Íslendingur - 21.01.1953, Blaðsíða 4
4
ÍSLENDINGUR
MiSvikudagur 21. janúar 1953
Kemur út
hvern mlðvikudag.
Útgefandi: Útgáfufélng íslendings.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
JAKOB Ó. PÉTURSSON, Fjólugötu 1
Sími 1375.
Skrifstofa og afgreiðsla í Gránufélagsgötu 4, sími 1354.
Skrifstofutími:
Kl. 10—12, 1—3 og 4—6, á laugardögum aðeins 10—12.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.
Ilreinsunaralcla anstaii tjahls
Víðtæk hreinsunaralda er hafin fyrir austan járntjaldið einu
sinni enn. Að þessu sinni hófst hún í Tékkó-Slóvakíu, þar sem
milli 10 og 20 háttsettir starfsmenn ríkisins voru dæmdir til heng-
ingar fyrir flokkssvik og landráð, njósnir, skemmdarverk o. s. frv.
Þeir „reyndust“ allir hafa verið meira og minna sýktir af óhollum
„ismum“, svo sem Titoisma, Zionisma og Trotskíisma, enda stóð
ekki á „játningu“ sakborninganna á sinni villutrú og glæpaverk-
um. Meira að segja aðstoðarráðherrann, sem hafði verið svo óláns-
samur að gera viðskiptasamning við auðvaldsríkið ísland, játaði
að hafa unnið með því v'svitandi skemmdarverk!
Flestir voru menn þeir, sem hengdir voru í Prag 3. desember síð-
astliðinn, fyrrverandi ráðherraT eða aðstoðarráðherrar kommún-
istastjórnarinnar en aðrir aðalritarar, vararitarar eða ritstjórar í
þjónustu hans. Meðal þeirra var Ludvig Frekja, fyrrv. formaður
viðskiptanefndar flokksins. Meðan á réttarhöldunum stóð, á dóm-
aranum að hafa borizt hréf frá syni hans, unglingspilti, þar sem
drengurinn biður um dauðadóm yfir föður sínum, sem sé sá „fjand-
maður“ sinn, er hann hati mest. Síðar hafa fregnir borizt um, að
þessi ungi maður hafi svipt sjálfan sig lífi.
Eftir að dauðadóminum hafði verið fullnægt yfir hinum 11 hátt-
settu kommúnistum í Prag, var haldið áfram að taka fyrrverandi
ráðherra flokksins þar fasta. En síðar barst hreinsunaraldan inn í
Austur-Þýzkaland og Ráðstjórnarríkin. Snemma í þessum mánuði
voru 9 frægir læknar handteknir í Moskvu, sakaðir um morð á An-
drej Sjdanov, nánasta samstarfsmanni Stalíns. Meðal lækna þess-
ara voru nokkrir, er áður höfðu hlotið hinar æðstu heiðursviður-
kenningar ráðstjórnarinnar fyrir afrek á sviði læknavisindanna.
Það vekur sérstaka athygli í sambandi við þessar hreinsanir, að
flestir hinna ákærðu,'bæði í Prag og Moskvu, eru af gyðingaætt-
um, og verður þá mörgum fvrst fyrir að hvarfla huganum að hin-
um illræmdu gyðingaofsóknum í Þýzkalandi á valdaárum nazista-
stjórnarinnar og rekja slóðina til þeirra.
Yfirleitt er litið svo á, að þessir alburðir tveggja síðustu ntánaða
austan við járntjaldið séu aðeins forleikur að ægilegum harmleik,
sem herrarnir í Kreml séu að setja á svið. Og öllum verður hugsað
með hryllingi til þess réttarfars, sem ríkir í þessum löndum, þar
sem það virðist komið undir duttlungum sálsjúkra valdhafa, hvort
þegnarnir eru heiðraðir eða hengdir í gálga.
Horft til vinxitri
Tíminn skýrði frá því 9. þ. m., að innan fárra daga yrði fundur
haldinn í félagi ungra Framsóknarmanna, þar sem rætt yrði um
„vinstra samstarf með tilliti til breyttra viðhorfa i íslenzkum stjórn-
málum“. Var þess jafnframt getið, að óskað væri nærveru ráðherra
flokksins og miðstjórnarmanna á fundinum.
Ekkert hefir síðan heyrzt af fundi þessum, og því ekki vitað,
hverjar ályktanir hafa þar verið gerðar, né hve „stemningin“ hefir
verið rík með þessu vinstra samstarfi. Það er einnig óljóst, hvert
hið „breytta viðhorf í íslenzkum stjórnmálum“ cr, sem minnst er
á í fregn Tímans.
Það hefir lengi verið á ahnanna vitorði, að ungir Framsóknar-
menn í Reykjavík eru mjög vinstrisinnaðir, enda hefir kommúnist-
um verið mjög hugleikið að koma áhangendum sinum inn í félags-
skap þeirra og náð nokkrum árangri í þá átt. Oft hafa forystu-
greinar Tímans verið bónorðskenndar, þegar vikið er að Alþýðu-
flokknum, og það oftast verið kallaður blómatími, er Framsóknar-
og Alþýðuflokkurinn fóru með völdin í félagi á árunum fyrir síð-
ustu heimsstyrjöld.
Hreinsunin, sem fór fram i Alþýðuflokksstjórninni á siðasta
flokksþingi, töldu sumir benda til þess, að hin nýju öfl flokksins
mundu hyggja á, í félagi við hina yngri Framsóknarmenn, að reyna
að brúa bilið milli Framsóknar og Alþýðuflokksins í von um, að
þessum tveim flokkum tækist sameiginlega að ná þingmeirihluta
við næstu Alþingiskosningar og síðan að mynda stjórn saman.
Skoðun þessa styðja mörg skrif Alþýðumannsins hér á Akureyri
árið sem leið, en ritstjóri hans er eindreginn fylgismaður Hanni-
balsdeildar Alþýðuflokksins, er bar sigur af hólmi í átökunum á
Áfengismúl, héraðabönn, drykkju-
skapur íslendinga o. fl.
ÞAÐ hefir talsvert verið rætt og rit-
að um þá ákvörðun dómsmálaráðherra,
að taka fyrir öll vínveitingaleyfi veit-
ingahúsa og láta lögin um héraðabönn
koma til framkvæmda, og líta menn á
það ýmsum augum. Það hefir almennt
verið taLð, að áfengislöggjöfin væri
orðin úrelt og þyrfti endurskoðunar
við. Dómsmálaráðherra hafði látið
þessa enjurskoðun fara frain, og var
nýtt frumvarp til áfengislaga lagt fyrir
Alþingi í haust. Hafði fimm manna
milliþinganefnd starfað að hinu nýja
frumvarpi langan tíma og lagt í það
núkla vinnu. En er það kemur fyrir
efri deild Alþingis, er því vísað frá,
og voru þau rök færð fyrir frávísuninni,
að templarar og konur liefðu ekki átt
þess kost að segja álit sitt urn írum-
varpið.
RETT er það að vísu, að engin kona
var í railliþinganefndinni, en hitt cr
ómaklegt, að segja að templarar hafi
ekki fengið að fjalla uin málið. Sjálf-
ur áfengismálaráðunautur ríkisins,
Brynleifur Tobiasson, var einn nefnd-
armanna, er vann að frumvarpinu, og
þykir mér furðu gegna, eí liann er
ekki jafngóður templar og hver ann-
ar. Hefir hann ætíð verið háttsettur í
stjórn Reglunnar og að því er mig
minnir, skipaði hann um skeið æð-ta
sæti hennar.
SÚ ákvörðun dómsmálaráðherra að
svipta öll veitingahús vínveitingarleyti
kemur mjög hart niður á Hótel Borg í
skeri úr uin, hvort útsala skuli leyfð
þar eða ckki. Einnig geti og bæjar-
stjórnir eða þr.ðjungur kjósenda þar,
sem ekki er áfengisútsala, krafist at-
kvæðagreiðslu um, hvort hún skuli
upp tekin. Slíkar atkvæðagreiðslur
mega þó ekki fara fram tíðar en á
tveggja ára frcsti. Ef atkvæðagreiðsla
á Akureyri félli þannig, að áfengi út-
sala hér yrði lögð niður, gæti svo far-
ið, að hún yrði með atkvæðagreiðslu
samþykkt í Eyjafjarðarsýslu og útsala
þá verða tekin upp, t. d. í Krossanesi.
Iljalteyri eða Dalvík!
BÆJARSTJÓRN Reykjavíkur hefir
nýlega samþykkt að láta fara fram at-
kvæðagreiðslu í Reykjavík um það,
hvort áfengisútsala skuli leyfð þar, og
er líklegt, að v.ðar verði efnt til slíkr-
ar atkvæðagreiðslu. Enda þótt þær
færu allsstaðar fram með þeim arangri,
að ölluin út ölustöðum ÁVR yrði lok-
að, þýð r það engan veginn sama og
hann. Áfengisverzlun ríkisins mundi
halda áfram að vera til, og þaðan
mundu menn víðs vegar af landinu
panta áfengi, sem scnda má með póst-
kröfu samkvæint núgildandí áfengis-
’.ögum, en í nýja frumvarpinu var gert
ráð fyrir að leggja póstkröfusendingar
niður. Eitthvað mundi drykkjuskapur
minnka við slíka skipan málanna, þar
sem fyrirhöfnin við að afla sér áfengis
yxi drjúgum. Hins vegar niundi leyni-
sala færast mjög í aukana og verða
sæmilegur atvinnuvegur, þeirn er á
annað borð telja sér hann samboðinn.
1»AÐ er oft rætt um það, að drykkju-
skapur fari vaxandi í landinu, og víst
er um það, að m!klu meira ber nú orð-
ið á ölvun og drykkjulátum unglinga á
opinberum skemmtistöðum en þekkt
var fy.ir síðustu styrjöld. Eldri kyn-
slóðin lilýtur því að vera orðin bind-
indissamari en áður, því að skýrslur
sýna, að s.ðu tu sex árin hefir neyzla
löglega fenginna vína farið minnkandi
með hverju ári, eða úr 1.9 lítrum á
hvert mannsbarn í landinu 1947 (um-
reiknað í 100% spirilus) niður í 1.3 1.
s.l. ár, og er það mikil lækkun á ekki
lengri tíma. Þá hafa og áfeng skaup
landsmanna minnkað á s.l. ári um 2.5
millj. króna. Þess ber þó að gæta, að
Áfengisvcrz'.unin var lokuð í desember
um þriggja vikna skeið, og hefir það
út af fyrir s g dregið eitthvað úr, enda
þó:t áfengiskaupin síðustu dagana fyr-
:r jól og dagana milli jóla og nýárs
haí! verið meiri vegna lokunarinnar á
undan.
MÖRGUM hættir til að miða áfeng-
i neyzlu þjóðarinnar við brúttótekjur
Áfengisverzlunarinnar, en slíkt er
fjarrl lagi, eða öllu heldur mikil óná-
kvæmni. ÁVR verzlar ekki aðeins með
áfengi til heinnar neyzlu heldur og til
lyfjagerðar, iðnaðar og rannsóknar-
starfsemi auk bökunardropa. Þá fer
verðlag á vínum ekki ætíð eftir áfeng-
ismagni þcirra, og eru mörg létt vín til-
tölulega dýrari en sterk. Ilinn eini
rétti mælikva.ði á áfengisneyzluna er
alkoholmagnið, cn ekki ú.söluverðið ú
v'nunum.
I.æt ég svo útrætt um þctta efni í
bli.
Raddir kvcnna
Reykjavík. Það hótel var svo dýrt í
byggingu og er svo dýrt í rekstri, að
án vínveitingaleyfis fær það ekki risið
undir sér. Því mun nú hafa verið lok-
að og flestu starfsfólki sagt upp. Það
er kannske hægt að 6egja, að hart sé
að geta ekki haldið uppi fullkomnu
veitingahú i, sambærilegu við góð
veitinga- og gistihús erlendis, án þess
að það hafi vínveitingaleyfi, en sú mtin
reynslan alls 6taðar, jafnt liér sem er-
lendis.
í lögum urn héraðabönn er gert ráð
fyrir, að bæjarstjórn kaups'.aðar, þar
sem útsala frá Áfengisverzlun ríkisins
sé rekin, geti samþykkt að láta fara
fram almenna atkvæðagreiðslu meðal
kosningabærra manna i staðnum, sem
RABB UM MORGUNVERÐ.
Því heíir verið hald.S fram nú
í fjöldamörg úr, að enginn væri
maður meS mönnum, nema hann
byrjaði daginn á því að borSa
hafragraut. En þó að hafragraut-
urinn sé aS flestu leyti ágæt fæðu-
tegund býst ég við, að mörgum
finnist hann þreytandi til lengd-
ar, sérstaklega börnum og ungl-
ingum. Svo er það að athuga, að
í haframjöli er efni, sem heltir
fytin og hefir þann eiginle.ka að
btnda hluta af því kalki, sem er í
fæðunni, þannig að það notast
ekki líkamanum, og gæti það
verið varhugavert sérstaklega þar,
sem börn og unglingar eiga í
hlut.
Matvælaráðherra Breta á að
hafa sagt í ræ'ðiu, aS hafragraut-
urinn væri mestn „humbug“ ver-
aldarsögunnar. ÞaS er nokkuS
fast að orði kveðiS, því að öðru
flokksþingi Alþýðuflokkslns í vetur. Mun og nokícur áhugi fyrir
því innan beggja flokkanna, að gagnkvæm aðstoð verSi veitt viS
Alþingiskosningarnar í sumar, þannig aS AlþýSufllokkurinn bjóSi
ekki fram, eSa a. m. k. aSe'ns til málamynda, í þeitm kjördæmum,
sem Framsóknarflokkurinn hefir möguleika á aS vinna sæti af
SjálfstæSisflokknum meS aðstoS AlþýSuflokksins, en Framsóknar-
menn stuSIi í þess staS aS því, aS AlþýSuflokkurinn fáf haldiS ísa-
firði og Hafnarfirði, en í hinu fyrrnefnda kjördæmi -er þingsæti
flokksins í bráðri hættu.
Nokkur bending í þessa átt er framboð Framsóknarflokksins í
Eyjafjarðarsýslu, jiar sem einn hinna ungu Frainsóknarmanna er
valinn í baráttusæti framboSsbstans, þrátt fyrir aJmennan vilja
kjósenda í sýslunni um aS fá reyndan og gegnan bónda í sætlð.
leyti en þessu er hafragrauturinn
holl og góð fæða, og sé nóg af
kalki í fæðunni, ætti þessi galli
ekki að koma að sök.
Það eru sennilega margar hús-
inæður, sem hafa krúska stundum
eða alltaf til morgunverðar, og er
það ágætt, en mér finnst að það
gæti verlð got,t að prófa fleiri
grautartegundir, til dæmis heil-
hveiti-, rúgmjöls- eða byggmjöls-
grauta.
Með heilhveiti og rúgmjöls-
graut e r prýðilegt að hafa sýróp,
í heilhveitigraut er líka ágætt að
hafa rúsínur eða JiurrkuS epli til
tilbreytingar stöku sinnum. Epl-
iu eru þá lögð í bleyti í vatnið
kvöldið áður.
MeS þessum grautum má hafa
slátur eins og með hafragraut.
Þeir cru búnir til á þann hátt, að
vatniS er hitaS og mjölinu stráS
út á, þar til oVðið er hæfilega
jiykkl. Hrært eða þeytt vel meSan
soðið er í 20 mínútur, borðað
með sykri eða sýrópi og mjólk.
Svo er einn spónamatur enn-
þá, sem er mjög hentugur til
morgunveiðar, og það er súr-
mjólk. Nágrannajjjóðir okkar,
Norðmenn og Sv’ar, nota hana
mikið sem spónamat, en hér er
hún mér vitanlega lítið notuð,
meira að segja hef ég þekkt fólk,
sem áleit súra mjólk næstum því
óæta.
Framhald á 6. síðu.