Íslendingur - 05.07.1957, Side 1
XLIII. árg.
Fösludagur 5. júlí 1957
25. tbl.
Kastalinn í Krónborg á Helsingjaeyri.
Hðiiglegt boð Flugfélags íslands h.f.
Býður 30-40 blaðamönnum í 4 daga utaníör
Lengst viðdvöl í Hamborg.
Flugíélag íslands h.f. hefir að undanförnu hoðið íslenzkum rit-
stjórum og blaðamönnum í 4 daga ferð til útlanda með nýju Vis-
count-flugvélunum. Farið var í 3 hópum. í fyrsta hópnum voru
blaðamenn úr Reykjavík, í öðrum ritstjórar Akureyrar- og Vest-
mannaeyjablaða og hinum þriðja ritstjórar frá ísafirði, Siglufirði
og Neskaupstað.
Ferðin hafin.
Hér verður í stórum dráttum
skýrt frá annarri ferðinni, er rit-
stjórar Akureyrarblaðanna nulu.
Gestirnir eru saman safnaðir á
Reykjavíkurflugvelli kl. hálf átta
föstudagsmorguniim 21.. júní.
Þetta eru 9 ritstjórar frá Akur-
eyri og Vestmannaeyjum, einn úr
Reykjavík, umboðsmenn Flugfé-
lagsins á Akureyri og Vestmanria-
eyjum og faðir hins síðarnefnda.
Að meðtöldum fararstjóra Flug-
félagsins Sveini Sæmundssyni
blaðafulltrúa félagsins er þetta
14 manna hópur, -en það fer ekki
mikið fyrir honum, þegar liann
hefir tekið sér sæti í hinni rúm-
góðu flugvél, Gullfaxa. Um kl. 8
að morgni lyfti þessi glæsilegi
farlcostur sér lil flugs upp í há-
loftin. Ferðin er hafin.
Akureyringur við stýrið
og annar við framreiðslu.
Það er glampandi sólskin og
stafalogn, þegar þetta skip háloft-
anna „léttir akkerum“, en ekki
hefir lengi verið flogið, þegar sýn
til Jands og hafs hverfur, en und-
ir er að sjá sólglitað skýjahaf í
óendanlegum myndbreytileik. —
Sólin skín inn um gluggana, en
þeir eru mun stærri en í hinum
eldri flugvélagerðum og því auð-
velt að njóta útsýnis eftir óskum.
Við höfum ekki lengi flogið,
cr fyrsta fréttatilkynningin berst
okkur úr stjórnklefanum með
góðum óskum um ánægjulega
ferðl Flugstjóri er Sverrir Jóns-
son. Flogið er i 21 þús. fela hæð.
Úti er 18 stiga frost á Celsius.
Hráðinn 525 km. Við fljúgum
um Vestmannaeyjar og síðar yfir
St. Kilda o. s. frv. Við viljum
gjarna fræðast mcira um áhöfn-
ina og spyrjum nú fararstjórann.
Jú, flugmaður er Jón Ragnar
Steindórsson frá Akureyri. Flug-
freyjur Hrafnhildur Jónsdóttir
Akureyri og Edda Snæhólm. (Og
einhvernveginn læðist sá grunur
að okkur, að hún sé upprunnin í
Glerárþorpi, nú Akureyri, og hafi
e. t. v. slitið þar barnsskónum
eins og sum systkini hennar.)
Jæja, svo Akureyringar skipa þá
um helming áhafnarinnar, hugs-
um við norðanmenn og reisum
okkur í sætum.
Að loknum góðum morgun-
verði loka sumir augunum og síg-
ur blundur á brá, enda venju fyrr
farið á fætur um morguninn. En
er við komum inn yfir Skotlands-
strönd, er á ný farið að horfa út
um gluggana. Klukkan 10.50 er
lent í Glasgow og eldsneyti bætt
á vélina. Þar er hálfrar stundar
viðstaða, og enginn má víkja frá
flugstöðinni. Og svo er ferðinni
haldið áfram.
Borgin við sundið.
Hér verður að fara hratt yfir
sögu. Næsti viðkomustaður er
Kastrup-flugvöllur við Kaup-
mannahöfn, og er það síðasti á-
fangi þessa dags ferðarinnar. Þar
er lent kl. 13.40 (hér alltaf miðað
við íslenzkan tíma), og við land-
gang flugvélarinnar bíður Birgir
Þórhallsson umboðsmaður F. 1.
í Kaupmannahöfn, sem við norð-
anmenn þekkjum allir frá dvöl
lians á Akureyri. Að lokinni
venjulegri afgreiðslu á flug- og
tollstöðvum, erum við leiddir í
stóran fólksflutningavagn og ek-
ið inn í borgina, fram hjá skrif-
slofu F. í. og að Ifótel Egmont,
þar sem okkur er búin næturvist.
Þar er gengið til herbergja, skol-
að af sér ferðaryk, sem er þó vart
finnanlegt, og skeggbroddar
fjarlægðir. Því næst ekið að
stærsta vöruhúsi borgarinnar,
Snnsko konungsb;ónin
í opinberri keimsókn
Síðaslliðinn laugardag komu
Gustav VI. Adolf Svíakonungur
og Louise drottning í opinbera
heimsókn til Reykjavíkur, er
standa skyldi 3 daga. Var mikill
viðbúnaður til að gera móttök-
urnar sem virðulegastar og alúð-
legastar. Gustav konungur er nú
nær hálf-áttræður og hefir áður
komið til íslands á Alþingishátíð-
ina 1930 sem krónprins Svía.
Meðan konungshjónin dvöldu
í Reykjavík, bjuggu þau í for-
sætisráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu. Á laugardagskvöld-
ið sátu þau veizlu forseta íslands
að Hótel Borg. Á sunnudaginn
heimsóttu þau Háskólann og
Þjóðminjasafnið, hlýddu messu í
Bessaslaðakirkju og neyttu mið-
degisverðar á heimili forsetans.
Kl. 4 þann dag hafði Reykjavík-
urbær opinbera móttöku fyrir
hina tignu gesti í Melaskólanum,
og um kvöldið var þeim sýnt
„Gullna hliðið" í Þjóðleikhúsinu.
Síðasta daginn skoðuðu konungs-
bjónin fiskiðjuver í Reykjavík
en fóru síðan til Þingvalla. Þegar
þaðan kom, var móttaka í sænska
sendiráðinu en um kvöldið hélt
konungur kveðjuveizlu í Þjóð-
leikhúskjallaranum fyrir forseta-
hjónin og aðra gesti.
Þessi konungsheimsókn mun
auka á vináttu og skilning milli
hinna tveggja norrænu frænd-
þjóða, er hér eiga hlut að máli.
Ccngió il rtkii d Jan Hoyen
Viðurinn lagður upp á Oddeyri.
Þriðjudagsmorguninn 25. júní sl. lagði vélskipið Oddur hér að
bryggju með rekaviðarfarm, er hann hafði sótt til Jan Mayen. —
Fregnir höfðu borizt af þeim leiðangri áður, þótt hljótt væri uiu
hann. Aðal-hvatamaður að honum var Sveinbjörn Jónsson bygginga-
meistari, og hefir liann látið blaðinu í té eftirfarandi greinargerð um
tildrög leiðangursins og árangur:
Tildrög leiðangursins eru nokk-
uð löng og margra ára. Árið
1955 var stofnað í Osló dálítið
hlutafélag fárra manna, sem fékk
einkaleyfi norska ríkisins á því
að athuga um rekavið á Jan-May-
en. Um sama leyti gengu nokkrir
vinir mínir á Akureyri í félag
með mér til þess að taka þátt í
þessari athugun ásarnt norska fé-
laginu og sjá um hagnýtingu við-
arins ef til framkvæmda kæmi.
M.s. „Oddur"
fenginn í förina.
Leiðangur var fyrirhugaður í
fyrravor, en fórst fyrir af óvið-
Framhald á 2. síðu.
Vélshipið Oddur við bryggju á Oddeyri með rekaviðarfarm frá Jan
Mayen. — Ljósm.: Gísli Olafsson.
Framh. á 8. síðu.