Íslendingur - 02.09.1953, Side 8
•n
Kirkjan. MessaS á Akureyri n. k.
sunnudag kl. 2 eh. (F. J. R.)
Messað i Lögmannshlíðarkirkju á
sunnudaginn kemur kl. 2 e. h. (P. S.)
I. 0. 0. F. = 134948% =
Brúðkauþ: Um seinustu helgi voru
gefin saraan í hjónaband: 29. ágúst í
Akureyrarkirkju: Ungfrú Gígja Vil-
hjálmsdóttir og Ingvar Hóseas Sig-
marsson sjómaður. Heimili þeirra* er
að Fjólugötu 16. — Ungfrú Bergþóra
Kristinsdóttir og Benjamín Þórðarson
sjómaður. lleimili þeirra verður í
Stykkishólmi. — Þann 30. ágúst voru
gefin saman ungfrú Sigurlína Jónsdótt-
ir og Þórarinn Heiðar Þorvaldsson bif-
reiðarstjóri. Ileimili þeirra verður að
Grundargötu 7, Akureyri.
Hjónaefni. Ungfrú Margrét Lúthers-
dóttir Lundargötu 17 Akureyri og
Hörður Magnússon sjómaður, Grettisg.
24 Reykjavík.
Fegrunarjélag Akureyrar hefir beðið
blaðið að flytja bæjarbúum þakkir sín-
ar fyrir frábærar undirtektir og velvild
í sambandi við merkjasölu þess og
hlutavellu um síðustu helgi.
Ohœj póslajgreiðsla. Fyrir nokkrum
dögum fékk lslendingur greidda póst-
kröfu fyrir áskriftargjaldi blaðsins frá
árinu 1952 frá póstafgreiðslu úti á
landi. Var krafan send héðan 14. ágúst
í fyrra, en greidd á póstafgreiðslunni
24. ágúst sl., eða rétt um ári eftir að
hún hefir komið þangað. Nú er ekki
gert ráð fyrir að póstkröfur liggi leng-
ur en 2—3 vikur á afgreiðslustað. Er
hér um stór-vítaverða vanrækslu að
ræða
Iðja félag verksmiðjufólks á Akur-
eyri hefir ákveðið að halda hlutaveltu
til ágóða fyrir styrktarsjóð félagsins þ.
13. sept. í Alþýðuhúsinu. Er þess íast-
lega vænzt að allir yngri sem eldri geri
sitt ítrasta í því að safna góðum mun-
um á hlutavcltuna og koma þeim í
Verkalýðshúsið ekki síðar en 10. eept.
— Hlutaveltunefndin.
Uppskeruhátíð verður í kristniboðs-
húsinu Zíon laugard. 5. þ. m. kl. 8.30
e.h. til ágóða fyrir kristniboðið. Þar
verða seld blóm og margs konar garð-
ávextir mjög vægu verði. Einnig verð-
ur þar kaffisala. Komið og þakkið gjaf-
aranum allra góðra gjafa fyrir góða
uppskeru og gott árferði, með því að
styðja málefni hans. — Stjórnin.
Attrœður varð s. 1. laugardag Sig-
tryggur Þorsteinsson, formaður sjúkra-
samlagsstjórnar Akureyrar.
Sextug varð í gær frú Anna Lýðsdótt-
ir, Norðurgötu 28, Akureyri.
Sextugur varð í gær Sigurbjörn Frið-
riksson, bifreiðastjóri, Norðurgötu 35,
Akureyri.
Ferðajélag Akureyrar hefir ákveðið
skemmtiferð uin næstu helgi þannig:
Laugardaginn 5. sept. ekið vestur að
Varmahlíð, Glaumbæ, Sauðárkrók og
Hólum í Iljaltadal. Sunnudaginn 6.
sept. til Sauðárkróks, Skagastrandar,
Blönduóss og heimleiðis um Ása og
efri Blöndubrú. Nánari upplýsingar
veitir fornt. ferðanefndar, Þorsteinn
Þorsteinsson.
Hlutaveltu lieldur Skógræktarfélag
Tjarnargerðis sunnudaginn 6. eepL n.
k. kl. 4 síðdegis.
Hjónaefni. Ungfrú Björg Bogadóttir
afgre.ðslumær og Stefán Stefánsson
rennismiður.
m
dmaur
Miðvikudagur 2. september 1953
Flest sveitáeímili i idgrenm
Uureyrar homost i símnsaM
500 niimera stækkun á sjálfvirku
stöðinni undirbúin
Blaðið áti í fyrradag stutt sam
tai við Gunnar Schram síma-
tjóra, og innti hann fregna af
símamálutn Akureyringa og Ey-
firðinga, og hvað unnið hefði
verið að símaframkvæmdum á
þessu ári í bæ og nágrenni.
-— í sutnar heíir verið lagðui
sími inn á 14 bæi á Þelamörk,
segir símastjórinn — eða allt frá
Grjótgarði að Bægisá, og eru þeir
í sambandi við Bægisárstöðina.
Pá er verið að leggja síma inn á
neðri bæina í hreppnum, neðan
pjóðvegarins, frá Skipalóni og
Gæsum og inn með firðinum.
V^erða þeir allir í sambandi við
iandssíinastöðina hér eins og bæ-
irnir í Kræklingahlíð, sem áður
höfðu fengið síma. Munu því allir
bæir í Glæsibæjarhreppi verða
komnir í símasamband í haust.
Ennfremur verður sími lagður í
haust á nokkra bæi í Hrafnagils-
og Ongulsstaðahreppum.
— En framkvæmdir í bænum?
— Aðalframkvæindirnar í
sumar verða jarðsímalagnir um
nýja hverfið í Mýrunum, og er
nú þessa dagana verið að tengja
síma í húsum þar við stöðina.
— Er mikil eftirspurn eftix
síma?
— Um 150 manns bíða nú
eftir síma, sem ekki geta fengið
hann, þar sem öll númer sjálí
virku stöðvarinnar, 1000 að iölu,
eru í notkun. En Landsíminn
hefir þegar gert ráðstafanir til að
stækka stöðina uin 500 númer af
þeitn 1000, sem unnt er að bæta
við í núverandi húsakynnum síma
stöðvarinnar. Afgreiðslufrestur á
vélum til stækkunarinnar mun
vera kringum eitt ár, en þær eru
pantaðar frá Ericsen-verksmiðj
unum í Stokkhólmi, þeim er vél-
arnar i sjálfvirku stöðina voru
fengnar frá. Og þegar þessi
stækkun hefir komizt í fram-
kvæind, mun Akureyri standa
flestum eða öllum bæjum frainar
um símakost.
— Margir símanotendur eru í
vanda staddir vegna þess, að
símaskráin þeirra er ónýt orðin
af óvenjulegri notkun fyrst eftir
að sjálfvirka stöðin kom. Hvenær
megum við vænta nýrrar síma-
skrár?
— Símaskráin, sem koma átti
út á árinu, er nú í prentun, og má
búast við að hún geli komið út
fyrir n. k. áramót.
— Hvaða verkefni bíða Land-
símans í næstu framtíð.
— Landsíminn mun, eftir því
sem fjárveitingar fást til, vinna
að því arð tengja sem flest byggð
arlög við símakerfið, enda hefir
mikil áherzla verið lögð á sima-
agnir í sveitum. En takmark okk-
ar hlýtur að vera það, að svo
ijótt sem unnt er verði orðið við
óskum heimilanna um síma og að
llir geti að lokum fengið hann,
sem óska þess, hvort sem þeir búa
bæ eða sveit.
ALLAN DULLES
yfimiaður CIA, bamlarisku upplýsinga-
þjónustunnar, sá er McCarthy hefir
sakað um að halda verndarhendi yfir
mönnurn, sem hafi haft samvinnu við
landráðamenn, sbr. grein í íslcndingi
19. ágúst sl.
Síldveiði með lierpinot
lokið.
Togarinn Jörundur lang-
aflahæstur
Síldveiðum með herpinót er nú
með öllu lokið fyrir Norðurlandi,
en nokkur skip veiða í reknet.
Alls fóru 163 skip til síldveiða á
vertíðinni, en 2 þeirra fengu eng-
an afla. Togarinn Jörundur var
með lang-hæstan afla, 6918 mál
og lunnur, en önnur Akureyrar-
skip veiddu:
Snæfell 5870 mál og tn.
Akraborg 5387 „—„
Súlan 4740 „—„
Ingvar Guðj. 3766 „—„
Njörður 2469 „—,.
Sæfinnur 2064 „
Stjarnan 1882 ,,—„
Auður 1084 „—„
Bjarki 1082 „—„
Tvö hin síðasltöldu urðu að
Falleg uppskera
Kartöfluuppskcran ætlar að
verða hin myndarlegasta í haust.
Hafa blöðin verið að segja frá
vænum kartöflum, allt frá 120 gr.
(Dagur 26. ág.) og upp í 350 gr.
(Morgunbl. 22. ág.).
Nú fyrir mánaðamótin var Har
aldur Sigurgeirsson verzlunar
maður að taka upp kartöflur úr
garði sínum, og voru kartöflurnar
hver aiinarri stærri. Vó ein þeirra
380 gr., en margar voru eilítið
minni, svo að vart mátti á milli
sjá. Undan grasinu, sein stærsta
kartaflan tilheyrði. kornu aðrar
7. Vógu 2 þeirra á 3. hundrað gr.,
en allar voru stærri en venjulegt
útsæði. Tegundin var Gullauga.
hælta á vertíðinni vegna bilunar.
Alls varð síldaraílinn 155366
tn. í salt, 119278 mál í bræðslu og
7004 tn. frystar.
Ágreiningur um kjör
á reknefaveiðum.
Oll Akureyrarskipin, er stund-
uðu síldveiðar í sumar, munu
hafa ætlað á reknetaveiðar austui
<
fyrir land, en aðeins tvö eru farin
(Akraborg og Stjarnan). Stendur
í þrefi út af kaupkjörunuin, sem
sjómenn vilja fá bætl frá þvi, sem
þau- voru í fyrra. Er því allt í ó-
vissu eins og sakir standa um rek-
netaútgerð Akureyrarflotans.
---------------------v~
Glaðir gestirj
Síðastliðið fimmtudagskvöld
gaísl bæjaibúum tækifæri lil að
heyra og sjá hina vinsælu
„skemnitikrafta“ Gest Þorgrímss.
hermileikara og ungfrú Soffíu
Karlsdóttur dægurlagasöngvara
að Hótel Norðurlandi. Fluttu þau
þar „samfellda dagskrá“, er þau
höfðu sett saman með aðstoð
Lofts Guðmundssonar ritliöfund-
ar, sem mörguin útvarpshlustanda
er kunnur af gamanþáttum hans.
I þessari samfelldu dagskrá
fengu menn að heyra raddir
margra þjóðkunnra manna og
söng okkar frægustu söngvara, —
og þar að auki söngvara ýmissa
erlendra þjóða, — í gegnuin hinn
margraddaða Gest Þorgrínisson.
Þá voru þættirnir „Rómeó og
Júlía“ og íslenzka óperan einkar
skemmtilegir, og átti ungfrúin þar
Annall Islendings
ÁGÚST :
Kristján Jóliannsson setur nýtt met í
10 km. hlaupi á Meistaramóti Reykja-
víkur í frjálsum íþróttum. Tími 31 mín.
45.8 sek. Eldra metið, er hann átti
sjálfur, var 32 mín. réttar.
Þyrilvængja af Keflavíkurflugvelli
sækir sængurkonu vestur í Bitrufjörð
og flytur á Landsspítalann. Ferðin
gengur að óskum.
Eldur kemur upp í Bílarmiðjunni í
Reykjavík og veldur stórskemmdum á
byggingunni, áður en tókst að ráða
liðurlögum lians. Bílúm þeim, er þar
voru í smíðum, tókst að hjarga ó-
skemmdum að mestu.
Piltur og stúlka falla af vörubíls-
jalli undan Ingólfsfjalli og slasast.
Stúlkan það mikið, að flytja varð
hana í sjúkrahús. Fólkið var að koma
if dansleik á Selfossi og :tóð margt
aman í hnapp á pallinum.
Ný kaffibrennsla
í júlímánuði s.I. tók ný kaffi-
brennsla til starfa hér í bænum.
Er hún eign Efnagerðar Akureyr-
ar h.f. Framleiðslan er nefnd
SANA-KAFFI.
Að því er framkvæmdastjóri
Efnagerðarinnar, Einar Kristjáns
son hefir tjáð blaðinu, var ætlun
fyrirtækisins að hefja þessa starf-
semi fyrr, en langur dráttur varð
á, að leyfi fengist fyrir innflutn-
ingi vélanna.
Salan á kaffinu hefir gengið
vel, það sem af er, enda er aðeins
notuð bezta fáanleg kaffitegund.
Vélar kaffibrennslunnar eru þýzk-
ar, af nýjustu gerð. Kaffið er ein-
göngu selt í % kílós pokum.
EjtirteliM hvih-
myndasýRing
í vikunni sem leið kom hingað
lil bæjarins bandarískur kvik-
nyndatökumaður, Homer Flint
Kellems ofursti, og sýndi í Nýja
3íó kvikmyndir í eðlilegum litum,
er hann hafði tekið víða um
'ieim. Sýndi hann fyrst myndir
frá Grænlandi og síðar suðrænar
nyndir, frá ltalíu, Arabíu, Eg-
yptalandi og Eritreu, en síðast
nyndir, er hann hafði tekið hér
á landi. Þær myndir hafði hami
ekið ýmist í óbyggðum eða þétt-
býlinu. Sýndi liann jöklamyndir
Dg Heklumyndir, en auk þess
myndir frá Reykjavík, Hafnar-
firði og Vestmannaeyjum. Þá
voru nokkrar myndir af íslenzk-
um atvinnuveguni: Frá hval-
veiðastöðinni í Hvalfirði og af
karíaveiðum. Skýrði mr. Kellems
myndirnar jafnóðum, en Sigurð-
ur L. Pálsson menntaskólakenn-
ari túlkaði inál lians. Var mynda-
lökumaðurinn hylltur með lófa-
taki að lokinni sýningu.
bróðurpartinn, enda hefir hún
tekið miklum framförum. síðan
hún var hér síðast á ferð. En
þátturinn frá Sameinuðu þjóðun-
um verður þó minnisstæðastur af
öllum atriðuin „dagskrárinnar“.
Páll Kr. Pálsson annaðist und-
irleikinn af meslu prýði. Z.