Íslendingur - 23.06.1954, Side 1
XL. árgangur Miðvikudagur 23. júní 1954 27. tbl.
0. júnl lÉíðáölh il Ahureyri
mtí gMtðostii móti
Fjölmennari skrúðganga mun ekki
hafa sézt hér
Aldrei mun hafa verið fegurra að lita yfir Akureyrarbæ en að
morgni 17. júní s.l. Þjóðhátíðanefnd hafði unnið kappsamlega að
því að prýða miðbæinn, þar sem meginhluti hátíðahaldanna skyldi
fram fara, og bæjarbúar sjálfir gert sér mjög far um að snyrta
kringum heimili sín. Morgunsólin skein í heiði yfir fánahafið, cr
bylgjaðist fyrir hægum andvara, og skrautveifur skipanna í höfn-
inni spegluðust í sléttum „Pollinum“.
Klukkan 8 að morgni þeyttu
skip í höfninni flautur sínar í
eina mínútu, en blómum skreyttur
vörubíll ók um bæinn með hljóm-
3. þing Fjórðungssambands
ungra Sjálfstæðismanna á Norð-
urlandi var háð að „Varðborg“
hér í bænum s.I. laugardag. Þing-
ið sátu 30 fulltrúar frá fleslum fé-
lögum innan samtakanna. For-
maður Fjórðungssambandsins,
Vignir Guðmundsson, se'.ti þingið
og gerði grein fyrir þeim verkefn-
um, sem fyrir lægju. Rakti hann
síðan störf stjórnarinnar frá síð-
asta fjórðungsþingi.
Á þinginu urðu fjörugar um-
ræður um skipulagsmál samtak-
anna og samþykktar ýtarlegar á-
lyktanir varðandi þau efni til
sljórnarinnar. Þá urðu og um-
ræður um stjórnmálaviðhorfið og
samþykkt ályktun ' um afstöðu
þingsins til helztu málanna.
í Iok fundarins var gengið til
stjórnarkjörs. í aðalstjórn voru
kjörnir:
Jónas G. Rafnai', Ak., formaður
Björn Elíasson, Dalvík
Haraldur Árnason, Skagafirði
Jón ísberg, Blönduósi
Magnús Stefánsson, Ólafsfirði
Sigurður Jónasson, Akureyri
Vignir Guðmundsson, Ak.
hafði Lúðrasveit Akureyrar leik-
ið þar um hríð undir stjórn Jak-
obs Tryggvasonar, meðán fólk
safnaðist þar saman til þáttlöku í
Varastjórn skipa:
Haraldur Þórðarson, Ólafsfirði
Kristján Pálsson, Eyjafirði
Magnús Björnsson, Akureyri
Ragnar Steinbergsson, Ak.
Stefán Friðbjarnarson, Sigluf.
Þá ávarpaði Jónas G. Rafnar
fundarmenn og þakkaði fráfar-
andi stjórn. Ræddi hann urn
helztu viðfangsefni núverandi rík-
isstjórnar og þá forustu, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefði haft í
stj órnmálunum undanfarandi ár.
Hvatti hann unga Sjálfstæðis-
menn til þess að auka starfsemi
sína og vinna ölullega að því að
efla fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Þakkaði hann síðan öllum þing-
fulltrúum fyrir komuna og óskaði
þeim fararheilla.
Þingforseti var Jón ísberg,
Blönduósi, og Ragnar Steinbergs-
son, Akureyri, ritari.
Meðal ungra Sjálfstæðismanna
á Norðurlandi ríkir nú mikill á-
hugi fyrir því að auka starfsem-
ina og efla sem mest félagslifið.
Hefir stjórn samtakanna ýmislegt
í undirbúningi í þeim efnum.
hátíðanefndar, Jón Norðfjörð,
hátíðina, en frú Sigríður Matt-
híasdóttir flutti ávarp Fjallkon-
unnar eftir Stefán Ág. Kristjáns-
son. Jónas G. Rafnar alþm. flutti
þvímæst fullveldisræðu og Áslaug
Eiríksdóttir stúdent minni Jóns
Sigurðssonar. Að lokum flutti
Davíð Stefánsson skáld ávarp i
ljóðum. Milli ræðna og ávarpa
lék lúðrasveitin og kórarnir
sungu.
Kl. 5 e.h. fór síðari hluti 17.-
júní-mótsins frain á íþróttasvæð-
inu á Oddeyri, og var þar margt
áhorfenda.
Kl. 8.30 um kvöldið hófst síð-
ari hluti hátíðahaldanna á Ráð-
hústorgi. Þar lék lúðrasveitin og
kórarnir sungu. Heiðrekur Guð-
mundsson skáld las kvæði, Jón
Norðfjörð söng gamanvísur, Ein-
ar Kristjánsson og Vignir Guð-
mundsson fluttu gamanþætti,
nokkrir Þingeyingar sýndu ís-
lenzka glfmu og sýndir voru þætt-
ir úr Skugga-Sveini. Að lokum
var dansað umhverfis torgið til
kl. 2 e.m.n., en á miðnætti var
skotið flugeldum. Þá hafði Nýja-
Bíó kvikmyndasýningar á hálf-
tíma fresti frá kl. 9—-12. Þjóðhá-
tíðarnefndir Akureyrar og
Reykjavíkur skiptust á kveðjum
og heillaóskum. Mjög lítið bar á
vínneyzlu. Veður var hið bezta
um kvöldið, svo að ekki blakti hár
á höfði.
Þjóðhátíðarnefnd skipuðu: Jón
Norðfjörð, Hermann Stefánsson,
Magnús Björnsson, Páll Helgason
og Jóhann Þorkelsson. Vann
nefndin starf sitt af mestu prýði,
og virtust allir ánægðir með dag-
inn.
___*_____
Samnorræna
sundkeppnin
Þátttakan í sundkeppninni er
enn of dræm hér á Akureyri. Þar
höfðu aðeins 600 Akureyringar
synt s.l. laugardag, og var Lárus
J. Rist 600. þáttlakandinn hén
í sambandi við keppnina verð-
ur bæjakeppni í henni milli Akur-
eyrar, Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar, og verður keppt um verð-
launagrip, sem sá þessara þriggja
bæja hlýlur, er sýnir hlutfallslega
mesta þátttöku í norrænu keppn-
inni.
Forsetahjónin
koma á sunnudag
Forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, og forsetafrúin, frú
Dóra Þórhallsdóttir, koma í opin-
bera heimsókn til bæjarins á
sunnudaginn kemur. Verður op-
inber móttökuathöfn í Lystigarð-
inum klukkan 4 um daginn, er
hefst með leik lúðrasveitarinnar.
Þá syngja karlakórarnir tvö lög
og forseti bæjarstjórnar ávarpar
forsetahjónin. Athöfninni lýkur
með þjóðsöngnum. Bregðist veð-
ur verulega, mun athöfnin fara
fram í Samkomuhúsinu.
___*___
Sauðburður gettk vel í
Fljótum, - nerno d
einum bte
Saurbæ í Fljótum 12. júní.
Hér sem víðast hefir vor þetta
verið mjög gott. Tíðarfar mjög
hagstætt, beint áframhald af hinu
óvenju góða tíðarfari á und-
angengnum vetrarmánuðum. —
Sauðburður gekk hér með albezta
móti. All-víðast er helmingur og
á sumum bæjum tvær af hverjum
þrem ám tvílemdar. Má það heita
góð útkoma, þegar lambadauði er
lítill. Til eru bæir hér, sem hafa
nálega allar fullorðnar ær með
tveim lömbum. Þó er hér einn
bær undanskilinn þessum góðu
fénaðarhöldum, — Tunga í Stíflu
—. Þar hafa ær látið um 60
lömbum á þessu vori, og er tjón
bóndans bæði mikið og illt, þar
sem ær hans voru fóðraðar með
afbrigðum vel og miklar hey-
birgðir af góðu fóðri. Álít ég, að
það væri ekki vanþörf á, að Bún-
aðarfélag íslands léti ráðunauta
sína snúa sér að þeirri hlið bún-
aðar, sem að fóðurrannsóknum
lýtur. Svo mjög eiga bændur af-1
komu sína undir því, að fóður-
gæði séu í réttum hlutföllum við
fóðurþörf á hverjum tíma.
Grasspretta er hér ágæt, og mun
heyskapur byrja hér með fyrsta
móti.
/. G.
___*___
Látinn:
jóBfls Gunnarsson
byggingameistari
til heimilis að Hamarstíg 4 hér í
bæ, lézt hér í sjúkrahúsinu 18. þ.
m. áttræður að aldri. Verður hans
nánar minnst síðar hér í blaðinu.
sveit, og þaðan bárust hvatningar-
orð til bæjarbúa um almenna þátt-
töku í hátíðahöldunum ásamt
óskum árs og friðar. Feðurnir
leiddu börn sín urn miðbæinn
meðan mæðurnar luku morgun-
verkum, og var þá víða s'.aðnæmzt
við glugga verzlananna, sem víð-
ast voru smekklega skreyttir.
Klukkan 10 fyrir hádegi fór
fram guðsþjónusta í kirkjunni, og
prédikaði þar séra Björn O.
Björnsson.
Klukkan 1.45 e.h. hófst skrúð-
ganga af Ráðhústorgi, en áður
göngunni, og gekk sveitin síðan í
fararbroddi og lék ættjarðar- og
göngulög. Áætlað er, að um 3
þús. manna liafi verið í skrúð-
göngunni, og er það meira fjöl-
menni en hér hefir sézt. Ýms fé-
lagasamlök báru þar fána sína,
en börnin báru litla fána á stöng.
Staðnæmdist fylkingin á túninu
sunnan við sundlaug bæjarins, en
þar fór fyrri hluti hátíðarinnar
fram.
Fyrst fór þar fram fánahylling,
en Lúðrasveitin lék og karlakórar
bæjarins sungu. Þá setti formaður
Þing ungra Sj álfstæðismanna
á Norðurlandi
t
Sigurjón Sumnrliðnson
fyrrv. póstur
. *
aigurjon bumarliðason, fyrrum
landpóstur og bóndi að Ásláks-
stöðum í Kræklingahlíð, andaðist
að heimili sínu, Munkaþverár-
stræti 3 hér í bæ, þann 9. maí s.l.
86 ára að aldri, og var borinn til
moldar að Lögmannshlíð 22. s.m.
Sigurjón var fæddur að Sæl-
ingsdalstungu í Dölum vestur 10.
nóv. 1867, og voru foreldrar hans
Guðrún Sigurðardóttir frá Vatns-
horni í Dalasýslu og Sumarliði
Guðmundsson póstur, f. að Hróð-
nýjarstöðum í sömu sýslu, en bjó
síðast að Kjarna við Akureyri.
Sumarliði hafði á hendi póst-
ferðir milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar á árunum 1882—85 en síð-
an á leiðinni Staður—Akureyri
fram yfir aldamót, en á árunum
1872—82 hafði hann annazt póst-
ferðir vestanlands.
Sigurjón tók ungur að fara
póstferðir með föður sínum og
fór þær með honum öðru hverju
eða fyrir hann allt fram yfir alda-
mót, nema um fimm ára skeið, er
hann dvaldi í Ameríku. Er faðir
hans hætti (árið 1902) tók Sigur-
jón við póstferðunum milli Stað-
ar og Akureyrar og annaðist þær
fram til ársins 1916.
Því var jafnan viðbrugðið, hve
Sigurjón álti valda pósthesta, hve
annt hann lét sér um þá á ferðun-
um, svo sem að ala þá vel og of-
bjóða þeim ekki, og hve hann
vandaði allan útbúnað og farar-
reiða. Mátti að vísu segja, að
þessa kosti hefði hann að nokkru
erft frá föður sínum, sem þótti
flestum póstum fremur fara vel
með hesta sína, en báðir voru þeir
feðgar harðfengir dugnaðar-
menn og óhlífnir við sjálfa sig.
Póstferðir þeirra gengu jafnan
farsællega, enda um flesta hluti