Íslendingur


Íslendingur - 23.06.1954, Side 5

Íslendingur - 23.06.1954, Side 5
MiÖvikudagur 23. júrú 1954 ISLENDINGUR gamall missti hann móður sína og 9 ára gamall fluttist hann norður í Eyjafjörð með föður sínum, Jóhanni Rist, sem lengst af bjó á Botni í Hrafnagilshreppi. Á unglingsárunum var Lárus fremur óframfærinn og hlédræg- ur, en undir niðri bjó í honum útþrá og lifandi framfarahugur. Þótt efnahagurinn væri þröngur, braut hann sér leið til farsællar menntunar innanlands og utan, og 27 ára gamall hafði hann í Kaupmannahöfn lokið kennara- prófi í leikfimi og sundi. Upp úr því hófst hið mikla og ósérplægna siarf hans hér á Akureyri. — Hann hefir ritað æviminningar sínar, merka bók, sem allir hafa gott af að kynna sér, bæði til skemmtunar og fróðleiks. Allir rosknir menn og konur hér um slóðir minnast þess, þegar Lárus synti á skömmum tíma yfir Odd- eyrarál, í öllum sjóklæðum, en varpaði þeim af sér smám saman á leiðinni. Hann hefir aldrei vilj- að kalla það neitt afrek, enda var tilgangurinn ekki sá, heldur vildi hann aðeins sýna, hve mikils heil- brigð þjálfun og kunnátta má sín. Hann hefir líka ævinlega brýnt það fyrir æskulýðnum, að forðast beri allt ofurkapp og metasýki. Lárus hefir reynt bæði meðlæti og mótlæti á langri ævi. Hann missti ástríka og mikilhæfa konu sína frá stórum barnahóp eftir tíu ára sambúð, og síðar tvo eink- ar vel gefna syni á bezta aldri. Hann er tilfinningamaður, og ást- vinamissirinn hlaut að beygja hann nokkuð um skeið, en karl- mennska hans og bjartsýni hafa alltaf fleytt honum yfir örðug- leikana. Nú eru liðin 19 ár, síðan Lárus kvaddi Akureyri og settist að á Suðurlandi. Hann hefir alla ævi borið lilýhug til æskustöðvanna og kunnað þar vel við sig. í mörg ár vann hann ágætt starf í Hvera gerði, en síðustu árin hefir hann dvalizt hjá börnum sínum þar syðra. Þó á Akureyri enn mikil og góð ítök í Lárusi. Hann kemur við og við norður og dvelst hér um tíma, lítur inn til vina og vandamanna, rifjar upp með þeim gamlar minningar og spjallar um daginn og veginn — alls staðar aufúsugestur. Við, sem þekkt höfum Lárus frá barnæsku, kynnzt starfi hans og lært að meta það,.óskum hon- um allra heilla og að hann eigi enn eftir að heimsækja oft Akur- eyri og Eyjafjörð. /. R. íþróttabandalag Akuieyrar gekkst fyrir því í tilefni af afmæli Lárusar að 300 trjáplöntur væru keyplar og gefnar til gróðursetn- ingar að Botni. Á fimmtudagskv. 24. þ. m. verður farið fram eftir og plönturnar gróðursettar. Farið verður frá Hótel KEA kl. 7.20. ___*_____ Frá Ferðafélagi Akureyrar. Næstu kvöldferðir félagsins verða á miðviku- dag 23. júní n.k. að Dalvík og Karlsá og viðvikudag 30. júní Fnjóskárdalur og Svalbarðsströnd (hringferð. Farið verður frá Stefni kl. 8.00 um kveldið. Farmiða verður að taka fyrir kl. 5.00 eftir hádegi. Jónas G. Rafnar, alþingismaður: »Óshaban íslands« Fullveldisræða flutt á 10 ára afmælishátíð lýðveldisins Þjóðir, sem endurheimt hafa sjálfstæði sitt, eftir að hafa búið við erlenda áþján, um lengri eða skennnri tíma, minnast þess venju lega árlega á hátíðlegan hátt. Þannig er því einnig farið um okkur íslendinga — og við minn- umst sjálfstæðisbaráttunnar og fullveldisins á fæðingardegi mannsins, sem mest kemur við sögu í frelsisbaráttunni og drýgst- an átti hlutinn í, að árangur náð- ist. íslenzka lýðveldið var form- lega stofnað á Alþingi þann 17. júní árið 1944, á fæðingardegi Jóns forseta Sigurðssonar. Með vali þess dags vildi þjóðin enn einu sinni, og um alla framtíð, færa Jóni Sigurðssyni þakkir sín- ar fyrir ævilangt starf, sem helgað var íslenzku fólki og íslenzkum málstað. Minningin um Jón Sig- urðsson getur aldrei orðið nógu rík með þjóðinni. Það færi því vel á því, að komandi kynslóðir íslendinga rifjuðu upp fyrir sér æviferil hans og störf í hvert skipti, sem þær fagna fullveldinu. Betra fordæmi getur enginn ís- lendingur haft fyrir augunum í I.'fsbaráttunni, hvort heldur er í blíðu eða stríðu. Það er mesta gæfa hverrar þj óð ar að eiga mikilhæfa forvígis- menn á örlagastundu. Hjá Jóni Sigurðssyni voru flestir þeir eig- inleikar sameinaðir, sem gert gátu einn mann hæfan til forustu. Elju- semi hans, gáfur, glæsimennska og ekki sízt bjargföst trú hans á ríki með framtíðina brosandi við ser. Ég held, að við lestur íslands- sögunnar verði öllum hugstæð barátta Jóns biskups Arasonar gegn erindrekum konungsvalds- ins, sem með valdi vildu knýja landsmenn lil sinnaskipta í trú málum. Andstaða Jóns biskups og þeirra, er honum fylgdu að málum, var að því leyti sjálfstæð- isbarátta, að hún beindist að því að íslendingar mættu halda trú feðra sinna óáreittir af dönsku valdboði. Eftir fall biskups færð- ist danska valdið óðfluga í auk- ana, sölsaði undir sig beztu jarð- eignirnar í landinu og herti yfir- leitt alls staðar tökin eins og sag- an greinir Ijóslega frá. Döprustu áfangarnir í þeirri sorgarsögu eru tengdir við árin 1602, er öll verzlun landsmanna var hneppt í þrældómsfjötra og árið 1660, er íslendingar með erfðahyllingunni í Kópavogi voru kúgaðir til þess að gangast skilyrðislaust undir arfgengt einveldi Danakonungs. Fyrst upp úr miðri 18. öld er gerð tilraun af mætum mönnum, eins og Skúla landfógeta Magnús- syni, Eggert Ólafssyni og Magnúsi Gíslasyni, fyrsta íslenzka amt- manninum, til þess að rétta við atvinnuvegina, sem komnir voru í hina mestu niðurlægingu, og hrinda af verzlunarokinu. Enda þó!t sú barátta hæri ekki tilætlað- an árangur, er hún þó með merk- ustu þáttunum í sjálfsbjargarvið leitni þjóðarinnar á liðnum ár- öllum örðugleikum bauð byrgin. Á hátíðisdögum, sem 17. júní, hlýtur hugurinn að hvarfla að liðnum atburðum í sögu þjóðar- innar. Margs er að minnast, bæði skins og skúra. í stuttri ræðu, sem þessari, er ekki unnt að gera bar- áltu þjóðarinnar fyrir frelsi sínu — og ég vil segja lífi — nokkur veruleg skil. Aðeins hægt að stikla á nokkrum atriðum og á- föngum. Vandasamt er að velja og hafna, þar sem svo margt kem- ur til greina og margir eiga hlut að máli. En eitt verðum við að hafa hugfast, þegar litið er yfit söguna, að á bak við alla atburð- ina, sem í frásögur þykja fær- andi, og mennina, sem hæst ber og ljóminn stendur af, er hin hljóðláta lífsbarátta alþýðunnar til sjávar og sveita, fólksins, sem aldrei gafst upp, á hverju sem gekk. Án baráttu þessa fólks, allra þessara mörgu einstaklinga í gegnum aldirnar, væri ísland nú ekki í dag sjálfstætt menningar- máls'að og framtíð þjóðarinnar, | um, og fyrsta raunhæfa skrefið í tryggðu fremur en nokkuð ann-. þá áttina að bægja burtu erlendu að sigurinn í Sjálfstæðisbarátt-1 ofurvaldi, sem hugsaði um það unni. Hans verður því jafnanjeitt að mata krókinn á kostnað minnst sem brautryðjandans, er landsmanna. Skúli Magnússon var atorkumaður, með næman skiln- ing á þörfum íslenzkra atvinnu- vega. Hann vildi auka útgerðina, efla landbúnaðinn og koma upp verksmiðjum, sem ynnu úr ís- lenzkum afurðum. Hann barðist fyrir því af alefli að fá verzlunar- háttunum og fyrirkomulaginu breytt, sem saug merginh úr þjóð inni og arðrændi á allan hátt. Hugsjón hans var blómlegt at- hafnalíf á Islandi, sem gerði þjóð inni fært að búa sem mest að sínu og standa á eigin fótum. — íslendingar munu því jafnan minnast Skúla fógeta með virð- ingu og þakklæti. Fyrir miðja 19. öldina fer vakningaralda Fjölnismanna eins og vorhlær um landið. Henni fylgir vaxandi trú á landið og á- kveðin og einörð krafa um aukið sjálfsforræði. Um það leyti verð- ur vart frelsis- og þjóðernishreyf- inga í öllum löndum Evrópu, og skilningur margra valdamanna fyrir rétti og tilveru smáþjóð- anna glæðist. Þessi breyttu við- horf hafa einnig sín áhrif hér á landi, þótt fjarlægt væri umheim- inum og langt á eftir þróuninni í flestum greinum. Næstu áfang- arnir á öldinni verða endurreisn Alþingis árið 1843, er það fær ráðgefandi vald, þjóðfundurinn í Reykjavík 1851, er markaði stefn- una, og svo að lokum gildistaka stjórnarskrárinnar 1874, en með henni færðist löggjafarvaldið í hendur Alþingis og konungs sam- eiginlega, og staðfesting fæst á skiptum fjárhag á milli íslands og Danmerkur. Eftir aldamótin ber þrjá at- burði hæst í sjálfstæðisbarátt- unni, og er þá öllum ljóst, að hverju stefnir. Árið 1904 kemur fyrst ábyrg, innlend stjórn með ráðherra búsettum í Reykjavík. Var fimmtíu ára afmælis þess merkisatburðar minnst á síðast- liðnum vetri. Með Sambandslög- unum 1918 verður ísland frjálst og fullvalda ríki, aðeins í kon ungssambandi við Danmörku, og 26 árum síðar, þann 17. júní 1944, er lokatakmarkinu náð með stofnun lýðveldisins. Ég hefi nú aðeins drepið á nokkra atburði, sem talizt geta með hæstu tindunum í sjálfstæð- isbaráttunni. Allir eiga þeir sér sinn aðdraganda, misjafnlega langan, og sína baráttu. Þar koma margir við sögu, nöfn, sem þjóð- in þekkir og metur að verðleik- um. En ótaldir eru þeir menn og konur, sem með atorku sinni og skínandi fordæmi blésu kjarki í landslýðinn, er erfiðast horfði, og flestar bjargir virtust bannað- ar. Það fer ekki hjá því, að sá, sem kynnir sér sögu þjóðarinnar, undrist yfir, og dáist að, hinni ó- drepandi seiglu íslendingsins. Hvað eftir annað gerast atvik, sem virðast ætla að ríða lands- fólkinu að fullu, eða að minnsta kosti þurrka út menningarlíf á ís- landi. Annálar og ótal aðrar heim ildir skýra frá náttúruhamförum, eldgosum og hafís, sem valda felli búpenings og hungursneyð meðal landsmanna, og skæðar drepsóttir eyða heilum byggðarlögum. En þrátt fyrir allar þessar hörmung- ar, sem skilningsleysi og ónytj- ungsháttur erlendra valdhafa ger- ir enn þungbærari, lifir þjóðin og teygar af nægtabrunnum fornrar menningar og bókmennta. Um það hefir aldrei verið deilt, að Jón Sigurðsson væri sá mað- urinn, sem mestan og beztan þátt- inn hafi átt í því, að árangur náð- ist í sjálfstæðisbaráttunni. Um Jón Sigurðsson, forseta, má segja, að hann hafi verið frábær gáfu- og hæfileikamaður. Og hann not- aði þessar guðsgjafir til þess að vinna fyrir málstað þjóðar sinn- ar og framtíð. í því starfi var Jón Sigurðsson alla ævina heill og ó- skiptur. Engin fórn var honum of mikil, ef hagur og velferð íslands var annars vegar. Með undra- verðri elju og skarpskyggni rann- sakaði hann sögu íslands, kynnti sér allar heimildir, sem haft gætu þýðingu fyrir réttarstöðu lands- ins, og skipulagði sóknina fyrir endurheimt sjálfstæðisins. Eins og góðum málflutningsmanni samir studdi hann allar kröfm' íslendinga á hendur Dönum með rökum. Jón Sigurðsson var hvorki slagorðanna né tilfinninganna maður, ef svo má að orði komast, heldur rakanna maður. Hann skýrði sitt mál með ljósum orð- um, studdi sínar staðhæfingar með tilvitnunum í ótal heimildir og ályktaði skýrt og raunhæft. Það þarf enginn að blaða lengi í ritum Jóns Sigurðssonar til þess að komast að raun mn, hversu óvenju fjölhæfur og fróð- ur maður er þar á ferðinni. Og hann virðist sjá lengra fram í tímann — skynja nálægð atburð- anna — en flestir aðrir samtíðar- menn hans. Hann þekkir þá menn, sem við er að eiga, og veit hvaða tök á að nota. í Nýjurn Félagsritum, sem út komu skömmu eftir endurreisn Alþingis, er grein eftir Jón Sig- urðsson, sem nefnist „Alþingi á íslandi“. í grein þessari kemur skýrt fram viðhorf hans til flestra þeirra mála, er þá voru efst á

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.