Íslendingur - 25.11.1953, Side 8
MessaS á Akureyri n. k. sunnudag
kl. 2 e.h. Jólaföstuinngangur. (F. J. R.)
MessaS í skólahúsinu í Glerárþorpi
um næstu helgi. Nánar auglýst í út-
varpi. (P. S.)
Kirkjugifting. Þann 21. nóv. voru
gefin saman í Akureyrarkirkju ungfrú
Sigurlaug Stefánsdóttir og Jakob Her-
mann Jónsson starfsmaður við Laxár-
virkjun. Ileimili þeirra er að Brekktt-
götu 12, Akureyri.
I. 0. 0. F. — Rb.st. 2 — 10211258Vi
I. 0. O. F. = 13511278% — ///
Sunnudagaskóli
Akureyrar-
kirkju er á
sunnudaginn
kemur kl. 10.30 5—6 ára börn í kapell-
unni. 7—13 ára börn í kirkjunni. —
Bekkjastjórar mæti kl. 10.10.
Fundur í drengjadeild-
inni kl. 5 á sunnudaginn
kemur í kapellunni.
Litmyndir frá Egyptalandi og Nai-
robi verða sýndar á Sjónarhæð kl. 5—
5.30 á sunnudaginn, með skýringum
frá ferðalagi A. Gooks. S. G. J. talar
á eftir. Miðvikudag kl. 8.30 samkoma
fyrir kvenfólk. Fimmtudag kl. 6 sam-
koma fyrir ungar stúlkur (saumafund-
ur), laugardag kl. 5.30 samkoma fyrir
d.engi. Allir velkomnir.
lljónaejni. Ungf.ú Karitas S. Mel-
stað Bjarmastíg 2 og Sverrir Ragnars-
son Norðurgötu 40 Akureyri.
Bazar. Kvenféiagið Framtíðin hefir
bazar í ltúsi Alþýðuflokksfélaganna í
Túngötu 2 þriðjudag'.nn 1. desember.
Húsið opnað kl. 4 síðdegis.
Aheit á Strandarkirkju frá N. N. kr.
25.00.
Bazar og kaffisölu með skemmtiat-
riðum heldur kvenskátafélagið „Val-
ky.jan“ í Varðborg sunnudaginn 29.
nóv. Bazarinn hefst kl. 2 og kaffisalan
kl. 2.30 og kl. 4.
HestamannafélagiS Léttir heldur að-
alfund sinn miðvikudaginn 2. des. að
Hótel KEA (Rolarysalnum) kl. 8 e. h.
Skrijstofur Rajveitunnar flytja í ný
húsakynni í Landsbankahúsinu Strand-
götu 1 nú í vikulokin.
Ntærstíi »fellið«
I Sllllðlllll
F réUatiUcynning.
Hirin 2. nóvember s. 1. var í
Óskarshöfn í Svíþjócf lagður
kjölur að nýju kaupskipi fyrir
Samband íslenzkra samvinnufél-
aga. Verður skipi þessu væntan-
lega hleypt af stokkunum í byrj-
un maí næsta vor, og áætlað er,
að það verði fullsmíðað í ágúst-
mánuði.
Þetta nýja „fell“ verður stærsta
skip samvinnumanna, 3300 þunga-
lestir og með milliþilfari. Það
verður 270 fet að lengd og búið
Noah-Polar dieselvél. Að útliti og
útbúnaði verður skipið eins og
Arnarfell.
tcndixiaMr
Miðvikudagur 25. nóvember 1953
Annall lslendings
>00000000000000000000004
Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup,
settur biskup yfir íslandi, unz nýr
biskup verður skipaður.
Kollótta ¥e§tfjarðak^nið
álitlesa§ti istoftiiiiin
Fjárskaðar í Fljótum 12. okt. ekki teljandi
Saurbœ í Fljótum 10. nóv.:
Þetla nýliðna haust hefir verið hálf
leiðinlegt hér í Fljótum, þó ekki sé
hægt að telja það með verstu haustum.
Um tíð skipti hér verulega með byrj-
un september, og úr því var tíð mjög
í andstöðu við hið liðna heyskapar-
tímabil. Þó gerði hér aldrei stórrign-
ingar, og frost voru alltaf væg. Nýttust
því allar heyleifar frá sumrinu til hins
ýtrasta, svo að ekkert fang af heyi fór
til spillis, svo ég vissi. Allflest.r náðu
garðamat sínum óskemmdum. Aftur á
móti gengu fjallleitir illa að þessu
sinni. Á því tímabili, er þær fóru fram,
voru þokur tíðar, og urðu því leitir
víða gagnslitlar. llér í sveit eru heimt-
ur ekki góðar, og er óvanalegt, því
hér heimtist vanalega vel. —
Töluvert hefir borið á dýrbít hér í
haust, og virðist sem tófur aukist hér
við hvert greni sem unnið er. Hér í
hreppnum höfum við það góða grenja-
skyttu, að hvert einasta greni, sem
íundizt hefir árunt saman, hefir unn-
izt. Ilafa ekki sloppið nema þeir refir,
sem aldrei hafa komið nálægt greni.
Grenjaskytta okkar er Alfreð Jónsson,
bóndi á Reykjarhóli. Þrátt fyrir hans
ágætu grenjavinnslu, virðist tófunni
ekki fækka. Geta menn þess til, að á
stöðum, sem komnir eru í eyði, s. s.
í Héðinsfirði og Ulfsdölum, séu blátt
áfram uppeldlsstaðir fyrir refinn. Væri
þörf á að þetta væri alhugað, þar sem
umkvartanir koma um fjölgun refa
hvaðanæva af landinu.
Fé var vænt hér í haust eftir hið
góða sumar. En íyrir óhagstæða veðr-
áttu rétt í byrjun sláturtíðar, og að
hún gekk mjög seint, voru dilkar þeir,
sem síðast var fargað, farnir að tapa.
. Ilrútasýning var haldin að Reykjar-
hóli 30. sept. Var það fyrsta sýning á
vegum fjárræktarfélags, sem stofnað
var hér á s. 1. vetri. Þátttaka var
ágæt í sýningunni. Flestir bændur
hreppsins þar saman kornnlr með hrúla
sína. Er óhætt að fullyrða, að svo al-
menn þátttaka hefir aldrei orðið á
hrútasýningu í Holtshreppi, slðan þar
var byrjað að sýna hrúta. Stjórn fjár-
ræktarfélagsins var mætt á sýningunni,
en í henni eru Alfreð Jónsson bóndi
Reykjarhóli, Símon Jónsson bóndi Ný-
rækt og Vilhjálmur Guðmundsson
bóndi Ilraunum. Má óefað þakka
stjórninni hina góðu þátttöku, því að
hún lét aka hrútunum til og frá sýn-
ingarstað. Er það spor í rétta átt, þar
sem unnt er að koma bílum við, því
menn eru ófúsir að reka þungfæra
hrúta langan veg. Var þessi dagur
mörgum bónda hér ánægjulegasti dag-
ur haustsins.
Sýndir voru 45 hrútar. Hlutu 15
þeirra I. verðlaun, 14 önnur og 9 þriðju
verðlaun, 7 dæmdust ónotliæfir. Bú-
fjárræktarráðunautur sýslunnar, Ilar-
aldur Árnason. Sjávarborg, dæmdi á
sýningunni. En meðdómendur voru
Hartmann Guðmundsson bóndi Þrasa-
stöðum og Jón Guðbrandsson bóndi
Saurbæ.
Flestir voru hrútar þeir, er I. og II.
verðlaun hlutu, prýðilegar kindur, og
einkenndi þá flesta ágætt mál á þá
þyngd, er þeir höfðu. Enginn I. flokks
hrúturinn hafði innan við 110 sm.
brjóstummál og upp í 119. Og enginn
innan við 24 sm. spjald og upp í 28.
Tvelr voru tvævetrir og tveir vetur-
gamlir, og eru þeir ekki með í ofan-
greindu máli. Af fyrsta flokks hrút-.
unum voru þesslr úr Reykjafjarðar-
lireppi við Djúp: 1 frá Þúfum og 2
veturgamlir, fæddir hér undan hrútum
frá Þúfum og ám frá Garði í Skútu-
staðahreppi, S-Þing., tveir írá Reykjar-
firði, 1 f.á Miðhú-um, 1 frá Keldu, 1
frá Látrum. Ur Nauteyrarhreppi við
Djúp: 2 frá Laugabóli, 1 frá Múla, 1
frá Hamri, 1 frá Ármúla. Tveir voru
frá Garði í Skútustaðahreppi, báðir
hy.ntlr. Af þessum I. fl. hrútum voru
10 kollóttir. Virðist því kollótti stofn-
inn írá Djúpi hafa sýnt rækilega yfir-
burði á þessari sýningu, og ættu menn
að yfiríara það rækilega, sem okkar
ágæti sauðfjárræktarráðúnautur, Hall-
dór Pálsson, hefir ritað um þennan
stofn á undanförnum árum, áður en
þeir blanda hann mikið hyrndu fé.
Þess er getlð, að þá er Þuríður
sundfyllir hafði með vísdómi sínum
ánafnað 1: firðingunt vísan fiskiafla á
hinu íengsæla Kvíarmiði, þá hún í
launaskyni eina á kollótta af hverjum
búanda við Isafjarðardjúp. Væri þessi
sögn rétt, því þurfti ærin endilega að
vera kollótt? Voru þar á feið keipar
gömlu konunnar, eða var þá betri stofn
kollóttur en hyrndur við ísafjarðar-
djúp? Sennilega eiga nútímamenn erf-
itt með að vita hið rétta í þessu, en
í gömlum sögnum er oft falinn vís-
dómur.
Fjárskaðar urðu ekki hér í hreppi
svo teljandi væri í foráttuveðrinu, sem
gekk yfir Norðurland og vlðar 12.
október. Menn smöluðu fé sínu þann
11. og hýstu það flestir þá nótt. Má
óefað fullyrða, að það dag.verk borg-
aði sig vel, því fé var víða langt frá
og blindbyhtr daginn eftir. Hefði því
féð mátt vera þar sem það var komið
þann dag, og óvíst um afdrif þess. Fé
hefir staðið hér inni 2 daga, það sem
af er vetri, og sumir gefið með beit
síðustu viku.
/. G.
___*______
Fréti-amenin blaðsins
eru áminntir um að senda því
sem oftast fréttir af því helzta,
sem gerist í þeirra umdæmi, og
fréttnæmt getur talizt.
Valkyrjan
Kvenskátaíélagið „Valkyrjan“
er félagsskapur, sem of sjaldan er
getið. Hann vinnur í kyrrþey, en
í hann hafa fjölniargar ungar
stúlkur þessa bæjar sótt gott eitt,
og hann hefir haft á þær þrosk-
andi og göfgandi áhrif.
Sá skáiaforingi, sem mestan
þátt átti í því að koma félaginu í
það horf, sem það er nú, var
Brynja sáluga Hlíðar. Þólt hún
gegndi ábyrgðarmiklu starfi og
hefði mörg áhugamál, hygg ég,
að kvenskátafélagið hafi verið
henni ástfólgnast. Því helgaði hún
krafta sína óskipta og til hennar
gátu skátastúlkurnar komið með
öll sín vandamál, og úr öllu var
leyst, eftir því sem föng voru á.
Eftir að hún féll frá, hefir félagið
leitast við að starfa í sama anda.
Það sem aðallega hefir háð
starfsemi félagsins er, að það hef-
ir ekki átt neitt félagsheimili. Nú
hefir þetta litla félag ráðizt í að
kaupa hæð í húsi, sem Brynja sál-
uga Hlíðar átti, end^ hafði hún
m.a. byggt það í þeim tilgangi, að
skátastúlkurnar ættu þar athvarf.
Að vísu hefir félagið fengið nokk-
urn styrk frá bænum, en betur má
ef duga skal, og er þe'.ta mikið á-
tak fyrir svo fámennt félag, þar
sem og flestir félaganna eru börn
að aldri.
Næstkomandi sunnudag hyggst
kvenskátafélagið hafa bazar og
kaffisölu í Varðborg til fjáröflun-
ar. Þar verða einnig ýms skemmti-
atriði.
Góðir Akureyringar, komið í
Varðborg á sunnudaginn, drekk-
ið kaffið yðar þar og skemmlið
yður. Með því hjálpið þér skáta-
stúlkunum til þess að eignast sitt
eigið félagsheimili.
Akureyri, 23. nóv. 1953.
Maja Baldvins.
____
Landikcpimi
I bridg-e
var nýlega háð í Reykjavík. Tóku
þátt í henni 8 sveitir, 5 úr Reykja-
vík, 1 af Akureyri, 1 frá Siglu-
firði og 1 úr Hafnarfirði. Keppn-
ina vann sveit Harðar Þórðarson-
ar Reykjavík með 12 vinningum,
en önnur varð sveit Sigurðar
Kristjánssonar Siglufirði með 11
vinninga. Sveit Karls Friðriksson-
ar Akureyri varð 5. í röðinni með
8 vinninga, en 4. sveit hafði 6Ömu
vinningatölu. í Akureyrarsveit-
inni spiluðu: Ármann Helgason,
Björn Einarsson, Halldór Helga-
son, Mikael Jónsson, Steinn Stein-
sen og Þórir Leifsson.
Ritsafn
Jóns Trausta I—VIII.
Bókaverzl. Edda h.f.
Akureyri.
Björgunar kipið Sæbjörg bjargar 3
bændum á Barðaströnd af biluðum
báti, er þá var að reka upp í brimgarð-
inn við Kögur í foráttubrimi.
* » *
Stórskemmdir af eldi urðu i tré-
smíðaverkstæði á Akranesi og í hey-
hlöðu að Saurbæ á Rauðasandi.
* # «
Kjölur lagður að fyrsta stálskipinu,
sem byggt er á Islandi, í skipasmíða-
stöð Stálsmiðjunnar í Reykjavík.
* * «
Brezki fjallgöngumaðurinn Ilillary,
sem var annar tveggja manna, er kom-
ust upp á hæsta fjallstind jarðarinnar,
Mont Everet í Ilimalayafjöllum á
llðnu sumri, boðinn hingað til lands að
flytja fyrirlestra og sýna litmyndir af
förinni.
» *
Ríkisstjórnin gengur frá 6 millj. kr.
Iáni til smáíbúða.
Athugasemd
Herra ritstjóri!
Ég sé, að í leiðara blaðs yðar,
„lslendings“; sem út kom 18. þ.
m., er vitnað innan gæsalappa i
tvö orð, sem eiga að hafa fallið
mér af munni í útvarpsviðtali við
síra Ásgeir Ásgeirsson 18. okt. s.l.
Það skiptir út af fvrir sig ekki
miklu máli, að annað þessara
tveggja orða er ekki rétt liaft eft-
ir, og hefði það þó verið skemmti-
legra, að ekki lengri ívitnun fengi
staðizt. Hitt er verra, að sam-
hengi er ruglað og írásögnin í
heild þess vegna mjög villandi.
Það er ástæðan fyrir því, að ég
bið yður fyrir þessa stuttu leið-
réttingu til birlingar.
Þegar sr. Á. Á. endaði setningu
(sem ég hafði gripið inn í með
orðunum: „Þú segir það, já.“) á
eftirfarandi hátt: „.... pólitíslc-
ar deilur eiga þar (innan sam-
vinnusamtakanna) illa heima“ —
árétlaði ég ÞAÐ nákvæmlega með
þessum orðum, sem „íslending-
ur“ flaskar á: „Já, það er, ÞAÐ
er áreiðanlega rétt“.
Um HITT, hvort eða að hvað
miklu leyti samvinnufélögin væru
í „tengslum við pólitíska flokka“,
Iét ÉG EKKI ne ina skoðun í ljós,
hvorki á einn veg né annan.
Með þökk fyrir birtinguna.
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Ath. ritstj.
Vér töldum sjálfsagt að 'birta
þessa athugasemd, þótl vér sjáum
ekki glöggan merkingarmun á
orðunum „alveg rétt“ og „áreiðan-
lega rétt.“
í kvöld kl. 9.
BRENNIMARKIÐ
(Mark of the Renegaete)
Afbragðs fjörug og spenn-
andi amerísk litmynd.