Íslendingur - 29.04.1960, Síða 2
2
SLENDINGUR
Föstudagur 29. apríl 1960
K. A. AkoreyroriiKutori i hörfuhnattleih
Meistaramóti Akureyrar, hinu
þriðja, er háð hefir verið, lauk sl.
mánudag. Fjögur lið tóku þátt í
mótinu: IMA, Þór og tvö lið frá
KA.
Mótið var mjög skemmtilegt og
einstakir leikir einkar spennandi.
A-Iið KA er þó lang bezta liðið,
en hin nokkuð jöfn, enda komu
þau út úr mótinu með jafn mörg
stig.
Urslit einstakra leikja urðu
þessi:
KA a-lið vann Þór 67:47 stig.
KA a-lið vann ÍMA 84:33 stig.
KA b-lið vann Þór 55:53 stig.
ÍMA vann KA b-lið 31:29 stig.
KA a-lið vann KA b-lið 88:58
stig.
Þór vann ÍMA 60:52 stig.
Leikið var í íþróttahúsi M. A.—
Keppt var um bikar, er Þór gaf sl.
ár og vann a-lið KA hann nú í
annað sinn.
Akureyrarmeistari og no. 2 varð
Jón Bjarnason Þór.
5 keppendur voru í mótinu.
Á laugardag kemur hingað
kapplið frá Körfuknattleiksfélagi
Reykjavíkur og keppir hér kl. 5
e. h. í I þróttahúsinu við KA. —
Á sunnudag fara þeir austur á
Ifúsavík og keppa þar í hinu nýja
íþróttahúsi þar við lið IBA og
hefst sá leikur kl. 5.
HULD; 5960547 — IV/V — Lokaf.
Kvenfélagið Hlíf heldur fund í Pálm-
liolti fimmtudag 5. maí, kl. 9 e.h. Farið
frá Ferðaskrifstofunni kl. 8.40. Við-
komustaðir „Ilöepfner" og Sundlaugar-
húsið. Konur! Takið með ykkur kaffi.
— Stjórnin.
r
Sumaráætlun millilandatlugs F. I.
Sumaráætlun millilandaflugs
Flugfélags Islands gekk í gildi um
síðustu mánaðamót. Samkvæmt
henni fara flugvélar félagsins
fleiri ferðir milli landa en nokkru
sinni fyrr, enda er útlit með far-
þegaflutninga á vegum félagsins
gott, einkum liggja fyrir miklar
pantanir á flugleiðum milli staða
erlendis og einnig frá útlöndum til
Islands. Mun láta nærri að tala
bókaðra farþega með millilanda-
flugvélum Flugfélags íslands sé
tvöföld miðað við sama tíma í
fyrra.
Með sumaráætlun breytast brott-
farar- og komutímar millilanda-
flugvéla frá því sem var í vetrar-
áætlun, enda fara flugvélarnar nú
fram og aftur samdægurs.
Sumaráætlun millilandaflugs
Flugfélags íslands er þannig hátt-
að, að ferðum verður fjölgað í á-
föngum til 1. júlí og verða tíu
ferðir frá Reykjavík til útlanda og
tíu ferðir frá útlöndum til Reykja-
víkur í hverri viku, þegar flestar
eru. Þar af eru níu ferðir á viku
til Kaupmannahafnar, átta ferðir
til Bretlands, tvær til Osló og tvær
til Ifamborgar.
Auk áætlunarferða eru ákveðn-
ar margar leiguferðir með mik-
inn fjölda fólks, og munu þátttak-
endur í mótum lögfræðinga og
hjúkrunarkvenna sem haldin
verða hér á landi í sumar ferðast
Togararnir. I aprílmánuði hafa tog-
arar U.A. landað hér 6 sinnum: Slétt-
bakur 4. apríl 115 tonnum, Kaldbakur
7. apríl 99 tonnum, Harðbakur 11. apr.
169 tonnum, Svalbakur 13. apríl 175
tonnum, Kaldbakur 22. apríl 202 tonn-
um, Harðbakur 25. apríl 133 tonnum og
Svalbakur 27. apríl (af Selvogsbanka)
ca. 180 tonnum af þorsk og ýsu. Mest-
ur er aflinn af heimamiðum, en nokkur
af Grænlandsmiðum. Kaldbakur er á
karfaveiðum á Nýfundnalandsmiðum.
með flugvélum Flugfélags íslands.
Ekki hefir ennþá borizt svar við
umsókn Flugfélags Islands um
leyfi fyrir áætlunarflugi til Græn-
lands, og er af þeim sökum ekki
unnt að segja fyrir um, hvernig
þeim málum verður háttað á næst-
unni.
Nl^farir
I fyrradag varð það slys í
Kaupvangsstræti, að unglingspilt-
ur, Ivar Sigurjónsson, er kom á
reiðhjóli niður strætið, féll af því
í götuna sunnan við verzlunarhús
KEA og meiddist talsvert. Var
hann fluttur í sjúkrahús, þar sem
gert var að meiðslunum, en fékk
síðan að fara heim.
Síðastliðinn laugardag var
Garðar Ingjaldsson logsuðumað-
ur í Vélsm. Odda að logskera í
Skipasmíðastöð KEA. Sprungu þá
logsuðuslöngurnar, og brenndist
Garðar við það allmikið á vinstri
hendi. Gert var að sárum hans í
sjúkrahúsinu, en síðan hefir hann
verið heima frá verkum.
Heima er bezt,
4. hefti þ. á. flytur þetta efni: Sr.
Sigurður Stefánsson vígslubiskup,
e. Steindór Steindórsson, Davíð
Davíðsson frá Litla-Hamri e.
Hólmgeir Þorsteinsson, Þáttur
Jóns Andréssonar Kjerúlfs e.
Metúsalem J. Kjerúlf, Smælki um
Káin, e. Std. Steindórsson, í lundi
nýrra skóga, ritstj óragrein, Hvað
ungur nemur (þáttur Stefáns
Jónssonar), framhaldssögu Guð-
rúnar frá Lundi, niðurlag fram-
haldssögu Ingibjargar Sigurðar-
dóttur „Ast og hatur“ og upphaf
nýrrar e. sama höf. „í þjónustu
meistarans“ og ýmislegt fleira.
Forsíðumynd er af sr. Sigurði
Stefánssyni vígslubískup.
Akureyrarmóti í badminton er
nýlokið. Jón Stefánsson KA varð
BJÖRGÚLFUR
NÝTT DALVÍKURSKIP
Fyrra sunnudag kom nýtt tog-
skip af austurþýzkri gerð til Dal-
víkur, Heitir það Björgúlfur og er
eign Utgerðarfélags Dalvíkur.
Ifelgi Jakobsson, skipstjóri,
sigldi skipinu upp og verður með
það á togveiðum fram að síldar-
vertíð, en þá mun Bjarni Jóhann-
esson, áður skipstjóri á Snæfelli,
halda því á síldveiðar.
Skip þetta er 250 smálestir að
stærð, af sömu gerð og Björgvin
fyrra skip sama félags.
Dalvíkingar fögnuðu hinu nýja
skipi með viðhöfn.
SAM
GOSDRYKKIR
V A L A S H
CO-RO
APPELSÍ N
M I X
CO L A
CREAM SODA
Eínagerð Akureyrar h.f.
S í M I 148 5