Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 07.01.1953, Qupperneq 5

Íslendingur - 07.01.1953, Qupperneq 5
Miðvikudagur 7. januar 1953 íSLEN DINGUR ÆSKAN OG FRAMTÍÐIN Fitst leyfi til þess ai útvarpa Ahurejrrarhvðldvðkam frd irsi Nýlega heíir RíkisútvarpiS lát- ið reisa tvær endurvarpsstöðvar á Norður- og Austurlandi iil þess að bæta hlustunarskilyrðin þeim landshlutum, sem fjarlægaslir eru Reykjavík. Eru það stöðvarnar í Hornaflrði og í Skjaldarvík, auk þess sem endurvarpsstöðin á Eið- um hefir verið mjög stækkuð. Er þessi viðleitni útvarpsins góðra gjalda verð, því svo hefir það verið hér á Akureyri, að mörg- um hefir reynzt mjög erfitt oft á tíðum að hljóta góða móttöku frá Reykjavíkurstöðinni á tæki sín. Er úr þeirn vandkvæðum mjög bætt með byggingu slöðv- arinnar við Skjaldarvík fyrir for- göngu þingmanns Akureyrar og flelri aðila. En við það hefir unn- izt meira en endurvarpið eitt sam- an. Stöðin er að öllu leyti byggð sem venjuleg útvarpsstöð með kraftmiklum senditækjum, og er því hægur leikur að hefja þaðan sjálfstæðar útvarpssendingar, hvenær sem ástæða þykir. Virð- ist sem það geti orðið Akureyr- ingum, jafnt sem öðrum Norð- Iendingum, hagsmunamál, að slíku útvarpi yrði kornið á, þótt ékki væri nema að takmörkuöu leyti. Stöðin brótt formlega opnuð. Útvarpsstöðin í Skjaldarvík er nú sem næst fullgerð. Þar dvelst nú enskur verkfræðingur frá Marconifélaginu, en félagið frarn- leiddi allan vélakost stöðvarinn- ar. Hefir verkfræðingurinn ásamt tveimur íslenzkum útvarpsmönn- um unniÖ að uppsetningu véla og annarra áhalda á undanförnum vikum. Útsendingar stöðvarinnar hófust eins og almenningi er kunnugt nokkrum dögum fyrir jól og hafa þær íarið fram á ýmsum tímum sólarhringsins. Þegar stöðin hefir verið reynd í 200 klst. mun Marconifélagið telja hana fullreynda og afhenda hana Ríkisútvarpinu við hátíð- lega athöfn. Verður það væntan- lega síðari hluta mánaÖarins, og er Gunnlaugur Briem, verkfræð- ingur úlvarpsins, væntanlegur hingað noröur í þessu skyni. Enn hefir ekki verið reist ut- varpsstöng sú, sem nota á við endurvarpið, en hún kom hingaö lil lands um áramótin og bíður uppsemingar við stöðina. Er það stálmastur, á fjórða tug metra. Er nú notast tll b.áðabirgða við tvö > tréínöstur, er áður stóðu á Eiöum, 28 metra há. Er þess að vænta, að enn belur heyrist send- ingar stöðvarinnar, þegar hin stærri útvarpsstöng hefir endan- lega reist vexið. Heyrist vel í Reykjavík. Stöðvarstjóri enduryarpsstöðv- arinnar hefir skýrt blaðinu svo frá, að sendingar hennar heyrist vel í góðum viötækjum í Reykja-! vík. Einnig heyrist til stöðvarinn- ar á Isafirði og Reyöarfiiði. Má af því marka, hve langdraxg hún er. — Þar sem Norðlendingar hafa nú hlotið sína e'gin útvarpsstöð, virðist það liggja beint við, að þeir bíndist samtökum um að nota hana tll útvarps, og ættu Ak- ureyringar fyrst og fremst að hafa þar forgöngu. Nokkrum sinnum hefir verið útvarpað stuttri Akureyrardagskrá frá Reykjavík, sem þó oft hefir illa ekizt. Eru vandkvæðin sú, aö.erf- tt hefir reynzt að taka utvarps- efnið upp hér og senda það síðan xuÖur. Úr þessu er algjörlega bætt með tilkomu hinnar nýju slöðvar. Frá Akureyri út til íkjaldarvikur liggur jarðstreng- ir, svo að auðvelt er að koma ípp hljóðnemaherbergi hér á Ak- ireyri með beinu sambandi við itöðina. Er þá hægt að útvarpa ’iéðan úr bænum erindum, tón- !st og leikritum á jafn fullkom- inn hátt og Útvarp Reykjav.'k ger- r dag hvern. Þá er hér einnig ágætt tækifæri til þess að útvarpa EramboÖsfundum í Eyjafjarðar- sýslu og öðrum nálægum sýslum, Mikið hefir verið um það rætt, hve mjög landsbyggðin væri af- skipt um mörg þau atriði, er höf- uðborgin frekar nyti. Af þeim er útvarpið eitt hlð mikilsverðasta. Þar hafa nær eingöngu Reykvík- ingar um fjallað af eðlilegum ástæðum, en þe'r sem sveitir og kaupstaði byggja aðeins verið þegjandi hlustendur, og vafalaust beztu hlustendurnir. Með bygg- ingu hinnar nýju stöðvar hafa Norðlendingar og sérstaklega Ak- ureyringar hlotlð hið bezta tæki- færi til þess að láta raddir sínar heyrast. Gæti það líka lyft mjög undir alla menningar- og lista- starfsemi í bænum og örvað hana á margan hátt. Það er því bæjar- búum öllum mikiö hagsmunamál að unnt verði að fá leyfi til slíks úlvarps, Akureyrardagskrár, frá Skj aldarvíkurstöðinni. Mætti til dæmis korna því við að útvarpa kvöldvökum, sem út- vaipsslöðin á Vatnsendahæð end- urvarpaöi síðan fyrir hlustendur á SuÖurlandi. Sanngirnis ósk. Á fjárlögum 1953 er gert ráð fyrir, að tekjur Ríkisútvarpsins verði tæpar 9 milljónir króna. Er sú upphæð að langmestu leyti fengin með innheimtu afnota- gjalda, sem e'ga innan skamms að hækka að miklum mun, eða í 200 kxónur á ári. Það væri því ekki j ósanngjörn krafa, þótt Akureyr- ingar og aðrir Norðlendingar fengju nokkuð að njóta þeirrar hækkunar með því, að útvarpað yrði eftir því sem efni stæðu til frá stöðinni í Skjaldarvík, enda hafa stöðinni þegar borizt tugir fvrirspurna um, hvort því verði ekki komiö við. Er þeirri ósk hér meS beint til forráðamanna Ríkisútvarpsins til vinsamlegrar athugunar. Þátttakendur á síðasta s'jórnmálanámskeiði VarSar, höldnu í marzmánuði 1950. Nokkra menn vantar á myndina. ^tjórnmÁlflnÁmskeið Varðor Sjálfstæðisflokkurinn gekkst fyrir stjórnmálaskóla fyrir eldri og yngri flokksmenn hvaðanæva af landinu um mánaðamótin nóv- ember og desember í vetur. Lauk skólanum 6. desember, en hann var haldinn í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík. Fjölmörg erindi voru flutt fyrir nemendum um hina ýmsu þætti stjórnmálanna, bæði innlendra og erlendra, og önnuð- ust þá fræðslu þingmenn flokks- ins og fleiri. Þá voru og á hverj- um degi umræðufundir um ýmis leg efni og mælskuæfingar undir stjóin leiðbeinenda. Skóla þennan sóttu um 50 rnanns, og var meira en helming- ur úr sýsluxxum norðanlands ög af Suð-Austurlándi. Mikill áhugi og einhugur ríkti meðal nemend- anna, og varð árangur námsins hinn ákjósanlegasti. Skólanum stýrði fræðslunefnd flokksins, þeir Jónás G. Rafnax-, alþingismaður, Geir Hallgríms- son og Gunnar G. Schram. I/ Vörður, félag ungra Sjálfstæð- ismanna, hefir ákveðið að gang- ast fyrir stjórnmálanámskeiði meðal félaga sinna hér í bænum. Námskeiðið verður haldið dag- ana 8.—18. janúar að skrifstofu Sj álfstæðisflokksins, Hafnarstr. 101. Tilhögun námskeiðsins verður tvíþætt. í fyrsta lagi verður er- indaflutningur, þar sem reynt verður að fræða þátttakendur um sem flestar hliöar stjórnmálanna. fundarsköp og fleira. í öðru lagi verða xnálfundaæfingar til þess að gefa þátttakendum kost á að þjálfa sig í ræÖumennsku og fmidahöldum. Eins og sjá má á dagskránni hér að neðan, verða erindin og málfundirnir á þeim tírna dags, að flestum ætti að era auðvelt að taka þátt í þe:m atvinnu sinnar eða náms vegna. NámskeiðiÖ verður sett á morgun, fimmtudaginn 8. janúar kl. 6 af Jónasi G. Rafnar alþm. en stjórnendur þess munu verða tveir Varðarfélagar: Gunnar G. Schram stud. jur. og Magnús Óskarsson stud. jur. Námskeið sem þetta hafa áður veriö haldin hér á vegum Varðar og jafnan orðið þátttakendum til mikils gagns og ánægju. Er þess að vænta, að sem flestir Varðarfé- lagar noti þetta tækifæri til þess að fræðast um stjórnmál og æfa sig í að taka til máls á mann- fundum. Þegar er vitað um marga þátt- takendur í . námskeiðinu og eru Framhald á 6. síðu. »Vörðiir« flieldur kvöld- vökn a fö§tudagf§kvöld Félagsstarfsemin öflug og þróttmikil Vörður, félag ungra Sjálfstæð- ismanna, heldur skemmtun að Hótel KEA föstudagskvöldlð n.k. 9. þ. m. Verður þar spilakvöld og dans að því loknu. Verður spil- uð félagsvist, og hefst hún kl. 8.30. Eru menn beðnir að taka spil með. Eins og skýrt er frá á síðunni, mun Vörður efna til stjórnmála- skóla fyrir unga sjálfstæðismenn, og hefst hann í þessari viku. Eru þegar skráðir allnxargir ungir menn til þátttöku. Féláglð hefir í hyggju að auka starfsemi s'na nokkuð á hinu nýja ári og mun gangast fyrir kvöldvökum og spilakvöldunx all- oft í vetur. Aðalfundur félagsins verður haldinn um 20. janúar að stjórn- málanámskeiðinu loknu, og kjör- in ný stjórn og fulltrúaráð. Þá er og að hefjast söfnun nýrra félaga í Vörð, en meðlimatala hans er nú tæp tvö hundruö. Er Vörður langstærsta pólitíska æskulýðsfó- lagið í bænum, og hefir verið það um langan aldur. Enn á þó að fjölga að miklunx mun í félaglnu, og heitir stjórnin á alla félags- menn að vinna að því ötullega að afla nýrra félagsmanna. Þeir sem óska eftir að ganga í félagið eru beðnir að hafa samband við for- nxanninn, Vigni GuÖmundsson, tollgæzlumann eða skrifstofu Sj álfstæöisflokkslns. tíangfið í »Vö R Ы

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.