Íslendingur - 29.04.1960, Síða 12
/'
Ur grendinni
Tbor Thors
verður í kjöri
Frá því hefir verið skýrt í er-
lendum stórblöðum, að öllum
sendinefndum Sameinuðu þjóð-
anna hafi verið tilkynnt í bréfi frá
utanríkisráðherra íslands, að
Thor Thors hafi gefið kost á sér
til að vera í kjöri sem forsetaefni
á næsta starfstímabili S. Þ., en
kosning forsetans fer fram í sept-
ember nk. Vitað er um tvo aðra,
sem gefið hafa kost á sér, Ira og
Tékka.
Thor Thors hefir verið aðalfull-
trúi íslands á þinguin S. Þ. allt
frá stofnun samtakanna og gegnt
formennsku og haft framsögu í
þýðingarmiklum nefndum.
í tilefni af fregninni hefir Þjóð-
viljinn ráðizt með ókvæðisorðum
að sendiherranum, og er tilefnið
auðsjáanlega það, að austantjalds-
fulltrúi verður keppinautur Thors
um forsetastarfið.
A þingi utanríkisráðherra Norð
urlandanna lýstu allir ráðherrarn-
ir yfir fylgi sínu við Thor Thors.
1. maí
hátíðahöldin
Verklýðsfélögin hér í bæ halda
I. maí hátíðlegan að venju. Hefj-
ast hátíðahöldin við Verklýðshús-
ið kl. 2 e. h., og verða ræðumenn
Jón Ingimarsson, form. fulltrúa-
ráðs verkalýðsfélaganna, Guðm.
J. Guðmundsson Reykjavík, Jón
Sigurðsson bóndi í Yztafelli og
Björn Jónsson alþingismaður. —
Síðan verður kröfuganga, og leik-
ur Lúðrasveit Akureyrar fyrir
göngunni. Barnaskemmtun verð-
ur í Samkomuhúsinu kl. 3.30 og í
Alþýðuhúsinu á sama tíma. Dans-
leikir verða í Alþýðuhúsinu bæði
laugardags- og sunnudagskvöld.
Einnig í Landsbankasalnum ann-
að kvöld (laugardag). Merki
verða seld á götunum, og rennur
hagnaður af sölunni til væntan-
legrar félagsheimilisbyggingar
verklýðsfélaganna.
Mývatnssveit.
Nokkur ís er enn á Mývatni og
talsverð dorgveiði, sem stunduð
er frá nokkrum bæjum. Vegir eru
alauðir um alla sveit og búið að
hefla þá og lagfæra.
Fyrsti erlendi gesturinn heim-
sótti hótelið í Reynihlíð um liðna
helgi, og er von á miklum ferða-
mannastraumi í sumar. Kalt hefir
verið að undanförnu og lítill gróð-
ur kominn.
Hólsfjöll.
Snjólítið er á Hólsfjöllum, en
föl hefir komið undanfarnar næt-
ur, enda kalt í veðri. Gróður er
takmarkaður enn. Þó búið að
sleppa fé á Grundarhóli og í
Möðrudal. Nokkrar ær eru born-
ar í Möðrudal, en yfirleitt hefst
ekki sauðburður fyrri en um
miðjan maí. í vetur hefir verið
einmunatíð. Farfuglarnir eru að
koma, og hafa sést bæði lóa og
grágæs. Jeppafært er úr Mývatns-
sveit í Möðrudal, og er póstur
flultur á milli vikulega. Aðeins 4
sinnum á vetrinum hefir þurft að
grípa til hesta við póstflutning-
inn. Hólssandur er þó ekki enn
fær bifreiðum.
Þórshöfn.
Snjólaust er þar í byggð, en
mikill snjór 1 Oxarfjarðarheiði.
Reytingsafli, þegar gefur á sjó, en
sífelldir stormar. Hrognkelsaafli
hefir verið með lélegra móti vegna
óstilltrar tíðar.
Ólafsfjörður.
Togbátar hafa lítinn afla lagt á
land í apríl. Ekkert hefir verið ró-
ið með línu vegna ógæfta og hand-
færaveiðar stopular af sömu á-
stæðu, nema hjá þeim, er sótt hafa
til Grímseyjar.
Nýlunda má það teljast hér, að
netjabátar úr Eyjafirði hafa lagt
hér upp um 150 lestir i apríl. Sá
fiskur hefir næstum allur verið 1.
flokks vara.
Happdrœtli Kvenjél. Hlíjar. Dregið
var á sumardaginn 1. Þessi númer hlutu
vinning: Nr. 410: Hekluúlpa. — Nr.
500: Dömupeysa. — Nr. 486: Kaffidúk-
ur. — Nr. 421: HandofiS púSaborS. —
Nr. 43: Kristalsvasi. — Nr. 148: Á-
vaxtasett. — Vinninganna ber aS vitja
til Helgu Ingimarsdóttur, Kaupvangs-
str. 23. (SmjörlíkisgerS).
Hin „hörðu" mótmæli.
Forustugrein Dags í fyrradog er
fundargerð Bændafélags Þingey-
inga, sem fundarritari sendi blöð-
um landsins fjölritaða. Fyrirsögnin
er „Hörð mótmæli", og er hún
eina framlag ritstjórans sjólfs.
Sýnishorn of „hörðu" mótmælun-
um eru meðal annars:
„Fundurinn lýsir sig ond-
vígan — —."
„Fundurinn lýsir síg mót-
fallinn-----."
„Fundurinn lýsir yfir stuðn-
ingi við----."
„Fundurinn lýsir FULLUM
STUÐNINGI sínum við —
Einhvers staðar hofa nú sést harð-
ari mótmæli!
*
Lofa ekki fyrirfram
stuðningi.
Á sama fundi Bændafélagsins
bar fnjóskdælskur bóndi (Olgeir
Lúthersson) fram tillögu um, að
fundurinn lýsti yfir „siðferðileg-
um stuðningi sínum við verkalýð-
inn, ef til verkfalls kæmi ■ kaup-
stöðum Norðurlandskjördæmis
eystra". Var tillaga hans afgreidd
með svohljóðandi rökstuddri dag-
skró með 63:7 atkvæðum:
„I tilefni af fram kominni
tiliögu um siðterðilegan stuðn-
ing við verkföll, sem fram
kunna að koma, telur fundur-
inn ekki rétt að taka afstöðu
til slikra aðgerða fyrirfram, og
tekur því fyrir næsta mól ó
dagskró."
*
Heilindi og festa!
Er Þjóðviljinn í fyrradag hcfir
fró sinu brjósti skýrt fró niður-
stöðum hafréttarróðstefnunnar í
Genf, bætir hann við: „Það fór
betur en til var stofnað, og allir
Islcndingar varpa öndinni léttar.
Og þjóðin vcit nú betur en fyrr,
hvar HEILINDI OG FESTU ER AÐ
FINNA í LANDHELGISMÁLINU
— og hvar ekki."
Hvað halda menn, að blaðið
eigi við?
ÍSLAN DSKLU KKAN
íslandsklukkan hefir nú verið sýnd 8 sinnum við góða aðsókn og
ágætar viðtökur. Næsta sýning er annað kvöld (laugardag). Þeir sem
ætla sér að sjá leikinn, ættu ekki að draga það, því að sýningum fer
nú fækkandi. — Myndin er úr bókasafni Arnas Arneusar. T.v. Arneus
(Guðmundur Magnússon), t.h. Jón Grindvíkingur (Sæmundur And-
ersen). , , ; i'Htjpl.