Íslendingur - 29.04.1960, Page 1
Brieðingstillflgan
felld í Genf
Skorti eitt atkvæði til að koma henni fram.
XLVI. árg.
Föstudagur 29. apríl 1960
16. tbl.
Hafréttarráðstefnunni í Genf er
lokið. Lauk henni svo, að engin
niðurstaða fékkst um viðurkennd-
ar réttarreglur á hafinu. Lengi vel
var Kanada í fararbroddi fyrir
þeim þjóðum, sem rýmsta vildu
landhelgi, en á nýafstaðinni ráð-
stefnu „venti hún sínu kvæði í
kross“ og gerðist meðflytjandi
með Bandaríkjunum að einhvers
konar miðlunartillögu, þar sem að
vísu var gert ráð fyrir 12 mílna
íiskveiðilandhelgi, en í tilbót
næstu 10 ár „sögulegum rétti“ til
handa þeim þjóðum, er áður
höfðu stundað veiðar innan þeirra
marka hjá öðrum, til að veiða allt
að 6 mílum frá ströndum. Gleyptu
Bretar þegar við þessari mála-
miðlun.
Áður höfðu 3 tillögur komið
fram, þ. á. m. ein frá íslendingum,
og voru þær bornar upp í nefnd-
um, en engin þeirra fékk þar til-
skilinn meiri hluta, þ. e. % at-
kvæða.
Vanfaði 1 atkvæði.
Stórveldin Bandaríkin og Bret-
land lögðu mikið kapp á að vinna
bræðingnum það fylgi, er nægði
til löglegrar samþykktar. íslenzka
sendinefndin ákvað þá að bera þá
breytingartillögu fram við bræð-
inginn, að hinn 10 ára sögulegi
réttur næði ekki til ríkja, sem að
mestu væru háð fiskveiðum um af-
komu sína. Var breytingartillag-
an felld. Guldu 24 þjóðir henni já-
yrði, 48 voru á móti en 15 sátu
hjá. Þá kom aðaltillagan til at-
kvæðagreiðslu. Með henni
greiddu 55 þjóðir atkvæði en 28 á
móti. 5 ríki sátu hjá. Þar sem hjá-
seta er ekki látin hafa áhrif á mat
atkvæðagreiðslunnar, skorti stór-
veldin aðeins eitt atkvœði til þess,
að hún yrði skoðuð sem alþjóða-
lög um réttarreglur á hafinu.
Það er eftirtektarvert, að eina
Norðurlanda- og Vestur-Evrópu-
ríkið, er greiðir atkvæði gegn til-
lögunni, ER ÍSLAND. Öll hin
greiddu tillögunni atkvæði sitt.
Nánar er mál þetta tekið til
meðferðar í forustugrein blaðs-
Sumardagurinn jyrsli er mikill hátíðisdagur slcátanna. Þann dag
jara þeir snemma á fœtur og ganga í skátabúningi undir fánum til
kirkju sinnar og hlýða skátamessu. Ymislegt jleira haja þeir til há-
tíðabrigða þann dag. Myndin er af þrem ungum kvenskátum, tekin á
sumardaginn fyrsta s. I.
Rflfveito Akuregtflr
vaod firmnkeppnino
Knútur Otterstedt einmenningsmeistari Bridge-
félagsins annað árið í röð.
Sjómaðnr tir élafsíirði
ferst með listli sínum
Axel Pétursson.
Sl. föstudagskvöld lagði Axel
Pétursson í Ólafsfirði frá bryggju
þar á litlum vélbát, tveggja lesta,
Kristjáni Jónssyni, og ætlaði út
að Grímsey á handfæraveiðar.
Hafa tveir róið á bátnum, en fé-
lagi Axels var lasinn og fór því
ekki í þenna róður.
Þegar Axel kom ekki aftur á
lilætluðum tíma, var hafin leit að
bátnum, en hún bar engan árang-
ur. Gengið var einnig með fjör-
um, og töldu menn sig hafa séð
brak úr bátnum í svonefndum
Fossdal úti við Hvanndalabjörg.
Tveir stærri vélbátar, er lögðu í
róður út að Grímsey um hálfri
klst. síðar en Axel, sáu aldrei til
bátsins. Veður var nær kyrrt á
Framhald á 9. síðu.
Firmakeppni Bridgefélags Ak-
ureyrar lauk sl. þriðjudag. Spilað-
ar voru 3 umferðir. Þátttakend-
ur 64.
í efstu sætum urðu:
Stig
1. Rafveita Akureyrar (Knút-
ur Otterstedt) ........... 319
2. Ferðaskrifstofan (Halldór
Helgason) ................ 318
3. Skipaafgr. Jakobs Karls-
sonar (Friðrik Hjaltalín) 305
4. Saumastofa J. M. Jónsson-
ar (Alfreð Pálsson) .... 304
5. Bílasalan hf. (Jóh. Helga-
son) ..................... 300
6. Dúkaverksm. hf. (Guðjón
Jónsson) ................. 294
7. Frystihús K. E. A. (Jónas
Stefánsson) .............. 292
8. Valbjörk hf. (Halldór Gunn-
arsson).................. 29.0
Knútur Otterstedt varð einnig
hæstur í fyrra, en þá spilaði hann
líka fyrir Rafveitu Akureyrar,
og er það einsdæmi hjá félaginu,
að sama maður sigri tvö ár í röð
í þessari keppni. Þórir Leifsson
hefir einnig tvívegis orðið ein-
menningsmeistari, en með nokk-
urra ára bili.
Vegna húsnæðisskorts verður
hin árlega bæj arhlutakeppni
sennilega ekki þreytt fyrst um
sinn.
Fró barnaskólunum.
Vegna þrengsla í Oddeyrarskól-
anum þurfa 7 ára börn, sem koma
í skóla í vor út eftirfarandi götum
á Oddeyri, að fara í Barnaskóla
Akureyrar: Hólabraut, Laxagötu,
Geislagötu, Glerárgötu að Eiðs-
vallagötu, Fróðasundi, Lundar-
götu og Norðurgötu að Eiðsvalla-
götu. Börn úr öðrum götum Odd-
eyrar fara í Oddeyrarskólann.
Inntökupróf 7 ára barna er 6.
maí kl. 1 i Barnaskóla Akureyrar
og kl. 3 í Oddeyrarskólanum.