Íslendingur


Íslendingur - 12.09.1951, Síða 2

Íslendingur - 12.09.1951, Síða 2
2 ÍSLENDINGUR Miðvikudagur 12. sept. 1951 Fimmtugur Cnimundur Kurl Pétursson yfirlæknir Þegar merkir borgarar standa á tímamótum, þykir sjálfsagður hlutur, að þeirra sé að einhverju getið, á opinberum vettvangi, i virðingar- og þakkiætisskyni, og má segja að oft var þörf, en nú er nauðsyn. Guðmundur Karl er Eyfirðing- ur, fæddur og- uppalinn í næsta nágrenni við Akureyri, og var það mikið happ þessum bæ, að hann skyldi hverfa hingað, á æskustöðvar sínar, að afloknu námi, í sess Steingríms heitins Matthíassonar, þess mæta maims. Guðmundur var snennna góður námsmaður, enda fór saman ágæt greind, skyldurækni og alvara við námið, og náði hann hæsLu eink- unn, sem tekin haíði verið við Háskóla íslands, og hefir aðeins einn maður bætt þar um síðan. Slíkur námsferill hlaut að bjóða heim ýmsum tækifærum til fram- haldsmenntunar, enda mun Guð- mundur. hafa aukið drjúgum þekkingu sína og reynslu við úr- vals sjúkrahús, austan hafs og vestan, og þykir mér trúlegt, að ekki sé séð fyrir endann á slíkum námsferðum, sem hver góður læknir telur sér nauðsyn á, öðru hverju, til að kynnast nýjungum og tækniþróun i starfi sínu, en læknisfræðin er ekki hvað sízt sú grein vísindanna, sem mestum framförum hefir tekið á síðari ár- um, og er því áhugasömum lækn- um sífellt námsefni. l>annig vann Guðmundur fyrstu lotu. — En ekki hefði þetta eitt enzt honum lil þess frama og á- lits, sem hann nú nýtur, er hann stendur á fimmtugu. Mönnum notast misjafnlega þekking og gáf ur, en Guðmundur kann þá list. Hann er starfsmaður og afkasta- maður, svo að af ber, og hygg ég að fáir eigi lengri og strangari vinnudag en hann, og á honum virðist sannasl, að vinnan ein geti naumast drepið heilbrigðan skrokk, ef annars er sæmilega að honum búið, og Guðmundur er mikill reglumaður, og m. a. bind- indismaður á áfengi og tóbak. Hvort sem það er af skyldurækni og virðingu fyrir starfi sínu, eða aðeins heppileg lilviljun, skiptir sjúklinginn ekki máli, én það vek- ur traust og öryggi. Fyrir allt þetta, og eflaust fleira, svo sem áræðni og styrka læknishendi, er Guðmundur nú löngu landskunnur að læknissnilli, sem endast mun honurn til úr- slitasigurs, um það lýkur síðustu lotunni, og hefir honum þegar verið sýndur ýms sómi, svo sem er hann nú nýlega var sæmdur Riddarakrossi Fálkaorðunnar. Það er leitt til þess að vita. að Guðmundi skuli ekki fyrir löngu vera búin þau starfsskilyrði, scm honuin hæía, því segja má að gamla sjúkrahúsið standi honum alls staðar á beini, en á næsta leyti blasir við ný sjúkrahúsbygg- ing. vegleg hið ytra, en sorglega seinfær í gagnið hið innra, en fyrir því má ef til vill færa fram- bærilegar afsakanir, og standa nú loks vonir til að úr rætist, inn- an tíðar. Ælla mætti að Guðmundi va;ri búið kappnóg starf, innan síns verkahrings, en því er líkast, sem fjörið og lífsþrótturinn eigi eng- in takmörk, því ýmsum hugðar- efnum sínum sinnir hann, þess utan. af þeim áhuga og krafti, að hverju máli þykir vel borgið, ef hann snýr sér þar á sveif. Hann er áhugasamur skógræktarmaður og ötull forvígismaður Rauða- Krossins. svo fátt eitt sé nefnt, og er auk þess ódrepandi á dans- góifi, þegar svo ber undir. Guðmundur er kvæntur Ingu Karlsdóttur, ættaðri úr Reykja- vík. hinni mestu ágætiskonu, sem býr manni sínum og fjórum gjörvilegum dættum þeirra far- sælt og gott heimili. Guðmundur cr tákn þess, hverju áorkað fær heilbrigð sál í heil- brigðum líkama, og von okkar er sú. að hann fái enn um langan aldur starfað á meðal okkar að mannúðarverkum sínum, fyrir bæ og hérað, og enda fyrir land- ið allt. Sv. R. FATAEFNI Nýkomið efni í KARLMANNÁFÖT og FRAKKA. — Góð efni — Sigurður Guðmundsson, klæðskeri — Helga-magrastr. 26. Maðurinn minn og faðir okkar, Richard Kristmundsson, læknir andaðist 7. þ. m. — Útförin ákveðin síðar. Elísabet jónsdótlir og börn. Sextugur: r r Olafur Agúslsson húsgagnameistari Kirkjubók Akureyrarpresta- kalls segir að Ólafur Friðbjörn Ágústsson, húsgagnasmíðameist- ari, hafi orðið sextugur hinn 8. sept. Afrit aðalmanntals Akur- evrarbæjar frá 1. des. 1940 segir hann á hinn bóginn ekki fæddan fyrr en 8. október. Sjálfsagt er þó að trúa kirkjubókinni, enda gerir hann það sjálfur. Ólafur er fæddur og uppalinn Akureyringur og hefir, mér vitan- lega, aldrei farið héðan iil lang- dvalar. Hann er fæddur, eins og fyrr er getið 8. sept. 1891 hér á Oddeyrinni. Voru foreldrar hans hjónin Jón Ágúst Jónsson, sein enn er á lífi hjá syni sínum og tengdadóttur, fjörgamall, (f. 23. sept. 1864) og Salvör Níelsdóttir, sem andaðist 20. sept. 1932, 77 ára gömul. Ólafur ólst upp hjá foreldrum sínum, en þegar hann hafði aldur til, lærði hann hús- gagnasmíði hjá Karli Hanssyni, húsgagnameistara, sem hér var þá. Hefir Ólafur siðan gert þá iðn sína að lífsstarfi sínu, enda mun hann reka stærsta verkstæði í þeim siníðum hér á landi, ulan Reykjavíkur. 1. júlí 1916 giftist hann Ilann- veigu Þórarinsdóttur, Jónassonar. Ilafa þau eignast 2 syni, Þórar- inn, sem andaðist 29. apríl 1943, langt kominn í Menntaskólanum, og Ágúst, sem vinnur á verkstæði föður síns. Var sár harrnur kveð- inn að foreldrunum með missi Þórarins, því hann var hinn mesti efnismaður í hvívetna. Olafur Ágústsson er vinsæll maður og sómi sinnar stéttar. — Hann er enginn umbrotamaður og hefir lítið vasasl í opinberum málutn, en þó hefir hann verið áhugamaður um mál iðnaðar- manna og verið þar drjúgur liðs- maður. Félagsmaður er hann góð- ur, traustur og ósérhlífinn og eng- inn veifiskali, eins og margir vin- ir hans og félagar hafa reynt. Við, gamlir samferðamenn hans, óskum honum til hamingju með þetta afmæli bjóðum hann velkominn í öldungadeild- ina. Megi líf, heilsa og hamingja endast honunt sern lengst. Jafnaldri úr öldungadeildinni. kJb;Udbörgar FRUMSKÓGA- S T Ú L K A N (Jungle Girl) I. HLUTl Mjög spennandi og viðburða- rik ný amerísk kvikmynd, gerð eftir samnefndri skáldsögu eft- ir höfund Tarzan-bókanna Ed- gar Rice Burrough. Aðalhlutverk: Frances Gifford Tom Neal Nýfö Btó Á miðvikudag kl. 9: I SURRENDER D E A R Aðalhlutverkin leika: Gloria Jean David Street S T Ú L K U vantar mig tii heimilis- starfa nú þegar. Sérherbergi. Kristjárs Jónsson l'ingvnllasir. 20, símar 1473 og 1259. Þeir, sem ætla að byggja samkvæmt hin- um nvju reglum Fjárhagsráðs, ættu að tala við okkur sem fyrst. Nauðsynlegar teikning- ar útvegaðar. ByMovöruveril. Tóimuor Björnssonar h.f. Akureyri Sími 1489 Gaberdine í kápur, frakka og föt tekið up í dag. Kandíssykur Púðursykur Strásykur Molasykur Flórsykur Útlend sulta margar tegundir Niðursoðnir ávextir margar tegundir Döðlur í lausri vigt og pk. gamalt verð. Hafnarbúðin li.f. og útibú. Utlendar hreinlætisvörur Gólfbón Ræstiduft Sandsápa Lux sápuspænir Sunlight, stangasápa Rinso þvottaduft Persil Lux handsápa Palmolive handsápa Hafnarbúðin h.f. og útibú. Giimmíboltar 2 stærðir KÖKUDÚNKAR — gamalt verð — Hafnarbúðin h. f. og útibú. SIIVER CROSS barnavagnarnir verða seldir einhvern næstu daga. Eitl bezta merkið á heims- markaðinum. Brynj. Sveinsson li.f. Sími 1580. Barnaþríhjúlin verða seld einhvern næstu daga. Vinsamlegast endur- nýið eldri pantanir sem fyrst. Brynj. Sveinsson h.f. Sími 1580. Ilúsgfögn Við smíðum fyrir yður hús- gögn. bæði heil sett og ein- staka hluti. Höfum nokkur sýnishorn í búðinni hjá Stefni. — Kynnið yður verð og greiðsluskilmála, áður en þér ákveðið kaup annars staðar. Ármann Cr Gísli.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.