Íslendingur - 12.07.1950, Qupperneq 1
a
Fyrirhugaðar fram-
kvæmtiir Landssimans
GEGN EITURLYFJANOTKUN.
Hér á myndinni sézt Gary Cooper, kvikmyndaleikarinn góðkunni, sem allir
kvikmyndahúsgestir kannast við, ásamt Benjamin Cohen, en hann er einn af
nánustu samstarfsmönnum Tryggve Lie hjá SameinuSu Þjóðunum. — Gary
Cooper heimsótti nýlega aSalbœkistöðvar S.Þ. í Lake Success og annaðist þá
útvarpsdagskrá, sem var þar tekin á plötur, og fjallaði hún um störf nefndar
þeirrar, sem starfar á vegum S.Þ. um heftingu ólöglegrar verzlunar með eiturlyf.
Bærinn að Tjörnnm brennur
Á vegum Landssímans eru nú í
þann veginn að hefjast allmiklar
íramkvæmdir við lagningu jarðsíma-
strengja út frá Akureyri, bæði til
norðurs og suðurs.
Eftir því sem síms'.öðvarstjórinn
Gunnar Schram, tjáði blaðinu, verð-
ur nú alveg á næstunni hafist handa
um að grafa fyrir jarðsímastreng
norður á Moldhaugaháls, er það
byrjun á fyrirhuguðum jarðstreng,
sem ná á til Reykjavíkur. Jafnhliða
þeim streng verður og lögð jarðlína
sem ætlað er að halda áfram út fjörð-
inn. í fyrstu verða þessir strengir
notaðir til þess að létía álagið á
línum þeim, sem liggj a i sveitina ut-
an Akureyrar og Glerárþorpið.
Samtímis þessu, þá verður einnig
ráðizt í að leggja jarðstreng suður
á Kristneshæli, og er honum ætlað
er frá líður að ná inn allan fjörð.
Líklegt er að þessu verki verði ekki
lokið fyrr en í haust, en ekki er enn
hægt að segja með fullri vissu, hversu
margt manna muni fá vinnu við
Konnnúnistar boðuðu til almenns
launþegafundar næstliðið mánu-
dagskvöld að Hótel Norðurlandi.
Sögðu þeir .,flest launþegafélög bæj-
arins“ standa að fundinum en aug-
lýstuhann í nafni fulltrúaráðs verka-
lýðsins. Fundurinn hafði verið ræki-
lega auglýstur, bæði á götum úti og
í útvarpinu og hátölurum hafði ver-
ið komið fyrir bæði innan húss og
utan á fundarstaðnum. Á þeim tíma
sem fundurinn skyldi hefjast voru
engir mættir utan kommúnistafor-
sprakkanna sjálfra, en af 'launþégum
bæjarins, sem munu frekar skipta
þúsundum en hundruðum sást
hvorki íangur né tetur. Fundur þessi
átti að hefjast klukkan 8.30. Á tí-
unda tímanum steig Jón Ingimars-
son í stólinn og aflýsti fundinum.
Voru þá mættir 37 menn til þess að
hlýða á sálumessú kommúnista í
dýrtíðar- og launamálunum.
í þeltd sinn gáfu bæjarmenn
kommúnislum ótviræð og viðeig-
andi svör. Þunnskipuð fylking þeirra
1. maí í vor og tómt fundarhús í
framkvæmdirnar, né heldur liversu
miklu fé verði til þeirra varið, en
vonir s'anda til, að þær muni veru-
lega bæta úr þeim alvinnuskorti, sem
verið hefur hér á Akureyri að undan-
förnu.
NÍUTÍU ÁRA
Jóhanna Þorsteinsdóttir frá Oxn-
hóli í Hörgárdal, riú til heimilis að
Skjaldarvík, verður 90 ára 21. þ.m.
Ifún hefir verið sérstæð dugnað-
arkona, hraustbyggð og heilsugóð
allá sína löngu ævi. Óheflaður hefir
vegur hennar verið, alloft örðugur
og andbyr svalur. Hún hefir smalað
hæðir og hálsa berfætt og soltin.
Hún hefir fengið 20 krónur í árs-
laun. Hún hefir hokrað í afdala-
moldarkofum við harðæri og þröng-
an kost, og haldlð velli, en komið á
legg mannvænlegum barnahóp. Eitt
þeirra er Snæbjörn Magnússon, vél-
smiður, EiðsvallagöUi 13, Akureyri.
St.
júlíbyrjun eru þau svör almennings,
sem þeir verða að skilja, hve sárt
sem þelm annars svíður það. Þetta
er ekki amiað en bein afleiðing af
framferði þeirra í íslenzkum stjórn-
málum síðast liðin ár. Ábyrgðar-
lausar, háværar kröfur á hendur
ríkisins og bæjarins en undir niðri
hljómar sami grunntónninn: Hvað
varðar okkur um þjóðarhag. Akur-
eyrskir launþegar sýndu á áþreifau-
legan hátt fyrra mánudagskvöld að
þeir sjá í gegnum blekkingarvef
„leiðtoga almennings“, að þeir eru
orðnir þreyttir á marklausu hjali
þeirra, jafnt sem sálufélaga þeirra,
sem þessa dagana klóra friðardúf-
unni á bringunni með hægri hend-
inni um leið og þeir höggva sjálf-
stæða . smáþjóð í spað með þeirri
vins'ri. Kommúnistar munu ekki
fyrr komast iil áhrifa í launþega-
samtökum landsins á nýjan leik fyrr
en þeim skilst að kröfur verða að
vera bornar fram af ábyrgðartil-
finningu og að réttindum fylgja
einnig skýldur.
Tvö hörmuleg slys
1. júlí sl. vildi það hörmulega slys
til vestur í Arnarfirði, að sex ára
gömul telpa* Halla Ragnarsdóttir,
hrapaði í svonefndum Lokinhömr-
um og lemstraðist hún svo, einkum
á höfði, að hún lézt um það bil sól-
arhring síðar.
Þá vildi það sviplega slys til suð-
ur á Álftanesi 3. júlí sl., að tveggja
ára stúlkubarn, Sigríður Rakel
Karlsdótti/', kafnaði. Slysið mun
sennilega hafa orðið með þeim
hætti, að litla stúlkan hafi verið að
reyna að skríða undir girðingu, en
húfan hennar festst í girðingunni,
og við það hafi kverkbandið þrengt
svo að hálsi hennar að hún kafnaði.
Síldarverðið 65 og 110 kr.
Bræðslusíldarverðið hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins var ákveðið
sl. miðvikudag. Atvinnumálaráð-
herra samþykkti tillögur frá meiri-
hluta síldarútvegsnefndar urn. að
fastákveðið verð skyldi vera 65 kr.
fyrir málið. Er verð þetta 25 krón-
um hærra en greitt var fyrir málið
í fyrra.
Bæði fulltrúar kommúnista og
Alþýðuflokksmanna í nefndinni
báru þar fram ýmsar sýndartillögur
um síldarverðið, en meirihlutinn
hafnaði þeirn.
Þá hefir saltsíldarverðið einnig
verið ákveðið og varð síldarútvegs-
nefnd sammála um, að lágmarks-
verð skuli i sumar vera 110 krónur
fyrir hverja uppsaltaða tunnu síldar.
í fyrra var saltsíldarverðið 60 kr.
fyrir tunnuna.
TOGARARNIR
AFLA VEL
Um sl. helgi voru allir togararnir
á Akureyri inni nreð fullfermi af
karfa. sem landað er í Krossanes-
verksmiðjuna lil bræðslu.
Landað var úr Jörundi á laugar-
daginn var rúmlega 359 tonnum. Á
sunnudaginn var landað úr Svalbak
420 tonnum og i fyrradag úr Kald-
bak. •
Verksmiðjan hefir nú unnið að
hræðslu á karfa i um það bil 2 mán-
uði og hefir vinnzlan gengið ágæt-
lega, en í ráði er að hætta strax
bræðslu karfa og síld berst, því að
þá mun verksmiðjan verða tekin til
síldarbræðslu. Þegar hafa verið
hrædd um 350 mál síldar, sem Snæ-
fell landaði þar.
10 skip munu leggja síld upp í
Krossanesi í sumar og er það nokkru
| fleira en var á sl. sumri.
Þau hörmulegu tíðindi gerðust
um kl. 4 e.h. á laugardaginn var, að
það kviknaði i íhúðarhúsinu að
Tjörnum, innsta bænum í Eyjafirði I
auslan árinnar, og brann húsið allt, I
það sem brunnið gat, en það er svo
til nýtt steinhús.
Hjónin voru ekki heima, þegar
þessi tíðindi gerðust. en heima voru
piltur og slúlka um tvítugs aldur og
5 börn yngri. Elzti sonur hjónanna,
sem vinnur hér á Akureyri, var á
heimleið og sá þegar eldurlnn brauzt
út.
Ekki var viðlit að reyna að
slökkva eldinn með vatnshurði, þar
eð alllangt er í vatn, og þau svona
fáliðuð heirna en langt til næstu
bæja.
Börnunum tókst þó með dugnaði
að hjarga út úr hinu brennandi húsi
svo að segja öllum innanhúsmunum
öðrum en þeim, sem í eldhúsinu
voru. þar hrann allt. en ialið er að
j kviknað hafi i út frá olíukyntri elda-
vél.
Fyrir 4—5 árum síðan brann
íbúðarhúsið á þessum sama bæ og
J hjó þá sami bóndinn þar. Þá brann
| allt til kaldra kola, óvátryggt.
I Það rná því segja, að hver raunin
I annarri þyngri hlaðist á bóndann af
elds völdum, og er tjón hans núna
alveg ómetanlegt.
F. U. S. VÖRÐUR
hefir ákveðið að gangast fyrir
skemmtiferð að Hólum í Hjaltadal.
Lagt verður af ■ stað héðan laugar-
daginn 12. ágúst og gist að Hólum.
Ferðin er farin í samhandi við
væntanleg hátíðahöld þar og vígslu
minnismerkis Jóns Arasonar.
Nánar verður tilkynnt síðar uro
tilhögun ferðarinnar, en áskrifialisti
liggur frammi í Bókabúð Axels.
VEGNA surraarleyfa í
í
prenf-smiðjunni k o m a
j . ; I t
ekki fleiri fi-bl af íslend-
ingi í þessum mónuði. —j
Næsfa blaö kemur út
miðvikudaginn 2. ógúst.
—---------------------------J