Íslendingur - 12.09.1951, Blaðsíða 1
XXXVII. árg.
Miðvikudagur 12. eept. 1951
34. tbl.
f
Rithard Kristmmdsson
læknir
Vínnuskóli Akureyrar heimsóttur
30 börn á aldrinum 11 og 12 ára
sækja hann í sumar
Þann 7. þessa mánaðar andað-
ist í Kristneshæli Richard Krist-
mundsson læknir, eftir langa og
þungbæra vanheilsu. Richard
Richard Kristmundsson.
heitinn var fæddur 22. júlí 1900
á Vígholtsstöðum í Laxárdal, en
fluttist þaðan til Reykjavíkur uní
fermingaraldur. Hann tók stúd-
entspróf í menntaskólanum 1921
og embættispróf í læknadeild há-
skólans 1927. Eftir það stundaði
hann framhaldsnám í ýmsum
sjúkrahúsum og hælum í Dan-
mörku um tveggja ára skeið og
gerðist síðan praktiserandi lækn-
ir á Akranesi. Hann var náms-
maður góður, hafði aflað sér
staðgóðrar kunnáttu í sinni grein
og naut trausts og vinsælda í
starfi sínu, enda var hann hið
mesta ljúfmenni og gleðimaður
að eðlisfari. — Hann kvæntist
1933 Elísabetu Jónsdóttur Gunn-
laugssonar á Akranesi, hinni
maitustu konu, og virtist því gæf-
an brosa við hinum ungu hjón-
um. En þá syrti snögglega í lofti.
Richard heitinn veiktist hastar-
lega af lungnaberklum síðara
hluta árs 1933 og varð eftir það
að dveljast í sjúkrahúsum og
hæli um þriggja ára skeið, oft
þungt haldinn. Náði hann að
vísu nokkurri heilsu aftur og gat
tekið að sér aðstoðarlæknisstarf
í Kristneshæli, þar sem hann
dvaldist upp frá því, að undan-
teknu tæpu ári, er hann veitti for-
stöðu Reykjahæli í Ölfusi.
Enginn nema sá, sem sjálfur
reynir, veit hvaða áfall það er að
missa heilsuna á bezta aldri, hlað-
inn störfum; jafnvel þótt heilsan
vinnist aftur að nokkru leyti, þá
bíður þess enginn bætur framar.
Óhætt er að segja, að Richard
heitinn hafi aldrei á heilum sér
tekið frá því er hann veiktist í
fyrstu, og hann tók sér það mjög
nærri, því að hann kunni engu
öðru vel en að vera sístarfandi.
Hann hafði svo vakandi áhuga á
starfi sínu, að hann gat aldrei
sætt sig við að hlífa sér, og vann
því oft sárlasinn um krafta frarn.
Það var mikil furða, hvað veik
heilsa hans entist, en fyrir liðugu
ári var sýnilegt, að hverju mundi
líða.
Að einu leyti var Richard heit-
inn gæfumaður. Hann var kvænt-
ur ágætri, kjarkmikilli konu, sem
aldrei lét hugast og reyndist hon-
um sönn bjargvættur í örðugleik-
unum til síðustu stundar; um það
skal ekki fjölyrt, en það vita þeir
bezt, sem kunnugir eru. Þau hjón
eignuðust tvö efniíeg börn, sem
enn eru á barnsaldri.
Þar sem Richard læknir fer, á
eiginkona og börn kærurn lífs-
förunaut og föður á bak að sjá,
fjöldi sjúklinga liprum og sam-
vizkusömum lækni og læknastétt-
in góðum og vinsælum starfs-
hróður.
Blessuð sé minning han6.
/. R.
Bílslys o Reykjoheiði
Kona slasast á höfði og
brjósti. 2 menn með
minni meiðsl.
Húsavík 8. septemher.
Um klukkan 6 e.h. i dag varð
bílslys á Reykjaheiðarvegi,
skammt fyrir ofan Húsavík.
Jeppabifreiðinni R 3050 var ekið
út af veginum með þeim afleið-
ingum, að kona sem í bílnum var,
Dagrún Ólafsdóttir, hlaut mikil
meiðsl á höfði og brjóstkassa.
Bílstjórinn, Hilmar Poulsen,
skarst lítillega á handlegg. Þriðji
maðurinn, sem í bílnurn var,
Friðrik Höjgaard, meiddist einn-
ig á handlegg, en ekki alvarlega.
Fólkinu, sem var á leið frá
Bakkafirði til Reykjavíkur, vár
fljótlega komið í sjúkrahús Húsa-
víkur og þar gert að sárum þess.
Klukkan 9 í kvöld kom Grumm-
anbátur frá Flugfélagi íslands
(frá Akureyri) og flutti Dagrúnu
til Akureyrar til frekari rann-
sóknar og aðgerða í sjúkrahúsinu
þar.
— hallur.
„Svanholm44 ferst
með þrem mönnum
Þann 28. f. m. lagði vélbátur-
inn „Svanhólm“ af stað frá Siglu-
firði áleiðis til Reykjavíkur, en
ætlaði að koma við í Bolungavík.
Eftir það fóru engar spurnir af
bátnum, en fullri viku síðar
fannst brak úr báti á svonefndri
Hrolllaugsvík, nálægt Látravík á
Ströndum. Þekktist síðar, að brak
ið var úr Svanhólm. Að kveldi
29. ágúst gerði foraðsveður úti
fyrir Ströndum, og er álitið, að
þá hafi báturinn farizt.
Á bátnum voru þessir 3 menn:
Þórarinn Guðmundsson, skip-
stjóri, frá Ánanaustum i Reykja-
vík, nær áttræðu, elzti starfandi
skipstjóri hér. Bergmundur Jón-
asson, vélstjóri og Kristján Jó-
hannesson, matsveinn, báðir frá
Bolungavík.
Bátsins var lengi leitað á sjó
og úr lofti að tilhlutan Slysavarna
félagsins.
Fiskideild atvinnudeildar há-
skólans hafði nýlega keypt Svaxr-
holm, og vann hánn að síldar-
merkingum fyrir Norðurlandi á
síldarvertíðinni. Merkingar ann-
aðist Jakob Magnússon fiskifræð-
ingur, en hann hafði orðið eftir
á Siglufirði, er báturinn fór i sína
hinnztu för.
,GIFT EÐ4ÓGIFT4
næsta viðfangsefni
Leikfélagsins
Stjórn félagsins öli
endurkosin.
Á fyrri hluta aðalfundar Leik-
félags Akureyrar, er haldinn var
fyrir nokkru síðan, var kosið í
stjórn. Ur stjórninni áttu að
ganga Guðmundur Gunnarsson
formaður, Björn Sigmundsson
gjaldkeri og Oddur Kristjánsson
leiksviðsstjóri. Voru þeir allir
endurkosnir. Björn í 21. sinn sem
gjaldkeri og Guðmundur í 8. sinn
sem formaður.
Framhaldsaðalfundur var hald-
inn 4. þ.m. Voru þá reikningar
félagsins lagðir fram og sam-
þykktir. Síðan flutti formaður
skýrslu um starfsemi félagsins á
liðnu leikári og fvrirætlanir um
störf þess árs, er í hönd fer. Kvað
hann ákveðið að taka fyrst til
sýningar gamanleikinn Gift eða
ógift, eftir J. B. Priestley, en síðar
á vetrinum annað leikrit, sem
ekki hefði verið ákveðið enn. —
Hefði félaginu tekizt að fá Gunn-
Sú nýlunda var tekin upp hér í
bænum á liðnu vori, að reka
vinnuskóla fyrir börn á aldrinum
11—12 ára í sumar. Til að hrinda
málinu í framkvæmd og annast
rekslur skólans af hálfu bæjarins
kaus bæjarstjórn á sínum tíma
4ra manna nefnd, og hlutu kosn-
ingu í jiefndina: Eiríkur Stefáns-
son, kennari, Guðm. Jörundson,
útg.m., Tryggvi Þorsteinsson,
kennari og frú Þorbjörg Gísla-
dóttir. Skólastjóri var ráðinn
Björgvin Jörgenson kennari, en
Finnur Arnason garðyrkj uráðu-
nautur hefir verið nefndinni mjög
til aðstoðar í störfum hennar.
S. 1. fimmtudag bauð vinnu-
skólanefndin bæjarstjóra, bæjar-
ráði og blaðamönnum að skoða
og kynna sér vinnuskólann, en
hann er rekinn ofan við bæinn í
nánd við svonefndar Miðhúsa-
klappir, ogJiefir húsnæði í skíða-
heimili, er kennarar Barnaskólans
eiga þar efra. Umhverfis húsið er
ca. 6 ha. landspilda, sem brotin
hefir verið til ræktunar að tölu-
verðu leyti vegna skólans, og hef-
ir kartöflum verið sáð í mestan
hluta hins brotna lands.
Vinnnuskólinn hófst 1. júní s.l.
Sækja hann 30 drengir og stúlk-
ur á aldrinum 11—12 ára. Dag-
legur vinnutími er 6 klst. og er
nemendunum greitt kaup, er nem-
ur 3 kr. á klukkustund. Aðalstarf
nemendanna er kartöfluræklin, og
annast skólastjórinn einn alla
verkstjórn og 'kennslu. Skiptir
hann börnunum í fimm starfs-
hópa, og er flokksstjóri fyrir
hverjum hóp, kjörinn af börnun-
um sjálfum. Börnin koma flest á
hjóli, og hafa mat með sér, en
vinnan hefst kl. 10 á morgnana.
Sjálf fengu börnin til umráða
100 ferm. reit hvert undir kart-
öflur og 60 ferm. undir kál og
annað grænmeti. Hirða þau um
þessa reiti í sínum tíma og eiga
síðan uppskeruna.
Auk garðyrkjunnar hafa
börnin unnið við að grafa lok-
ræsi og framræsluskurði, hlaða
undir girðingu um landið og
jafna úr ofaníburði í veg heim
ar R. Hansen sem leikstjóra á
leikárinu, og væri hann væntan-
legur í þessum mánuði og hæfist
þá leikendaval og æfingar á fyrri
leiknum.
Þá kom fram á fundinum ein-
dreginn vilji fyrir stofnun leik-
skóla á vegum félagsins.
að skálanum. Ekki var unnt að
hefja niðursetningu kartaflna í
vor fyrr en um miðjan júní, og
þótt sáð væri fljótvöxnum af-
brigðum, var ekki unnt að koma
kartöflum á sumarmarkaðinn, því
að þurrkarnir í sumar háðu
sprettunni. Erfitt er um alla kál-
Vinnuskóli Akureýrar heimsóttur
rækt þarna í þurrkasumrum
vegna vatnsskorts í landi skólans.
Næturfrostin í ágúst skemmdu
grös nokkuð sumstaðar, og var þá
farið að taka upp úr þeim skák-
um, er verst höfðu farið. Unnu
öll börnin að upptöku, þegar áð-
urnefndir gestir heimsóttu skól-
ann.
Tryggvi Þorsteinsson, sem orð
hafði fyrir nefndinni, svo og
skólastjórinn, töldu afkomuhorf-
ur skólans lakari en þeir hefðu
gert sér vonir um, og bæri þar
einkuin til, hve landið hefði seint
verið tilbúið til sáningar, en síð-
an hinir óvenjulegu þurrkar og
loks næturfrostin, er komið hefðu
óvenjulega snemma. Þá hefði og
áhaldaskortur staðið skólanum
fyrir þrifum framan af, en úr hon-
um væri nú sæmilega bætt.
Rekstur vinnuskóla hefir mikla
uppeldislega þýðingu í svo stór-
um bæ, sem Akureyri er orðin.
Sveilirnar eru ekki lengur færar
um að taka við sívaxandi ungl-
ingafjölda bæjanna í sumarvist,
og þegar svo er komið, verður
göturöltið að jafnaði helzta
dægradvöl hins iðjulausa barns,
ef ekkert er að gert. Og þótt börn-
in hafi ekki miklar tekjur af
skólavist sinni, eru þær þó betri
en engar, en mest er þó um vert,
að ræktunarstarfið, sem börnin
læra þarna og stunda, er þeim
hollt og þroskandi. Þess vegna
veltur á miklu, að framhald geti
orðið á þessari tilraun til vinnu-
skóla, sem gerð hefir verið í sum-
ar. Skólinn virðist líka hafa verið
heppinn með val skólastj órans,
Björgvins Jörgenssonar, sem ræk-
ir starf sitt af áhuga og sam-
vizkusemi og heldur uppi góðri
stjórn.
Mjólk og mjólkuraL
urðir hækka í verði
Þann 1. sept. hækkaði neyzlu-
mjólk í verði um 27 aura á lítra,
og er nú kr. 2,90 í lausu máli.
Rjóminn hækkaði í kr. 21,85 ltr.,
skyrið í 5,15 hvert kg. og smjör
í 38,10 kr.