Íslendingur


Íslendingur - 18.09.1959, Page 5

Íslendingur - 18.09.1959, Page 5
Föstudagur 18. september 1959 ÍSI.ENDINGUR Ingóljur Kristjánsson: Á síjómpaliinum Saga Eirílcs Kristóferssonar skipherra. Bók þessi kom út'hjá'Kvöld- vökuútgáfunni á Akureyri 1. sept. s.l., daginn sem ár var liðið frá því að lögin um 12 mílna fisk- veiðilögsögu við ísland tóku gildi og Bretar hófu togveiðar innan þeirra marka undir herskipa- vernd. En sögumaður er skipherra á Þór, flaggskipi íslenzku land- helgisgæzlunnar, og hefir því frá ýmsu að segja af viðskiptum sín- um við veiðiþjófa í landhelgi. Ingólfur Kristjánsson blaða- maður er enginn viðvaningur í ritlistinni. Hefir áður gefið út þrjár ljóðabækur, tvö smásagna- söfn og tvær bækur af svipuðum toga og þessi er: Endurminning- ar Árna Thorsteinssonar tón- skálds og Listamannaþætti, sem flytja viðtöl við og frásagnir af mörgum íslenzkum listamönnum, jafnt í orðsins list sem myndlist. Frásögn skipherrans vestfirzka er greinargóð og ljós, krydduð hóf- legri gamansemi á köflum, og er vel úr unnið, þótt tíminn til upp- töku efnisins hafi verið stopull, þar sem höfundur varð að sitja um skipherrann hverja þá stund, er hann kom í land frá hinni erf- iðu yarðgæzlu á slóðum sjóræn- ingja nútímans. Fyrsti kafli bókarinnar „I heimahögum“, segir frá uppvexti Eiríks Kristóferssonar vestur á Barðaströnd, þar sem m. a. er brugðið upp myndum af mörgu fólki, sem sögumaður kynntist eða skipti eitthvað við á yngri árum, og bregður þar fyrir ýmsum þjóð- kunnum mönnum. I öðrum kaíla segir frá fyrstu sjómennskuárun- um, en Eiríkur ræðst fyrst á skútu 14 ára gamall, og hefir megnið af ævinni síðan verið „um borð“, fyrst á fiskveiðiskipum, þá í millilandasiglingum og loks við varðgæzlu- og björgunarstörf við strendur landsins. I síðari hluta bókarinnar segir frá upphafi strandgæzlunnar og varðskipum ríkisins. Þá er þáttur um björgunarstarfið, en sjómenn landhelgisgæzlunnar hafa að öðr- um þræði annazt eftirlit með bát- um og skipum og oft orðið að fara til aðstoðar í hinum verstu veðrum, þegar flest skip lágu í höfn eða vari. Þá er yfirlit yfir löggæzluna á sjónum og loks kafl- inn „Tólf mílna stríðið“, sem fjallar um viðskipti varðbátanna við brezku togarana og tundur- spillana í íslenzkri fiskveiðiland- helgi síðasta árið. * Af blöðum hefir maður áður heyrt ýmislegt um samskipti ís- lenzku varðskipanna og brezku togaranna og verndarskipa þeirra, en í þessari bók er það mjög vel dregið saman. Þar er frá fyrstu hendi skýrt frá viðskiptum Eiríks skipherra á Þór og Barry Ander- son, flotaforingjans, sem kvaddi ránaslóðir hinnar íslenzku fisk- veiðilögsögu með þeim eindæm- um, sem ekki munu firnast. Þar er greinllega sagt frá tilraunum brezkra togara og tundurspilla til að sígla hina litlu varðbáta ís- lendinga í kaf og hótanir liinna síðarnefndu um að „ef þið skjót- ið á togarann, þá sökkvum við ykkur“. Það er ekki hverjum heigli hent að annast varðþjónustu á ís- lenzku varðskipunum eftir innrás brezku togaranna í íslenzka fisk- veiðilandhelgi, og hefir þjóðin síðan öðlazt dýpri skilning á hlutverki þessara löggæzlumanna okkar á hafinu en hún áður hafði. Hlutverk þeirra er tvíþætt: lög- gæzla og björgun. Hvort tveggja hefir þeim vel heppnazt, og fyrir það er þjóðin öll þakklát. Ósveigj- anleiki skipherrans á varðskipinu og háttvís framkoma samfara ör- uggri festu hefir skotið brezkum sjómönnum og sjóliðum skelk í bringu. Öll saga Eiríks Kristófers- sonar vitnar um þrek og mann- dóm, sem getur ekki endað á ann- an veg en með fullum sigri íslend- inga í þeirri „landhelgisdeilu“, er við nú lieyjum við Breta. Bók þeirra Ingólfs og Eiríks verður því vafalaust víða lesin. Hún kom út á réttum tíma, og verður að sjálfsögðu talinn meðal helztu bókmenntaviðburða á þessu ári. Hafi útgáfan og höf- undur þökk fyrir verkið. J.Ó. P. ★----------------------★ Úr A-flúíiovitnssýslu Blönduósi 10. sept. Héraðsmót Sj álfstæðismanna í Austur-Húnavatnssýslu var haldið sunnudaginn 6. sept. hér á staðn- um. Mótið var mjög vel sótt, þrátt fýrir það, að þurrkdagur var eftir mikla óþurrkatíð. Mótið hófst með sameiginlegri kaffidrykkju í samkomuhúsi stað- arins kl. 4 síðdegis, og stjórnaði Steingrímur Davíðsson því. Ræð- ur fluttu Jón Pálmason á Akri, Einar Ingimundarson bæjarfógeti á Siglufirði og Jóhann Hafstein bankastjóri í Reykjavík. Ræddu þeir um stjórnmálaviðhorfið með hliðsjón af væntanlegum alþingis- kosningum og þau nýju viðhorf, sem skapast milli einstakra hér- aða vegna kjördæmabreyting- anna. Öllum ræðumönnum var vel tekið. Einnig skemmtu þarna á mót- inu Haraldur Á. Sigurðsson, Óm- ar Ragnarsson og Hafliði Jóns- son, og Árni Jónsson óperusöngv- ar.i söng einsöng. Áheyrendurnir létu óspart í ljós ánægju sína yfir skemmtiatriðunum. Um kvöldið b Frá vinstri: Björn Olsen, Gissur Jónasson, Sigurður Víglundsson, Þór Þorvaldsson, Siguróli Sigurðs- son, Jakob Jakobsson, Gunnar Jakobsson, Árni Sigurbjörnsson, Birgir Hermannsson, Stefán Tryggva- son, ívar Sigmundsson (varamarkvörður), Einar Helgason, Jón Stefánsson fyrirliði liðsins og Her- mann Sigtryggsson, formaður K.A. K.A. varð Morðurlandsmeistan í knattspyrnu 1959 Ályktanir þings ungra Sjálf- stæðismanna Síjórnmálaályktun. Fjórðungsþing ungra Sjálf- stæðismanna á Norðurlandi fagn- ar þeim sigri, sem unnizt hefir með breytingu á kjördæmaskipun- inni. Telur þingið, að breyting þessi muni styrkja lýðræðið í landinu og leiða til bættra stjórn- arhátta. Fjórðungsþingið telur, að ráð- stafanir þær, sem núverandi ríkis- stjórn gerði til stöðvunar verð- bólgunnar með tilstyrk Sjálf- stæðisflokksins, liafi verið nauð- synlegar og spor í rétta átt. Jafn- framt átelur þingið algjört úr- ræðaleysi hinnar svo kölluðu vinstri stjórnar við að leysa þetta höfuðstefnumál sitt. Munu þess engin dæmi, að ríkisstjórn hafi brugðizt svo öllum loforðum og skyldum, þegar vandi steðjaði að höndum. Þingið undirstrikar fyrri sam- þykkt ungra Sj álfstæðismanna um alhliða uppbyggingu atvinnulífs- ins til sjávar og sveita á grund- velli frjálsrar samkeppni og jafn- réttisaðstöð u atvinnuíy júrtæk j a án tillits til rekstrarforms. Fjórðungsþingið skorar á alla unga Sj álfstæð.ismenn að beita sér af alefli í væntanlegum liaust- kosningum og gera með því sig- ur Sjálfstæðisflokksins sem mest- an. Með því verður fyrirbyggð myndun nýrrar vinstri stjórnar, sem andstöðuflokkarnir ræða nú þegar í alvöru. Sj álfstæðisflokkn- um ber að stefna að því að ná meirihluta með þjóðinni, svo að hann geti einn tekið stjórn lands- ins í sínar hendur. Fyrir því heitir fjórðungsþingið á æsku landsins að fylkja sér nú enn fastar en var stiginn dans. Mótið fór í alla staði vel fram. Skólastjóri hefir verið ráðinn við barnaskólann hér á Blönduósi Þorsteinn Matthíasson, kennari við Langholtsskólann í Reykjavík. G. J. Þingeyingar koma ó óvart. Um síðustu helgi var háð hér á Akureyri Knattspyrnumót Norð- lendinga. Fjögur lið kepptu um titilinn, en hlutskarpast varð að lokum lið KA sem sigraði alla keppinauta sína með allmiklum markamun og skoraði liðið alls 24 mörk gegn 6, og var eina liðið með hagstæða markatölu. Heild- arúrslit urðu: KA 6 stig, Þór 4 stig, HSÞ 2 stig og KS 0 stig. — Urslit einstakra leikja urðu sern hér segir: nokkru sinni fyrr um stefnu Sjálf- stæðisflokksins, svo að ísland megi sem fyrst fá styrka og far- sæla stjórn. >:tl i-'"' Landhelgismólið. Fjórðungsþingið hvetur til þjóðareiningar um landhelgis- málið og fagnar þeirri festu, sem almenningur hefir sýnt gegn yfir- gangi Stóra-Bretlands innan ís- lenzkrar lögsögu. Jafnframt lætur þingið í ljós þá skoðun sína, að 12 mílna mörkin séu ekki lokatakmark ís- lendinga í útvíkkun fiskveiði- landhelginnar. Átvinnumól. Fjórðungsþingið telur, að und- irstaða velmegunar í landinu sé atvinnufrelsi og eignarréttur ein- staklinganna og næg atvinna fyrir alla. Til þess að fyrirbyggja stað- ar- og árstíðabundið atvinnuleysi ber að bæta afkomu atvinnuveg- anna og rekstraröryggi og auka fjölbreytni í framleiðslu. Til þess að þetta megi takast telur þingið nauðsynlegt: 1) Að stefnt sé að afnámi hafta- og uppbótarkerfis, komið sé í veg fyrir verðbólgu og að vinnufrið- ur sé tryggður með samningum um launakj ör til lengri tíma. 2) Að hraðað sé undirbúningi stóriðju á íslandi. 3) Að atvinnuvegirnir búi við heilbrigða skattalöggj öf, þar sem öllum sé gert jafnhátt undir höfði. KA vann HSÞ 10:2. Þór vann KS 4:1. HSÞ vann KS 4:2. KA vann Þór 9:3. Þór vann IISÞ 3:2. KA vann KS 5:1. Leikir voru margir spennandi og tvísýnir. Sérstaklega vöktu Þingeyingar mikla athygli fyrir röska frammistöðu. Jakob Jakobs- son úr KA skoraði flest mörk ein- stakra leikmanna eða alls 12, og var hann af flestum talinn bezti knattspyrnumaður í mótinu. KA sigraði nú í 6. skipti í röð á þessu móti og vann nú til eignar bikar, sem KS gaf til mótsins ár,ið 1957. 4) Að athugað sé vandlega, hvort ekki er tímabært, að ísland gerist aðili að þeirri efnahags- samvinnu ríkja í Vestur-Evrópu, sem nú er að hefjast eða er þegar hafin. Þjóðinni sé gerð rækileg grein fyrir þessum athugunum. Heitir fjórðungsþingið á Sjálf- stæðisflokkinn að beita sér fyrir þessum stefnumálum og jafnframt að halda áfram baráttu sinni fyrir bæltum atvinnuháttum í hinurn dreifðu byggðum landsins. Rafmagnsmól. Þingið átelur sofandahátt vinstri stjórnarinnar í rafmagns- málum og leggur áherzlu á, að raforkuframkvæmdum verði hrað að sem frekast er kostur, svo að sem flestir landsmenn verði raf- orku aðnjótandi. Einnig leggur þingið áberzlu á, að fullur gaum- ur sé gefinn þeim möguleikum, sem jarðhitinn veitir til raforku- vinnslu í stórum stíl. --------□--------- GÓÐ ATVINNA í ÓLAFSFIRÐI ÓlafsfirSi í gær. Tveir bátar eru farnir að róa héðan, Stígandi og Gunnólfur, og hafa þeir fengið sæmilegan afla, allt upp í 7 tonn í róðri. Afli smá- báta er og sæmilegur. Nokkur íbúðarhús eru hér í byggingu, og má atvinna í bæn- um teljast ágæt. Kartöflugrös eru hér sölnuð eftir frostnótt, er kom snemma í þessum mánuði.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.