Íslendingur - 23.06.1956, Blaðsíða 2
2
f SLENDINGUR
Laugi'rdagur 23. júni 1956
Hræðslubandalaás-
menn hafa ^efizt upp
Játa, að þeir thafi engin úrræði til að leysa
efnahagsvandamálin
Standa afhjupaðir sem ráðþrota og rökvana menn
Aldrei hafa flokkar gengið til
kosninga af sliku yfirlæti og með
jafn skrumkennd glamurvrði á
vörum og þeir tveir flokkar, sem
nú ganga sameinaðir til kosninga
undir nafninu „bandalag umbóta-
flokkanna“, en sem þjóðin hefir
gefið nafnið „hræðslubandalag-
ið“. Nú skyldi „brotið blað i
stjórnmálasögunni“, eins og
„Tíminn“ komst að orði, þegar
hann birti hirn volduga málefna-
samning og AlþýðublaÖið berg-
málaði grobbyrði stóra bróður.
011 vandamál þjóðarinnar skyldu
leyst, ef hún aðeins félli fram og
tilbæði þá Hermann, Harald og
Gylfa. Þá skyldi þjóðin fá að
upplifa að nýju blómaskeiÖ
framsóknar-kratismans frá árun-
um 1934—1939, og hvarvetna
skyldu föðurlegar nefndir þjóð-
hollra Framsóknarmanna og
krata gæta þess, að almenningur
væri ekki arðrændur af hröskur-
um og fjárplógsmönnum. Þetta
var sannarlega fallegur boðskap-
ur.
Þjóðin lætur sér ekki
glamuryrðin nægja.
En nú hófst mikið raunatíma-
bil fyrir foringja hræðslubanda-
lagsins, og það hefir staðið óslit-
ið í tvo mánuði.
Þjóðin var sem sé svo hláleg
að heimta nánari skýringar á hin-
um glæsilega málefnasamningi og
bar fram ýmsar óþægilegar
spurningar um það, hvernig „um-
bótamennirnir“ ætluðu að fram-
kvæma umbæturnar. Það var nú
verri sagan. Um þá hlið málsins
hafði prófessor Gylfi og aðrir
spekingar hræðsluhandalagsins
ekki talið nauðsynlegt að hugsa.
Þeir höfðu haldið, að nóg væri
að mála húsið að utan með fall-
egum litum, en ekki komið til
hugar að fólk sýndi þeim þá á-
gengni að viija líka skoði húsið
að innan. Og nú hófst undan-
hald „umbótamannanna“.
Ertgin lausn
efnahagsmólanna.
Aðaltilgangur hins nýja banda-
lags átti að vera að leysá efna-
hagsmálin, sem „Tíminn“ Ivsti vf-
ir, að ómögulegt væri að leysa
nema með hinum dugmiklu for-
ingjum Alþýðuflokksins. Á því
sviði skyldi fyrst og fremst „brot-,
ið blað“ og tekin upp alveg ný
stefna, er leysa skyldi efr.ahags-1
málin „til írambúðar“. Þessi1
stefnuyfirlýsing vakti eðlilega
mikla eftirtekt, ekki sízt fyrir þa
sök, að ekki er vitað um neina I
þjóð, sem hefir fundið einhverja
varanlega lausn á efnahagsvanda-
málum sínum.
Allir vita, að aðalvandinn á
sviði efnahagsmálanna er sá, að
útflutningsframleiðslan rís ekki
undir tilkostnaðinum, og því hef-
ir orðið að grípa til uppbóta i
vaxandi mæli. Þeir, sem ætluðu
sér að umskapa efnahagskerfið,
urðu því fyrst og fremst að levsa
þennan hnút. „Umbótamennirn-
ir“ voru því spurðir: Hvernig
ætlið þið að koma útflulnings-
framleiðslunni á reksturshæfan
grundvöll?
Fyrst var svarað með vífilengj-
um, en þjóðin lét sér þær ekki
nægja, og að lokum neyddust
„umbótamennirnir“ til þess að
játa, að í málejnasamningnum
vœri ekki að jinna neina lausn á
ejnahagsmálunum.
Það á að
tala saman.
Þannig hrundi aðalskrautaug-
lýsingin. En nú var hörfað í nýja
varnarstöðu. Ætlunin var sem sé
sú að ræða um það ejtir kosning-
ar, hvað ætti að gera í efnahags-
málunum, og úr því að talsmenn
hinna vinnandi stétta við'sjó og í
sveit hefðu sameinast um hræðslu-
bandalagið, þá hlyti að verða góð
aðstaða til þess að ná samkomu-
lagi.
Hvílíkur harnaskapur. Fram-
sóknarflokkurinn er allra flokka
verst liðinn við sjávarsíðuna og
Alþýðuflokkurinn verst liðinn í
sveitunum, og þó eiga þessir
flokkar að vera hæfastir til þess
að sameina bændur og verkafólk
um lausn á erfiðustu ágreinings-
efnum þjóðfélagsins. Við bætist
svo það, að Alþýðuflokkurinn
ræður engu í verkalýðshrevfing-
unni nema í þeim verkalýðsfélög-
um, þar sem hann er studdur af
Sjálfstæðismönnum. .
Osennilegt er, að nokkur mað-
ur trúi slíkri fjarstæðu, jafnvel
ekki stofulærðir hagfræðingar.
Þarna kom enn stór skella í
skrautmálninguna.
Það ó að
skipuleggja.
Þriðja víghnan. Það á þó að
minnsta kosti að skipuleggja og
setja upp eftirlit, sögðu „umbóta-
mennirnir“.
Jú, mikið létt. Þarna voru pró-
fessorarnir komnir á rétta hillu
og hér var komið að sérgrein Al-
þýðuflokksins. Það á að setja á
stofn nefndir — óteljandi nefnd-
ir. Hvað skyldi annars mörgum
forkólfum hræðslubandalagsflokk-
anna, sem hafa verið þungir í
tauminn fyrir þessar kosningar,
hafa verið heitið nefndaistörf-
um?
Þjóðin efar ekki, að þ3rna er
komið að alriði, sem á að fram-
kvæma, og sennilega er þetta eina
atriði málefnasamningsins, sein
gengið verður með dugnaði að
og sennilega framkvæmt rækileg-
ar en heppilegt þykir að auglýsa.
Þjóðin jiekkir höjt og ntjnda-
jargan þessara jloklta og jrábiður
sér slíka nýsköpun.
Og þá var jafnvel hörfað úr
þessari víglínu. Það var byrjað
að skamma Sjálfstæðisflokkinn
fyrir það, hversu óhæfileg höft
væru nú á verzlunarfrelsi og at-
hafnafrelsi landsmanna. Svo mik-
il var hræðsla hræðslubandalags-
ins við andúð þjóðarinnar á höft-
um og nefndavaldi. .
Síðasta vígið.
Fjórða og síðasta víglínan. Það
á þó áreiðarJega ekki að hætta
við framkvæmd þeirra framfara-
mála, sem unnið hefir verið að af
núverandi rikisstjórn. Ja, mikiö
var.
Við skulum ekki svíkjast um
að halda áfram rafvæðingunni..
aðstoð við húsabyggingar, efl-
ingu fiskveiðiflotans, ræktun
Iandsins og önnur umbótamál,
sem af stórhug og myndarskaD
hefir verið nnnið að undir for-
ustu Sjálfstæðisflokksins.
Gefið okkur bara
völdin.
Og eftir að hafa þannig ger-
samlega gefizt upp við málefna-
iegar rökræður og hin fallega
spilaborg er hrunin ofan á for-
ingja hræðslubandalagsins, kveina
þeir hástöfum: Það er að vísu
satt, að við vitum ekki ennþá
hvernig við ætlum að leysa vanda-
mál þjóðarinnar, en gefið okkur
samt völdin, því að Hermann og
Gylfa langar svo dæmalaust mik-
ið til að verða ráðherrar, og þeir
hljóta að finna einhver úrræði, ef
þeir leggja saman — eftir kosn-
Völdin
aðalbaróttumálið.
Það hefir með degi hverjum
komið æ Ijósar fram, að málefn-
in eru hræðslubandalagsmönnum
aukaatriði. Aðalbaráttumálið er
að ná völdunum í landinu. „Um-
bótamennirnir“ Hermann, Har-
aldur og Gylfi hafa að vísu ekki
trú á því, að þjóðin veiti þeim
aukið fylgi, en þá á að reyna að
ná völdunum með því að setja
upp stórkostlega atkvæðaheild-
sölu og reyna að svíkja út upp-
bótarþingsæti.
Þannig ætlar hræðslubandalag-
ið að reyna að ná völdum með
blekkingum — án allra málefna.
Aldrei hofa flokkar gengiS til
kosninga með jafnmikið skrum 6
vörum og aldrei verið jafn berskjald-
aðir i rökræðum og hræðslubanda-
lagsmenn nú.
Þjóðin lýsir sök ó hendur Fram-
sóknarflokknum fyrir að hafa rofið
ríkisstjórn ón mólefnaógreinings og
stofna til upplausnar í þjóðfélaginu,
þcgar miklu varðar að sameina öll
þjóðholl öfl um lausn aðkallandi
vandamóla..
Á morgun mun þjóðin kveða upp
sinn dóm.
Hún mun hafna ævlntýramönnun-
um en fylkja sér um þann flokk, sem
leitt hefir þjóðina í framtarasókn
hennar og er traustasta kjölfestan i
íslenzku stjórnmólalífi.
Nýtt alhliða verkíræðilegt íyrir-
tæki tekur til starfa í Rvik
var stofnað ingarverkfræðingur, sérgrein,
sem er al- geoteknik og hafnargerðir og
Fyrir ári síðan
hlutafélagið Traust,
hliða verkfræðilegt fyrirtæki. j Þórhallur Jónsson, byggingarverk
Traust h.f. hefir nú opnað verk- fræðingur, sérgrein, vatnsvirkj-
fræðiskrifstolur að Skólavörðu- anir og fj árhagsáætlanir.
stíg 38 og tekur að sér öll verk-
fræðistörf.
Traust h.f. er stofnað af bekkj-
arbræðrum brautskráðum úr
stærðfræðideild Menntaskólans á
Framkvæmdarstjóri er Þór-
hallur Jónsson, verkfræðingur,
viðskiptalegur ráðunautur tr Þor-
valdur Ari Arason.
Núverandi stjórn Trausts h. f.
Akureyri 1949. Eru þeir allir er þannig skipuð: Formaður
með, 17 að lulu og af þeim eru 6 Bragi Erlendsson, verkfr., Guð-
verkfræðingar. Þá hafa bælzt við mundur Sv. Jónsson, verkfr.,
í hópinn 2 verkfræðingar, bekkj- Hálfdán Guðmundsson, viðskipta
arbræður úr Háskóla og fram- fræðingur, ísleifur Jónsson, verk-
haldsnámi. fræðingur og Ríkharður R. Stein-
Traust h.f. býður upp á þjón- bergsson verkfræðingur. í vara-
ustu 8 verkfræðinga, 5 bygging- stjórn eiga sæti: Baldur Jónsson
arverkfræðinga, 2 rafmagnsverk- stud. mag., Baldur Ingimarsson,
fræðinga og 1 vélaverkfræðing. Iyfjafræðingur og Vilhjálmur
Eru þeir allir brautskráðir úr Skúlason, lyfjafræðingur.
Verkfræðiháskólanum í Kaup-
mannahöfn, sem hlotið hefir al-
heims við.urkenningu.
Fram til þessa hafa verkfræð-
ingarnir unmð í þágu Trausts h.l.
í aukavinnu, in. a. gert tilboð í
Mjólkárvirkjun í Arnarfirði með
Byggingarfélaginu Brú h.f., og
var það tilboð lægst af innlend- Halldóri Þormar, stud. mag. voru 15.
um tilboðum Og annað lægsta af þ.m. vcitt gullverðlaun Iiafnarháskóla
Holldór Þormar hlýtur
namsverðlaun
7 tilboðum, sem Rafveitum ríkis-
ins bárust.
Verkfræðingarnir, sem vinna
hjá Traust h.f. eru Bragi Erlends-
son, rafmagnsverkfræðingur, sér-
grein, rafmótorar, Guðmundur
Sveinn Jónsson, rafmagnsverk-
fræðingur, sérgrein, raflínur, ís-
leifur Jónsson, vélaverkfræðing-
ur, sérgrein, disel- og kælivélar,
Karl Ómar Jónsson, byggingar-
verkfræðingur, sérgrein, upphitun
og loftræsting, Leifur Hannessor.,
byggingarverkfræðingur, sérgrcin
vega- og gatnagerð, Ríkarður R
Steinbergsson, byggingarverk-
fræðingur, sérgrdfci, burðarþols-
fræði, Steingrímur Arason, bygg-
fyrir rannsóknir i lífeðlisfræði, er
fjölluðu um áhrif hita á frumvöxt ein-
frumunga. Halldór er stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri en for-
eldrar hans eru frú Ólína og séra Þor-
varður G. Þormar í Laufási við Eyja-
fjörð. Þetta glæsilega námsafrek hefir
verið gert að umtalsefni í dönskum
blöðum, óg segir Social-Demokraten,
16. júní sl.:
„Kannsóknir sínar hefir hann stund-
að hjá dr. Zeuthen, og þar hefir hon-
um heppnast að sýna, hvernig maður
getur 'haft áhrif á frumudeilingu ein-
frumudýra með hitabreytingum. Þess-
ar rannsóknir vekja mjög mikla eftir-
tekt vísindamanna út um allan heim.‘‘
------------------□--------
lOOOOOOOOOOOOOCOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOC
— X Jona§ í*. Rainar —
EOCOOOOOOOOOCOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOlOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOCOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOCOOOOO