Íslendingur - 29.09.1961, Page 2
2
ÍSLENDINGUR
Föstudagur 29. september 1961
ÍÞRÓTTIR
Þórir Guðjónsson látinn
AKUREYRARMÓTI í FRJÁLSUM ÍÞRÓTTUM
er að mestu lokið. Þessir urðu
Akureyrarmeistarar:
100 m hlaup:
Ólafur Larsen KA . . 12,6 sek
(mótvindur)
200 m hlaup:
Ólafur Larsen KA . . 24,6 sek
400 m hlaup:
Ólafur Larsen KA . . 54,5 sek
800 m hlaup:
Sveinn Kristdórsson KA 2.26,9
1500 m hlaup:
Sveinn Kristdórsson KA 4.59,3
K.S. Norðurlandsmeist-
ari í knattspyrnu 1961
UM HELGINA síðustu fóru fram
úrslitaleikir í Norðurlands-
meistaramótinu í knattspyrnu,
þar sem 3 félög höfðu orðið jöfn
og efst að stigum, KA, KS og
Þór, eins og frá var sagt í síðasta
blaði.
Á föstudaginn s.l. kepptu KA
og Þór á heimavelli og vann Þór
með 5:1. Daginn eftir vinnur KS
KA í leik á Sigiufirði, einnig með
5:1, og á sunnudag vinnur KS
Þór, einnig í leik á Siglufirði,
með 4 mörkum gegn 2. Vann
Knattspyrnufélag Siglufjarðar
því bseði Akureyrarfélögin í úr-
slitaleik, samtals með 9 mörkum
gegn 3, og er það hin glæsilegasta
frammistaða.
Þess ber þó að geta í sambandi
við þenna sigur KS, að Akureyr-
ingar gengu ekki „heilir“ til þessa
móts, þar sem þrír af beztu mönn
um KA voru úti í Englandi
sem þátttakendur í landsleik ís-
lendinga við Breta og einn bezti
eða albezti maður Þórs veikur.
Töpuðu tveijn, eitt
Landslið okkar, sem verið hef-
ur í Bretlgndi, lék þar 3 leiki.
Fyrsta leiknum (landsleiknum)
tapaði það með 0:1 marki, sem
áður hefur verið sagt frá, öðrum
leiknum tapaði það með 0:4 en
náði jafntefli (4:4) í síðasta leikn
um. Tveir af leikmönnum urðu
eftir úti á vegum St. Mirren í
Skotlandi: Þórólfur Beck, sem
mun leika með liðinu í vetur, og
Kári Árnason, sem félagið bauð
þátttöku í knattspyrnunámskeiði,
sem þar er haldið í haust.
110 m grind:
Ingólfur Herm.son Þór 16,1 sek
(metjöfnun)
Langstökk:
Ólafur Larsen KA .... 5,89 m
Þrístökk:
Ólafur Larsen KA .. 12,55 m
Stangarstökk:
Ingólfur Herm.son Þór 3,20 m
Kúluvarp:
Eiríkur Sveinsson KA 12.19 m
Kringlukast:
Garðar Ingjaldsson KA 32,41 m
Spjótkast:
Herm. Sigtryggson KA 46,63 m
Akureyrarmót þetta er hið
15. í röðinni, en 1947 var fyrsta
Ak.mót í frjálsíþróttum haldið
og hefur verið háð árlega og
aldrei fallið niður. Tími Ingólfs
í grindahlaupinu er mjög góð-
ur og jafn Ak.meti hans sjálfs.
Árangur Ólafs Larsen í mótinu
er einnig mjög eftirtektarverð-
ur, sérstaklega tími har.s í 400
m hlaupinu, sem er afar góður
af byrjanda. Garðar og Her-
mann halda enn velli og eru þó
búnir að keppa í 12 ár í frjáls-
íþróttum.
N.k. laugardag verður keppt
í fimmtarþraut, en það er sam-
anlagður árangur í langstökki,
spjótkasti, 200 m hlaupi, kringlu
kasti og 1500 m hlaupi. Keppni
ætti að geta orðið mjög tvísýn
milli Birgis Hermannssonar, Ó1
afs Lai'sen og Ingólfs Hermanns
sonar.
Mótsstjóri er Guðmundur
Þorsteinsson íþróttakennari.
IÐGJÖLÐ HÆKKA
IÐGJÖLD til Sjúkrasamlags
Akureyrar hgekka 1. október
n.k. samkvæmt auglýsingu í
blaðinu í dag. Stafar það af
hækkun til sjúkrahúsa frá 1.
september s.l. en þá hækkuðu
daggjöldin hér á sjúkrahúsinu
um leið og til Ríkisspítalanna,
úr kr. 140.00 í kr. 160.00. Jafn-
framt hækka greiðslur til ann-
arra sjúkrahúsa frá sama tíma.
Iðgjöld samlagsins hér verða
þau sömu og í Reykjavík.
Sjúkrahúsakostur bæjarbúa
hér er miklu meiri'miðað við
mannfjölda en í Reykjavík og
auk þess ber allmikið á því að
samlagsmenn hér fá sjúkrahús-
vist þar.
SÚ FREGN barst mér sl. fimmtu
dagskvöld, 21. september, að einn
af mínum beztu vinum, Þórir
Guðjónsson málari, hefði orðið
bráðkvaddur þá um daginn aust-
ur við Sandá í Þistilfirði, en þar
vann hann í brúarflokki Þorvald
ar bróður síns við bókhald brú-
argerðarinnar og innkaup fyrir
mötuneyti hennar, svo sem hann
hafði gert nokkur undanfarin
sumur. Þótt þeim sem til þekktu,
væri kunnugt um, að Þórir gekk
ekki „heill til skógar“, sem kall-
að er, síðustu árin kom þó hið
sviplega fráfall hans flestum á ó-
vart.
Þórir var fæddur að Espihóli í
Eyjafirði 9. jan. 1899, og því 62
ára, er hann lézt. Foreldrar hans
voru hjónin Margrét Árnadóttir
og Guðjón Jónsson, en hann er
enn á lífi, kominn nokkuð á tí-
ræðisaldur.
Þórir fluttist barnungur með
foreldrum sínum að Eyvindar-
stöðum í Sölvadal og ólst upp
með þeim, unz hann tók að vinna
fyrir sér sjálfur við ýmis störf
utan heimilis. Var hann snemma
þrekmenni og eftirsóttur hey-
skaparmaður. Um tvítugt brauzt
hann „suður“ ti( að afla sér
menntunar og stundaði nám í
bændaskólanum á Hvanneyri og
Kennaraskólanum. Var eftir það
nokkra vetur við barnakennslu
en lauk jafnframt námi í málara-
iðn og stundaði húsamálningu
sem aðalstarf, meðan honum ent-
ist heilsa til. Nokkra undanfarna
vetur vai' hann samstarfsmaður
minn við íslending, og sýndi þar
þá samvizkusemi, sem einkenndi
fyrstu kynslóð þessarar aldar, en
margir ugga um, að nú fari ört
hrakandi.
Þórir Guðjónsson var mikill á-
hugamaður um félagsmál og list-
ir. Einkum var leiklistin honum
hugfólgin, og fórnaði hann henni
drjúgum hluta af tómstundum
sínum. Með Leikfélagi Akureyrar
vann hann í 30 ár og þótti einn
skemmtilegasti gamanleikari hér
um slóðir. Þá setti hann marga
leiki á svið fyrir félög og stofn-
anir hér í bæ og nágrenni og lék
stundum með í þeim sjálfur. Öðr
um tómstundum eyddi hann
gjarnan við spil eða skák, svo og
lestur góðra bóka. Hann var eft-
irsóttur samkvæmismaður, og
kom öllum í gott skap með glöðu
viðmóti og gamanyrðum, sem
honum lágu laus á tungu. Gjarnt
var honum að taka svari manna,
sem á var hallað, jafnvel þótt
hann þekkti þá lítt eða ekkert, og
umtalsbetri mann um náungann
hef ég varla þekkt.
Þórir var kominn nær fertugu,
er honum gafst hinn ógætasti
lífsförunautur, Dýrleif Sigur-
björnsdóttir frá Grímsey, sem
lifir mann sinn ásamt tveim upp-
komnum börnum þeirra: Guð-
nýju Margrétu stúdent, er var
nýfarin til Svíþjóðar til fram-
haldsnáms, er faðirinn féll frá, og
Helga Brynjar.
Eg hef þekkt Þóri Guðjónsson,
síðan ég var unglingur, verið með
honum að starfi og leik, búið
undir sama þaki og hann, setið
með honum fundi og mannfagn-
1 aði, og betri félaga hefði ég ekki
getað ákosið. Ég er þó aðeins einn
af mörgum, sem sakna þess, að
sjá hann ekki lengur á meðal
okkar.
Útför hans fer fram að Grund
í Eyjafirði á morgun. J. Ó. P.
BREYTTUR BÍÓTÍMI
BÆÐI KVIKMYNDAHÚSIN
hér í bænum munu frá 1. okt n.
k. hafa ákveðið að færa kvöld-
sýningar frám um hálfa klukku-
stund, þannig að þær hefjist nú
kl. 20.39 í stað 21.00. Hafa verið
uppi óskir um þetta síðan tími
kvöldfrétta útvarpsins var færð-
ur fram, og verður þetta vafa-
laust vinsælt.
Nýja Bíó hefur beðið blaðið að
geta þess, að það færir allar 5-
sýningar fram um hálftíma, nema
á sunnudögum. Þá verði sýnt kl.
3 og 5 síðdegis, en á laugardögum
4.30, 6.30 og 20.30 síðdegis.
Akureyri-Keflavík
AÐ FORFALLALAUSU fer hér
fram á íþróttavellinum á sunnu-
daginn knattspyrnuleikur milli
ÍBA og Keflvíkinga, og er sá
leikur liður í svonefndri bikar-
keppni.