Íslendingur


Íslendingur - 08.11.1950, Síða 1

Íslendingur - 08.11.1950, Síða 1
Douglas-flugvél Loftleiða. Aðalfundur Gagnger breyting hejir orSið á síSari árum í samgöngumálum þjóSar okkar og alls heimsins. Fólk notar nú meir og meir jlugvélar til ferðalaga og sparar sér með því bœði dýrmœtan tíma og erjiði. — Hraðinn er að verða drottnandi ajl, nú þykja bijreiðar, járnbrautarlestir, skip svo að ekki sé nefndur „þarjasti jjjónninn“, hest- urinn, allt of hœgjara. — Islendingar haja eignazt álitlegan flugjlota, og er myndin af einni jlugvél Loftleiða, Helgafellinu, sem annast flug innanlands. Athugasemd um „athyglis- verða dómsniðurstöðu “ ,0t af frásögn Verkamannsins 3. þ. m. af dómi í málinu: Iðja, félag verksmiðjufólks á Akureyri gegn Dúkaverksmiðjan h.f. telur Dúkaverksmiðjan h.f. ástæðu til þess að gefa eftirfarandi skýring ar til þess að fyrirbyggja nris- skilning. Framangreint mál er risið út a,f nrismunandi skilningi á tveim lagaákvæðum, senr skilgreina það ekki nánar, hvaða skilyrðum men)n þurfi að fullnægja til þess að teljast fastir starfsmenn eða í fastri stöðu, en þegar þannig kem ur upp ágreimngur um það, hvernig skilja beri einhver laga- ákvæði, þá hlýtur að vera eðli- legasta og sjálfsagðasta leiðin að leita úrskurðar dómstólanna. Alllangt er síðan að fyrst kom til ágreinings milli iðnrekenda og iðnverkafólks um það, hvernig bœri að skilja ákvæði almarina- tryggingalaganna um greiðslu veikindadaga. Fór svo að Iðja félag verksmiðj ufólks í Reykja- vík höfðaði fyrri hluta árs 1949 »prufu«mál á hendur Vinnufata- gerð íslands h.f. til þess að fá úr þessum ágreiningi skorið með dómi. Jafnframt skrifaði félagið Félagi íslenzkra iðnrekenda, bréf og óskaði þess þar að veikinda- dagar yrðu ekki greiddir fyrr en úr ágreiningnum væri skorir með dónri. Meðlimir F. f. I, þar á með- al Dúkaverksnriðjan h.f. töldu í alla staði sjálfsagt og eðlilegt að verða við þessum tilmælum og bíða dóms um ágreiningsefnið, og voru þá einnig reiðubúnir að hlíta allir dómi Hæstaréttar þar um, þótt Vinnufatagerð íslands h.f einni væri stefnt, og var því önnur málshöfðun um þetta, til- efnislaus. Við sáttaumleitun í því máli, er hér er nefnt í upphafi bauðst Dúkaverksmiðjan h. f. einnig til þess að greiða veikinda daga, ef dómur Hæstaréttar í máli Vinnufatagerðarinnar félli á þá leið, og var því algerlega óþarft að halda áfram með mál- sókn á hendur henni um þetta ágreiningsefni. Varðandi greiðslu orlofsfjárs- ins skal það tekið fram að Dúka verksmiðjan h.f. hagaði greiðslu orlofsfjár alveg á sama hátt og aðrir iðnrekendur og fylgdi þeirri meginreglu að greiða jafn- an 4% af kaupi. Málshöfðunin út af greiðslu orlofsfjársins var því einnig »prufu«mál og tilvilj- un að það skyldi vera höfðað á hendur Dúkaverksmiðjunni h.f. Um fyrrgreindan hátt á greiðslu orlofsfjár er það að segja, að það virðist vera megin- tilgangur orlofslaganna, að or- lofsfé sé jaflnan 4% af ái’skaupi, enda, er 12 daga kaup manna í fastri stöðu 4% af árskaupi, mið- að við að þeir hafi sama kaup Framh. á 4. síðu. í Stúdentafélaginn á Akureyri Síðastliðið' fimmtudagskvöld, 2. þ. m., var aðalfundur í Stúdentafé- laginu á Akureyri haldinn í bæjar- stjórnarsalnum í Samkomuhúsi bæj- arins. Fráfarandi stjórn gaf yfirlit um störf félagsins og fjárhag á liðnu ári, og var henni þakkað fráhærlega gott starf og fórnfúst, enda bar stjórnarskýrslan það með sér, að starfsemi félagsins hafi verið einkar blómleg s.l. starfsár. Fráfarandi stj órnarform. Hallgr. Bj örnsson, verksmiðj ustj óri, lýsti því yfir fyrir hönd stjórnarinnar að hún bæðist eindregið undan endur- kosningu, og urðu fundarmenn við þeim óskum, þrátt fyrir ágæta reynslu af þeim. I s.jórn félagsins voru nú kjörnir | þeir: Póll Ardal, menntaskólakenn- ari, formaður, Tómas Arnason, lög- fræðingur, ritari, og Ottó Jónsson, menntaskólakennari, gjaldkeri. Nokkrar umræður urðu um laga- breytingar, sem gerðar voru. Var svo setzt að sameiginlegri kaffi- drykkju og spilað að lokum. Fjölmenni var og skemmtu menn sér hið bezta. HAUSTMÓT Skókfélags Akureyrar liófst fyrra föstudag í fundarsal Al- þýðuflokksins við Túngötu. Keppt er í þrem flokkum. í meistaraflokki keppa eftirtaldir 9 menn: Albert Sig- urðsson, Guðbrandur Hlíðar, Guð- mundur Eiðsson, Jóhann Snorrason, Júlíus Bogason, Kristinn Jónsson, Margeir Steingrímsson, Steinþór Helgason og Unnsteinn Stefánsson. 8 keppendur eru í 1. flokki og 4 í 2. flokki, Fjórum umferðum er lokið og fóru leikar þannig í meistara- flokki: 1. umjerð: Albert vann Kristinn; Jóhann vann Guðbrand; Unnsteinn vann Guðmund. Biðskák varð hjá Júlíusi og Steinþóri. Margeir átti „ frí. 2. urnjerð: Steinþór vann Albert, en jafntefli varð hjá Guðbrandi og Margeiri og Jóhanni og Guðmundi. Biðskák varð hjá Júlíusi og Unn- steini. Kristinn átti frí. 3. umferð: Guðmundur vann Al- bert, Unnsteinn vann Jóhann. Jafn- tefli varð hjá Guðbrandi og Kristni, og Margeiri og Steinþóri. Júlíus átti frí. Frá Alþingi: Mæliog og skrásetoiog Idfla á Akoreyri. Jónas G. Rafnar, alþingismaður, flytur í Neðri deild frumvarp til luga um mœlingu og skrásetningu lóða og landa í lögsagnarumdœmi Akureyrar. Frumvarp þetta er flutt að beiðni bæjarstjórnar Akureyrar. Tilgangurinn með flutningi þess er, að koma gleggri skipan en verið hefir á lóða- og fasteignamál hæjar- félagsins. Eftir því sem bærinn hefir stækk- að, hefir þörfin á því að hafa sem beztar heimildir um lönd og lóða- mörk, og eignarrétt að lóðum og löndum aukizt. Með frumvarpi þessu er gert ráð fyrir því, að bæjarstjórnin láti mæla allar lóðir og lönd innan takmarka kaupstaðarlóðarinnar og gera af þeim nákvæman uppdrátt. Skal upp- drátturinn sýna greinilega takmörk hverrar lóðar og afstöðu til ná- grannalóða, og grunnflöt húsa þeirra og mannvirkja, sem á lóðinni eru. Bæjarstjórnin löggildir hók, sem nefnist lóðamerkjabók og skal mælingamaður rita í hana lýsingu á merkjum hverrar lóðar; ennfremur skal rita í hókina stærð lóða, byggðra og óbyggðra. Þegar lokið er merkjasetningu og mælingu allra lóða og landa á kaupslaðarlóðinni, skal bæjarstjórnin láta skrásetja all- ar lóðir og lönd með framhaldandi númerum í bók, sem þar til er lög- gilt af ráðherra. Skal síðan jafnóð- um rita breytingar, er verða á lóð- um og húsum á skrána og skipar bæjarstjórnin lóðaskrárritara til þess starfs. Allur kostnaður við skrásetningu og mæling lóða greiðist úr bæjar- sjóði. Árið 1914 voru samþykkt lög um mælingu og skrásetningu lóða og landa í lögsagnarumdæmi Reykja- víkur. Ákvæði frumvarpsins um mæl- 4. umferð: Albert vann Unnstein, Steinþór vann Kristinn. Biðskákir urðu hjá Jóhanni og Júlíusi og Guð- brandi og Margeiri. Guðbrandur átti frí. Eftir 4 umferðir er Steinþór Helgason efstur með 21/*; vinning (og 1 biðskák), Unnsteinn hefir 2 viqninga (1) og Albert 2 vinninga. ingu og skrásetningu lóða, sem hér hefir lítilsháttar verið gerð grein fyr- ir, eru að mestu leyti samhljóða lög- unum frá 1914. Hins vegar er í frumvarpinu gerð veruleg hreyting á skipun merkja- dóms en í 10. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir því, að sérstakur fjöl- skipaður dómstóll, merkj adómur, skeri úr öllum þrætum um merki lóða. Aðalbreytingin frá lögunum er sú, að bæjarfógetinn á Akureyri skuli vera formaður merkjadóms í stað þess að formaður sé skipaður af ráðherra. í frumvarpinu eru einnig fyllri ákvæði um hæfni með- dómenda en í lögunum frá 1914. Að lokum má geta þess, að í frumvarpinu er gengið út frá því, að málsmeðferð fyrir merkjadómi skuli fara eftir ákvæðum laga um meðferð einkamála í héraði, eftir því sem við verði komið. Annars verður að sjálfsögðu fylgt þeirri venju, sem skapazt hefir í Reykja- vík um meðferð merkjadómsmála. Lækkun tolla- Þá flytur Jónas Rafnar og frum- varp til laga um breytingu á lögum um tollskrár o. fL Með lögum frá 25. maí 1950 var tollur á gervisilkiúrgangi, óspunn- um gervisilkiþræði og öðrum þess konar .gerviþráðum úr cellulose lækkaður allverulega. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að sama verði látið gilda um baðmullargarn til verksmiðjuiðnað- ar, þ. e. tollur á því verði lækkaður í 2 aura pr. kg. í vörumagnstoll og 2% í verðtoll. I greinargerð segir, að það sé al- gerlega óeðlilegt, að verksmiðjur, sem vinna úr gervisilkigarni, þurfi að greiða lægri toll af hráefni til framleiðslu sinnar en verksmiðjur, sem vinna úr baðmullargarni, þar eð af því leiðir, að framleiðsla hinna síðarnefndu verksmiðja verður alls ekki samkeppnishæf við framleiðslu hinna fyrrnefndu, þ. e. sama varan verður hlutfallslega rniklu dýrari úr baðmullargarni en gervisilki. 1 nágrannalöndum okkar er sama hráefni og hér um ræðir ýmist toll- frjáls eða tollur á því mjög lágur.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.