Íslendingur - 28.09.1962, Blaðsíða 5
Nær 6 þúsund fjár á fjalli
(Framhald af bls. 1.)
ingur þeirra með tveim dilkum.
Ég get ímyndað mér, að með
veturgömlu og hrútum hafi
hópurinn numið allt að 6 þús-
undum, og gengur langmestur
hluti þess hóps á Glerárdal og
fjallinu.
— Er þetta ekki of margt fé
á ekki stærra landi?
— Jú, landið er hvorki nógu
stórt né gott, og má sjá það á
haustvigtinni. En margir taka
fé sitt strax í 1. göngum og beita
því á ræktað land, og það bjarg-
ar miklu, að flestir fjáreigendur
fóðra vel að vetrinum, svo að
féð er betur búið undir takmark-
aða sumarhaga. Hins vegar eru
alltaf einstakir menn innanum,
sem ekki ættu að fást við sauð-
fjárrækt vegna skorts á kunn-
BYGGINGAR
í BÆNUM
FRÁ byggingafulltrúa, Jóni G.
Ágústssyni, hefur blaðinu bor-
izt eftirfarandi yfirlit um bygg-
ingar í bænum um þessar
mundir: Hafin er bygging
22ja íbúðarhúsa á þessu ári.
f þessum húsum eru 30 íbúðir.
f byggingu eru nú á Akureyri
45 íbúðarhús með samtals 54 í-
búðum.
Unnið er við ýmsar stærri
byggingar félaga, svo sem Til-
raunastöð S.N.E. að Rangárvöll-
um, samkomu- og verzlunarhús
Akurs hf. við Glerárgötu,
stækkun á húsnæði Pósts og
síma við Hafnarstræti, Útvegs-
bankann og hafin er bygging
nýs bifreiðaverkstæðis við
Norðurgötu. Á lóðinni Glerár-
gata 36 byggir Kaupfélag Ey-
firðinga verzlunarhúsnæði fyrir
byggingarvörur. — Sjálfsbjörg
byggir 2. áfanga við félagsheim-
ili sitt við Hvannavelli og
Strengj asteypan hf. byggir hús
fyrir sína starfsemi.
Fataverksmiðj an Hekla hefur
tekið í notkun stórbyggingu
sína og þá hefur Veganesti hf.
reist benzínafgreiðslu. og verzl-
un við Hörgárbraut.
áttu eða umhyggju fyrir skepn-
unum.
Skiptist um Glerá.
— Það má raunar segja, að
Glerárdalur sé tvær afréttir,
segir Þórhallur, er markast af
Glerá. Hin gamla Akureyri hef-
ur Glerárdalinn austanverðan
ásamt Súlumýrum og hálsinum
hér fyrir ofan, en bújarðirnar í
Hlíðinni og Glerárhverfi vestari
hlutann ásamt Hlíðarfjalli, og
skiptast fjallskil eftir því, svo
og skilaréttir. Þær eru tvær,
hvor fyrir sinn hluta. Gamli
bæjarhlutinn hefur gömlu rétt-
ina í Glerárgili, en nýi hlutinn,
norðan Glerár, aðra rétt norðan
við ána, hér skammt fyrir ofan.
— Fer féð ekki á milli?
— Jú, það eru talsverð brögð
að því, að fé gangi á milli. Áin
er ekki það stórfljót, að hún
haldi eins og rambyggð girðing
mundi gera.
Aflögufærir um hey.
— Hafa nú sauðfjáreigendur
ráð á nægilegu heyfóðri fyrir
alla þessa hjörð?
— Já, ég geri ráð fyrir, að
enda þótt heyskapur sé líklega
með minna móti í sumar, séu
nægileg hey til. Akureyringar
hafa nefnilega löngum heyjað
meira en fyrir sjálfa sig. í fyrra
seldum við mikið af heyi út um
land, því að þá var víða tæpt
með hey, en þrátt fyrir það má
víða sjá hér fyrningar frá fyrri
árum.
— Margir fjáreigendur í bæn-
um?
— Á skýrslum hjá forða-
gæzlunni eru þeir um 150, en
þó munu þeir raunverulega
fleiri. Sumir, sem fáar kindur
eiga hafa þær á fóðrum hjá öðr-
um, sem þær eru þá taldar hjá
í skýrslum, eða fóðra í félagi
við annan.
Við kvöddum nú forðagæzlu-
manninn, en frá Sláturhúsi KEA
fengum við þær upplýsingar, að
fjáreigendur í Akureyrardeild
einni saman (innan Glerár)
hefðu beðið um slátrun á 1750
kindum í haust. J.
Þeir voru að sækja fé Húnvetninga í Staðarrétt. (Ljósmynd: St. E. Sig.)
- Staldrað
(Framhald af bls. 1.)
arrétt er ekki komið, en í því
munu vera um þrjú þúsund
fjár. Er fram yfir hádegið kem-
ur, fer fólkinu að fjölga, og ber
þá nokkuð á Sauðárkróksbúum,
einkum ungu fólki. Það á víst
ekki margt fé hér, en það kem-
ur eins og aðrir til að horfa á
réttarlífið.
Að þessu sinni er réttarveðr-
ið ekki hagstætt. Norðan storm-
ur og regnskúrir af og til. Marg-
ir af gestum réttarinnar, þeir,
sem ekki eru komnir til að sinna
réttarstörfum, sitja inni í bílum
sínum og láta fara vel um sig.
Ég hef áhuga á að finna réttar-
stjórann að máli og fer því að
spyrjast fyrir um, hver hann sé.
— Réttarstjórinn, það er
Steindór Benediktsson í Birki-
hlíð. Eftir þessar upplýsingar er
ég jafnnær, en rétt í þessu rekst
ég á gamlan kunningja, Sigurð
Jónsson bónda á Reynistað, og
hann bendir mér á, hvar Stein-
dór er að stjórna í réttinni.
Réttarstjóri í 40 ár.
Steindór hefur verið gangna-
foringi og réttarstjóri í 40 ár, og
er öllu hér mjög kunnugur.
Hann segir, að þessi rétt sé ekki
nema 10 ára, byggð hér á meln-
um á árunum 1952 og 53. Áður
við hjá Staðarrétt
var réttin við ána sunnan og
austan við Reynistað. Það var
torfrétt og mun hafa verið mjög
gömul. Kannske Reynistaða-
bræður hefðu rekið fé sitt þar
til réttar, ef þeim hefði auðnazt
að ná til byggða forðum daga?
— Réttin tekur 10—12 þúsund
fjár, segir Steinþór, — en um
þann fjölda, sem réttaður er hér
árlega hef ég ekki nákvæmar
tölur. Það fé, sem hingað kem-
ur, er að mestu leyti úr þrem
hreppum: Staðarhreppi, útparti
Seyluhrepps og hluta af Rípur-
hreppi. Þá kemur ávallt nokk-
uð fé úr Skarðshreppi og tals-
vert úr Húnavatnssýslu. Að
þessu sinni er féð hér nokkru
færra en venjulega, og stafar
það af hretinu, sem kom um
daginn. Þá kom margt fé niður,
og bændur tóku það inn í girð-
ingar og á tún.
Um vænleik dilka í ár segir
Steindór, að þeir séu mjög mis-
jafnir, en sennilega ekki lakari
en í fyrra. Gróður kom nokkuð
seint, en það hefur verið að gróa
fram á haust.
Skammt frá réttinni sitja þrír
menn í móunum og snæða feitt
kjöt og fleira, er þeir draga úr
malpokum sínum. Er ég tek þá
tali, kemur í ljós, að þetta eru
Húnvetningar, komnir hingað
til að sækja það fé, sem slæðzt
hefur í afréttir þeirra Skagfirð-
inga. Það er oft æði margt fé
að vestan, sem leitar austur yfir
fjöllin, en þó mun fleira fé
sækja úr Skagafirði véstur.
f veitingaskálanum.
Rigningin hefur nú aukizt að
mun, og ég held inn í veitinga-
skálann. Þar sitja menn við tvö
langborð og gæða sér á sjóð-
heitu kaffi. Ég stenst ekki freist-
inguna, og fæ mér einnig kaffi.
Menn ræða um ýmsa hluti við
borðið. Um fé, búskap, hesta og
kvenfólk, og sumir ráðgera að
fara á réttarballið, sem verður
í Melsgili í kvöld.
Einstaka maður sést lauma
smáglasi undan borðröndinni og
bæta úr því í kaffibollann, enda
virðist kaffið ylja sumum furðu
'vel, en kaffið gerir það nú allt-
af.
Og nú er tími minn við Stað-
arrétt á þrotum að þessu sin'ni,
því að áætlunarbíllinn fer frá
Varmahlíð kl. 5, og þá þarf ég
að vera kominn þangað. Er ég
lít yfir réttina um leið og ég fer,
sé ég, að enn hefur margt fólk
bætzt við. Það verður sennilega
margmenni um það lýkur, þrátt
fyrir storm og rigningu.
s.
Frjáls þjóð flyt
ur þá frétt ný-
, . ^lega, að Stranda
att við: menn heimti,
að Hermann
Jónasson verði í framboði fyrir
þá í næstu Alþingiskosningum
og krefjist þess jafnframt af
honum, að hann „sjái örugglega
um, að Framsóknarflokkurinn
svíki alls ekki í efnahagsbanda-
lagsmálinu“.
Oss er ekki ljóst, hvað blaðið
á hér við, meðan vér höfum
ekki fyrir hendi yfirlýsingu
Framsóknarfiokksins eða mið-
5stjórnar hans um ákveðna af-
stöðu flokksins til EBE. Hefur
h£r og þar
slík yfirlýsing verið send Þjóð-
varnarflokknum sérstaklega?
s
t sama blaði
Frjálsrar þjóð-
ar er reynt að
gefa skýringu
á því tómlæti,
er fólk sýndi labbi „hernáms-
andstæðinga“ úr Kópavogi til
Reykjavíkur nýlega og fundi, er
haldinn var á Lækjartorgi eftir
rápið. Blaðið segir:
„Víst er það rétt, að fleiri
Málið
skýrist
hefðu mátt taka þátt í þessum
aðgerðum samtakanna, og í
þetta sinn tóku miklu færri þátt
í þeim en áður. Kemur þar vafa-
laust margt til. Árstíminn er
hvergi nærri heppilegur (sumir
farnir í fjallgöngur? ath. vor),
fólki fannst líka mörgu þessi
ganga ekki eins þýðingarmikil
og hinar fyrri. ÓSAMKOMU-
LAG ÞAÐ, SEM UPP KOM í
HERBÚÐUM HERNÁMSAND-
STÆÐINGA Á SL. VORI, ER
EKKI HELDUR MEÐ ÖLLU
ÚR SÖGUNNI“ (lbr. vor).
Fjötrað
framtak!
Dagur segir frá
því með feitu
letri í vikunni
sem leið,að hið
„frjálsa fram-
tak einstaklingsins“ sé svo
„fjötrað síðustu ár“, að leitt hafi
til þeirra húsnæðisvandræða
hér á Akureyri, að fólk flýi „bæ-
inn vegna húsnæðisskorts“. —
Ekki bendir hann á dæmi til
stuðnings þessari staðhæfingu,
þó hann gefi í skyn, að þau séu
tiltæk. Hitt vita flestir, sem af
einhverjum ástæðum flytja héð-
an á aðra staði, hve erfitt er að
koma húseignum í verð.
Dagur tekur þessa firru að
vísu aftur núna í vikunni, þar
sem hann upplýsir, að í bygg-
ingu séu nú á Akureyri 45 íbúð-
arhús með 54 íbúðum. Hafi ver-
ið hafin bygging 22 íbúða með
30 íbúðum á þessu ári.
Frjálsa framtakið virðist því
ekki ganga með neinn lömunar-
sjúkdóm, enda veit hvert skóla-
barn, að núverandi ríkisstjóm
hefur ötullega unnið að því að
skera af því þær viðjar, er hafta-
stefnuflokkarnir höfðu reyrt
það í áður. Því þjóðþrifaverki
er þó hvergi nærri lokið, en
áfram mun verða haldið á þeirri
braut eftir því sem möguleikar
leyía.
T
ÍSLENDINGUR