er breikkuð
eins og ráðgert hefir verið.
Eftir mjög ítrekaðar umræður og
athuganir samþykkti nefndin sam-
hljóða tillögur vitamálastj óra.
Nefndin fer fram á við vitamála-
stjóra, að áætlun um legu og gerð
hins fyrirhugaða hafnarbakka sunn-
an Strandgötu, verði hraðað sem
unnt er, svo að hægt verði að byrja
á þeim framkvæmdum í næsta mán-
uði; ennfremur að hann leiti sam-
þykkis skipulagsnefndar fyrir þessu
skipulagi hafnarinnar.
Ennfremur fer hafnarnefnd þess á
leit við vitamálastjóra, að hann leiti
eftir leigu á uppmokstursskipi með
sanddælu.
Fundi slitið.
Steinn Steinsen (sign.). Albert Sölva-
son (sign.). Helgi Pálsson (sign.).
Tryggvi HeLgason (sign.). Marteinn
Sigurðsson (sign.). Axel Sveinsson
(sign.). Magnús Konráðsson (sigiu).
Eftir að þe'.ta mikla bólverk er
fengið til viðbótar þeim bryggjum,
sem fyrir eru, er fengin góð aðstaða
til stóraukinnar skipaafgreiðslu hér
við höfnina, sem nægja mundi um
alllanga framtíð.
Við þetta bólverk yrði mjög hent-
ugt, að fram færi öll afgreiðela fyrir
togarana, og ekki þykir mér ólíklegt,
að einmitt þarna yrði sótt eftir að fá
að byggja síðar meir stórt hafnar-
hús fyrir togaraútgerðina, hús, sem
rúmað gæti alla þeirra þörf í landi,
ef til vill að undanteknu fiskþurrk-
unarhúsi — og færi þá öll landstarf-
semin fram undir sama þaki (bæði
skrifstofur og annað) og yrðu það
stórþægindi fyrir alla afgreiðslu.
Að byggja nýja stóra bryggju út
við Glerárósa tel ég að ekki komi til
mála.
Það er algjörlega gripið úr lausu
lofti hjá „Degi“, að ódýrara yrði að
byggja bryggjuna norðan á Oddeyr-
inni. Þar þarf mjög langa bryggju
nema með miklum uppmokstri.
Norðan kvika er þarna oft það mik-
il, að full vont gæti orðið að liggja
við bryggjuna, nema þá að auka
skjólgarðinn fyrir norðan mjög mik-
ið. —
Nei, þessi fleygur ykkar er aðeins
til að draga framkvæmdirnar á lang-
inn, svo að ekkert verði aðhafst um
ófyrirsjáanlegan tíma.
Þegar járnþilið hefir verið rekið
H|iður, verður mikið afgangsefni.
Því að verkpallar verða rifnir og
staurar dregnir upp aftur, Úr þessu
efni vil ég að byggð verði bryggja
við dráttarbrautina, þannig að sunn-
an grjótgarðsins og austur með hon-
imi verði staurarnir rammaðir nið-
ur og bryggja byggð. Grjótgarður-
inn hækkaður eins og nú er byrjað
á og hann síðan steyptur. Yrði hann
þá annar helmingur bryggjunnar, en
meðfram honum timburbryggja. —
Þannig fengist góð og tiltölulega
ódýr bryggja, sem mjög hentugt yrði
að grípa til þegar pollurinn er ísi
lagður, enda nauðsynlegt vegna nýju
dráttarbrautarinnar, að þessi
bryggja komi. Þarna er nægilegt
dýpi, það var grafið í sumar sem
leið.
1 dokkinni, sem dráttarbrautirnar
eru í, hafa þegar tekið sér bólfestu
allmargir fiskibátar, og tel ég sjálf-
sagt og óhjákvæmilegt, að þeim
verði sköpuð þarna þægileg aðstaða
til sinna athafna.
Að endingu skal það tekið fram,
að vitamálaskrifstofan hefir fyrir
löngu síðan (15. okt. s.l.) sent tvo
tillöguuppdrætti ásamt áætlun um
heildarkostnað við hafnarmannvirk-
in sunnan Strandgötu. Það er því
aðeins hlutverk hinnar nýju bæjar-
stjórnar að ákveða, hvor tillagan
verður tekin og hefja framkvæmdir.
Eg vona, að Framsóknarflokkur-
inn fái ekki aðstöðu til með kosning
unum á sunnudaginn kemur, að
DTSVÖRIN OG KEA
Niðurl.
Eða hvaðan ætti bærinn að taka fé
til Laxárvirkjunar, áframhaldandi
hafnarmannvirkja og annarra fjár-
frekra framkvæmda, ef ekki er hægt
með harðfylgi og dugnaði að
hnekkja einhverju af þeirri löggjöf,
sem nú rís eins og járntjald fyrir
réttlátri þátttöku KEA í ú:svarsbyrði
bæjarfélagsins. Enda má það mik-
ið vera, ef beztu mönnum KEA er
ekki að verða ljóst, að hverju stefn-
ir í þessum efnum, því að lítið mundi
hróður þess fyrirtækis aukast við
það, ef bæjarbúar gætu ekki lengur
risið undir útsvarsbyrðum sínum
og yrðu fyrir það annað hvort að
flýja bæinn eða verða getulausir til
þess að greiða honum það fé, er
hann þarf, til þess að verða hér
eftir sem hingað til einn fegursti og
byggilegasti bær landsins.
Árið 1916 var stofnaður hér á landi
stjórnmálaflokkur, sem kallar sig
Framsóknarflokk. Má vera að hann
hafi á sínum tíma borið þetta nafn
með réttu og verið þá all framsæk-
inn og víst er um það að hann hefir
jafnan sótt fast fram í því að gera
kaupfélögin pólitísk, og er nú svo
komið, eftir 30 ára baráttu, að fá
kaupfélög munu nú vera á landi hér,
sem ekki eru neydd til þess, á einn
eða annan hátt, að þjóna Framsókn-
arflokknum, þó að þau frá upphafi
vega ættu að vera ópólit.’sk neytenda
sarntök og ennþá skipi raðir þeirra
fjöldi manna með öðrum pólitískum
viðhorfum, sem ekki enn í dag haf
fyllilega skilið, að kaupfélagsskap-
urinn hverfi ekki aftur til síns fyrri
uppruna oghafa því ekki viljað yfir-
gefa félagsskapinn. En það hefir ver-
ið farið líkt með hann, af Framsókn-
armönnum eins og kommúnistar og
jafnaðarmenn hafa farið með jafn-
aðarstefnuna. Því að í stað þess að
Framsóknarflokkurinn ætti að sækja
fram í þjóðmálunum, virðist nú svo,
að hann ætli að enda æfidaga sína
sem mesti íhaldsflokkur þessa lands.
Meðal annars með því að berjast nu
sem hatramlegast móti þeirri sjálf-
sögðu kröfu að endurskoðuð séu
samvinnulögin, sem — eins og sýnt
hefir verið fram á, hér að framan —
eru nú að verða óbærileg einstökum
byggðarlögum, þó að ég hins vegar
efist ekki um, að þau hafa átt fullan
rétt á sér, þegar þau voru sett.
Hér á Akureyri hefir þessi flokk-
byrja flutning hafnarinnar út að
Glerárósum.
Um þetta meðal annars segið þið
til með atkvæði ykkar á sunnudag-
inn kemur.
Helgi Pálsson.
ur barist hart um yfirráð í bænum
og bæjarmálum hin síðari ár, og þó
að hann hafi ekki hingað til borið
fullan sigur úr býtum, hefir hann
— í skjóli hins risastóra fyrirtækis
— KEA, og með aðstöðu þess og
baráttutækni, safnað allstórum hóp
til fylgis við málstað sinn, að sumu
leyti fyrir það, að menn hafa glúpn-
að fyrir hinu mikla auðvaldi, og
einnig vegna þess, að forystumenn
þessa flokks hér á Akureyri hafa um
margt verið nýtir menn og vel látn-
ir, þó þeir hafi jafnan orðið að lúta
hinu flokkslega valdi og beygja sig
fyrir því.
Á sunnudaginn 29. þ. m. eiga
borgarar Akureyrar einu sinni enn
að ganga til orustu við þetta vald,
og sýna með atkvæði sínu, hvort þeir
vilja heldur Framsóknarmenn í bæj-
arstjórn, og bera áfram skattabyrð-
arnar fyrir KEA, eins og þeir hafa
gert hin síðari árin, eða hvort þeir
vilja styðja þann flokk, sem líkleg-
astur er, þeirra flokka, sem nú eru
í landinu til að leiðrétta það rang-
læti, sem þessi grein og aðrar slíkar
hafa sýnt fram á að nú eru ríkjandi
í lögum okkar, en það er Sjálfstæð-
isflokkurinn.
Gleymið því ekki, útsvarsgreið-
endur á Akureyri, að áður en Fram-
sóknarflokkurinn varð til, og meðan
kaupfélögin voru enn á gelgjuskeiði,
bar verzlunin 40—55% af útsvars-
byrði Akureyrarbæjar.
En nú, þegar Framsóknarflokkur-
inn er 30 ára og KEA með öllum
sínum deildum er orðið eitt af
stærstu miljónafyrirtækjum landsins,
ber verzlunin hér í bæ aðeins 8% af
útsvrsbyrðinni, en þið sjálfir 92%.
Og látið enga manndýrkun eða ótta
við gullkálfa bægja ykkur frá að
greiða Sjálfstæðisflokknum atkvæði
ykkar. Hann er og verður sá flokk-
ur í þessu landi, sem jafnan er
reiðubúinn til að berjast fyrir góðu
málefni, því hann er flokkur allra
stétta.
Karl Friðriksson.
SR. ÞORSTEINN BJÖRNS-
SON KJÖRINN PRESTUR
FRÍKIRKJUSAFNAÐARINS
S. 1. sunnudag fór fram prestkosn-
ing fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík,
í stað Árna heit. Sigurðssonar.
Umsækjendur voru fjórir og féllu
alkvæði þannig:
Sr. Þorsteinn Björnsson 1570 atkv.
Emil Björnsson, cand.
theol. 1132 —
Sr. Ragnar Benediktsson 62 —
Sr. Árelius Níelsson 1362 —