Íslendingur


Íslendingur - 22.10.1952, Síða 6

Íslendingur - 22.10.1952, Síða 6
6 ÍSLINIMNGUR Miðvikudagur 22. október 1952 Vernd fishimiðflnna Frh. af 1. síðu ingu brezku stjórnarinnar, held- ur endurtók hún einungis fyrri skoðanir sínar. Að svo vöxnu xnáli mátti búast við því,. að frek- ari orðaskipti, sem jafnóðum væri birt, inundu einungis auka á óánægju á báða bóga. Niðurstaða brezku orðsending- arinnar gaf og ekki efni til sér- staks svars, en hún var þessi: Enda þótt brezka ríkis- stjórnin lvsi ánægju sinni yfir því, að íslenzka ríkisstjórnin ætli einungis að nota hin nýju takmörk í sambandi við fisk- veiðar og sjái að þær íakmark- anir, sem nú eru í gildi, gera ekki upp á milli fiskiskipa hinna ýmsu þjóða, telur hún nauðsynlegt eftir atvikum að gera fyrirvara um að hún áskilur sér rétt til skaðabóta frá íslenzku ríkisstjórninni að því er snertir hvers konar af- skipti af brezkum fiskiskipum á svæðum, sem brezka rikis- stjórnin telur vera á úthaf- inu.“ íslenzka stjórnin og brezka stjórnin eru að vísu á öndverðum meið um það, hvort brezka stjórn in geti ált nokkra skaðabótakröfu af þessu tilefni. En íslenzka stjórn in getur að sjálfsögðu ekkert haft við það að athuga, að brezka stjórnin geri fyrirvara slíkan sem þennan. Það er í samræmi við al- viðurkennda reglu. Ennþá síður gat íslenzka stjórnin haft við það að athuga þó að brezka stjórnin gerði slíkan fyrirvara, þar sem með slíkri fyrirvaragerð virtist koma fram viðurkenning á því, að ef úr deilu yrði bæri að ráða henni til lykta á lögformlegan hátt, svo sem tíðkast mllli þeirra einstaklinga og þjóða, sem hafa lög og reglur í heiðri, og vonaði íslenzka stjórnin þó að Bretar mundu að athuguðu máli fallast á skoðanir íslendinga í þessurn er hafin, er eðlilegt að geta þess, að hugmyndin, sem hér liggur til grundvallar, á v.'ðtækar og djúp- ar rætur víða um land. Má í því sambandi geta þess, að Búnaðar- þing hafði mál þetta til meðferð- ar á síðasta vetri. Ólafur Jónsson, ráðunautur á Akureyri,hafði þar framsögu, en hann hefir áður rætt og ritað um þessi efni og ferðast milli skólanna norðanlands á vetrum, flutt þar erindi og rætt við nemendur um málefni sveit- anna. Er það von þeirra, sem nú beita sér fyrir framkvæmdum, að með þessu megi takast að beina hug- um margra og mikilhæfra ungra manna og kvenna að hlutverkum þeim, sem bíða heima í sveitinni. Er þá vel ef æskan — með námi í héraðsskólunum — getur hafið markvissan undirbúning til þess að verða síðar þeim vanda vaxin að rækja störfin sem gagnmennt- að fólk á sínu verksviði. Gísli Kristjánsson. efnum, svo ekki kæmi til slíkrar deilu. En því meiri eru vonbrigði íslenzku stjórnarinnar sem það nú virðist staðreynd að brezkir útgerðarmenn ætli að taka lögin í sínar eigin hendur og beita úti- lokun við íslendinga til að knýja fram vilja sinn. Er þar auðsjáan- lega ætlunin að hinn sterki beiti hinn veika afli svo að hann verði undan að láta. Nú er það að vísu svo, að við- skipti íslendinga og Breta eru tölulega miklu hagstæðari Bret- um en íslendingum. Síðustu ár (1947 — júlí 1952) hafa Bretar kevpt af íslendingum fyrir kr. 602.669.000, en íslendingar af þeim fyrir kr. 959.490.000 á sama tíma. Engu að síður munar það auð- vitað brezku þjóðina sáralitlu þó að hún yrði án útflutnings til ís- lands, þar sem útflutningur hinn- ar litlu íslenzku þjóðar til Bret- lands er aflur á móti verulegur hluti af öllum útflutnlngi hennar. Það getur því vel lamað fjárhags- iíf íslendinga, ef þeir verða án söhnnöguleika á vörum sínum í Englandi. Skiljanlegt væri,- að sllkum harðræðum væri beitt, ef Islend- ingar hefðu sannanlega brotið lög á Bretum og vildu ekki hlíta íöglegri aðferð um lausn dellunn- ar. Því er hins vegar eindregið mótniælt. íslendingar hafa ekki annað gert en að beita alþjóða- lögum, svo sem þeir skilja þau, til að vernda hagsmuni sína. Það verður því að teljast óvin- samlegur verknaður, ef, utan laga og réttar, á að beita svo harka- legum ráðum sem útllokun frá mörkuðum, til að reyna að neyða íslendlnga frá því að fylgja fram því, sem þeir telja rétt sinn. Er áreiðanlegt, að þótt það bitni hart á mörgum, munu allir íslending- ar sameinast um að standa þá at- Iögu af sér. íslendingar skilja að vísu, að í Bretlandi sé ekki almennur áhugi eða þekklng á örlögum svo fá- mennrar þjóðar sem íslendinga. Reynslan sýnlr þó, að ísland get- ur verið mikilsvert fyrir Bret- land, enda hefir það nú gerzt aðili ásamt Bretlandi, og m. a. fyrir þess fortölur, að sanrtökum er styrkja eiga sameiginlegar varnir og tryggja, að ísland verði ekki síðar, sökum varnarleysls, sams konar hætta fyrir Breta og þeir iöldu það vera vorið 1940. Oþarft er að rekja önnur sam- skipti Bretlands og íslands um al- þjóðleg mál, en íslenzka stjórn- in hefir ætíð talið þau svo vin- samleg, er fremst mætti vera, og er það raunar einn meginþáttur í ulanríkisstefnu íslands að halda við og efla vináttu milli þessara Ianda. Það mundi verða þungt áfall fyrir trú íslenzku þjóðarinnar á góðri sambúð lýðræðisþjóðanna og betri heim með vaxandi sam- starfi hinua frjálsu þjóða — og þá, sem vilja byggja utanrlkis- stefnu íslands á þessari trú — ef Bretar, sem í hugum íslendinga hafa ætíð stað.ð sem öndvegis- þjóð lýðræðis og fielsis, gripu til viðskiptakúgunar gegn Islending- um, þegar þeir eiga að verja und- irstöðu afkomu slnnar. íslendingar eiga því mjög erfitt með að skilja, að raunin verði sú, að Bretar bregðist svo við í hinu mesta hagsmunamáli þeirra, sem er vemdun fiskimiðanna. Þau atrlði, sem um er deilt, skipta Breta smávægilegu í hlutfalli við Islendinga, og þó að þau kunni að valda Bretum tjóni í bili, hlýt- ur friðun fiskinriða við Island að verða þeim til góðs í framtíðinni. Bannið á togaraveiðum á hin- unr umdeildu miðum bitnar ekki síður á íslendingum en Breturn og öðrum útlendingum. Eins er með bannið á dragnótaveiðum, sem kemur mjög hart niður á sjó- mönnum í ýmsum byggðarlögum Islands, þar sem lítlð er um aðra bjargræðisvegi. Engu að síður eru rnenn sannfærðir um, að þessar fórnir nú borgi sig, þegar fiskimagnið við landið mun auk- ast í framtíðinni, einnlg á þelm miðum, sem Islenzkum og erlend- um togurum er heimilt að veiða. Aðrar þjóðir en íslendingar koma til þess að hafa beinan hag af auknum fiskistofni vlð Island með tryggari aflabrögðum síðar meir, auk þess sem reynslan hefir sýnt að á hættutímum kann svo að fara,* að Bretlandi berist fiskur hvergi annars staðar að en frá íslandi, enda hefir þá allur fisk- ur, sem íslendingar hafa aflað og ekki sjálflr notað, verið sendur lil Bretlands, og stundum fluttur þangað með ærinni hættu hinna íslenzku fiskimanna. íslenzka stjórnin treystir því þess vegna í lengstu lög, að vin- semd brezku stjórnarinnar endist til þess að fallast á sjónarmið ís- lenzku stjórnarinnar, og að hún a. m. k. komi í veg fyrir, að kúg- unaraðferðum verði beitt í þessu lífshagsmunamáli íslendinga. um hlot Nokkrar breytingar og nýmæli Ríklsstjórnin hefir lagt fyrir Alþlngi frumvarp til nýrra laga um hlutafélög. Gömlu hlutafélaga- lögin nr. 77/1921 eru löngu orð- in ófullnægjandi og er þetta nýja frumvarp stórum ítarlegra en þau lög og hefir að geyma ýmis ný- mæli, byggð á 30 ára reynslu, bæði hér á landi og erlendis af lagareglum, sem að hlutafélögum lúta og kostum og göllum hluta- félagaformsins. I hlnu nýja frv. til firmalaga er gert ráð fyrir skipun skráning- arstjóra ríkisins, sem annist skráningu allra firma, bæði ein- staklinga og félaga, þar með talda skráningu hlutafélaga og sam- vinnufélaga. Nú fer flrmaskrán- ing fram í hverju lögsagnarum- dæmi á landinu, en þessu á að breyta með hinu nýja fyrirkomu- lagi, þannig að einn skráningar- stjóri verði fyrir allt landlð. Með því vinnst nauðsynlegt samræmi í framkvæmd þessara skránlnga, en auk þess eru skrán- ingarstjóra falin ýmis þýðingar- mikil störf í frv. því um hlutafé- lög, sem hér liggur fyrir. Á með þessu fyrirkomulagi að skapast aukin trygging fyrir því, að um þessi mikilvægu mál fjalli sér- fróður maður. sem öðlazt víðtæk- ari reynslu en einstakir embættls- menn. Samgöngur eru orðnar þannig hér á landi, að ekki á að koma að sök, þótt skráningar- stjóri sé einn fyrir allt landið. Gert er ráð fyrir, að ráðherra skipi skráningarstjóra. Til þess að standast straum af kostnaði við embætti hans, er ráðgert í frv. til firmalaga, að auk venjulegra skráningargjalda, greiði skrásett atvinnufyrirtæki og félög, þar með lalin hlutafélög og samvinnufélög, smávægilegt árlegt gjald, vigiitanlega ekki yfir 300 kr. á ári, en með því er unnt að tryggja, að enginn sérstakur kostnaður falli á ríkissjóð vegna þessarar skipunar. Að því er varðar stofnun hluta- félaga eru aðalbreytingar sam- kvæmt frv. þessar: Gert er ráð fyrir, að lágmarkstala stofnenda hækki úr 5 í 7. Þá er og félögum og stofnunum leyft að vera stofn- endur, en eftir núglldandi lögum geta það elngöngu verið einstakl- ingar. Lágmarksfjárhæð hlutafjár er hækkuð úr 2000 kr. í 20000 kr. vegna verðbreytinga. Þá er og hlutafélagi bannað að eiga sjálfs sín hluti, enda er slík sjálfseign nú alls staðar bönnuð, þar sem hún raunverulega er aðeins lækkun á hlutafé. Ákvæði frv. um hækkun og lækkun hlutafjár eru að miklum mun ítarlegri en í nú- gildandi lögum. Sama er að segja um ákvæðin um hluthafafundi.. Þar er nýtt ákvæði um, að þeir hluthafar, sem ekki nafngreina sig á hlutabréfaskrá, njóti ekki annarra félagsréttinda en réttar t.l arðtöku auk forgangsréttar, sem aðrir hluthafar, ef hlutafé er hækkað. Atkvæðisrétt á félags- fundum hafa þeir hlns vegar ekki. Almenna reglan um atkvæðis- íétt er sú, eins og áður, að ein- faldur meirihluti ræður úrslitunr á félagsfundum. Um ýrnis mlkil- væg málefni þarf þó aukinn melri hluta, og er þá í sumum tilfellum þeim hlulhöfum, sein ofurliði eru bornir við atkvæðagreiðslu, veitt ur réttur tll, að meirihlutlnn leysi lil sín hluti þeirra. Eru víðar í frv. nýmæli um aukinn rétt þelrra hlulhafa, sem verða í minni hluta við atkvæðagreiðslu. Um félagsstjórn og fram- kvæmdastjóra eru ýmis ný á- kvæði og sama máli gegnir um ftá Fjölda rnörg þingmannafrum- vörp liggja nú fyrir Alþingi og auk þeirra nokkur stjórnarfrum- vörp. Meðal helztu frumvarpa, sem blaðið hefir fenglð til athug- unar, auk þeirra, sem áður hafa verlð rakin, eru þessi: Frumvarp til iðnaðarlaga (stjórnarfrumvarp), Frumvarp til laga um leigubifreiðar 1 kaup- stöðum (flm. Gunnar Thorodd- 1 sen, Jóhann Hafstein, Gylfi Þ. Gíslason, Jónas Rafnar, Emil Jónsson), frumvarp til laga um afnám veitingaskalts, (flm. Jónas Rafnar, Jóhann Hafstein, Halldór Ásgrímsson), frumvarp um með- ferð ölvaðra manna og drykkju- sjúkra (flm. Gunnar Thorodd- sen og Kristín L. Sigurðardóttlr), þingsályktunartillaga um undir- búning löggjafar um eftirlit með jarðborunum (flm. Gunnar Thor- oddsen) og önnur um rannsókn á jarðhita og hagnýtingu hans (flm. Magnús Jónsson, Sigurður Bjarnason, Jónas Rafnar, Jóhann Hafste’n, Jón Sigurðsson, Sig- urður O. Olafsson, Pétur Otte- sen). Oll þessi frumvörp og þings- ályktunartillögur eru meira og minna athygli verð, en vegna rúmleysis í blaðinu í dag, er ekki unnt að rekja efni þeirra, en verður gert síðar að einhverju leyti, ef rúm leyfir. f gamni Snáðinn: — Er á morgun í dag, pabbi? Faðirinn: — Auðvilað ekki, drengur minn. — En þú sagðir það vœri. — Sagði ég? Hvenœr hefirðu heyrt mig segja þvílíha vitleysu? Snáðinn: — í gœr, pabbi. Kennarinn: — Hve mörg ykk- ar vilja jara til himna? Óll börnin nema Tommi litli réttu upp hendina. Kennarinn: — Tommi minn, langar þig ekki líka til þess að fara til liimna? Tommi: — Jú, en mamma sagði mér að ég œtti að koma beint heim úr skó'.anum og mœtti ekki slóra neitt. endurskoðendur. Þá eru og ýms nýmæli um ráðstöfun arðs og má þar sérstaklega geta ákvæðanna um varasjóð, sem takmarka árðs- úthlutun. Er gert ráð fyrir því, að félögum sé skylt að leggja fé í varasjóð, þegar vel gengur, án þess þó að það fé verði dregið út úr rekstrinum. Að því er varðar hlutafélög, sem nú eru löglega stofnuð, laka ýms ákvæði frv., svo sem um tölu hluthafa, upphæð hlutafjár og greiðslu þess, ekki til þeirra. En að því leyti, sem ákvæði frv. taka til þessara eldri félaga, verða þau að breyta samþykktum sínum í samræiui við það.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.