Íslendingur


Íslendingur - 18.09.1959, Síða 8

Íslendingur - 18.09.1959, Síða 8
Ráðagerðir komnmnista og Framséknar um nýja vinstri stjérn i liausi En Framsókn vill ekki ræða málið t'yrir kosnifiBgai* Margir velta því nú fyrir sér, hvernig fara muni með stjórnarmyndun eftir kosningarnar í haust. Flestir munu hafa fengið sig fulisadda á vinstri stjórninni heitinni og ekki gert ráð fyrir, að hún vaknaði aítur til lífsins á næstunni. Það hefir því vakið mikla athygii, að Alþýðubandalagið hefir skrifað Framsóknarflokknum bréf upp á nýtt vinstra sam- starf fyrir og eftir kosningar. Alþýðubandalagið vill, að teknar verði upp samningaviðræður nú þegar, og er ekki hvað sízt lögð áherzla á, að hin nýja vinstri stjórn eigi að tryggja framgang þeiri'a mála, er gamla vinstri stjórnin sveikst um að koma í framkvæmd! Svar Framsóknarflokksins, sem nú iiggur fyrir, er hið merkilegasta plagg, og eítir miklar málalengingar er komizt að þeirri niðurstöðu, að það sé vilji flokksins, að ný vinstri stjórn verði mynduð, en það sé ekki heppilegt að ræða slíkt fyrir kosningar. Orðrétt segir svo í bréfi Framsóknar, þegar ræddur hefir verið viðskilnaður vinstri stjórnarinnar (sbr. Dag 16. 'sept.): „Eigi að síður taldi flokkurinn mjög miður farið, að starfstími vinstri stjórnar skyldi ekki verða lengri en raun varð á. 1 samræmi við þetta telur hann af ýinsurn ástæðum æskilegast að samstarfi um vinstri stjórn verði komið á að nýju hið allra fyrsta, og mun að sjálfsögðu sem stærsti stuðningsflokkur vinstri stefnu í landsrháluin beita sér fyrir því, að gengið verði úr skugga um, hverjir möguleikar eru á slíku sam- starfi . . . . “ Og síðar: „Hins vegar teldi flokkurinn það injög misráðið, að láta viðræður uin endurreisn vinstra samstarfs og mál- efnasamning væntanlegrar vinstri stjórnar fara fram á næstu dögum eða næstu vikum, þegar stórdeilur um stjórnskipunarmál eru nýafstaðnar á Alþingi og kosn- ingabarátta hafin á ný.“ Vilji Framsóknarflokksins er því skýr, þótt ólíklegt sé, að þjóðarv.iljinn sé hinn sami, en menn vita þá, að hverju þeir stefna, ef þeir greiða kommúnistum eða Framsóknarmönnum atkvæði sitt í haust. Heimavist Menntaskólans á Akureyri. Sctusfofo nemenda, bókasafn og íbúð umsjón- armanns í Keimavisfarhúsinu. t ARI HALLGRÍMSSON endurskoðandi, lézt í Landspítalanum síðastliðna þriðjudagsnótt eftir þunga legu, rúmlega fimmtugur að aldri. — Hans verður nánar minnst í næsta blað.i. -------□--------- Sex þús. tunnur saltaðar ó Húsavík Húsavík í gær. Síldveiðinni er nú lokið á þessu sumri, og voru saltaðar hér í bæn- um um 6 þúsund tunnur á þrem söltunarstöðvum. Færaveiði hefir brugðizt hér, en nokkur línuveiði er öðru hverju. Heyskapur varð mikill og góð- ur, nýting ágæt. Kartöfluupp- skera mun vera í meðallagi, en tvær frostnætur hafa fellt grös. Berjaspretta var með bezta móti hér um slóðir og ber mikið tínd. Joðgé. lisíi Sjdlfstælisflðhhsins í Horðurlfiifislijörd. retri Síðastliðinn sunnudag var geng- .ið frá framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Norðurlandskjördæmi vestra, og skipa hann þessir menn: 1. Sr. Gunnar Gíslason, Glaum- bæ, Skagafirði. 2. Einar Ingimundarson, bæjar- fógeti, Siglufirði. 3. Jón Pálmason, bóndi, Akri, Austur-Hún. 4. Guðjón Jósefsson, bóndi, As- bjarnarstöðum, Vestur-Hún. 5. Hermann Þórarinsson, hrepp- stjóri, Blönduósi. 6. Kári Jónsson, verzlunarstjóri, Sauðárkróki. 7. Öskar Levý, bóndi, Ósum, V.- Hún. 8. Andrés Hafliðason, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfél. á Siglufirði. 9. Jón Isberg, lögfr., Blönduósi. 10. Jón Sigurðsson, bóndi, Reyni stað. í stuttu spjalli, er tíðindamað- ur blaðsins átti við Þórarin Björnsson skólameislara, skýrði hann m. a. frá eftirfarandi: Menntamálaráðherra var hér á ferð í sumar og skoðaði þá húsa- kynni skólans, m. a. heimavistar- húsið nýja, sem enn er ekki full- gert. Ráðherra heimilaði, að nú í haust yrðu liafnar framkvæmdir við að innrétta norðurenda húss- ins, en þar var áður ákveðið, að vera skyldi setustofa nemenda á neðstu hæð, bókasafn, lessalur og leikstofur (borðtennis o. þ. u. ].), á annarri hæð og íbúð umsjónar- manns á efstu hæð. Húsameistari ríkisins, IJörður Bjarnason, kom hingað fyr.ir skemmstu, svo að unnt væri að ganga frá íeikning- um, og einnig hefir Sveinn Kjar- val húsgagnaarkitekt verið hér, en hann mun gera tillögur um inn- réttingu setustofunnar. í haust mun einkum verða lagt kapp á að innrétta setustofuna og ibúðina, en væntanlega verður framkvæmd- um fulllokið á næsta ár.i. Sefustofan æskileg nýbreyfni. Nemendur munu vafalaust kunna vel að meta þessa ný- breytni, og trúlega verður hún til verulegs ávinnings fyrir skóla- lífið í heild. Þarna gefst þeim nemendum, er það vilja, kostur á að safnast saman á kvöldin að lestri loknum, þar sem athvarf þeirra var lítið annað áður en íbúðarherbergin sjálf, en þeir, sem næðis v.ilja njóta í herbergj- um sínum, eiga þess þá jafnframt betri kost en áður. Nemendur munu nú væntan- lega mun síður leita út fyrir veggi skólans, þegar þeir vilja létta sér upp frá náminu, fá sér hressingu og ræða landsins gagn og nauð- synjar. Þannig verður skólinn meira en áður sjálfum sér nógur. Setustofan verður mjög rúmgóð, og verður þar aðstaða til að selja veitingar, þeim er þess óska. Mikil aðsókn. Aðsókn að skólanum er mjög mikil og fer vaxandi. Er liann nú fyrir nokkru fullskipaður, og þar sem ekki má lögum samkvæmt skipta í bekkjardeildir í miðskóla- deild, hefir orðið að neita all- mörgum nemendum um aðgang að henni. Nemendur verða í vetur um tveim tugum fleiri en í fyrravetur,' og hafa aldrei svo margir verið. Fullskipað er í heimavist skólans. Nýir kenrtarar. Af kennurum þeim, sem í fyrra voru við skólann, hverfa nú frá, auk Vernharðs Þorsteinssonar, sem lézt á sl. vori, þeir Skarphéð- inn Pálmason, sem hefir í vetur Fullbright-styrk til framhalds- náms í Bandaríkjunum, og Eyjólf- ur Kolbeins, sem heldur áfram námi sínu í Kaupmannahöfn. — Ný.ir kennarar hafa verið ráðn- ir: Guðmundur Vigjússon, Jón Margeirsson og Helgi Hallgríms- son, en þeir eru allir ungir stúd- entar, sem verið hafa við nám er- lendis og eru nokkuð komnir á- leiðis, en taka sér hlé frá námi í vetur. ---------□--------- Vestur-lslendingur í heimsókn Meðal margra Vestur-Islend- inga, er komið hafa heim í kynn- isfelð í sumar, var stödd hér í bænum nýlega frú Herdís Kristj- ánsdóttir Eiríksson, en hún flult- ist vestur fyrir 40 árum, þá 12 ára að aldri. Frú Herdís er fædd i Fnjóskadal og ólst upp þar og á Svalbarðsströnd. Vestra hefir hún tekið mikinn þátt í félagslífi landa þar. Um helgina síðustu gerðist só ný- stárlegi atburður, að rússnesk eld- flaug hafnaði i tunglinu, og er það í fyrsta sinn, sem jarðneskur hiutur kemst þangað. Þjóðviljinn segir frá því á þriðjudaginn, að Russar „ætli EKKI AÐ KASTA EIGN SINNI Á TUNGLIÐ", enda þótt eldflaugin hafi haft meðferðis „veifur með skjaldar- merki Sovétrikjanna". Telji sumir, að til að helga sér ónumið land nægi að koma þangað varanlegum hlutum með skjaldarmerki sínu, en aðrir, að ekki sé hægt að nema land úr fjarska, og verði þvi menn að komast til tunglsins, áður en farið sé að ræða um eignarréttinn á því. ☆ Nei, þaS var rnú ekki meiningin! Fyrir kosningarnar í vor biðluðu Framsóknarmenn til kjósenda á þenna hátt: Kjósið þið nú með okkur í vor, hvar í flokki sem þið standið. Þið getið svo kosið með ykkar flokki í haust. — Framsókn hleypti þá meira að segja nýju blaði af stokkun- um til að flytja þetta tilboð og fá yfirlýsingar manna úr öðrum flokk- um um, að þeir ætluðu „að þessu sinni" að kjósa gegn kjördæmabreyt- ingunni. Og nú standa enn kosningar fyrir dyrum. Þá segir ritstjóri Dags („Von- brigði þriflokkanna") : „En hví skyldu þeir kjósendur, sem greiddu Framsóknarflokknum atkvæði i vor og kusu gegn kjördæma- breytingunni hafa löngun til þess eft- ir fjóra mánuði að kjósa mennina, sem lögðu niður kjördæmin á sumar- þinginu? Hvað myndu þeir telja þá hafa til verðlauna unnið?" Sem sagt: Það var alls ekki mein- ingin kjósandi góður, að sleppa af þér takinu aftur, þótt við slægjum nú þessu fram í vor! Þannig lít ÉG nú á málið, segir ritstjóri Dags. ☆ Hvor verður Hannibal? Þcgar þefta er ritað, er ekki vitað, hvar Hannibal Valdimarsson verður í framboði í haust. Talað hefir verið um tvö kjördæmi honum til handa, Vestfjarðakjördæmi eða Norðurlands- kjördæmi vestra. Mun ráðstöfun á honum hafa kostað miklar vangavelt- ur hjá ráðamönnum A. B. ☆

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.