Íslendingur

Tölublað

Íslendingur - 23.06.1956, Blaðsíða 3

Íslendingur - 23.06.1956, Blaðsíða 3
Laúgardagur 23. júní 1956 ÍSLENDlNGUft 3 MdrnKnn einhuga Ef litið er til baka og þróun iðnaðarins cthuguð á fslandi. kemur það í liós, að aðeins einn stjórnmálaflokkur hefir tekið til greina sanngjarnar kröfur iðnað- armanna. Það er t. d. ekki fyrr en Bjarni Benediktsson fer með menntamál, að lög eru sett á Al- þingi um iðnskóla. Til þess tíma höfðu félagssamtök iðnaðar- manna rekið iðnskólana á eigin spýtur í 50 ár. Og það er í ráð- herratíð Ingólfs Jónssonar, sem dregið hefir verið úr innflutningi fullunninna iðnaðarvara og iðn- fyrirtækin sjálf fengið bcinan og milliliðalausan innflutning á hrá- efnum, svo sem ástæður hafa leyft. Það voru líka þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem stuðl- uðu að stofnun Iðnbanka íslands og eflingu Iðnlánasjóðs, sem leyst hafa úr brýnustu rekstrar- fjárþörf iðníyrirtækja og nauð- synlegra vélakaupa. f stuttu máli hefir íslenzkur iðnaður fyrst fengið vaxtarskil- yrði í stjórnartíð Sjálfstæðis- flokksihs. Þingmenn hans og ráð- herrar hafa ætíð staðið að um- bótamálum, sem varða iðnað, og skilja þýðingu hans fyrir þjóð- ina, sem sé beinan, stórfelldan gjaldeyrissparnað. Iðnaðarmað- urinn kemur víða við. Það siglir ekkert skip, engin mannvirki byggð, ekkert hjól snýst, neraaj hann leggi hönd að verki. Líka má minna á, að skýrslusöfnun' Hagstofunnar leiddi í Ijós, að iðnaður brauðfæðir fleiri ein- staklinga á Islandi en bæði land- búnaður og sjávarútvegur til, samans. Því er það furðulegt, að enginn annar stjórnmálaflokkur j en Sjálfstæðisflokkurinn skuli hafa veitt iðnaðinum brautar- gengi. Með þetta í huga verðum við iðnaðarmenn ekki með neinar vangaveltur við kjörborðið á morgun, en kjósum fulltrúa okk- ar málefna, — frambjóðendur Sjálfstœðis flokksins. Iðnaðarmaður. * Frá kjósendum: (Jott oð ©190 þingsögu oö bnki Síðasti „Dagur“ er að mæla með því, að Eyfirðingar sendi tvo Framsóknarmenn á þing. Nefnir hann sem rök fyrir málaleitan sinni, að þegar Bernharð Stefáns- son var fyrst kosinn á þing, hafi vegir verið minni í s^slunni en nú og nokkrar ár óbrúaðar, sem nú sé hægt að komast tálmunarlaust yfir. Svo hafi Bernharð komið í gegn hafnariögum fyrir Dalvík og Ólafsfjörð, sem þau héruð muni búa að urn langa framtíð. Síðan segir „Dagur“: „Þá má minna á heilsuhæli, skólamál og ótal margt fleira, og vantar mikið á, að Magnús Jóns- son eigi slíka þingsögu að baki, enda eru afrek hans á Alþingi lítil orðin.“ Rétt er það hjá „Degi“, að mikill munur er á lengd „þing- sögu“ Bernharðs og Magnúsar, þar sem annar hefir verið þing- maður í rúm 30 ár en hinn 4. Og vissulega hafa margar framfarir gerzt í landinu alla þá tíð, sem Bernharð hefir verið þingmaður, vegir lagðir, skólar byggðir o. s. frv. Að sumum þessum framför- um hefir Bernharð að sjálfsögðu staðið, — en verið áhorfandi að öðrura. Það má kannske segja, að Magnús Jónsson hafi mis6t af strætisvagninum, að vera ekki með Bernharð frá byrjun, en hann var nú bara 5 ára hnokki, þegar Bernharð byrjaði að leggja vegi, byggja brýr og hafnir o. s. frv. Hitt er svo annað mál, hvort rétt er að segja, að afrek Magn- úsar Jónssonar séu „lítil orðin“ (!) eftir 4 ára setu á þingi sam- anborið við 32 ára starf Bern- harðs Stefánssonar þar. Allir vita, að Magnús hefir ekki byggt neitt „heilsuhæli“ á þessum fáu árum, sem liann hefir farið með ' umboð Eyfirðinga á Alþingi, enda hefir þess víst ekki verið krafizt af Evfirðingum. En vilji ' „Dagur“ láta gera samanburð á j afrekum þessara tveggja þing- manna, miðad við þingsögutíma, ^þá er honum það velkomið. Og án þess að ég vilji á nokkum hátt draga úr afrekum hins vinsæla þingmanns, Bernharðs Stefáns- sonar, þá verð ég að draga í cfa, að Eyfirðingum sé nauðsynlegt að losna við Magnús Jónsson sera þingmann sinn. Eyfirzkur FramsóknarmaSur (ekki f H. B.) BORGARBÍÓ Simi1500 Afgreiðslutími kl. 7—9 á undan kvöldsýningum. Laugardag kl. 5. Sunnudag kl. 3: SJÓRÆNINGJARNIR (Abbott and Costello meet Captain Kidd) Aðalhlutverk: BUT ABBOTT og LOU COSTELLO ásamt CHARLES LAUGHTON. Sunnudag kl. 5: BÚKTALARINN Aðalhlutverk: DANNY KAYE og MAI ZETTERLING. Síðasta sinn. Laugardag og sunnudag kl. 9: MÓÐURÁST (So Big) Aðalhlutverk: JANE WYMAN STERLING HAYDEN NANCY OLSON STEVE FORREST. Hver oefndi brashara? Hermann Jónasson talaði mikið um „braskara“ í hinni kommúnisku áróðursræðu, er hann flutti við útvarpsumræð- urnar á þriðj udagskvöldið. Það er honum einkar munn- tamt orð, enda hefir maðurinn mikla óbeit á því að kaupa og selja. Er það greinilegt af um- mælum, sem Alþýðublaðið hefir eftir honum 28. júlí 1949. Þar segir svo: „Þegar ég var ráðherra, skrifar Hermann, keypti ég bifreið. Seldi ég hana og keypti aðra og greiddi toll af henni og áður en ég fór úr rik- isstjórninni pantaði ég nýja bifreið og ráðstafaði henni og bað síðan bílasalann að panta fyrir mig aðra bifreið, hana lét ég til annars manns. Þegar ég fór úr ríkisstjórninni sótti ég um innflutning á bifreið í stað annarrar er ég seldi. Hafði svo um skeið notaða bifreið og setti i hana nýja vél og kostaði miklu til. Að lokum fékk ég leyfi til að kaupa litla bifreið, seldi hana, féllst þá nýbyggingaráðherra á að láta mig hafa yfirbyggðan jeppa. Rétt á eftir fékk ég leyfi fyrir bandarískri fólksbifreið. Seldi ég þá yfirbyggða jeppann. Ég hef orðið þess var að ýmsa undrar að ég skuli nú eiga jeppa. Fékk hann frá bónda jyrir gamla vél, sem ég átti áður. Feiðaðist aðallega á honum suður í Fossvog í skemmtigarð er ég á þar.u (Ægilegt 6tálminni hlýtur þessi braskarahatari að hafa!) Kirkjan. MeE6að í Akureyrarkirkju eunnudaginn 24. júní kl. 10.30 f. h. — Sálmar: 360, 122, 359, 353, 680. K. R. Hjónaband. Miðvikudaginn 20. júní voru gefin saman í hjónaband í Akur- eyrarkirkju ungfrú Þorbjörg Þóra Björnsdóttir, starfsstúlka við Kristnes- hæli, og Aðalsteinn Halldórsson, Litla- Ilvammi, Hrafnagilshreppi. Vegna prcstastefnu og Skálholtshc- tiSar verða báðir Akureyrarprestarnir fjarverandi úr hænum frá þriðjudegin- um 26. júní og eitthvað fram ytir mán- aðamótin. í fjarveru þeirra mun 8éra Stefán Snævarr á Völlum gegna hér þjónustu og framkvæma prestsverk, et á þarf að halda. Fólk, sem þarf að látu vinna fyrir sig prestsverk á þessum tíma, er því beðið að snúa sér til eén Stefáns (sími ura Dalvík). Ef fólk þarf á vottorðum að halda á þessum tíma, er það beðið að snúa sér til séra Frið- riks J. Rafnar, Utskálum, Glerárþorp:. sími 1223. 70 ára varð í gær Kristján Bjömsson að Brunná. ÍSLENDINGUR kemur næst út fimmtudaginn 28. júní. Hefir nokkuntíma verið metið, hve miklu vinnuafli var sóað á hafta- og svartamarkaðsárunum í bið- raðastöður húsmœðra og heimilisfeðra úti fyrir dyrum verzlana l óvissri von um að fá skó á eitthvert barnanna, léreftspjötlu eða tvinnakefli? Og hefir það nokkurn tíma verið rannsakað, hvert heilsutjón hlauzt af því, er konur skulfu í biðröðinni í morgunnœð- ingnum og frostinu? Hrœðslubandalagið vonar og biður um, að þessir góðu, gömlu haftadagar komi á ný yfir þjóðina. Það er kjósendanna að svara því á morgun, hvort þeir óska þeirra á ný. Allir þeir, sem forðast vilja verzlunarhöft og biðraðir við dyr verzlananna, kjósa Sjólfstæðisflokkinn. X Jónas G. Rafnar Tölurnar liafa inál Það hefði mátt œt'.a, að reiknimeistarar Framsóknar- og Alþýðuflokksins hefðu komizt að raun um við að blaða i atkvœðatölum frá kosningunum 1953, að ekki er unnt að reikna afstöðu kjósenda til heildsöluverzlunar á alkvœðum á þar til gcrðar reiknivélar. Því svo hrapallega brugðust flokkunum tilburðir til slíks þá. í kosningunum 1953 hugðist Framsóknarflokkurinn „hjálpa“ Alþýðuflokknum um sína kjósendur á ísafirði og Seyðisfirði gegn sams konar lijálp Krata í Vestur-Skaflafells- sýslu og fleiri vafasömum sveitakjördœmum. Úrslit urðu þessi: Bandalagið: Sjnlfst.fi. ísafjörður 1949: 695 616 1953: 607 737 Seyðisfjörður 1949: 173 173 1953: 134 212 Vestur-Skaftafellssýsla 1949: 390 377 1953: 377 408 Þessar tölur þarjnast ekki frekari skýringa. En þœr sýna, að kjósendur þessara flokka telja sig ekki „töluslaji\ sem raða megi upp, heldur lifandi manneskjur, er ráðstafi siálfar atlcvœði sínu eftir bezta viti í kjörklejanum. Þessi satinindi munu vœntanlega renna upp fyrir atkvœðabröskurunum á mánudaginn kcmur.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.