Íslendingur - 15.04.1953, Blaðsíða 8
l.O.O.F. — 1344178VÍ! — III.
Leiðrétting. f auglýsingu frá Verzl.
Eyjafjörður í síðasta blaði varð mein-
leg villa, þar sem getið var um verð á
hveiti. Verð það, sem gefið var upp,
átti aðeins við Manitoba-hveili, en bin
tegundin „Gold Medal“ lenti af mis-
gáningi í sömu l.'nu.
*,
Sýslujundur Eyjajjarðarsýslu stend
ur yfir hér í bænum þessa daga.
65 ára varð í gær frú Elísabet Frið-
riksdóttir handavinnukennari við Barna
skóla Akureyrar. Munu vera l.ðin nær
40 ár, síðan frúin hóf fyrst lianda-
vinnukennslu við skólann, en vegna
heimilisanna hefir starf hennar þar
ekki ver.ð óslit.ð allan þann tíma.
Hjálprœðisherinn heldur bazar föstu-
daginn 17. apríl. Opnað kl. 4. Margir
góðir munir seldir með lágu verði.
Kaffisala. Frá kl. 9 selt kvöldkaffi. —
Númeraborð. Söngur og hljóðfæraslátt-
ur.
Barnaverndarjélag Akureyrar hefir
leitað eftir dvalar. töðum í sveit í sum-
ar fyrir börn frá Aku.eyri. Enn er þó
óvíst um árangur. Foreldrar, sem
kynnu að vllja koma börnum til sum-
ardvalar, cru beðnlr að hafa tal af Jóni
J. Þorsteinssyni eða Eiríki Sigurðssyni,
og munu þeir skrá þau í bili, unz ein-
hverjir staðir bjóðast.
Aðalfundur
Barnaverndarfélags
Akureyrar
var haldinn sunnudaginn 12. apríl
s. 1. í skýrslu stjórnarinnar kom
íram að tekjur af barnaverndar-
deginum í haust námu kr. 8482,20
A fundinum var samþykkt að fé-
laglð beitti sér fyrir því, að koma
börnuin úr bænum til sumardval-
ar í sveit. Samkvæmt reikningum
félagsins á félagið í sjóði kr.
48,779,62. En félagið er að safna
fé til að kotna upp vistheimili fyr-
ir börn.
Stjórn félagsins skipa: Eiríkur
Sigurðsson, Hannes J. Magnús-
son, Elísabet Eiríksdótlir, séra
Pétur Sigurgelrsson og Jón J.
Þorsteinsson. ,
A eftir fundinum voru sýndar
kvikmyndir um uppeldismál frá
Sameinuðu þjóðunum.
Sérstök athygli
skal vckin á því, að öll
Akureyrarblöðin veita
móttöku fjórframlög-
um til mæðginanna ó
Auðnum í Svarfaðar-
dal, sem urðu fyrir hin-
um sorglega óstvina-
missi í snjóflóðinu
mikla, er þar féll, og al-
geru eignatjóni.
Annáll lslendíngs
APRÍL
Annar bærinn á Velli í Hvolhreppi í
Rangárvallasýslu brennur til kaldra
kola.
Miðvikudagur 15. april 1953
® } u - b g
réttir úr Skifflfirii
Sauðárkróki, 11. apríl 1953.
1. .,Pcishahretið“ varð að þessu
sinni langt og strangt. Hófst með
Einmánuði, þriðjud. 24. marz og
il vikuloka. Svo var bjart veður
sunnud. lil þriðjudags í dymbil-
viku. Moldveðurs-norðanhríð
báða bænadagana. Siðan sól-
bjart veður á páskahátíðinni og
páskavikuna alla, er nú cndar. —
Snjóalög mikil hér nú, að heila
má í fyrsla sinni á þessum vetri.
Frost vægt eða ekki.
2. „Sœluvika“ Slcagfirðinga stóð
yflr frá 22.—29. rnaiz að báðum
dögum meðtöldum. Þótt vansæla
mikil væri í veðurfari, var þó
reynt að gjöra sér dagana glaða
og jafnvel næturnar líka.— Leik-
félag Sauðárkróks lék „Pilt og
s'.úlku“ alla vikuna í „Bifröst“
(hinni nýju). Ennfr. dansað þar
I síðuslu kvöldin og allmjög á
nætur fram. — Kvenfélagið hér
hafði 2 leiksýningar o. f 1., Kirkju
;ór Sauðárkróks hljómleika. Þá
voru einnig leiksýningar og dans
suma daga í Templó, (fundarsal
Templara), og þar e!nnig háður
sýslufundur Skagafjarðarsýslu, er
slóð alla vikuna og f;am í dymbil-
viku. — í bæjarstjórnarsalnum
fóru fram hinir venjulegu mál-
jundir með framsöguerindum um
ýmis mál og fjörugum umræðum.
Stóðu þeir yfir tvö síðustu kvöld
vlkunnar. — Aðsókn að öllum
þessum tegundum mannfagnaða
var alveg fuiðulega mikil, eftlr
því sem efni stóðu lil, þar sem þó
málti heita að moldveðurs-stór-
hríð með mikilli veðurhæð væri
á flesta dagana nær óslitið. Enda
lagði a. m. k. einn „Iínubíll“ (frá
Rvík—Akureyrar) einnig með „í
púkkið“, sem var snjallræði að
gjöra, í stað þess að brjótast á-
fram austur úr Skagafirði í snjó
ng hríð, og stöðvast svo einhvers
3'aðar á leiðinni inni á miðjum
Tröllaskaga og l!fa þar vægast
alað gleðisnauðu lífi.
3. Fiskafli hefir verið hér ágætur
að heita má alla páskavikuna,
þegar gefið hefir. — Loðna
veiddist hér á páskadagskvöld og
nokkuð síðan. Og á hana hefir
svo aflast ágætur fiskur, aðallega
vænn þorskur, bæði utar og inn-
ar á firðinum.
4. Vcrkamannafélagið „Fram“
hélt hát.ðlegt 50 ára afmæli sitt á
annan í páskum með miklum
mannfagnaði í Bifröst. Var þar
alltnikið fjölmenni við sameigin-
lega kaffidrykkju, -söng, hljóin-
leika, upplestur (saga félagsins
lesin í köflum með söng á milli),
ræðuhöld og loks dans. Félagið
er stofnað 1903 og er all-fjöl-
mennt. Mun hafa nú fulla 200 fé-
laga. Hefir það unnið margt til
gagns fyrir verkamannastélt bæj-
arins, og þar með fyrir bæinn í
heild. — Félaginu bárust skeyti,
og fánar voru víða á stöng í bæn-
um vegna afmælisins. Fyrrum
formenn félagsins, sem enn eru á
Iífi,. kosnir heiðursfélagar þess.
Hinn síðast fráfarandi formaður
er Valdemar Pétursson. Núver-
andi formaður er Ingimar Boga-
son.
J. Þ. Bj.
Átta prestaköll
laus til umsóknar
Nýlega liefir biskupinn yfir ís-
landi auglýst laus til umsóknar 8
prestaköll, og eru sum þeirra
kennsluprestaköll samkvæmt hin-
um breyttu Iögum um skipun
prestakalla. En prestaköll’n eru
þessi:
Hofleigsprestakall í Norður-
Múlasýslu, Kálfafellsstaða-
prestakall í Austur-Skafta-
fellssýslu, Br j ánslækj arprestakall
í Barðastrandarsýslu, Hrafnseyr-
arprestakall í Vestur-ísafjarðar-
sýslu, Arnesprestakall í Stranda-
sýslu, Æsustaðaprestakall í
Húnavatnssýslu, Skútustaða-
prestakall í Suður-ÞIngeyjarsýsIu
og Raufarhafnarprestakall íNorð-
ur-Þingeyj arsýslu.
Unrsóknarfrestur er til 1. maí
næstkomandi.
FramboMn d Aftyreyri
lohsiis kuiiii
Alþýðumaðurinn í gær skýrir
frá því, að Steindór Steindórsson
menntaskólakennari verði í ,kj öri
fyrir Alþýðuflokkinn hér í bæn-
um í sumar, og eru þá loksins
kunn öll framboð flokkanna hér.
Enginn þeirra hefir skipt um
frambjóðanda frá síðustu Alþing-
iskosningum.
Knattspyrnu-
þjálfari kominn
hingað
Knattspyrnufélög bæjarins, KA
og Þór, hafa fengið hingað knatt-
spyrnuþjálfara úr Reykjavík, Sig-
urð Bergsson, er mun æfa félags-
menn um mánaðarskeið. Hefir
knaltspyrnuvöllurinn á Gleráreyr-
um verið ruddur snjó, og hófust
æfingar þar í gærkvöldi. Næsta
æí'.ng verður annað kvöld kl. 6.30
og er þess vænst, að félagar mæti
þar sem flestir úr báðum félögun-
um, sem njóta vilja tilsagnar
þjálfarans. |
Ifáumorðumsagt
Tónlistarkennarar og tónlistar-
gagnrýnendur koma saman til
fundar í Brussel dagana 29. júní
til 9. júlí n. k. til að ræða um
hljómlistarmenntun í skólum. —
Fundurinn er haldinn á vegum
UNESCO, 1— menningar- og vís-
indastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna.
□
Rúndega 30 sveita- og bæjafé-
lög í Vestur-Noregi eru meðlimir
í Félagi Sameinuðu þjóðanna og
greiða árlega gjöld í.l félagsins.
Bergen gekk á undan með góðu
eftirdæmi árið 1950 þegar borg-
arsjóður Bergen lagði fram 5000
krónur til stofnunar félagsins. —
Síðan greiðir Bergen 3000 krón-
ur árlega til félagsins.
□
Finnskur drengur, 16 ára að
aldri, hefir unnið fyrstu verðlaun
á listsýningu í Kalkútta á Ind-
landi. Sýnd voru 10.000 listaverk
ef.ir börn frá 35 þjóðum. Verð-
launin voru gullpeningur. Alls
voru veitt 300 verðlaun.
□
Alþ jóðavinnumálaskrifstofan
hefir lagt til, að ungl'ngavinna í
neðanjarðar kolanámum verði
lögð niður með öllu. Er lagt til,
að unglingar undir 18 ára aldri
verði ekki látnir vinna í kolanám-
um, nema sem lærlingar.
(Frá S. Þ.)
Scmkoma I Skálaborg
kl. 4 á SAinnudaginn.
Kl. 4 e. h. verður samkoma í
Skálaborg í 'Slerárþorpi. Er hún
haldin til s ivrktar fjölskyldu í
þorpinu, sem. á ujn þessar rnundir
við mikla erfiðleika að stríða. —
Kirkjukór Jjögmannshlíðarsóknar
syngur. Sér/a Pétur Sigurgeirsson
ialar. Sýnd verður kvikmyndin:
Starfsemi kirkna (á ensku: A
Mighly Army). Hefir lúterska
he.mssaijrbandið sent kvikmynd-
ina hinjgað. Er hún tal og tón-
mynd og stendur yfir í' tæpan
kluklíutíma.
Aðgangur að samkomunni er
10 krónur fyrir fullorðna. Er
skorað á fólk að fjölmenna.
Sýning í kvöld:
„Humoresque"
Slórfengleg músikmynd með
dásamlega fallegri tónlist eftir
Dvorak, Tsckaikovsky, Brahms
Blzet, Grieg, Bach o. fl.
AIU, sern inn, kemur í kvöld,
rennur lil mœðginanna, sem !
af komust í snjóflóðinu. í
Svarfaðardáí.
#
Björn Stgurbjarnarson bankaritari á
Se’.fossi fótbrotnar illa, er hestur fell-
ur með hann á hálku. Varð fóturinn,
sem brotnaði, undir he tinum við bylt-
una.
#
Bæjartogarar Siglufjarðar fara í
fyrstu veið.för á þessu ári. Stjórn Síld-
arverksmiðja ríkisins annast rekstur
þeirra.
#
Snjóflóð b.ýtur hesthús og hænsna-
hús að Þrastarstöðum á Höfðaströnd.
Heslar björguðust lifandi en hænsnin
fóru t.
Á
*
Tveggja ára drengur fellur út um
glugga á 3. hæð í húsi vtð Laugaveg í
Reykjavík, og slasast mikið, etnkum á
höfði og herðum.
#
Aflabrögð léleg á vetrarvertið sunn-
anlands. Veldur þar einkum gæflaleysi.
#
Fólksflutningabtfréið, sem tekur 58
fa.þega, yf rbyggð í Reykjavík. Er ætl-
uð til fólksflutninga á leiðinni Reykja-
vík—Keflavík.
Haukur, heimillsblað, apríl-
heÍLÍ þ. á., sem blaðinu hefir ver-
ið sent, er fjölbreytt að vanda.
Hefst það á sagnaþætti um Hall-
grím Pétursson, hið mikla trúar-
skáld, sem Þorst. Þ. Þorsteinsson
hefir skráð. Listamannaþátturinn
fjallar um hinn þjóðkunna leik-
íra, Gunnar Eyjólfsson. Þá flytur
teftið ntargar þýddar smásögur
g greinar, ljóð eftir G sla Olafs-
son, nýtt dægurlag við dægurljóð,
framhaldssögu, skrítlusíðu, skák-
þált, barnasögu, krossgátu o. m.
fl. til gamans og fróðleiks.
Skinfaxi, tímarit UMFÍ, 1. h.
þ. á., flytur þessar greinar: Rækt-
un, ef.ir Bjarna Andrésson,
Iþróllir Snæfellinga e. Sigurð
Helgason, Æskulýðshöll Reykja-
víkur e. Bjarna Andrésson, þátt
um Guðmund G. Hagalín rithöf-
und, erindi e. Axel Benedlktsson
um Garðar Svavarsson og hina
nafnlausu móður, ævintýri e. Kr.
Jónsson, Söng Sameinuðu þjóð-
anna (nótur með texta) og sitt-
hvað fleira.
Búnaðarritið, 66. árg. hefir
blaðinu borizt, 316 bls. Hefst það
á grein eftir ritstjórann, Pál Zop-
honiasson búnaðarmálastjóra um
meiri og hagfelldari framleiðslu.
Þá er þar þýdd grein um
köfnunarefnisvinnslu í rótarhnýð-
um belgjurtanna, greinargerðir
um grijoasýningar eftir ráðunaut-
ana Halldór Pálsson og Ólaf E.
Stefánsson og loks skýrslur bún-
aðarmálastjóra og ráðunauta
Búnaðarfélagsins í hinum ýmsu
sérgreinum landbúnaðarins.