Íslendingur


Íslendingur - 23.06.1954, Qupperneq 1

Íslendingur - 23.06.1954, Qupperneq 1
XL. árgangur Miðvikudagur 23. júní 1954 27. tbl. 0. júnl lÉíðáölh il Ahureyri mtí gMtðostii móti Fjölmennari skrúðganga mun ekki hafa sézt hér Aldrei mun hafa verið fegurra að lita yfir Akureyrarbæ en að morgni 17. júní s.l. Þjóðhátíðanefnd hafði unnið kappsamlega að því að prýða miðbæinn, þar sem meginhluti hátíðahaldanna skyldi fram fara, og bæjarbúar sjálfir gert sér mjög far um að snyrta kringum heimili sín. Morgunsólin skein í heiði yfir fánahafið, cr bylgjaðist fyrir hægum andvara, og skrautveifur skipanna í höfn- inni spegluðust í sléttum „Pollinum“. Klukkan 8 að morgni þeyttu skip í höfninni flautur sínar í eina mínútu, en blómum skreyttur vörubíll ók um bæinn með hljóm- 3. þing Fjórðungssambands ungra Sjálfstæðismanna á Norð- urlandi var háð að „Varðborg“ hér í bænum s.I. laugardag. Þing- ið sátu 30 fulltrúar frá fleslum fé- lögum innan samtakanna. For- maður Fjórðungssambandsins, Vignir Guðmundsson, se'.ti þingið og gerði grein fyrir þeim verkefn- um, sem fyrir lægju. Rakti hann síðan störf stjórnarinnar frá síð- asta fjórðungsþingi. Á þinginu urðu fjörugar um- ræður um skipulagsmál samtak- anna og samþykktar ýtarlegar á- lyktanir varðandi þau efni til sljórnarinnar. Þá urðu og um- ræður um stjórnmálaviðhorfið og samþykkt ályktun ' um afstöðu þingsins til helztu málanna. í Iok fundarins var gengið til stjórnarkjörs. í aðalstjórn voru kjörnir: Jónas G. Rafnai', Ak., formaður Björn Elíasson, Dalvík Haraldur Árnason, Skagafirði Jón ísberg, Blönduósi Magnús Stefánsson, Ólafsfirði Sigurður Jónasson, Akureyri Vignir Guðmundsson, Ak. hafði Lúðrasveit Akureyrar leik- ið þar um hríð undir stjórn Jak- obs Tryggvasonar, meðán fólk safnaðist þar saman til þáttlöku í Varastjórn skipa: Haraldur Þórðarson, Ólafsfirði Kristján Pálsson, Eyjafirði Magnús Björnsson, Akureyri Ragnar Steinbergsson, Ak. Stefán Friðbjarnarson, Sigluf. Þá ávarpaði Jónas G. Rafnar fundarmenn og þakkaði fráfar- andi stjórn. Ræddi hann urn helztu viðfangsefni núverandi rík- isstjórnar og þá forustu, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði haft í stj órnmálunum undanfarandi ár. Hvatti hann unga Sjálfstæðis- menn til þess að auka starfsemi sína og vinna ölullega að því að efla fylgi Sjálfstæðisflokksins. Þakkaði hann síðan öllum þing- fulltrúum fyrir komuna og óskaði þeim fararheilla. Þingforseti var Jón ísberg, Blönduósi, og Ragnar Steinbergs- son, Akureyri, ritari. Meðal ungra Sjálfstæðismanna á Norðurlandi ríkir nú mikill á- hugi fyrir því að auka starfsem- ina og efla sem mest félagslifið. Hefir stjórn samtakanna ýmislegt í undirbúningi í þeim efnum. hátíðanefndar, Jón Norðfjörð, hátíðina, en frú Sigríður Matt- híasdóttir flutti ávarp Fjallkon- unnar eftir Stefán Ág. Kristjáns- son. Jónas G. Rafnar alþm. flutti þvímæst fullveldisræðu og Áslaug Eiríksdóttir stúdent minni Jóns Sigurðssonar. Að lokum flutti Davíð Stefánsson skáld ávarp i ljóðum. Milli ræðna og ávarpa lék lúðrasveitin og kórarnir sungu. Kl. 5 e.h. fór síðari hluti 17.- júní-mótsins frain á íþróttasvæð- inu á Oddeyri, og var þar margt áhorfenda. Kl. 8.30 um kvöldið hófst síð- ari hluti hátíðahaldanna á Ráð- hústorgi. Þar lék lúðrasveitin og kórarnir sungu. Heiðrekur Guð- mundsson skáld las kvæði, Jón Norðfjörð söng gamanvísur, Ein- ar Kristjánsson og Vignir Guð- mundsson fluttu gamanþætti, nokkrir Þingeyingar sýndu ís- lenzka glfmu og sýndir voru þætt- ir úr Skugga-Sveini. Að lokum var dansað umhverfis torgið til kl. 2 e.m.n., en á miðnætti var skotið flugeldum. Þá hafði Nýja- Bíó kvikmyndasýningar á hálf- tíma fresti frá kl. 9—-12. Þjóðhá- tíðarnefndir Akureyrar og Reykjavíkur skiptust á kveðjum og heillaóskum. Mjög lítið bar á vínneyzlu. Veður var hið bezta um kvöldið, svo að ekki blakti hár á höfði. Þjóðhátíðarnefnd skipuðu: Jón Norðfjörð, Hermann Stefánsson, Magnús Björnsson, Páll Helgason og Jóhann Þorkelsson. Vann nefndin starf sitt af mestu prýði, og virtust allir ánægðir með dag- inn. ___*_____ Samnorræna sundkeppnin Þátttakan í sundkeppninni er enn of dræm hér á Akureyri. Þar höfðu aðeins 600 Akureyringar synt s.l. laugardag, og var Lárus J. Rist 600. þáttlakandinn hén í sambandi við keppnina verð- ur bæjakeppni í henni milli Akur- eyrar, Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar, og verður keppt um verð- launagrip, sem sá þessara þriggja bæja hlýlur, er sýnir hlutfallslega mesta þátttöku í norrænu keppn- inni. Forsetahjónin koma á sunnudag Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, og forsetafrúin, frú Dóra Þórhallsdóttir, koma í opin- bera heimsókn til bæjarins á sunnudaginn kemur. Verður op- inber móttökuathöfn í Lystigarð- inum klukkan 4 um daginn, er hefst með leik lúðrasveitarinnar. Þá syngja karlakórarnir tvö lög og forseti bæjarstjórnar ávarpar forsetahjónin. Athöfninni lýkur með þjóðsöngnum. Bregðist veð- ur verulega, mun athöfnin fara fram í Samkomuhúsinu. ___*___ Sauðburður gettk vel í Fljótum, - nerno d einum bte Saurbæ í Fljótum 12. júní. Hér sem víðast hefir vor þetta verið mjög gott. Tíðarfar mjög hagstætt, beint áframhald af hinu óvenju góða tíðarfari á und- angengnum vetrarmánuðum. — Sauðburður gekk hér með albezta móti. All-víðast er helmingur og á sumum bæjum tvær af hverjum þrem ám tvílemdar. Má það heita góð útkoma, þegar lambadauði er lítill. Til eru bæir hér, sem hafa nálega allar fullorðnar ær með tveim lömbum. Þó er hér einn bær undanskilinn þessum góðu fénaðarhöldum, — Tunga í Stíflu —. Þar hafa ær látið um 60 lömbum á þessu vori, og er tjón bóndans bæði mikið og illt, þar sem ær hans voru fóðraðar með afbrigðum vel og miklar hey- birgðir af góðu fóðri. Álít ég, að það væri ekki vanþörf á, að Bún- aðarfélag íslands léti ráðunauta sína snúa sér að þeirri hlið bún- aðar, sem að fóðurrannsóknum lýtur. Svo mjög eiga bændur af-1 komu sína undir því, að fóður- gæði séu í réttum hlutföllum við fóðurþörf á hverjum tíma. Grasspretta er hér ágæt, og mun heyskapur byrja hér með fyrsta móti. /. G. ___*___ Látinn: jóBfls Gunnarsson byggingameistari til heimilis að Hamarstíg 4 hér í bæ, lézt hér í sjúkrahúsinu 18. þ. m. áttræður að aldri. Verður hans nánar minnst síðar hér í blaðinu. sveit, og þaðan bárust hvatningar- orð til bæjarbúa um almenna þátt- töku í hátíðahöldunum ásamt óskum árs og friðar. Feðurnir leiddu börn sín urn miðbæinn meðan mæðurnar luku morgun- verkum, og var þá víða s'.aðnæmzt við glugga verzlananna, sem víð- ast voru smekklega skreyttir. Klukkan 10 fyrir hádegi fór fram guðsþjónusta í kirkjunni, og prédikaði þar séra Björn O. Björnsson. Klukkan 1.45 e.h. hófst skrúð- ganga af Ráðhústorgi, en áður göngunni, og gekk sveitin síðan í fararbroddi og lék ættjarðar- og göngulög. Áætlað er, að um 3 þús. manna liafi verið í skrúð- göngunni, og er það meira fjöl- menni en hér hefir sézt. Ýms fé- lagasamlök báru þar fána sína, en börnin báru litla fána á stöng. Staðnæmdist fylkingin á túninu sunnan við sundlaug bæjarins, en þar fór fyrri hluti hátíðarinnar fram. Fyrst fór þar fram fánahylling, en Lúðrasveitin lék og karlakórar bæjarins sungu. Þá setti formaður Þing ungra Sj álfstæðismanna á Norðurlandi t Sigurjón Sumnrliðnson fyrrv. póstur . * aigurjon bumarliðason, fyrrum landpóstur og bóndi að Ásláks- stöðum í Kræklingahlíð, andaðist að heimili sínu, Munkaþverár- stræti 3 hér í bæ, þann 9. maí s.l. 86 ára að aldri, og var borinn til moldar að Lögmannshlíð 22. s.m. Sigurjón var fæddur að Sæl- ingsdalstungu í Dölum vestur 10. nóv. 1867, og voru foreldrar hans Guðrún Sigurðardóttir frá Vatns- horni í Dalasýslu og Sumarliði Guðmundsson póstur, f. að Hróð- nýjarstöðum í sömu sýslu, en bjó síðast að Kjarna við Akureyri. Sumarliði hafði á hendi póst- ferðir milli Reykjavíkur og Akur- eyrar á árunum 1882—85 en síð- an á leiðinni Staður—Akureyri fram yfir aldamót, en á árunum 1872—82 hafði hann annazt póst- ferðir vestanlands. Sigurjón tók ungur að fara póstferðir með föður sínum og fór þær með honum öðru hverju eða fyrir hann allt fram yfir alda- mót, nema um fimm ára skeið, er hann dvaldi í Ameríku. Er faðir hans hætti (árið 1902) tók Sigur- jón við póstferðunum milli Stað- ar og Akureyrar og annaðist þær fram til ársins 1916. Því var jafnan viðbrugðið, hve Sigurjón álti valda pósthesta, hve annt hann lét sér um þá á ferðun- um, svo sem að ala þá vel og of- bjóða þeim ekki, og hve hann vandaði allan útbúnað og farar- reiða. Mátti að vísu segja, að þessa kosti hefði hann að nokkru erft frá föður sínum, sem þótti flestum póstum fremur fara vel með hesta sína, en báðir voru þeir feðgar harðfengir dugnaðar- menn og óhlífnir við sjálfa sig. Póstferðir þeirra gengu jafnan farsællega, enda um flesta hluti

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.