Íslendingur


Íslendingur - 09.08.1957, Blaðsíða 3

Íslendingur - 09.08.1957, Blaðsíða 3
FÖstudagur 9. ágúst 1957 ÍSLENDINGUR 3 Skattgreiðslnr félaga I „íslenzkum iðnaði“ apríl— maíhefti þ. á., er birt ræða, er Sigurbjörn Þorbjörnsson flutti á ársþingi F. I. I. í vetur um skatt- greiðslur félaga, þar sem sýnd eru dæmi um misskötlun og of- sköttun félaganna, eftir því hvort þau eru í hlutafélaga-, sameign- arfélaga- eða samvinnufélaga- formi, en ræðumaður hefir kynnt sér mjög vel skattalöggjöf okkar og verkan hennar á afkomu at- vinnufyrirtækja. Leyfir íslend- ingur sér hér með að taka upp nokkurn kafla ræðunnar lesend- um blaðsins til fróðleiks. „. . . . Segja má að aðallega sé um þrjú félagsform að ræða skv. skatta- og útsvarslögum, þ. e. 1. Hlutafélög og önnur félög með takmarkaðri ábyrgð. 2. Onnur félög, aðallega þar svo- nefnd sameignarfélög með ó- takmarkaðri ábyrgð. 3. Samvinnufélög. Skalflagning félaga. þessara álagi skattskyldur hjá félaginu, áður en honum er útldutað. Sameignarfélög: Nettótekjur sameignarfélaga á- kvarðast á sama hátt og hlutafé- laga. Ilins vegar njóta sameign- arfélög ekki frádráttar vegna arðs af stofnfé eða varasjóðs-hlunn- inda. Skattgjaldstekjur þeirra eru því þær sömu og nettótekjur, en skattstigar sömu og lijá hlutafé- lögum. Einnig gilda um þau sömu ákvæði um tekjuútsvar og hluta- félög. Eignir til eignaskatts er skuldlaus eign félagsins að við- til eigenda. Eign Skattlagning félags- forma og arðs af eignarhlutum í þessum félögum er gjörólík og mun ég því reyna að gera grein fyrir því í sem stytztu máli: Hlufafélög: Neltólekjur hlutafélaga teljast heildartekjur að frádregnum lög- leyfðum kostnaði og frádrætti skv. 21—40 gr. reglugerðar um tekju- og eignarskatt. Frá þessum tekjum leyfist frá- dráttur áður en tekjuskattur er á- lagður sem hér segir: 5% af hlutafé og 20% af nettó- tekjum í varasjóð _(3314% hjá fyrirtækjum sem hafa sjávarút- veg sem aðal atvinnuveg) og telst sú tekj uákvörðun skattgjaldstekj- ur. Af skattgjaldstekjum er reikn- aður tekjuskattur 5—22% og stríðsgróðaskattur af tekjum yfir kr. 45.000.00 frá 3% til 68%. Frá nettó tekjum ieyfist aðeins 5% af hlutafé til frádráttar áður en tekjuútsvar er álagt, en tekju- úlsvar má ekki leggja á hærri tekjur en kr. 200.000.00. til eignaskatts er skuld- Eign laus eign félagsins. Eign til eign- arútsvars er skuldlaus eign fé- lagsins að viðbættu t.d. í Reykja- vík tvöföldu fasteignamati fast- eigna svo og hlutafé. Veltuútsvar er álagt mismun- andi á landinu. I Reykjavík t. d. 0.6% til 2.5%. Iðnaður t.d. 1.1% nema sælgætis- og efnagerð, öl og gosdrykkjagerð 1.8%. Allur arður af hlutafé er skalt- skyldur hjá eigendum hlutafjár. Sé arður 5% eða lægri má segja að ekki sé um tvískötlun að ræða, þar sem hlutafélög fá 5% af hlutafé frádregið til skatts, en öll arðgreiðsla umfram 5% er raun- verulega tvísköttuð, fyrst hjá fé- laginu, síðan hjá hluthafa. Við félagsslit er öll útborgun til hluthafa umfram innborgað hlulafé skattskylt sem arður. Einnig er varasjóður með 20% bættu stofnfé eignarútsvars er eins ákveðin og hjá hlutafélögum. Veltuútsvar er álagt á sama liátt og hjá hlutafé- lögum. Allar útborganir úr sameignar- félagi lil eigenda eru skattfrjáls- ar hjá móttakanda, einnig eru all- ar útborganir umfram innborgað stofnfé, til eigenda við félagsslit skattfrjálsar hjá móttakanda. Samvinnufélög: Nettótekjur samvinnufélaga á- kvarðast að nafninu til á sama hátt og hlutafélaga. Að nafninu til segi ég, þar sem leyfilegt er að telja hér til gjalda endurgreiðslu til félagsmanna, auk þess mega þau draga frá neltótekjum vexti af stofnfé 11%% hærri en inn- lánsvexti (er því nú 6V2%) enda eigi úthlutað arði á annan hátt, svo og 33%% af liettótekjum í varasjóð og telzt sú tekjuákvörð- un skaltgjaldstekjur. Af skatt- gjaldstekjum er tekjuskaltur jafn- an 8%, en stríðsgróðaskattur sami og hjá hlutafélögum. Eignaskattur reiknast af nettó eign félagsins, þegar frá er dreg- inn stofnsjóður sem skuld, sama og hlutafé hjá hlutafélögum. Tekjuútsvar og veltuútsvar má ekki nema meiru en hagnaður fé- lagsins af utanfélagsviðskiptum. Eignarútsvar er óheimilt að leggja á samvinnufélög. Vextir og stofnfé eru skalt- skyldir hjá eigendum, eignir í ó- skiptilegum sjóðum má ekki út- hluta til eigenda og koma því ekki lil greina útborganir um- fram samansafnaðan stofnsjóð. Segja má því að nettótekjur allra félaga séu eins ákvarðaðar, ncma livað samvinnufélög mega draga frá endurgreiðslu til félaganna. Skattgjaldstekjur til tekju- skatts og stríðsgróðaskatts eru: Hjá hlutafélögum: Nettó lekj- ur -4- 5% af hlutafé og 20% í varasjóð. Hjá Sameignarfélögum: Nettó tekjur óhreyttar. Hjá Samvinnufélögum: Nettó tekjur (þá er þegar búið að draga frá tillög í stofnsjóði og endurgreiddan arð) -4- 6%% af stofnfé (sé engin arðgreiðsla önnur) og 33%% í varasjóð. Skattstigar: Hjá hlutafélögum og sameign- arfélögum tekjuskattur 5—22%. Hjá Samvinnufélögum 8%. Hjá öllum félögum sami slríðs- gróðaskattstigi. Tekjuútsvar hjá hlutafélögum og sameignarfélögum það sama en hjá samvinnufélögum háð arði af utanfélagsmanna viðskiptum. Eignaskattur eins ákvarðaður hjá öllum félögum, nema hjá sam- eignarfélögum skal leggja á stofnfé hjá félaginu. Eignarútsvar eins og hjá hlutafélögum og sam- eignarfélögum, en ekki leyfilegt að leggja á samvinnufélög. Veltu- útsvar eins hjá hlutafélögum og sameignarfélögum og óháð tekju- afgangi en aðeins af veltu utanfé- lagsmanna viðskipta hjá sam- vinnufélögum og háð tekjuaf- gangi af slíkum viðskiptum. Arðgreiðsla af hlutafé og stofnfé hjá hlutafélögum og sam- vinnufélögum eru skattskyldar hjá eigendum, svo og skattskylt hjá hlutafélögum úthlutun vara- sjóðs að viðbættum 20% viður- lögum við félagsslit og hjá hlut- höfum öll úthorgun við félagssiit umfram innborgað hlutafé. En hjá sameignarfélögum er úthlut- un til eigenda ekki skattskyld. Dæmi um misrcflið. Nú skulu tekin hér nokkur dæmi sem sýna mismun í skatt- og útsvarsgreiðslu hinna mis- munandi félagaforma: (Ilér skal tekið fram, að nettó- tekjur samvinnufélaga í þessum dæmum eru tekjur þeirra áður en framlög í stofnsjóði eru frádreg- in. Síðan eru frádregin tillög í stofnsjóð , en ekki frádregin 6%% af stofnsjóði, þar sem ég álít að slíkt megi ekki leyfa, ef samvinnufólög leggja fé í stofn- sjóði eigenda. Einnig skal tekið fram að með orðunum tekju- skattar á ég við sameiginlega tekjuskatt og stríðsgróðaskatt, þar sem það á við. Reiknað er með 1% veltuút- svari án tillits til tekna, og eignar útsvari af hlutafé og stofnfé, þar sem það er heimilt, sem sé hjá hlutafélögum og sameignarfélög- um. Eignaskattur er livergi reikn- aður með, fremur en önnur frá- dráttarbær opinber gjöld). Nettótekjur . . . DÆMI I. kr. 200.000.00 Illutafé eða stofnfé — 500.000.00 Velta — 10.000.000.00 Nettótekjur IILUTAFÉLAG. kr. 200.000.00 -4- 20% í varasjóð . kr. 40.000.00 \ 5% af hlutafé . ... — 25.000.00 — 65.000.00 Skallgj aldstekj ur kr. 135.000.00 Tekjuskattar kr. 38.500.00 Útsvar — 135.430.00 Samtals skaltar og útsvar kr. 173.930.00 S AMEIGN ARFELAG. Nettótekjur = skatlgjaldstekjur ........ kr. 200.000.00 Tekjuskaltar Ttsvar Samlals skattar og útsvar kr. 81.550.00 — 137.930.00 kr. 219.480.00 SAMVINNUFELAG. (Engin utanfélagsmannaviðskipti) Tekjur (áður en stofnsjóðstillag er frá- dregið) ................................ kr. 200.000.00 -4- í stofnsjóð ........ kr. 100.000.00 -i- í varasjóð ......... — 100.000.00 — 200.000.00 Tekjur til skatts .......................... kr. 100.000.00 ~ 33%% í varasjóðstillag ................... — 33.333.00 Skattgjaldstekjur kr.. 66.600.00 Tekjuskattar kr. 6.174.00 Útsvar — 0 Skattar alls kr. 6.174.00 SAMVINNUFÉLAG. (15% af veltu og hagnaði vegna viðskipta utanfélagsmanna). Tekjur (áður en stofn- sjóðstillag er frádregið) ............. kr. 200.000.00 -4- í stofnsjóð ........ kr. 85.000.00 -4- í varasjóð' ....... — 115.000.00 — 200.000.00 Framh. á 4. síðu. Löng'- helgi liðin hjá. — Lítil við- höfn hjá „stéttinni“. — Rang- hermi um brúarbyggingu. LENGSTA HELGI SUMARSINS er liðin hjá, — verzlunlairmjannahelgin, eins og hún er oft kölluð. Mikil mannaferð hefir verið um landið og óvenjulegur fjöldi ökutækja á vegun- um, enda hefir Slysavarnafélagið sér- staklega lagt sig fram með að vara menn í útvarpinu við ógætilegum akstri um há helgi. Ekki hefir heyrst um nein alvarleg slys af umferðinni né af öðrum sökum yfir helgina, en hér norðanlands a. m. k. var veðrið hið á- kjósanlegasta, sólskin mikið og hlý- indi. IIÉR Á AKUREYRI var ekkert markvert um að vera í tilefni hátíðar verzlunarmanna fremur en áður, enda fara þeir oftast eitthvað úr bænum, einn auslur á Ilérað, annar í Mývatns- sveit, þriðji lætur sér nægja að kom- ast í „Skóginn“, o. s. frv. Kvikmynda- húsin höfðu myndasýningar að venju, dansleikir voru að Brúarlundi í Vaglaskógi á vegum knattspyrnusam- takanna á Akureyri og ungverskur meistari tefldi fjölskák í Alþýðuliús- inu. Messað var á tveim kirkjum í prestakallinu, og fleira getur hafa gerzt, án þess að ég hafi veitt því sér- staka eftirtekt. ÞAÐ, SEM JAFNAN vekur athygli mína á frídegi verzlunarmanna liér á Akureyri, er live tómlát stéttin sjálf er um hann. Oft hefir verið unnt að fara götu úr götu, — já, gegnum heil hverfi í bænum, án þess að fáni sjáist á stöng, og er þó Akureyri gamall og gróinn verzlunarbær. Verzlunarmenn- irnir liér rífa sig upp snemma að morgni 1. maí og Sjómannadagsins til að flagga á húsum sínum, en á þeirra eigin hátíðisdegi hirða þeir ekki um slíkt. Stafar þetta stundum af því, að þeir hverfa burt úr bænum með fjöl- skyldu sína strax á laugardag og koma ekki fyrr en á mánudagskvöld og liafa þá kannske engan til að hirða um fán- ann, en betur kynni ég við, að þeir gerðu ráðstafanir til þess að liafa fána uppi á stöng þenna dag, þótt hann sé ekki lögboðinn fánadagur. Skylt er þó að taka fram, að nokkrar verzlanir í miðbænum voru fánum prýddar s. I. mánudag, og má vera, að þeir hafi víðar verið uppi, þótt ég hafi ekki komið auga á þá, enda fór ég ekki nema um mið- og norðurbæinn þann dag. GUNNAR S. HAFDAL, bóndi og skáld í Sörlatungu hefir upplýst, að í síðasta blaði hafi ekki verið rétt skýrt frá brúabyggingum á Norðurlandi í sumar. Þar sé sagt, að brú liafi verið byggð á Ilafrá í Hörgárdal á s. 1. vori, en það sé mjög ofmælt. Veitt hafi (Framhald. á 4. síðu.)

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.